Dagur - 30.01.1987, Blaðsíða 9
30. janúar 1987 - DAGUR - 9
irðarsson í helgarviðtali
Mynd: RPB
Smári ■ kunnuglegu umhverfi - á drátt-
arvél í hlaðinu við golfskálann.
Mynd: RÞB
Og svona var þetta á fleiri vígstöðvum. Ég var byrj-
aður í golfinu um 1980, var í bridge einu sinni í viku og
allt var þetta gert á þann hátt að vonlaust var að ná
árangri. Ég var einu sinni spurður að því þegar ég fór
í skíðamót hjá Slippstöðinni hvort ég hefði ekki verið
mikið á skíðum. Pað hafði ég verið þegar ég var smá-
polli en ég gat ekki svarað þessari spurningu öðruvísi
en að síðustu árin hafi ég verið í svo tímafrekri íþrótt
sem drykkjan var að ég hefði ekki getað sinnt skíðun-
um.
Það kom reyndar ekki til af góðu að til mín var leit-
að um að fara að starfa fyrir handboltadeildina í Þór.
Um það hafði verið rætt sl. haust að leggja deildina
niður vegna þess að enginn fékkst til að starfa og rekst-
urinn hafði verið erfiður undanfarin ár. Síðasta vetur
ráku leikmenn meistaraflokks deildina sjálfir í samráði
við aðalstjórn félagsins og svoleiðis gat þetta auðvitað
ekki gengið.
Strákarnir komu til mín og báðu mig um að koma í
stjórn og ég sagði já án þess að velta málinu fyrir mér.
Reyndar má segja að ég hafi ekki vitað hvað ég var að
fara út í, en svona er maður gerður og ég var á kafi í
verkefnum uppi á golfvelli þegar þetta kom upp á. En
þetta hefur allt gengið vel, stjórnin er skipuð 10 mönn-
um og ég með mína frekju fæ að fara svolítið mínu
fram þótt samstjórnarmenn mínir séu ekkert að lúffa
neitt. Ég hef verið að heyra það utan að mér að ég geri
nánast alla hluti í stjórninni á deildinni en það er hinn
mesti misskilningur, hver maður hefur sitt verk að
vinna og allir leggjast á eitt.
Deildin stendur orðið mjög vel og við höfum verið
óhræddir að keyra á það að gera hlutina. Það þarf
endilega að koma fram ef hægt er að móttökur hjá
þeim fyrirtækjum sem við höfum leitað til hafa verið
með ólíkindum góðar og fyrir það er maður að sjálf-
sögðu mjög þakklátur. Þórsliðið stendur að mínu mati
á tímamótum í dag, við erum nú með harðan kjarna af
ungum strákum sem eru tilbúnir að leggja mikið á sig
og að baki þeim stendur frábær þjálfari sem við gerð-
um við þriggja ára samning. Framtíðin er því björt hjá
Þór.“
Að sanna eitthvað
Eins og minnst var á hér að framan hefur Smári starfað
á golfvellinum á Akureyri í tæplega eitt ár. Áður en
hann var ráðinn til starfa þar hafði hann þó reynst betri
en enginn þegar taka þurfti til hendinni við hin ýmsu
verkefni. Enn minnast menn t.d. þess er unnið var við
lokaáfanga nýja skálans, þá má segja að Smári hafi
flutt búferlum upp á Jaðar. Öll kvöld og allar helgar
var hann þar að störfum og skilaði hundruðum tíma í
sjálfboðavinnu.
„Auðvitað var maður að reyna að sanna eitthvað
með þessu en ætli maður hafi ekki oft verið óánægður
með sjálfan sig þótt það sæist ekki á yfirborðinu. Ég
held að þetta hafi verið svona bland af áhuga og felu-
leik. Þarna gat ég verið öllum stundum án þess að
þurfa að hafa nokkrar áhyggjur.
Þegar ég var hins vegar ráðinn til starfa á völlinn sl.
vor var ég geysilega þakklátur, mér var sýnt traust sem
ég átti ekki skilið. Menn vissu hins vegar að ég hafði
gefið brennivíninu frí og auðvitað hefur það haft sitt
að segja.“
- Nú vakti það athygli manna að þú lést þér ekki
nægja að vinna þarna venjulegan vinnudag, það var
unnið frá því snemma á morgnana og oft fram á næstu
nótt.
„Já, ég fór nokkuð geyst í þetta, enda vildi ég sýna
að ég væri traustsins verður. Nú er þetta hreinn og
beinn áhugi en ekki nein sýndarmennska til þess að fá
hrós fyrir eins og áður. Það er ákaflega gaman að tak-
ast á við það uppbyggingarstarf sem er unnið á golf-
vellinum, það hefur aldrei áður verið lagt jafn mikið af
peningum í völlinn og ég fæ allan þann stuðning í þessu
starfi sem ég þarf á að halda.“
„Var alltaf fullur“
- Víkjum aðeins að öðru. Hvernig ganga hjá þér ýms-
ir hlutir sem ungir ólofaðir menn gera gjarnan mikið
af, eins og t.d. ballferðir?
„Manni er tjáð það í meðferðinni að fara varlega í
þá hluti og það ekki fyrr en nú upp á síðkastið að ég
finn mig á þessum vettvangi, finn að ég get farið á böll
eins og ekkert sé. Hér áður fyrr var maður auðvitað
alltaf fullur á þessum stöðum og sofnaði hér og þar
þegar minnst varði. Nú fer ég með því hugarfari að
skemmta mér og fá eitthvað út úr þessu. Mér finnst
gaman að dansa og ég sætti mig við það að ég þarf að
sleppa víninu. Ég vildi fara í meðferð til þess að geta
að henni lokinni tekist á við lífið en ekki til að loka mig
af. Ef mér leiðist á böllum, þá er það bara ég sjálfur
sem er leiðinlegur.
Ég hef verið alveg laus við löngun í áfengi og er að
vinna í mínum málum. Ég geri mér þó fullkomlega
grein fyrir því að ég er kominn skammt á veg og verð
að horfa fram á veginn. Það er gott að nota þá reynslu
sem maður hefur til þess að minna sig á og ef ég á eftir
að verða enn ánægðari með lífið þá sé ég ekki eftir ein-
um einasía degi í ruglinu hér áður fyrr. Ég fékk tæki-
færi sem ég er ekki viss um að ég fái aftur og ég vil nota
þetta tækifæri eins vel og hægt er.“ gk-.
Smári Garðarrson: „Geysileg breyting á mínu lífí.“