Dagur - 15.01.1987, Síða 9
lþrótt:
15ÍjÍánúar,> '1$87 - DÁGttá - 9°
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Gunnar Gunnarsson verður í eldlínunni með félögum sínum í Þór annað kvöld, en KA-menn keppa við KR í
Reykjavík í kvöld. Mynd: rþb.
Þór leikur gegn Fylki
- og Völsungar fá Njarðvíkinga í heimsókn
Þórsarar fá Fylkismenn í heim-
sókn annað kvöld í 2. deildinni
í handknattleik og Njarðvík-
ingar sækja Völsunga heim í
Lauga á sama tíma, þ.e. kl. 20.
Þórsarar eru nú í þriðja sæti
deildarinnar og möguleikar liðs-
ins á því að blanda sér af alvöru
í toppbaráttu eru þó nokkrir.
Þórsarar töpuðu óvænt fyrir ÍBK
í síðasta heimaleik og það tap
gæti reynst þeim dýrkeypt þegar
upp verður staðið í vor. Liðið
vann sannfærandi sigur á ÍBV í
Eyjum um síðustu helgi og liðið
er til alls líklegt á góðum degi.
Völsungar fá Njarðvíkinga í
heimsókn. Lið UMFN er í öðru
sæti deildarinnar og virðist vera
eitt besta liðið í deildinni. Völs-
ungar eru í neðri hlutanum og á
mánudaginn tapaði liðið heima
fyrir Selfossi eftir að hafa haft
forystu lengst af. Með góðum
leik annað kvöld ættu Völsungar
að geta velgt Njarðvíkingum
undir uggum.
Knattspyrna:
Jonas til KS
Jónas Björnsson knattspyrnu-
maður úr Fram, hefur ákveðið
að ganga til liðs við KS á Siglu-
firði og leika með þeim í 2.
deildinni næsta sumar. Jónas
sem er bróðir Gústafs Björns-
sonar þjálfara KS þykir geysi-
lega efnilegur leikmaður.
Jónas er 19 ára að aldri og hóf
að leika með meistaraflokki
Fram seinni partinn í fyrrasumar
og hann lék m.a. með liðinu í
Evrópukeppninni í fyrrahaust og
stóð sig vel. Hann ætti því að
reynast Siglfirðingum góður liðs-
auki í hinni hörðu baráttu 2.
deildar.
Arnar Guðlaugsson
Völsungs.
leikmaður
íþróttir fatlaðra:
Leiðbeinendanámskeið
I febrúar mun Iþróttasamband
fatlaðra efna til tveggja leið-
beinendanámskeiða í íþróttum
fyrir fatlaða.
A-stigs leiðbeinendanámskeið:
Námskeiðið verður haldið dag-
ana 5.-8. febrúar í húsakynnum
íþróttasambands íslands í
íþróttamiðstöðinni Laugardal.
Mun námskeiðið standa yfir frá
kl. 9:00 til ca. 18:00 5.-7. febrúar
og kl. 9:00-16:00 sunnudaginn 8.
febr.
Verður þetta námskeið alls um
35 kennslustundir og kennslan
verður bæði bókleg og verkleg.
Áhersla verður lögð á að kynna
hinar ýmsu tegundir fötlunar og
hvaða möguleikar eru í boði fyrir
fatlaða til íþróttaiðkunar.
Námskeiðið er öllum opið en
íþróttakennarar, sj úkraþj álfarar
og starfsfólk á stofnunum og vist-
heimilum ásamt öðrum er áhuga
hafa eru sérstaklega hvattir til að
mæta. Námskeiðsgjald er kr.
1.800 og greiðist það í upphafi
námskeiðsins.
Körfubolti:
Tindastóll leikur
gegn UMFG og ÍR
Tindastóll leikur tvo leiki fyrir
sunnan um helgina í 1. deild
íslandsmótsins í körfuknatt-
leik. Á laugardag gegn UMFG
í Grindavík og á sunnudag
gegn toppliði ÍR í Seljaskóla.
Tindastólsliðinu hefur ekki
gengið neitt allt of vel í deildinni
það sem af er. Liðið er í næst
neðsta sæti, með 4 stig eftir 10
leiki. ÍS er í neðsta sæti deildar-
innar með 4 stig eftir 10 leiki en
iakara stigahlutfall en Tindastóll.
Það verða að öllum líkindum
þessi tvö lið sem munu berjast á
“botninum.
Tindastólsliðið getur á góðum
degi veitt hvaða liði sem er
keppni. Annar af þeim leikjum
sem liðið hefur unnið, var einmitt
gegn UMFG. Með því að sigra í
að minnsta kosti öðrum leiknum
um helgina, færðist liðið fjær
botninum og liðið myndi um leið
hjálpa Þórsliðinu í toppbaráttu
deildarinnar.
Námskeiö í vetraríþróttum:
Námskeiðið verður tvískipt.
Bóklegi hlutinn fer fram í húsa-
kynnum íþróttasambands íslands,
íþróttamiðstöðinni Laugardal 5.
og 6. febrúar kl. 19:00-22:30.
Verklegi hlutinn fer síðan fram í
Skálafelli helgina 14.-15. febrúar.
Á þessu námskeiði verður
megináherslan lögð á kennslu í
alpagreinum. M.a. verður kennd
notkun sérstaks sleða sem fatlað-
ir nota til skíðaiðkunar.
Námskeiðið er öllum opið en
skíðakennarar, íþróttakennarar,
og foreldrar og/eða systkini fatl-
aðra barna og unglinga eru sér-
staklega hvattir til að mæta.
Námskeiðsgjald er kr. 1.000 og
greiðist það í upphafi námskeiðs.
Öll kennsla er innifalin í nám-
skeiðsgjaldinu en auk námskeiðs-
gjaldsins þurfa þátttakendur að
greiða fyrir ferðir í Skálafell og
lyftugjöld.
Rétt er að benda á að þessi
námskeið eru óháð hvort öðru,
þ.e.a.s. þátttakendur geta tekið
þátt í öðru hvoru þeirra eða
báðum. Tilkynna þarf þátttöku
til íþróttasambands fatlaðra
íþróttamiðstöðinni Laugardal,
104 Reykjavík fyrir miðvikudag-
inn 28. janúar nk. Síminn á skrif-
stofu íþróttasambands fatlaðra er
91-83377 og þar er unnt að fá all-
ar nánari upplýsingar.
KR-KA í kvöld:
Tekst KA að
hefna ófaranna
úr fyrri leiknum?
í kvöld fara fram tveir leikir í
1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik og eru það síðustu
leikirnir í deildinni næsta rúma
mánuðinn. En keppni í 1. deild
liggur niðri á meðan landsliðið
tekur þátt í Eystrasaltskeppn-
inni í A.-Þýskalandi sem hefst
í næstu viku.
KA-menn halda suður á bóg-
inn og leika gegn KR í Laugar-
dalshöllinni kl. 20.15. Strax á eft-
ir þeim leik mætast Ármann og
Víkingur á sama stað. KA-menn
eiga harma að hefna úr fyrri
viðureigninni við KR sem fram
fór á Akureyri í haust. KR-ingar
unnu þá stóran sigur 22:16. KA-
liðið hefur leikið mjög vel að
undanförnu og á að vinna lið KR
á góðum degi. Hvort það tekst
skýrist í kvöld.
„Við áhangendur KA-liðsins,
krefjumst þess að þeir vinni KR-
inga í kvöld,“ sagði Gunnar bað-
vörður Níelsson í samtali við
Dag. „Strákarnir hafa staðið sig
þokkalega það sem af er og eru
næstum því góðir. Það vantar
einn snjallan leikmann í KA-liðið
til þess að það sé gott,“ sagði
Gunnar ennfremur.
Toppliðið í 1. deild Víkingur,
mætir botnliði Ármanns í kvöld
og ætti Víkingum ekki að verða
skotaskuld úr því að næla sér í
tvö stig. Ármenningar hafa ekki
sýnt það í vetur að þeir hafi neitt
í önnur lið í deildinni að gera.
Innanhússknattspyrna:
íslandsmótiö
um helgina
Keppni á íslandsmótinu í
innanhússknattspymu hefst um
helgina en þá hefst keppni í 2.
og 3. deild og í tveimur riölum
úr 4. deild. Keppni í 1. deild og
hluta 4. deildar ásamt kvenna-
deild fer fram um aðra helgi.
Leikið er í fjórum riðlum í
hverri deild og efstu liðin í
hverjum riðli flytjast upp um
deild en neðstu liðin falla um
deild. í 1. deild karla og í
kvennaflokki fer efsta liðið í
hverjum riðli í úrslitakeppni
um Islandsmeistaratitilinn.
Riðlaskiptingin lítur þannig út:
1. deild:
í A-riðli leika Grótta, Fram,
Selfoss og ÍK. í B-riðli Haukar,
Valur, ÍR og HSÞ-b. í C-riðli
KR, Víkingur, FH og KS. í D-
riðli ÍA, Fylkir, Þór Ak. og
Þróttur R.
2. deild:
í A-riðli leika Leiftur, ÍBK,
Stjarnan og Þróttur N. í B-riðli
Ármann, KA, Austri og Ein-
herji. í C-riðli Reynir S, Valur
Rf, UBK og ÍBV. í D-riðli
Neisti, Skallagrímur, UMFN og
Víðir.
3. deild:
í A-riðli leika Árvakur, Völs-
ungur, Léttir og Víkverji. í B-
riðli Bolungarvík, Hrafnkell
Freysgoði, Skotf. Rvk. og
Höttur. í C-riðli Reynir Á, Vík-
ingur Ól., Leiknir F og UMFG. í
D-riðli Vorboðinn, ÍBÍ, Sindri og
Leiknir Rvk.
4. deild:
í A-riðli leika Afturelding,
Grundarfjörður, Trausti, Stefnir,
Badmintonfélag ísafjarðar og
Æskan. í B-riðli Stokkseyri,
Hveragerði, Geislinn, Hafnir,
Efling og Magni. í C-riðli UMF
Svarfdæla, Þórsmörk, Ösp,
Höfrungur og HSS. í D-riðli
UMF Fram, Augnablik, Reynir
He, Árroðinn og Hvöt.
Kvennadeild:
í A-riðli leika UBK, KR,
Hveragerði og UMFG. í B-riðli
Valur Rvk., Þór Ak., Stjarnan
og Grundarfjörður. í C-riðli ÍA,
ÍBK, Afturelding og ÍBÍ. í D-
riðli KA, Fram, FH, KS og
Skallagrímur.
Landsmót UMFÍ:
Mikil utgafa
Landsmót UMFÍ, hið 19. í
röðinni fer fram á Húsavík
dagana 10.-12. júlí næstkom-
andi eins og margoft hefur
komið fram í fjölmiðlum.
Undirbúningur er hafínn fyrir
löngu enda að mörgu að
hyggja við framkvæmd svo
viðamikils móts. Áætlaður
fjöldi mótsgesta er um 12-15
þúsund.
Þeim fyrirtækjum og öðrum
sem hug hafa á að kaupa auglýs-
ingar í sambandi við mótið,
standa fjórir möguleikar til boða.
í fyrsta lagi í Ársriti HSÞ sem
kemur út þann 1. mars næstkom-
andi og gefið er út í 1200 eintök-
um, í öðru lagi í Mótaskrá lands-
mótsins sem kemur út 3. júlí. í
þeirri skrá er mótssvæðið kynnt,
nöfn keppenda og fjöldi keppnis-
greina auk margs annars og er
hún gefin út í 5000 eintökum. í
þriðja lagi í Leiðabók um S.-
Þingeyjarsýslu í 3 litum. Þetta
verður mjög vandað rit, með
kortum af hverju sveitarfélagi og
leiðarlýsingu kunnugra manna.
Leiðabókin verður gefin út í 7000
eintökum. Loks verða seld aug-
lýsingaspjöld á 3 staði, við leik-
vanginn, íþróttahúsið og sund-
laugina.
Þeir sem áhuga hafa á því að
nýta einhvern þessara auglýs-
ingamöguleika geta snúið sér til
Ágústs Hilmarssonar Skúta-
hrauni 16 Reykjahlíð Mývatns-
sveit.