Dagur - 30.01.1987, Síða 3

Dagur - 30.01.1987, Síða 3
30. janúar 1987 - DAGUR - 3 Áhrif B vítamínskorts eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson Tegundir B vítamína Einkenni á taugakerf i við skort á B vítamínum Þíamín (B,) Kjarkleysi, þunglyndi, taugalömun Ribóflavín (BP) Þunglyndi, skynvilla, vitfirring Níasín Þunglyndi, skynvilla, vitfirring Pantóþensýra Svefnlevsi.persónuleikabreytingar B6vítamín Sinnuleysi, þunglyndi, svefnleysi Fólasín Þunglyndi, rugl, minnistap B12vítamín Sinnuleysi, mænu- og taugarýrnun, dauöi Bíotín Þunglyndi, sinnuleysi, svefnleysi Eins og sjá má getur B-vítamínskortur valdiö ótrúleg- ustu einkennum á taugakerfi. Sem betur fer er alvar- leg B-vítamínvöntun úr sögunni á íslandi. En vægur skortur er sennilega algengur. Úr mjólkurmat fáum viö milli þriðjungs og sjöttungs af mikilvægustu B-víta- mínunum. Auk þess hefur kalkið, og fleiri steinefni áhrif á taugakerfið. Og hvaðan fáum við 70% kalksins? Gettu! „Eiginlegar framkvæmdir verða í lágmarki hjá okkur í ár. Undanfarin ár hefur verið unn- ið að framkvæmdum í varan- legri gatnagerð, þar sem allar skipulagðar götur í þorpinu hafa verið endurbyggðar frá grunni á skömmum tíma, til að ná fram eins mikilli hag- kvæmni og unnt er. Menn hér eru sammála um að þessi biti verði nægur fyrir ekki stærra sveitarfélag en Hofsós, í það minnsta þetta og næsta ár,“ sagði Ofeigur Gestsson sveit- arstjóri á Hofsósi. Ófeigur sagði hreppinn af þess- ari ástæðu, lítið hafa sótt í fjár- veitingar frá ríkinu fyrir þetta ár. Pó hefði fengist fjárveiting vegna uppsetningar nýrrar hafnarvogar og einnig lítils háttar fjármagn til undirbúnings viðbyggingar við grunnskólann. Vonast er til að r I j- “h - \ ' Framkvænndir i lagmarki i ar nýja hafnarvogin verði komin upp í lok vetrar í stað þeirrar gömlu sem var úrskurðuð ónýt í haust, en aðeins verður í ár íinnið að hönnum viðbyggingar við skólann. Um aðrar framkvæmdir á vegum hreppsins kvað hann varla verða að ræða, nema þá lagningu kantsteina og sagðist reikna með, að á næstu árum yrði aðaláherslan lögð á enn frekari atvinnuuppbyggingu á staðnum. Að lokum gat Ófeigur þess að allt benti til að í sumar mundi Vegagerðin vinna að brúar- og vegagerð yfir Hofsá og niður að höfninni. Sá vegur teldist til þjóðvega í þéttbýli eins og títt er með vegi að höfnum í landinu. -þá T uttugu sögur bárust - í smásagnakeppni RUVAK og MENOR Tuttugu smásögur bárust í smásagnasamkeppninni, en frestur til aö senda inn sögur rann út um áramótin. Dóm- nefndin, skipuð Einari Krist- jánssyni rithöfundi, Jóni Má Héðinssyni, menntaskóla- kennara og Hólmfríði Jóns- dóttur, bókaverði, hefur kveð- ið upp úrskurð sinn. Fyrstu verðlaun 15.000 krónur, komu í hlut Jóns Erlendssonar, sem býr á Akur- eyri. Hann hlaut einnig viður- kenningu í ljóðasamkeppninni sem Rúvak og Menor efndu til fyrr í vetur. Verðlaunasagan heitir Nótt og verður lesin í svæðisútvarpinu, í þættinum Trönum, innan skamms. Tvær aðrar smásögur hlutu viðurkenningu og verða lesnar í svæðisútvarpinu. Sagan Urður eftir Kristján G. Arngrímsson og sagan Sívalningurinn eftir Guð- mund L. Friðfinnsson, en hann býr á Egilsá í Skagafirði. Loðnukvóti aukinn Að undanförnu hafa staðið yfir mælingar á loðnugöngunni fyrir Austurlandi á vegum Hafrann- sóknastofnunar. Niðurstöður þeirra mælinga liggja nú fyrir og Íeggur Hafrannsóknastofnun til að heildarloðnukvótinn á vertíð- inni 1986/1987 verði aukinn um 100 þús. lestir. Af þessum 100 þús. lestum koma 15 þús. lestir í hlut Norðmanna samkvæmt ákvæðum samninga þar um og hefur þeim þegar verið úthlutað því magni. Ráðuneytið hefur ákveðið að 85 þús. lestum verði skipt milli íslensku loðnuskip- anna með sama hætti og gert hef- ur verið undanfarin ár. Á vertíðinni 1986/1987 koma því 1015 þús. lestir í hlut íslands, 208 þús. lestir í hlut Noregs auk þess sem Færeyingar hafa fiskað rétt um 65 þús. lestir. Heildar- kvóti vertíðarinnar 1986/1987 er því 1288 þús. lestir. Z3 C c £ c 03 T3 C Z3 o 'O E tz 'O _^T 'O E > c o > Helgi Hólm fyrrverandi landsliðsmaður og þjálfari í frjálsum íþróttum: ’Það þarf sterkar taugar í startið. Dnekktu 1111®!’* Viðbúnir.tilbúnir.bang! í viöbragðsstöðu fyrir hlaup er hver taug þanin til hins ítrasta. Þar ræöur styrkur, jafnvægi og öryggi úrslitum. Helgi Hólm íþróttakennari og þjálfari veit lengra nefi sínu um taugamar í startinu - og hvemig mjólk getur aukið andlegt og líkamlegt þrek. Það þarf sterkar taugar í fleira en íþróttir. Yfirvegun og andleg vellíöan skiptir alla máli og rannsóknir sýna að mataræði hefur ævinlega mikil áhrif á skaphöfn og geö. Að minnsta kosti 20 bætiefni, - vítamín, steinefni og aminósýrur - hafa margslungin áhrif á andlega líöan og skortur á þessum efnum bitnar oft fyrst á taugakerfinu. Mjólk er ein besta uppspretta bætiefna í daglegu fæði okkar. Úr mjólkurmat fáum við á milli þriðjungs og sjöttungs af mikilvægustu B-vítamínum auk kalks og steinefna sem hafa mikil áhrif á taugakerfið. Þess vegna er mjólk góö fyrir svefninn - og á morgnana - og um miðjan daginn! MJÓLKURDAGSNEFND Aðalsteinn Bernharðsson, margfaldur ísiandsmeistari og landsliðsmaður i frjálsum íþróttum, drekkur mikið af mjólk. Þannig styrkir hann taugar og bein og rennir styrkum stoðum undir afrek sín á hlaupabrautinni.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.