Dagur - 15.01.1987, Síða 12
CHICOGO
Nýtt merki í snyrtivörum
gott og ódýrt
SÍMI
(96) 21400
Snyrtivörudeild
Tvö norðlensk skip seldu í gær:
Lágt verð í Bret-
landi vegna kulda
Tvö norðlensk skip seldu afla
erlendis í gærmorgun. Núpur
frá Grenivík landaði 59,3 tonn-
um í Hull og var heildarverðið
um 2,9 milljónir eða 48,05 kr.
á kíló að meðaltali. Þetta mun
vera mjög lágt verð þar sem
um var að ræða góðan línufisk.
Verð fyrir fisk í Bretlandi hef-
ur lækkað mjög að undanförnu,
og stendur lækkunin í réttu hlut-
falli við aukinn kulda. Vegna
færðar hefur gengið erfiðlega að
koma fiskinum á ntarkað.
Dalborgin frá Dalvík átti pant-
aðan löndunardag í Hull en
vegna kuldanna og hins lága
verðs sneri skipið til Boulogne í
Frakklandi þar sem það seldi afla
sinn. Þar mun verð vera mun
hærra en ekki fengust nákvæmar
upplýsingar þar um.
Afli Núps var að mestu þorsk-
ur eða tæp 53 tonn. Meðalverð
fyrir þorskinn var 44,94 kr. á
kíló. Ysa var 2,9 tonn af aflanum
og verðið var 89,77 kr. á kíló.
Afgangurinn af aflanum var
blandaður fiskur og meðalverð
fyrir hann var 61,69 kr. á kíló.
ET
Skipasmíðaverkefni úr landi:
Norðmenn vemda
eigin iðnað
- tveir samningar um norðlensk skip
frá Noregi
Þessir hressu krakkar voru að leik á Eyrarvelli þegar Ijósmyndara Dags bar að garði.
Kaupa Hagkaup og Bautabúrið húsnæði íspan?
„Erum spenntir fyrir
þessum möguleika“
- segir Sævar Hallgrímsson í Bautabúrinu
Eins og fram hefur komið hafa
Dalvíkingar gert samning um
smíði á togara við norska skipa-
smíðastöð. Tvær megin
ástæður munu vera fyrir því að
gengið var til samninga við
norsku stöðina. í fyrsta lagi er
gert ráð fyrir því í samningnum
að eldri togari gangi upp í verð
þess nýja en auk þess vega nið-
urgreiðslur norska ríkisins á
lánum til skipasmíða
þungt. Niðurgreiðslur sem
þessar tíðkast víða erlendis og í
þesu tilfelli má gera ráð fyrir
að þær lækki kaupverðið úr
rúmum 300 milljónum í 260
milljónir.
í þessu sambandi má einnig
geta þess að eigendur loðnuskips-
ins Hákonar ÞH hafa gert samn-
ing við norska skipasmíðastöð
um smíði á nýju skipi í stað þess
gamla.
Nefnd um vanda innlends
skipasmíðaiðnaðar hefur meðal
„Ég sé ekki annað en að árið
1986 muni koma býsna vel út
hjá okkur,“ sagði Sigurður
Aöalsteinsson framkvæmda-
stjóri Flugfélags Norðurlands
er við inntum hann eftir
afkomu félagsins á s.l. ári.
„Við skiluðum rúmlega 3 millj-
óna króna hagnaði árið 1985 og
ég tel víst að útkoman sl. ár verði
a.m.k. jafngóð og að öllum lík-
indum betri. Það sem gerir það
aðallega að verkum að þessi tvö
ár hafa verið okkur svo góð er að
olíuverð hefur verið hagstætt. Þá
erum við með flest okkar erlendu
annars fjallað um leiðir til þess að
mæta erlendum niðurgreiðslutil-
boðum. Meðal þess sem nefndin
lagði til var að veitt yrðu sérstök
samkeppnislán og jafnvel í ein-
stökum tilfellum vildarlán.
„Það kemur að því að menn
verða að meta það út frá þjóð-
hagslegu sjónarmiði hvprt
skynsamlegt sé að veita fé í að
bæta aðstöðu innlendra fyrir-
tækja til að standa í þessari sam-
keppni. Þar yrði þá um að ræða
niðurgreitt vinnuafl, vexti eða
hreinlega niðurgreitt hráefni.
Þetta hlýtur líka að skoðast í
ljósi viðskiptasamninga sem þess-
ar þjóðir eru aðilar að. Mér er
það mjög til efs að svona nokkuð
samrýmist þeim siðareglum sem
þar gilda. Eg legg þetta til jafns
við það að við gerðum Norð-
mönnum ókleift að selja tilteknar
vörur hér á landi, með því að
leggja á þær háa tolla,“ sagði
Hákon Hákonarson en hann á
sæti í nefndinni. ET
lán í dollurum og það hefur ekki
haft lítið að segja.“
Sigurður sagði að ekki hefðu
orðið neinar umtalsverðar breyt-
ingar á rekstrinum á s.l. ári og
ekkert slíkt væri framundan þótt
vissulega væri reksturinn í stöð-
ugri athugun. Þó hefði orðið
fjölgun á ferðum til vissra staða
eftir því sem tilefni hefði gefist
til. Aðspurður um hvort ein-
hverjar breytingar yrðu á flug-
vélakosti félagsins sagði hann að
ekkert slíkt væri ákveðið. Mitsu-
bishi vél félagsins hefur að vísu
verið á söluskrá í rúmlega eitt ár
Eins og áður hefur komið fram
hafa forráðamenn Hagkaups
' hyggju að stækka húsnæði
verslunarinnar við Norður-
götu. Tillögur um þetta eru nú
hjá Skipulagsnefnd Akureyrar-
bæjar. Ekki hefur enn verið
tekin afstaða til tilboðs Ispan
hf. um sölu á húsnæði fyrir-
tækisins en vitað er að viðræð-
en ekki gengið neitt að selja
hana. „Við höfum verkefni fyrir
þessa vél þótt þau mættu vera
fleiri á þeim leiðum þar sem hún
er hagkvæmust, þ.e. í flugi á milli
landa.“
Farþegar með Flugfélagi
Norðurlands á s.l. ári voru 20.237
og var það 6% aukning frá árinu
áður. Vöruflutningar námu 485
tonnum og var þar um 55%
aukningu að ræða sem stafar að
mestu leyti af auknum flutningum
til Grímseyjar. Póstflutningar
námu 174 tonnum og var aukning
þar 11%. gk-.
ur hafa farið fram milli for-
ráðamanna Hagkaups og
Bautabúrsins um sameiginleg
kaup á húsnæðinu.
Jón Ásbergsson framkvæmda-
stjóri Hagkaups og Sævar Hall-
grímsson framkvæmdastjóri
Bautabúrsins staðfestu þetta í
samtali við blaðið. Jón sagði að
þetta mál væri hins vegar á
algjöru frumstigi en viðræður
myndu væntanlega fara í gang
fyrir alvöru. Sævar sagði að ef af
þessu yrði þá myndi Bautabúrið
kaupa helming hússins eða 450
fermetra. „Við erum spenntir
fyrir þessu en munum þó fara
hægt í sakirnar. Þetta yrði mjög
hagkvæmt fyrir okkur þar sem
við seljum megnið af okkar fram-
leiðslu til Hagkaups,“ sagði
Sævar.
Jón Ásbergsson sagði að þeim
þætti kaupverð húss Ispan nokk-
uð hátt. Ekki fékkst uppgefið
hvert verðið væri en samkvæmt
óstaðfestum heimildum mun það
vera á bilinu 25-27 milljónir.
Jón sagði að lagðar hefðu verið
tvær tillögur fyrir skipulagsnefnd
en hugmyndin um kaup á hús-
næði íspans væri síðari tíma
viðbót. Ánnars vegar var mögu-
leiki um stækkun á lóð Hagkaups
að lóð íspan og í því tilfelli myndi
Norðurgatan lokast. Hinn mögu-
leikinn var að stækka húsið að
Norðurgötu eða um 300 fer-
metra. Að sögn Jóns myndi sú
stækkjun varla duga þar sem
stefnt er að 600 fermetra stækk-
un. ET
Sesseljubúð:
Öllu stolið
úr skýlinu
Mikil brögð eru að því að stol-
ið hafi verið búnaði úr neyðar-
skýlinu Sesseljubúð á Oxna-
dalsheiði.
Svala Halldórsdóttir formaður
Slysavarnadeildar kvenna á
Akureyri sem sér um rekstur
skýlisins, sagði í samtali við Dag
að nánast væri hægt að segja að
öllu lauslegu væri stolið úr skýl-
inu. „Það er sama hvort um er að
ræða kaffi, potta, pönnur eða
borðbúnað, það virðist sem fólk
finni hjá sér hvatir til þess að hafa
þessa hluti á brott með sér úr
skýlinu. Þá er umgengni mjög
slæm þarna og þetta er afar slæmt
eins og allir hljóta að sjá. Þetta
skýli á að nota í neyðartilfellum
og það liggur ljóst fyrir að þessi
framkoma getur boðið hættunni
heim,“ sagði Svala.
gk-.
Hagnaður af rekstri
FN á síðasta ári