Dagur - 30.01.1987, Blaðsíða 13
3Q(.janúar498,7^ DAGUR-r-13-
Jakob
T ryggvason
áttræður
Jakob Tryggvason, fyrrum org-
anisti við Akureyrarkirkju, verð-
ur 80 ára laugardaginn 31. janú-
ar. Hann tekur á móti gestum á
Hótel Varðborg milli kl. 15.00 og
18.00 þann dag.
Þorrablót
Hið árlega þorrablót Öxndælinga verður
haldið í Hlíðarbæ föstudaginn 6. febrúar
og hefst stundvíslega kl. 21.00.
Öxndælingar búsettir og burtfluttir eru hvattir til
að mæta og talfa með sér gesti.
Miðapantanir í síma 26829 í síðasta lagi
þriðjudaginn 3. febrúar.
Nefndin.
Rafveita Akureyrar vill
ráða bifreiðastjóra
með meirapróf. Æskilegt er að viðkomandi
hafi einnig réttindi sem þungavinnuvélstjóri.
Upplýsingar um starfið veitir rafveitustjóri.
Rafveita Akureyrar.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 130., 133. og 135. tbl. Lögbirtingablaðsins
1986 á fasteigninni Mið-Samtún, Glæsibæjarhreppi, þingles-
inni eign Inga Guðlaugssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Stofn-
lánadeildar landbúnaðarins, bæjarsjóðs Akureyrar og Gunn-
ars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 4. febrúar
1987, kl. 16.00.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sandskeiði 20, neðri hæð, (Baldurshagi),
Dalvík, þinglesinni eign Jónu Vignisdóttur, fer fram eftir kröfu
Ásmundar S. Jóhannssonar hdl. og Gunnars Sólnes hrl. á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 4. febreúar 1987, kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
AUt að 50% afsláttnr
Útsölunní lýkur
miðvikudaginn 4. febrúar
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 13., 20. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Hafnarbraut 21 b, Dalvík, þinglesinni eign Bergs
Höskuldssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs
og Brunabótafélags íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 4.
febrúar 1987, kl. 14.15.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
iti
Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar, afa og son,
SIGURÐ LÚÐVÍK ÞORGEIRSSON,
stýrimann,
Grenilundi 3, Akureyri,
sem fórst með m/s Suðurlandi 24. desember sl. fer fram frá
Akureyrarkirkju, laugardaginn 31. janúar kl. 13.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hans er bent á Slysavarnafélag íslands.
Fyrir hönd vandamanna.
Kristín Huld Harðardóttir.
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKI'RTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1984-1. fl. A 01.02.87-31.07.87 kr. 217,56
*lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextirog verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu
Seölabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggjaþarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, janúar 1987
SEÐLABANKIÍSLANDS
Tóta skrifar
Elsku besti bróðir!
Mikið er nú yndislegt að lifa. Ég held
bara að ég muni kunna ágætlega við
mig hér á Akureyri. Það er svo fallégt
hér, fjöllin, fjörðurinn og bara bókstaf-
lega allt. Bærinn sjálfur er nú ekki stór,
en fallegur. Það besta er að miðbærinn
er svo lítill og allt er á sama stað. Það
gerir allt svo fljótlegt. T.d. var ég einn
föstudaginn búin að gera lista yfir „allt“
sem ég þyrfti að gera í bænum, og ætl-
aði mér svona hálfan dag í það eins og
normalt telst í Reykjavíkinni á föstu-
degi. Þetta er nú nokkuð sem mór
finnst ekki par leiðinlegt, þ.e. að fara í
bæinn, svo ég hlakkaði bara til, gott
veður var og ég í fínu skapi. En veistu
hvað? Ég var komin heim eftir hálf-
tíma, búin að öllu. Allt á sama stað.
Þetta skapar reyndar skemmtilega
bæjarstemmningu. Fólk leyfir sér að
eyða tíma í að spjalla við kunningja
sem það hittir, öll mannleg samskipti
verða rólegri og stresslaus.
Svo er það næturlífið. Mér skilst á
fólki hér að það hafi breyst til batnaðar
og að von sé jafnvel á „betrun" eftir að
Laufdal keypti Sjallann. Frægir
skemmtikraftar munu koma og
Þórsararnir eru nú meiri
KR-ingarnir,
kolvitlausir skaphundar
skemmta í miðri viku, en það er önnur
saga.
En best ég byrji aðeins fyrr á kvöld-
inu, nefnilega ef maður ætlar út að
borða. Þartil á síðasta ári rfkti hálfgerð
einokun hér á „kósí“ matsölustöðum.
Þaö var nefnilega bara um einn stað
að ræða fyrir utan KEA auðvitað, en
það var Smiðjan. Fólk hér sem eitt-
hvað gerir af að fara út að borða, kann
orðið matseðilinn utanað. Það hefur
því verið vandalítið fyrir „nýbúa" eins
og mig að vilja tryggja sig fyrir að fá
góðan mat þar. Bara skrapa saman
atkvæðum hjá nokkrum góðkunningj-
um staðarins og velja þann rétt sem
flest atkvæði hlýtur. En viti menn, nýj-
um stað, nokkurs konar mini-útgáfu af
Grillinu á Hótel Sögu skaut upp á
árinu, nefnilega Fiðlaranum. Smiðjan
sem sagt komin með keppinaut, og
heimamenn í Hafnarstrætinu brjóta nú
heilann um hvernig „taktik" skuli beita
við jafn hættulegri sókn. „Tækklun"
dugir víst skammt á þessum vígstöðv-
um eða hvað? Ekki var svo Laufdal
lengi að leggja hald á Hótel Akureyri,
og skella upp einhvers konar skyndi-
bitastaö sem eflaust ógnar Bautanum,
sem er víst hálfbróðir Smiðjunnar.
Svo er það Sjallinn maður. Ég auð-
vitað fór eina helgina eftir að Laufdal
tók við. Mér heyrðist vera ofsa fjör. Að
vísu sá ég nú ekki mikið og gat ekki
talið hæöirnar, því ég var föst í stigan-
Öll mannleg samskipti
verða rólegri
og stresslaus
um milli hæða í tvo tíma vegna mann-
mergðar. Og hvað gerði ég næstu
helgi, jú fór á KEA. Það var ágætt inn-
an um gamla fólkið, umvafin foreldra-
kærleik en ég virtist vekja þessa tilfinn-
ingu hjá ailmörgum. Svona í heildina
fannst mér dálítið (Hótel)Sögulegt
þarna.
Annað hef ég líka heyrt, nefnilega
að hér sé ágæt leikhúsmenning, en ég
á nú eftir að láta reyna á það. Svo er
nú ekki verra að hér blómstrar íþrótta-
líf, tvö félög eru stærst, KA og Þór. Það
er hörkufjör á leikjum því Þórsararnir
eru nú meiri KR-ingarnir, kolvitlausir
skaphundar. Það verður örugglega fjör
í sumar, slagsmál og læti.
Bless f bili, Tóta.