Dagur - 15.01.1987, Síða 4
4 - DAGÚR - 15. janúar 1987
á Ijósvakanum.____________________________
Mikið er gaman að
vera kominn heim
eftir Ólaf Ormsson
Fimmtudagsleikrit Rásar I 15. janúar kl. 20.00.
Þar segir frá fertugum tannlæknishjónum sem lifa dæmigerðu lífi ungs
íslensks efnafólks. En eftir heimkomu úr skemmtiferð til útlanda kemst
konan í raun um að fjármál þeirra hjóna eru í megnustu óreiðu og smám
saman verður henni Ijóst að eiginmaður hennar hefur ýmislegt óhreint í
pokahorninu.
Leikendur eru: Sigurður Karlsson, Margrét Ákadóttir, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Jóel Pálsson, Árni Tryggvason, Helga Bernhard, Helgi
Björnsson og Kári Halldór. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. Tæknimenn:
Hreinn Valdimarsson og Óskar Ingvarsson.
Höfundurinn, Ólafur Ormsson, er fæddur árið 1943. Þetta er fyrsta
leikrit hans, en áður hafa komið út eftir hann bækurnar Fáfniskver (Ijóð
73), Skóhljóð aldanna (Ijóð 76), Stútungspungar (skáldsaga 79), Boðið
upp í dans (skáldsaga '82) og Skringilegt mannlíf (smásögur ’83).
FIMMTUDAGUR
15. janúar
20.30 Teiknimyndir.
Glæframúsin og Villi
Spæta.
21.10 íþróttir.
íþróttaþáttur í umsjá
Heimis Karlssonar. Þáttur*
inn kemur frá Stöð 2.
22.30 Bjargvætturinn.
(The Equlizer)
Robert McCall er bjarg*
vætturinn og tekur að sér
ýmis verkefni til hjálpar
náunganum.
23.15 Hitchcock.
Hér hafa stuttar sögur
meistarans gamla verið
færðar í búning kvik-
mynda.
00.00 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
15. janúar
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fróttir.
7.03 Morgunvaktin.
- Jón Baldvin Halldórsson,
Sturla Sigurjónsson og
Lára Marteinsdóttir.
Fróttir eru sagðar kl. 7.30
og 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru
lesnar kl. 7.25, 7.55 og
8.25.
Guðmundur Sæmundsson
talar um daglegt mál kl.
7.20.
9.00 *Fróttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Hanna Dóra" eftir
Stefán Jónson.
Ragnheiður Gyða Jóns-
dóttir les (9).
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar.
9.35 Lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna • Tón-
leikar.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
árum.
11.00 Fróttir.
11.03 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá • Tónleikar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar ■ Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Efri
árin.
Umsjón: Anna G. Magnús-
dóttir og Guðjón S.
Brjánsson.
14.00 Miðdegissagan:
„Menningarvitarnir" eft-
ir Fritz Leiter.
Þorsteinn Antonsson les
þýðingu sína (10).
14.30 Textasmiðjan.
Lög við texta Iðunnar
Steinsdóttur.
15.00 Fréttir • Tilkynningar
• Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Frá svæðisútvarpi Reykja-
víkur og nágrennis.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Sigurlaug M.
Jónasdóttir.
17.00 Fróttir.
17.03 Tónskóldatími.
Leifur Þórarinsson kynnir.
17.40 Torgið - Menn-
ingarmál.
Umsjón: Óðinn Jónsson.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir
Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Guðmundur
Sæmundsson flytur.
19.40 Að utan.
Fréttaþáttur um erlend
málefni.
20.00 Leikrit: „Mikið er gott
að vera kominn heim"
eftir Ólaf Ormsson.
Leikstjóri: Hallmar Sig-
urðsson.
20.45 Einsöngur í útvarps-
sal.
Sólrún Bragadóttir syngur
íslensk og erlend lög.
Jónas Ingimundarson leik-
ur með á píanó.
21.15 Samtal náttúrunnar
og íslendings.
Halldór Þorsteinsson segir
frá ítalska ljóðskáldinu
Giacomo Leopardi og les
þýðingu á þætti eftir hann
í óbundnu máh.
Lesari með Halldóri:
Andrea Oddsteinsdóttir.
21.45 Skólakór Seltjarnar-
ness syngur
íslensk og erlend lög undir
stjórn Margrétar Pálma
dóttur.
22.00 Fróttir • Dagskrá • Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Önnur saga - Chaplin
í sviðsljósinu.
Þáttur í umsjá Önnu Ólafs-
dóttur Bjömsson og Krist-
ínar Ástgeirsdóttur.
23.00 Túlkun í tónlist.
Rögnvaldur Sigurjónsson
sér um þáttinn.
24.00 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
15. janúar
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Kristjáns Sigur-
jónssonar og Sigurðar Þórs
Salvarssonar.
Meðal efnis: Tónleikar
helgarinnar, Matarhornið,
tvennir tímar á vinsælda-
listum og fjölmiðlarabb.
12.00 Hádegisútvarp
með fréttum og ljúfri tón-
list í umsjá Margrétar
Blöndal.
13.00 Hingað og þangað um
dægurheima
með Inger Önnu Aikman.
15.00 Sólarmegin.
Tómas Gunnarsson kynnir
soul- og fönktónlist. (Frá
Akureyri)
16.00 Tilbrigði.
Þáttur í umsjá Hönnu G.
Sigurðardóttur.
17.00 Hitt og þetta.
Stjórnandi: Andrea Guð-
mundsdóttir.
18.00 Hló.
20.00 Vinsældalisti Rásar
tvö.
Gunnlaugur Helgason
kynnir tíu vinsælustu lög
vikunnar.
21.00 Gestagangur
hjá Ragnheiði Davíðsdótt-
ur.
22.00 Rökkurtónar.
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00 Svifflugur.
Hákon Sigurjónsson kynn-
ir ljúfa tónlist úr ýmsum
áttum.
24.00 Dagskrárlok.
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
FIMMTUDAGUR
15. janúar
18.00-19.00 Má óg spyrja?
Umsjón: Finnur Magnús
Gunnlaugsson.
15. janúar
07.00-09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni.
Létt tónlist með morgun-
kaffinu. Sigurður lítur yfir
blöðin, og spjallar við
lilustendur og gesti.
Fróttir kl. 07.00, 08.00 og
09.00.
09.00-12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum.
Palli leikur uppáhaldslögin
ykkar, gömul og ný. Tapað
fundið, opin lína, matar-
uppskrift og sitthvað
fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00-14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur.
Fréttapakkinn, Jóhanna
og fréttamenn Bylgjunnar
fylgjast með því sem helst
er í fréttum, segja frá og
spjalla við fólk.
Flóamarkaðurinn er á
dagskrá eftir kl. 13.00.
Fróttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-17.00 Pótur Steinn ó
réttri bylgjulengd.
Pétur spilar síðdegispopp-
ið og spjallar við hlustend-
ur og tónlistarmenn. Tón-
listargagnrýnendur segja
álit sitt á nýútkomnum
plötum.
Fréttir kl. 15.00, 16.00, og
17.00.
17.00-19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykja-
vík síðdegis.
Þægileg tónlist hjá Hall-
grími, hann lítur yfir frétt-
irnar og spjallar við fólkið
sem kemur við sögu.
Fróttir kl. 18.00.
19.00-20.00 Tónlist með létt-
um takti.
20.00-21.30 Jónína Leós-
dóttir á fimmtudegi.
Jónína tekur á móti kaffi-
gestum og spilar tónlist að
þeirra smekk.
21.30-23.00 Spurningaleik-
ur Bylgjunnar.
Bjarni Ó. Guðmundsson
stýrir verðlaunagetraun
um popptónlist.
23.00-24.00 Vökulok.
Fréttatengt efni og þægi-
leg tónlist í umsjá frétta-
manna Bylgjunnar.
24.00-07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
Tónhst og upplýsmgar um
veður.
hér og þan
TomCruise
fær stjömu
Það þarf engan að undra þó
kvikmyndaleikarinn Tom
Cruise hafi fengið sína stjörnu
í götunni „Walk of fame,“ í
Hollywood. Cruise sló eftir-
minnilega í gegn í myndinni
Top Gun sem Háskólabíó
sýndi í haust. Undanfarið hef-
ur Cruise verið að leika í
myndinni „The Color of Mon-
ey,“ sem nokkuð örugglega
mun gera hann vellauðugan, ef
hann er það þá ekki fyrir. Það
eru ekki mörg ár síðan Cruise,
móðir hans og systkini lásu
ljóð hvort fyrir annað í staðinn
fyrir að gefa jólagjafir, vegna
þess að peningar voru af mjög
skornum skammti eftir að for-
eldrar hans skildu. En móðir
hans giftist aftur og Cruise lík-
ar mjög vel við stjúpföður
sinn. Á myndinni er Cruise
ásamt móður sinni og stjúpföð-
ur, en faðir hans dó árið 1983.
A
Kvenkyns Rambó
Þá hafa Kanarnir eignast sinn kvenkyns
Rambó. Þessi kvenkyns Rambó er leik-
konan Sigourney Weaver. Hun hefur leikið
í allmörgum myndum og eftir leik sinn í
Aliens myndunum tilheyrir hun hinum svo-
kölluðu kvikmyndastjörnum. Hún var nýlega
stödd á kvikmyndahátíð í Venezia og þar
fékk hún þetta Rambó nafn, auk þess sem
hún fékk sams konar kvikmyndaverðlaun og
Sylvester Stallone nýlega. Draumahlutverkið
hennar Sigourney þessa dagana er að leika
virkilega kynæsandi kvensu og hun ætti
varla að vera í vandræðum með það.
9 Fjaðrafok
Mikið fjaðrafok hefur
undanfarið verið á Dalvík
vegna þeirrar furðulegu
ákvörðunar meirihluta
bæjarstjórnar, sjálfstæð-
ismanna og allaballa, að
selja eignarhlut bæjarins í
útgerð og fiskvinnslu. Það
er reyndar ekki neitt nýtt
að allaballar hlaupi útund-
an sér á alla kanta en þó
áttu menn tæpast von á
að þeir styddu tillögu um
að selja bæjarfyrirtækin til
einkaaðila. Ekki er nema
von þó menn eigi erfitt
með að skilja hvað sé orð-
Ið af stefnu Alþýðubanda-
lagsins á Dalvík eða hver
sé munurinn milli flokk-
anna.
Þegar meirihluti bæjar-
stjórnar Dalvíkur hafði
samþykkt sölutillöguna
kom í Ijós að þeir mætu
menn höfðu ekki hugsað
til hlutafjárlaga, en sam-
kvæmt þeim eiga aðrir
hluthafar forkaupsrétt að
fölum hlutum. Vaknar þá
sú hugsun óhjákvæmi-
lega hvort þetta fólk hafi
þekkt þessi lagaákvæði
þvi þau virtust koma eins
og skrattinn úr sauðar-
leggnum. Mikil samstaða
var um það milli meiri-
hluta bæjarstjórnarmanna
að reyna að þegja málið í
hel og upplýsa ekki
minnihlutann um það fyrr
en á síðustu stundu.
# Rénandi
fylgi
í umræðum um sölutil-
löguna hefur mörgum
blöskrað meðferð meiri-
hlutans á málinu og þær
raddir hafa heyrst að fylgi
Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags á Dal-
vík hafi rénað mikið
undanfarnar vikur. Full-
trúar þessara flokka
reyndu að bjarga eigin
skinnl með því að gera
KEA tortryggilegt í grein í
Helgarpóstinum fyrir
skömmu og er val þeirra á
þeim fjölmiðli dæmigert
fyrir hugsunarhátt þeirra.
Talsverð óánægja var
með val Svanfríðar Jón-
asdóttur í annað sæti á
lista Alþýðubandalagsins
fyrir komandi alþingis-
kosningar hér í kjördæm-
inu. „Þetta voru raddir
skynseminnar en þær
voru þaggaðar niður af
öfgaöflunum í flokknum,“
sagði alþýðubandalags-
maður um daginn, en
hann er vel að merkja orð-
inn fyrrverandi alþýðu-
bandalagsmaður núna.