Dagur - 20.10.1986, Síða 8
8 - DAGUR - 20. október 1986
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 46., 52. og 58. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986,
á fasteigninni Espilundi 11, Akureyri, þinglesinni eign Sigurðar
Ragnarssonar, fer fram eftir kröfu Baldvins Jónssonar hrl.,
Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni
sjálfri föstudaginn 24. október 1986, kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 13., 20. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Hrísalundur 14C, Akureyri, þinglesinni eign
Óskars V. Ingimarssonar, ferfram eftir kröfu bæjarsjóðs Akur-
eyrar og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 24.
október 1986, kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 65., 73. og 75. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Norðurgata 28, efrihæð, Akureyri, þinglesinni
eign Vilhjálms Ö. Halldórssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 24. október 1986, kl.
13.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 65., 73. og 75. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Sólvellir 19, 3. hæð til vinstri, Akureyri, þingles-
inni eign Þorsteins Jósepssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 24. október 1986, kl.
14.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 65., 73. og 75. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Strandgata 23, neðsta hæð að vestan, Akureyri,
þinglesinni eign Sjónvarpsbúðarinnar h.f. fer fram eftir kröfu
Ólafs B. Árnasonar hdl. og bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni
sjálfri föstudaginn 24. október 1986, kl. 14.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 65., 73. og 75. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Spónsgerði 5, Akureyri, þinglesinni eign Marin-
ós Jónssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. og
bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri föstudaginn 24. október
1986, kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 65., 73. og 75. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Tjarnarlundur 19j, Akureyri, þinglesinni eign
Ástmars Þorkelssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes
hrl., Ævars Guðmundssonar hdl., Svölu Thorlacíus hrl., Stef-
áns Melsted hdl., Veðdeildar Landsbanka íslands, bæjarsjóðs
Akureyrar, Ólafs Gústafssonar hrl. og Sveins Skúlasonar hdl.
á eigninni sjálfri föstudaginn 24. október 1986, kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Framsóknarmenn
Akureyri
Framsóknarfélag Akureyrar
Bæjarmálafundur
veröur mánudaginn 20. október kl. 20.00 í Eiðs-
vallagötu 6. Fulltrúar í nefndum sérstaklega
beðnir að mæta. Ath. breyttan fundartíma.
Kveðja
t Sölvi Sölvason
F. 10.06. 1957 -D. 18.09. 1986
Kveðja frá systkinuni
Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn,
Drottinn, heyr þú raust mína,
lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína.
Ég vona á Drottinn, sál mín vonar,
og hans orðs bíð ég.
Pví að hjá Drottni er miskunn
og hjá honum er gnægð lausnar.
Sálm. 130
Einhver segir: Kalla þú og ég svara:
Hvað skal ég kalla ? Allt hold er gras og
alluryndisleikurþesssem blóm vallarins.
Grasið visnar, blómin fölna,
þegar Drottinn andar á þau.
Sannlega, mennirnir eru gras.
Grasið visnar, blómin fölna, en orð Guðs
vors stendur eilíflega.
Jes. 40, 6-8.
Hinn ástkæri bróðir okkar, Sölvi
Sölvason lést fimmtudaginn 18.
september sl. þegar hann féll
útbyrðis af loðnuskipinu Þórði
Jónassyni EA 350 og drukknaði.
Við játum í hreinskilni að við eig-
um erfitt með að bera þá miklu
sorp se.m fvlair hví að hurfa að eiá
á eftir jafn ástríkum og kærleiks-
ríkum drengskaparmanni sem
bróðir okkar var.
Hann var ávallt styrk stoð í
okkar hópi og deildi með okkur
hamingjunni. Hann mun alltaf
verða við hlið okkar.
Ástin er tilfinning, sem ekki er
auðvelt að færa í búning orða.
Hún er ekki tryggð, trúnaðar-
traust eða gleði.
En hann var allt þetta. Hann
elskaði lífið fullkomlega og lifði
því vel. Þær tilfinningar sem við
bárum í brjósti til bróður okkar
má í raun og veru segja í einu
orði, ást.
Ekki ást eins og henni er svo
auðveldlega lýst í almennum
tímaritum, heldur ást, sem er
ástúð, virðing, uppörvun og
stuðningur. Vitund okkar um
þetta var ómetanlegur styrkgjafi.
Og vegna þess að raunveruleg ást
er óeigingjörn og hefur í för með
sér fórnir og gjafir, hlaut hún að
verða okkur tií góðs.
Sölvi bróðir hafði ávallt sérlega
góð áhrif á umhverfi sitt og það
var eins og hann hafi valið sér
ákveðin kjörorð í lífinu: Get ég
aðstoðað þig og hjálpað? Hann
var svo einstaklega hjálpsamur,
góðgjarn og barngóður að eftir
var tekið langt út fyrir raðir fjöl-
skyldunnar.
En við þökkum fyrir að hafa
fengið að deila með honum hinu
stutta lífsskeiði og fá að njóta
þeirrar ánægju og hamingju sem
hann færði okkur.
Sölvi Sölvason heyrir ekki
ennþá söeunni til, bví hanr. lifir
ennþá í vonum okkar og hjörtum
okkar. Það sem gerir fráfall hans
svo þungbært, er sú staðreynd,
að við dáðum hann og okkur
ótti svo innilega vænt um hann.
augum fjölskyldunnar, var hann
einna líkastur björtu leiftri í lífi
okkar, ljós, sem núna er
slokknað.
Sölvi er bróðir okkar og við
elskum hann.
Við tökum okkur í munn orð
séra Matthíasar Jochumssonar:
Aldrei er svo bjart
yfir öðlingsmanni,
að eigi geti syrt
eins sviplega ognú
og aldrei svo svart
yfir sorgarranni,
að eigi geti birt
fyrir eilífa trú.
Við biðjum góðan Guð fyrir
hann og biðjum að honum líði
vel og megi hvíla í friði.
Við vottum Ólöfu, Binnu
Möggu, Hafdísi og litlu óskírðu
dótturinni svo og móður okkar
elskulegu, einlæga samúð.
Þær hafa misst mest, en þær
eiga minningasjóð sem mölur og
ryð fá ekki grandað, fölskvalaus-
ar minningar um ástúðlegan eig-
inmann, föður og son.
Anton, Margrét, Gunnlaugur,
María, Egill, Guðfinna og
Ragna.
Stundum er dauðinn svo nálægur
þó að í hugum okkar sé hann svo
órafjarri.
Þegar sú harmafregn barst
okkur að Sölvi mágur okkar og
frændi hefði fallið útbyrðis við
vinnu sína á sjónum og
drukknað, setti okkur hljóð.
Það er svo erfitt að trúa því að
hann, sem átti svo margt ógert í
lífinu, skyldi svo skjótt í burtu
kallaður frá fjölskyldu og vinum.
Það var svo margt gott í fari
Sölva, hann var tryggur vinur,
einstaklega hjálpsamur og barn-
góður. Hann tók vel á móti
öllum, sem til hans komu og það
var gott að leita til hans. Hann
vildi öllum vel. Systkinabörnin
minnast hans sem örláts frænda,
sem var jafnt tilbúinn að gantast
við þau sem aðstoða, eða eins og
eitt þeirra sagði: „Hann var
skemmtilegur og tilbúinn að gera
allt fyrir alla.“
Elsku Sölvi, við þökkum þér
fyrir að fá að kynnast þér og eiga
með þér ánægjulegar samveru-
stundir. Þú hefur unnið þér stór-
an sess í hugum og hjörtum okk-
ar allra.
Elsku Ólöf, við sendum þér og
dætrum ykkar, svo og móður
hans, tengdamóður og systkinum
innilegustu samúðarkveðjur.
Megi minningin um góðan
dreng verða okkur öllum til
huggunar.
Far þú í friði,
friðurguðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með guði,
guð þér nú fylgi,
hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Anna, Auda, Dóra,
Árni, Konni,
Snælaugur, Guðmundur
og systkinabörn hins látna.
Þvílík harmafregn að heyra að
Sölvi hafi lent í slysi er skip hans
var að loðnuveiðum.
Það er ótrúlega erfitt að trúa
því að Sölvi Sölvason skuli ekki
vera meðal okkar lengur, Sölvi
sem alltaf var svo hress og glaður
og í blóma lífsins, nýbúinn að
eignast þriðju dótturina.
Sölvi var giftur systur minni og
mágkonu Ólöfu Ánaníasdóttur
og eiga þau þrjár dætur, Bryn-
hildi Margréti 11 ára, Hafdísi 7
ára og litlu dótturina sem fæddist
3. sept. sl.
Sölvi er sonur hjónanna Sölva
Antonssonar og Baldvinu Gunn-
laugsdóttur, föður sinn missti
hann þegar hann var aðeins 10
ára gamall.
Það var alltaf gaman að hitta
Sölva og gott að koma í heim-
sókn til þeirra hjóna enda er oft
þröngt við eldhúsborðið. Við
þökkum fyrir að hafa kynnst hon-
um og allar endurminningarnar.
Ekki ætlum við að telja upp pers-
ónueinkenni Sölva í smáatriðum
en við vitum að allir sem hann
þekktu vissu að hér var á ferðinni
mikill persónuleiki.
Að leiðarlokum erum við
þakklát fyrir þessi kynni og skilj-
um að mikill er missir eiginkonu
og dætra, og eiga þær um sárt að
binda að horfa á eftir eiginmanni
og föður.
Biðjum við Guð um styrk þeim
til handa.
Ásta og Palli.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Aðalstræti 18, Akureyri, þinglesinni eign
Guðrúnar Jósteinsdóttur o.fl. fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl, Veðdeildar Landsbanka Islands og Árna Pálsson-
ar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 24. október 1986, kl.
17.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1., 4. og 7. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á
fasteigninni Austurbyggð 9, Akureyri, þinglesinni eign Sigurð-
ar Högnasonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs
á eigninni sjálfri föstudaginn 24. október 1986, kl. 15.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 67. og 70. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Strandgata 23, (skúrbygging), Akureyri, þingles-
inni eign Þorsteins Gunnarssonar o.fl. fer fram eftir kröfu inn-
heimtumanns ríkissjóðs og bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni
sjálfri föstudginn 24. október 1986, kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.