Dagur - 30.01.1987, Síða 5

Dagur - 30.01.1987, Síða 5
30V'jánúarl 987- ÐAGDfi1 - 5 „Langaði að takast á við mörg ólík hlutverk" - Inga Hildur Haraldsdóttir, leikkona á línunni — Inga Hildur Haraldsdóttir, leikkona, er bún á línunni? - Jú, það er hún. - Komdu sæl og blessuð, Helga heiti ég og er blaðamaður á Degi. - Blessuð. - Nú ert þú búin að dvelja á Akureyri og leika með LA síðan íhaust, hverniglíkarþér vistin? - Jú, mér líður bara ágæt- lega. Það er ágætt að vera á Akureyri í stuttan tíma, mér finnst auðvitað heldur lítið um að vera miðað við Reykjavík. En ég kvarta ekkert því ég hef haft nóg að gera. - Hvernig datt þér í hug að fara út á land, eins og sagt er? - Mér fannst spennandi að hafa næg verkefni að glíma við og það bauðst mér hér með LA. Það er erfiðara að fá verkefni í Reykjavík. Flestir ungu leikar- arnir eru lausráðnir hjá leikhús- unum eða þeir vinna við eitt- hvað tengt leikhúsi. Ég vissi að ég yrði a.m.k. í fjórum verkefn- um og ég hafði áhuga á að takast á við mörg ólík verkefni. - Hefurðu alltaf haft áhuga á leiklist? - Nei, ég get nú ekki sagt það. Áhuginn kviknaði ekki fyr- ir alvöru fyrr en eftir stúdents- próf og ég kom ekkert nálægt leiklistinni í menntaskóla. Eg lenti fyrir tilviljun á námskeiði hjá Helga Skúlasyni og þá kviknaði áhuginn, en ég hef allt- af farið mikið í leikhús frá því ég var krakki. - Pú sérð væntanlega ekki eftir því að hafa lagt þetta fyrir þig? - Nei, ég held að ég muni aldrei sjá eftir því. Þetta nám er mjög fjölbreytt og þroskandi og ég hafði mjög gott af því, hvort sem mér gengur vel ; framtíð- inni eða ekki. Mér finnst þetta nám nýtast mér vel í lífinu. - Mér skilst að þetta sé mjög erfitt nám. - Já, þetta er heilmikill skóli og strangur. Þarna er maður í fjögur ár og gerir ekkert annað á meðan. Við vorum frá 8 á morgnana og yfirleitt langt fram á kvöld. - Nú sýndi Nemendaleikhús- ið Rauðhærða riddarann meðan þú varst í skólanum, hvernig er að leika aftur í sama verkinu? - Það er svolítið skrítið og erfitt að mörgu leyti, því það er svo stutt síðan ég lék með Nemendaleikhúsinu. Mér finnst hlutverkið hins vegar mjög spennandi, en það var erfitt því ég ætlaði mér ekki að koma á sviðið og rifja bara upp og endurtaka mig. - Nú hef ég lesið leikdóma um Rauðhærða riddarann, þar sem þú færð góða dóma fyrir leik þinn. Taka leikarar mikið mark á leikdómum? - Nei, það held ég að þeir geri yfirleitt ekki. Ég var voða spennt fyrir dómunum þegar ég lék í fyrsta skipti og mér fannst það skipta miklu máli þá, en núna skipta þeir mig engu máli. Mér finnst gagnrýnin í dag mjög oft vera þannig að gagnrýnand- inn leggur megin áherslu á að rekja söguþráðinn og umfjöllun um vinnu leikaranna, leikstjór- ans, leikmyndateiknarans og þeirra sem hafa unnið að sýning- unni er mjög lítil. - Getur það stafað af þekk- ingarskorti? - Já, tvímælalaust. Það er staðreynd að gagnrýnendur tengjast leikhúsi yfirleitt lítið. Maður verður bara að koma sér upp mælikvarða á það sem mað- ur er að gera og vera sinn eigin dómari. Ég spyr líka fólk álits sem ég tel að hafi vit á hlutun- um. Mér finnst gagnrýnendur oft miskunnarlausir í dómum, en ég held að það verði erfitt að breyta þessum hlutum nema gagnrýnendur verði meira tengdir leikhúsinu. - En ef við snúum okkur að öðrum hlutum. Undanfarin ár hefur mikið verið rætt um fá kvenhlutverk í leikrítum. Hefur þú fundið fyrir þessu, er erfiðara fyrir kvenleikara að fá hlutverk? - Já, þetta er staðreynd. Hingað til hafa flest leikrit verið skrifuð af karlmönnum og fyrir karlmenn. Það er miklu erfiðara fyrir konur að fá hlutverk og ég finn fyrir því eins og aðrir kven- leikarar. En atvinnumöguleikar eru alltaf að aukast og ég man ekki eftir að það hafi verið eins mikið um að vera í leiklist og í vetur, sérstaklega í Reykjavík. Samt eru ný verk á fjölunum fyrir sunnan, Uppreisnin á ísa- firði og Land míns föður og í þeim verkum eru um 80% hlut- verka fyrir karlmenn. Flestir ungu karlleikararnir hafa eitt- hvað að gera, en það hefur verið miklu erfiðara fyrir stelpurnar, því miður. - En að lokum Inga Hildur, hvað tekur við þegar dvölinni á Akureyri lýkur? - Ég fer til Reykjavíkur, en það er allt óráðið hvað ég geri og þannig er leikaralífið. En það er hlutur sem ég gerði mér grein fyrir þegar ég fór út í þetta nám. Ég legg hausinn í bleyti og finn mér eitthvað að gera, það er engin hætta á öðru. - Það er nefnilega það, ég þakka þér kærlega fyrir spjallið, Inga Hildur og vertu blessuð. - Þakka þér sömuleiðis, bless. -HJS ,#v LYFTARAR Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfaerslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft- ara. Varahluta- og viðgerðaþjónusta. Líttu inn - við gerum þér tilboð. Tökum lyftara í umboössölu. LYFTARASALAN HF. _______________| Vatnagörðum 16. Símar 82770 og 82655. Tii sölu flugfiskur 22 fet með Mercruser 145 turbo. Selst með eða án búnaðar. Upplýsingar í síma 96-61806 eftir kl. 19.00. FjölskyIdutiIboð á Súlnabergi sunnudaginn 1. febrúar. Rósakálssúpa. London lamb m/sykurbrúnuðum kartöflum og sveppasósu. Verð aðeins kr. 420.- Frítt fyrir börn að 6 ára aldri. Hálft verð fyrir börn frá 6-12 ára. Minnum einnig á okkar frábæra þormmat Hver skammtur inniheldur: Hangikjöt - heitan uppstúf - nýtt kjöt - heitar kartöflur - saltkjöt heita rófustöppu - súra sviðasultu - súran hval - súr eistu - súrt pressað kjöt (lundabaggi) - hákarl - harðfisk - flatbrauð - laufabrauð - smjör. • Dansleikur laugardagskvöld 31. jan. Krístján Guðmundsson leikur fyrir matargesti. Hin þrælfjöruga hljómsveit Árbandið frá Blönduósi leikur fyrir dansi. Uppselt fyrir matargesti. Afsöl og sölutilkynningar Afsöl og sölutilkynningar vegna bílaviðskipta ______________a atgreiöslu Dags.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.