Dagur - 15.01.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 15, janúar 1987
Ibúðir til sölu:
Erum að hefja sölu á 10 íbúðum í
fjölbýlishúsi við Melasíðu 6.
3ja og 4ra herbergja íbúðum fylgir bílskúrsréttur.
íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk,
sameign frágengin.
Verð þ. 11 jan. 1987. 2ja herb. kr. 1.534.000-
3ja herb. kr. 2.082.000-, 4ra herb. kr. 2.321.000,-
Draupnisgötu 7m
■fií 96-23248 - Pósthólf 535 - 602 Akureyri.
Friðjón Árnason:
iti
Innilegar þakkirfyrir auðsýnda vinsemd og virðingu við andlát
og útför,
FLOSA PÉTURSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Seli hjúkrunarheimili
aldraðra Akureyri fyrir góða umönnun.
Karlína Jóhannsdóttir,
Skúli Flosason, Þóra Sveinsdóttir,
Ingvi Flosason, Sigríður Árnadóttir,
Kristtn Heiða Skúladóttir,
Eyrún Halla Skúladóttir,
Nanna Hlín Skúladóttir,
Karlína Sigríður Ingvadóttir,
Pétur Heiðar Snæbjörnsson.
|||| Framsóknarmenn
^35? Akureyri og nágrenni
í tilefni af opnun skrifstofu flokksins að Hafnar-
stræti 90, verður þar opið hús sunnudaginn 18.
janúar kl. 15.00-18.00. Frambjóðendur B-list-
ans verða á staðnum og boðið verður upp á
kaffi og kökur.
Framsóknarmenn fjölmennið.
Skrifstofa Framsóknarflokksins
Hafnarstræti 90 sími 21180.
Opin virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Að gefnu tilefni
Hinn 12. janúar sl. birtist í Degi
grein eftir Braga Bergmann
blaðamann þar sem hann ber
ummæli höfð eftir mér úr tímarit-
inu „Við sem fljúgum“ undir þrjá
valinkunna forsvarsmenn kjöt-
vinnslna á Akureyri (einn þeirra
er reyndar líka veitingamaður). í
lok greinarinnar kemur fram
leiðrétting sem ég vil ítreka.
Staðhæfing mín við Þorgrím
Þráinsson blaðamann tímaritsins
„Við sem fljúgum" var sú að
Fiðlarinn væri eini veitingastað-
urinn á Akureyri sem hefði ein-
göngu umrædda gæðaflokka
nautakjöts á boðstólum, en ekki
að Fiðlarinn væri eini veitinga-
staðurinn sem hefði umrædda
flokka á boðstólum. Á þessu
tvennu er alger merkingarmunur.
Áður en greinin birtist í Degi
hringdi viðkomandi blaðamaður
í mig til að leyfa mér að vita af
þessu, enda sjálfsögð kurteisi þar
sem ummæli mín eru höfð eftir
þriðja aðila. í þessu símtali kom
ég á framfæri nefndri leiðrétt-
ingu. Blaðamaðurinn hafði fyrir
símtal okkar fengið fram við-
brögð viðmælenda sinna og það
væri sjálfsögð kurteisi og sann-
girni gagnvart þeim að gefa þeim
kost á að endurskoða viðbrögð
sín með tilliti til breyttrar merk-
ingar ummæla minna.
Mér er óljúft að standa í rit-
deilum við menn á síðum dag-
blaða og allra síst um kjötmál
íslenskra veitingastaða, enda við-
kvæmt mál og flókið.
Hins vegar hef ég fram að færa
athugasemdir við það sem kemur
fram hjá viðmælendum blaða-
manns í umræddri grein og tel
mér því skylt að gera það á sama
vettvangi svo öllu réttlæti sé
fullnægt.
Hjá viðmælendum blaðamanns
Dags virðist gæta ákveðins mis-
skilnings ef marka má viðbrögð
þeirra. Þó gætir helst skilnings
hjá Óla Valdimarssyni forsvars-
manni Kjötiðnaðarstöðvar KEA
þegar hann lýsir því yfir að þeir
eigi erfitt með að skaffa það hrá-
efni sem hér um ræðir.
Stefán Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóri Bautans/Smiðj-
unnar segir að ég hafi enga könn-
un gert hjá þeim eða öðrum og
að Bautinn/Smiðjan sé ekki með
síðra hráefni en Fiðlarinn. Hár-
rétt hjá Stefáni, enda hef ég
aldrei sagt að Bautinn/Smiðjan sé
með síðra hráefni en Fiðlarinn og
hvarflar ekki að mér að svo sé.
Hins vegar talaði ég í þessu
sambandi um tvo ákveðna gæðá-
Guðmundur. Valgerður. Jóhannes. Þóra.
Valdimar.
Bragi.
Egill.
Fundir B-listans
í Norðurlandskjördæmi eystra
Framsóknarflokkurinn heldur
almenna stjórnmálafundi:
Föstudaginn 16. janúar: Grenivík kl. 20.30 í Gamla skólahúsinu.
Laugardaginn 17. janúar: Dalvík kl. 16.00 í Víkurröst.
Sunnudaginn 18. janúar: Ólafsfirði kl. 21.00 í Tjarnarborg.
Fundarefni: Alþingiskosningarnar.
Frambjóðendur fíokksins mæta á fundina, halda framsöguræður og
svara fyrirspurnum.
Fundirnir eru öllum opnir.
Framsóknarflokkurinn - framtíðarafl.
ÞartaðsælSasuöuirtil
að tá almennM hraefni
flU lO CriftiAn Amason I Fiílaranum
„Fáránleg staöhæling,"
I j „auii «■ wnw i I Íjíkáti,s'•» T“<>
njúgum-, vinmlunum hér.tU þeu
son vei«ing«m.ðu í FiftUr. ^udlegt hmefn •
un •» h.nn gcti st.«* pes$i umm*h F
| ^ft. «ft F.»t-Hnn »é «*■».«£ | .
segja kjötiðnaðarmenn
Sír ™e»5uÆ5‘IX;
heldur seldu þa& *ö*llega '
um og hilíum skrokkum. °g Þ«*
frt okkm « «"*
annars staftar." sagði Oli. ■
Það er vifturkennt af fle l
SHU sr...‘Noo\
flokka nautakjöts en Stefán mis-
skilur það greinilega, enda eru
viðbrögð hans í samræmi við
það. Aftur á móti vil ég lýsa
ánægju minni yfir því að Bauta-
búrið hafi náð þeim árangri að
veitingahús fyrir sunnan sæki
þangað hráefni, nóg er sótt í hina
áttina.
Óli Valdimarsson hjá Kjötiðn-
aðarstöð KEA ræðir um uppruna
íslenskra nautgripa og flutninga
þeirra um landið. Ég er sammála
Óla í því að kjötið af nautgripum
héðan af Eyjafjarðarsvæðinu er
alls ekkert síðra en það sem kem-
ur annars staðar frá, síður en svo.
Enda kaupir Kjöt- og matvæla-
vinnsla Jónasar Þórs hf. (hér eftir
nefnd KMJÞ) nautakjöt alls stað-
ar að af landinu svo fremi sem
það falli undir þá gæðaflokka
sem hér eru til umræðu.
Það má einu gilda hvort nauta-
kjöt það sem veitingahúsin á
Akureyri bjóða er af gripum sem
í frumbernsku bauluðu á Norður-
eða Suðurlandi. Mig varðar
ekkert um það enda er ég að tala
um ákveðna gæðaflokkun afurða
þessara gripa og ekki síst vinnslu
þeirra og meðferð, sem ég tel að
sé til fyrirmyndar hjá KMJÞ með
allri virðingu fyrir öðrum.
Jakob Haraldsson hjá kjöt-
vinnslunni Hrímni segir réttilega
að KMJÞ kaupi stóran hluta af
sínu kjöti á Húsavík. KMJÞ legg-
ur sig eftir að ná í kjöt af
umræddum gæðaflokkum hvar
sem er á landinu með ærinni
fyrirhöfn enda þótt nóg framboð
sé af öðru naugripakjöti á land-
búnaðarsvæðunum kringum
Reykjavík. Jakob telur ummæli
mín „alveg út í hött“ og segist
ekki skilja hvað vaki fyrir mér.
Þetta er drengileg játning. Hann
segir Hrímni vera eingöngu með
UN-1 í nautakjöti og ekki hvarfl-
ar að mér að rengja það. Mín
ummæli voru um veitingastaði og
vék ég ekki einu orði að fram-
boði gæðaflokka kjötvinnslna.
Jakob talar um nautakjöt, en
hvað með nautgripakjöt yfirleitt?
Á þessu tvennu er merkingarmun-
ur og þar stendur einmitt hnífur-
inn í kúnni!
Ég kaupi nautakjöt af KMJÞ af
þeirri einföldu ástæðu að ég veit
að ég get treyst því að inn í þá
kjötvinnslu kemur ekki annað
nautgripakjöt en ungnautakjöt af
títtnefndum tveimur gæðaflokk-
um. Þess vegna hefur KMJÞ unn-
ið sér þá virðingu og traust á
nautakjötsmarkaðnum sem raun
ber vitni. Annars ætla ég ekki að
fara að svara einu eða neinu fyrir
KMJÞ. Húsbændur á þeim bæ
eru fyllilega færir um það sjálfir
og hafa best gert það með
stöðugum gæðum sinnar fram-
leiðslu.
Að lokum vil ég taka það fram
að ummæli mín í viðtalinu í „Við
sem fljúgum“ voru fram sett í
þeim tilgangi að undirstrika það
að við reynum að uppfylla kröfur
viðskiptavina okkar um gæði þótt
það kosti fé og fyrirhöfn og ná í
það hráefni sem við teljum þeim
samboðið.
Athugasemd blaðamanns
Vegna þess sem fram kemur hér
að ofan vil ég taka eftirfarandi
fram:
Ég hef enga grein skrifað um
þetta mál. Hins vegar er ég
höfundur fréttar sem um málið
birtist. Á þessu er talsverður
munur.
Hvað varðar mat Friðjóns á
því hvað sé sjálfsögð kurteisi,
taldi ég ekki ástæðu til að hafa
samband við viðmælendur mína
að nýju þótt Friðjón hefði komið
á framfæri leiðréttingu við grein-
ina í „Við sem fljúgum". Sú leið-
rétting breytti í engu þeirri stað-
hæfingu Friðjóns að hann þyrfti
að leita suður til þess að fá
almennilegt hráefni. Það var sú
fullyrðing sem var þungamiðjan í
svörum viðmælenda minna. BB.
Óskum eftir
þjálfara
mwiw
fyrir meistaraflokk 4 deildar liðs Árroðans
sumarið 1987.
Upplýsingar gefur Ingi í síma 24937.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
óskar að taka á leigu 2ja-4ra
herbergja íbúðir sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofustjóra í
síma 22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyrj.