Dagur - 23.09.1986, Page 11
23. september 1986 - DAGUR - 11
n Minning:
T Rögnvaldur Stefánsson
Fæddur15. nóv. 1918 — Dáinn 17. júní>1986
Þegar ég frétti lát vinar míns og
fyrrum nágranna um 20 ára
skeið, Rögnvaldar Stefánssonar,
að kvöldi 17. júní sl., brá mér þó
að ég vissi, að hann hefði ekki
gengið heill til skógar sl. vetur.
Þegar ferðalaginu er lokið er
óneitanlega margs að minnast þó
fjarlægðin milli okkar hafi verið
mikil síðustu 30 árin. Þá sjaldan
sem ég hitti þau hjónin, var
handtakið ætíð jafn hlýtt og bjó
yfir órofa tryggð.
Ég á nokkur bréf frá honum,
sem ég geymi í kistuhandraðan-
um, sem eru hreinustu perlur og
sýna, að hann átti gott með að
semja góð sendibréf, sem því
miður eru að verða æ sjaldséðari
nú á dögum. Hann unni góðum
bókmenntum og var stálminnug-
ur á það sem hann las, enda átti
hann gott með að læra. Hann
lauk búfræðiprófi frá Hólaskóla
með góðum vitnisburði. Um
skeið stundaði hann íþróttir og
náði m.a. góðum árangri í há-
stökki, hann var ótrúlega fjað-
urmagnaður, sem kom sér oft vel
á lífsleiðinni.
Vorið 1936 fluttust foreldrar
mínir búferlum frá Svínadal í
Kelduhverfi og niður í Þórunnar-
sel, sem er næsti bær við Syðri-
Bakka og tilheyra þeir hinum
svonefndu Sandsbæjum, vestan
megin Jökulsár á Fjöllum. Þá
bjuggu á Syðri-Bakka sæmdar-
hjónin Guðbjörg Jónsdóttir og
Stefán Jónsson, foreldrar Rögn-
valdar. Þau eignuðust sjö
mannvænleg börn, 4 syni og 3
dætur og var Rögnvaldur þriðji í
röðinni. Varð fljótt mikill sam-
gangur milli bæjanna og órofa
tryggð. Komu allir til dyranna
eins og þeir voru klæddir, án þess
að hylja nokkuð. Það voru ófá
sporin, sem lágu milli bæjanna og
mætti því segja, að grasið fékk
ekki næði til að gróa í þeirri götu.
Var Guðbjörg óspör á að seðja
svangan maga og láta þreytuna
síga úr stuttum fótum. Ætíð
mætti maður hlýju og góðvild í
garð allra og spaugsyrði flugu af
vörum, svona til að krydda tilver-
una.
Syðri-Bakki var mikið menn-
ingarheimili, sem unni góðum
bókmenntum og tónlist. Systkin-
in spiluðu meira og minna á
hljóðfæri og m.a. spiluðu bræð-
urnir fyrir dansi í sveitinni og í
nágrannabyggðarlögum. Eiga
margir ljúfar minningar frá þeim
árum. Rögnvaldur var góður
söngmaður. Minnist ég margra
góðra stunda, er þeir faðir minn
og hann tóku dúett saman. Þeir
áttu þátt í því að stofna karlakór
í sveitinni. Söngstjóri var ráðinn
Jón Sigfússon frá Halldórsstöð-
um í Reykjadal.
Best kynntist ég Rögnvaldi er
við vorum saman á vertíð í Vest-.
mannaeyjum og sumarið eftir við
vegagerð með jarðýtu, m.a. í
Öxarfirði og Mývatnsöræfum
milli Reykjahlíðar og Gríms-
staða á Fjöllum. Þá komst ég að
því, að hann unni og mat mikils
tign og fegurð íslensku öræfanna
og óspilltri náttúru með öllum
þeim fjölbreytileika, sem hún
hefir upp á að bjóða. Hann sat í
stjórn Skógræktarfélags Norð-
ur-Þingeyinga og bar skógrækt
mjög fyrir brjósti og sá í anda
langt fram í tímann þá miklu
möguleika sem trjáræktin getur
haft fyrir þjóðarbúið.
Snemma árs 1955 gekk hann
að eiga frænku mína Kristveigu
Friðgeirsdóttur frá Gilsbakka í
Öxarfirði og byggðu þau sér
nýbýli í landi tveggja eyðijarða:
Leifsstaða og Lækjardals í Öxar-
firði og nefndu býlið Leifsstaði.
Með þessu frumbýlingsfram-
taki gátu þau hjónin látið lang-
þráðan draum rætast og framtíð-
armöguleikarnir blöstu við þeim
til allra átta. Hér gátu þau lifað
eins og kóngur og drottning í ríki
sínu. Hér var um algjört landnám
að ræða. Hér sáu þau, að moldin
var frjósöm og brátt myndi
drjúpa smjör af hverju strái. Það
kostaði marga svitadropa að
vinna jarðveginn undir sáningu.
Landið var víðast kjarri og skógi
vaxið og kom það sér vel, að
hann hafði unnið um nokkurra
ára skeið á jarðýtum hjá Ræktun-
arsambandi Norður-Þingeyinga
og voru því ýmsir erfiðleikar
næstum leikur í höndunum á
honum og má segja að það hafi
verið á flestum sviðum, enda átti
hann ekki langt að sækja hagleik-
ann, því að faðir hans var algjör
dvergur í höndunum, hvort sem
um var að ræða tré eða járn og
voru ófá húsin í sveitinni, sem
hann hafði lagt gjörva hönd að.
Jafnframt ræktuninni þurfti að
byggja yfir fólk og fénað og í
sömu andránni réðst hann í að
virkja bæjarlækinn, sem veitti
ljósi og yl í öll hús. Síðar stækk-
aði hann rafstöðina, svo að hann
hafði nóg rafmagn til súgþurrk-
unar.
Þau hjónin eignuðust þrjú
mannvænleg börn. Sigurborg, f.
7. febr. 1958, Stefán Leifur, f. 17.
mars 1961 og Friðgeir, f. 5. des.
1962.
Hef ég þá trú að synirnir haldi
merki föður síns á loft og trúi á
mátt moldarinnar og láti tvö grös
vaxa, þar sem áður óx eitt.
Ég votta frænku minni og
börnum hennar mína dýpstu
samúð og bið guð alföður um
handleiðslu þeim til handa.
Páll Þór Jónsson
frá Þórunnarseli.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn að Hótel KEA, sunnudaginn 5. okt-
óber kl. 16.00.
Kosningar.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
Matar-
brauðin
okkar
eru til í fleiri tegundum
en þig grunar.
Reyndu
nýja
næsi-
Brauðgerð
Storkostlegt úrval
af frönskum og dönskum
dans- og leikfimrfatnaði
á alla aldurshópa
Vélvirkjar athugið!
Bíla- og vélaverkstæði Hjalta Sigfússonar á
Árskógsströnd vill ráða nú þegar eða sem
fyrst vélvirkja til starfa.
Möguleiki fyrir traustan mann að gerast hluthafi í
fyrirtækinu. Nánari upplýsingar veita á verkstæð-
inu á vinnutíma, Sigfús Þorsteinsson eða Haukur
Sigfússon, símar 61810 eða 61811. Heimasím-
ar, Sigfús 63151 og Haukur 63144.
Tónlistarskóli
Mývatns
óskar að ráða skólastjóra. í boði er starf við skóla
er starfað hefur 14 ár í samfélagi þar sem tónlist-
aráhugi er mikill. Starfinu fylgir nýtt einbýlishús í
Reykjahlíðarhverfi. Maki væntanlegs skólastjóra,
hafi hann tónlistarkennaramenntun, getur einnig
fengið starf við skólann. Auk starfs við skólann
kemur til greina starfsemi utan hans svo sem
kórstjórn.
Uppl. um störfin veitir undirritaður í símum
96-44263 og heima í síma 96-44158.
Sveitarstjóri Skútustaðahrepps.
Trésmiðir
Viljum ráða 1-2 trésmiði til starfa sem fyrst.
Um framtíðarstörf getur verið að ræða.
Við aðstoðum við útvegun húsnæðis. Næg vinna
framundan.
Upplýsingar gefur Hilmar í síma 95-4123.
Trésmiðjan Stígandi, Blönduósi.
Vantar nokkrar
konur til starfa
nú þegar eða seinna - Mikil vinna, bónus.
Upplýsingar hjá verkstjórum á staðnum.
K. Jónsson & Co. hf.
Niðursuðuverksmiðja.