Dagur - 15.01.1987, Qupperneq 5
15. janúar 1987 - DAGUR - 5
heilsar
SEL2
Sel 2 heilsar nýju ári með björt-
um vonum um að þær áætlanir
sem gerðar voru, þegar ákveðið
var að hefjast handa við fram-
kvæmdir í Seli 2, á sl. ári, fái
staðist. En það var, að þessi 10
rúma hjúkrunardeild verði tilbú-
in, og geti tekið til starfa, 1. júní
n.k. Unnið er nú af fullum krafti
við bygginguna, og verður að
vona að ekkert það komi fyrir,
sem tefji framkvæmdir.
Eins og skýrt hefur verið frá,
og lesendur þekkja, er þessi
framkvæmd við Sel 2 - eins og
við Sel 1 á sínum tíma - fjár-
mögnuð með frjálsum framlög-
um alls almennings á þjónustu-
svæði fjórðungssjúkrahússins, og
raunar berast framlög víðar að
m.a. úr Framkvæmdasjóði aldr-
aðra, sem reiknað er með að fjár-
magni um helming framkvæmd-
arinnar. Og því ber að fagna að
líkt og í fyrri söfnuninni, er áhug-
inn vakandi og mjög jákvæður,
eins og söfnunarlistarnir, sem
birtir hafa verið, og sá sem hér
fylgir, bera vott um.
I byrjun desember sl. kom út
auglýsingablað, verkefninu til
styrktar og eru greiðslur á auglýs-
ingum nú sem óðast að berast. Er
sérstök ástæða til að færa öllum
þeim, er þar lögðu fram sitt lið-
sinni, og fjármagn, miklar og góð-
ar þakkir fyrir öflugan stuðning.
Svo sem nú horfir við áramót
má reikna með, að hjúkrunar-
deildin, fullbúin með öllum bún-
aði, kosti um 12 millj. kr. Um sl.
áramót höfðu safnast um 4,4
millj. þar af komu 2 millj. frá
Framkvæmdasjóði aldraðra. Á
fjárhagsáætlun þessa árs er gert
ráð fyrir 4 millj. kr. framlagi frá
Framkvæmdasjóði aldraðra,
þannig að Framkvæmdasjóður-
inn leggi fram um helming kostn-
aðar svo sem áður er getið. Hins
helmingsins, um 6 millj., verður
~að afla með frjálsum framlögum.
Um 2,4 millj. hafa þegar safnast
svo enn vantar um 3,6 millj. Leit-
að hefur verið til sveitarfélag-
anna á svæðinu og þess óskað, að.
þau legðu fram, hvert um sig,
sem svaraði 100 krónum á hvern
íbúa. Hafa nokkur þeirra þegar
brugðist við og sent sinn skerf. Eru
þeim þakkaðar góðar undirtektir
og þess vænst að önnur séu á leið-
inni. Vitað er um félagasamtök,
sem hafa fjársöfnun í gangi vegna
Sels 2, og er þess fastlega vænst
að sem flestir láti frá sér heyra,
og sendi framlög sín sem fyrst,
því byggingartíminn er stuttur,
en efni og vinnulaun þarf að
greiða jafnharðan, eftir því sem
verkinu miðar. Verum því öll
samtaka um að lyfta þessu Grett-
istaki.
Réttum hjálparhönd. Margt
smátt gerír eitt stórt.
Söfnunarlisti: Áður birt kr.
3.649.380,31.
N.N....................... 5.000,-
Gísli .................. 4.350,-
Jóhanna .................. 3.600,-
Sigríður og
Haraldur Sigurgeirs.... 3.000,-
Amameshreppur ........... 23.000,-
Soffía'Pálmadóttir ...... 10.000,-
Óskar Guðjónsson ........ 25.000,-
Bræður ....;............. 50.000.-
Sparisjóður
Höfðahverfis ............. 3.000.-
Útgerðarfél. Sjöfn,
Grenivík ................. 5.500,-
Alfreð og Ragnhildur,
Grímsey .................... 200.-
N.N....................... 1.000,-
Guðný Magnúsdóttir ... 500,-
N.N......................... 200,-
Vilborg Sigurðard...... 200.-
Guðný Magnúsdóttir ... 500.-
Dana og Brói ............... 250,-
Laufey og María ............ 250.-
Ragna Magnúsdóttir ... 500.-
Sigríður Pálsdóttir ........ 500.-
Guðrún Pálsdóttir ........ 4.000.-
Jórunn og Sigurgeir .... 5.000,-
Helga Stefánsdóttir ... ’ 500,-
Hulda og Páll ............ 5.000,-
Framkvæmdasjóður
aldraðra ............... 500.000.-
Til minningar um
Helga Tryggvason:
María Kristjánsdóttir .. 500.-
V.N......................... 100,-
N.N......................... 150,-
Helga Tryggvadóttir .... 200.-
Systur frá Garðshorni .. 500.-
Jóhanna
Valsteinsdóttir ............ 200,-
Tryggvi Valsteinsson ... 200.-
Jenný Valsteinsdóttir ... 200.-
Ragna Jónsdóttir ........... 300.-
Sigurgeir og Hulda ......... 500.-
Þórunn ..................... 200,-
Magnús Jónsson ............. 500.-
Fjölskyldan
Bjarmastíg 10 .............. 500,-
N.N....................... 1.700,-
Ragnheiður og
Gunnar ..................... 300.-
Til minningar um Ásrúnu
Sigurjónsd. hjúkrunarkonu
frá H.S................. 100.000,-
Ak....................... 10.000,-
N.N....................... 3.000,-
Árskógshreppur .......... 35.000,-
Öngulsstaðahreppur .... 40.000.-
Minningargjöf um Flosa Pétursson
frá fjölsk. Svertingsst. . 2.000.-
frá Sigurveigu
Jónsdóttur ................. 200,-
Samtals kr. 4.495.680,31
Með þökkum móttekið.
Móttökunefndin.
Þá er að undirbúa sig fyrir nýtt ár og beina athyglinni
að sjálfum sér og heilsunni. Heilsunudd sem verkar
á alla líkamsstarfsemina.
Nuddari: Steina. Próf frá R.M.I. Boulder School og
massage therapy U.S.A.
ATH: Eini nuddarinn á Akureyri með próf frá
viðurkenndum erlendum skóla, sem starfar án
tilvísunar frá lækni.
Pantið tíma í síma 22766 og 23717.
^lökunarnudd - Svæðanudd
ÍatSU, kínverskt þrýstinudd
*
Utsala hefst fimmtudaginn 15. janúar
Karlmannaföt frá kr. 6.000,00
Jakkar frá kr. 3.500,00
Buxur frá kr. 1.000,00
Skyrtur frá kr. 500,00
Peysur frá kr. 500,00
Vattstakkar frá kr. 2.850,00
Klæðskeraþjónusta.
WS4
Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.
Ath!
Útsalan
stendur aðeins
fáa daga
w
z'
Vandadarvörur
- Valið er þUt.
Kaupmannafélag
Akureyrar
4
mismunandi
gerðir
NI5SAIVI
NISSAN
Bílasýnincr
Laugardaginn 17. janúar og
sunnudaginn 18. janúar frá kl. 2-5 e.h.
báða dagana að
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar.
Komið og kynnið ykkur frábær greiðslukjör.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5a, sími (96) 22520.
Ingvar Helgason hf.
Rauðagerði.
>■" .... ..........— «■ 1 1
Það hemst til skila í Degi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^
-