Dagur - 05.02.1987, Qupperneq 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarn w
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Steinullarverksmiðjan:
Hestahvarfið dularfulla:
Leit hefur engan
árangur borið
Ekki hafa hrossin sjö sem
hurfu sporlaust 10. janúar
komið í leitirnar ennþá. Póst-
flutningamaður kom þó auga á
7 hesta á brúnni yfir Hölkná í
Þistilfirði fyrir skömmu og hafi
þetta verið hestarnir frá Þverá
í Öxarfirði á ferð, hafa þeir
Játaði 7
r
Tvítugur Akureyringur hefur
játað að vera valdur að 7
íkveikjum í bænum og hefur
hann verið dæmdur í gæslu-
varðhald til 2. mars og að
sæta geðrannsókn.
Maðurinn var handtekinn sl.
mánudag grunaður um íkveikj-
ur, og játaði hann við yfir-
heyrslur. Sem fyrr sagði er um
að ræða íkveikjur á 7 stöðum í
bænum og nær tímabilið sem
þær áttu sér stað á frá mars 1986
til síðustu helgar.
íkveikjurnar voru í Hjalla-
lundi 17 en þar var kveikt í
geymslu fjölbýlishúss, Geisla-
götu 10 en þar var kveikt í rusli
í kompu, að Eyrarvegi 18
kveikti hann í bílskúr og sömu
nótt í bifreiðinni A-1216 þar
skammt frá. Hann kveikti í skúr
á bak við Bókaverslunina Huld
í Hafnarstræti, kyndiherbergi
hússins númer 7 við Skipagötu
og í rusli í kompu við Hafnar-
stræti 88. Maður þessi hefur
áður komið við sögu hjá lög-
reglunni en þá fyrir annars kon-
ar afbrot. gk-.
ferðast langan veg. Ýmsir hafa
svipast um eftir hestunum í
Þistilfírði en að sögn Kristjáns
Benediktssonar á Þverá hefur
sú leit ekki borið árangur.
„Ef þeir eru í Þistilfirði þá hafa
þeir farið yfir langa heiði og fram
hjá mörgum bæjum. Þeir hafa
þurft að fara veginn til að komast
yfir árnar og því er merkilegt að
enginn hafi orðið þeirra var svo
öruggt megi teljast. Ýmsir eru
þeirrar skoðunar að hestarnir
hafi verið teknir en ég tel það
varla mögulegt," sagði Kristján
Benediktsson.
Hestarnir hurfu á brott 10.
janúar eins og áður segir og sagði
Kristján að hann væri farið að
lengja eftir þeim og vonaði að
menn gerðu allt til að finna þá.
„Annað hvort dauða eða lifandi
því betra er að finna þá dauða en
ekki,“ sagði Kristján. SS
Bæjarstjórn Sauðárkróks sam-
þykkti á fundi sínum á þriðju-
dag að standa að 37,03% fyrir-
hugaðrar hlutafjáraukningar í
Steinullarverksmiðjunni eða
22,218 milljónum króna, enda
náist sá árangur við lánar-
drottna og/eða hluthafa sem að
er stefnt. Akvað fundurinn að
þegar yrði leitað lánsfjár til
þess arna. Þessi ákvörðun
bæjarstjórnar sem gengur enn
lengra til hlutafjáraukningar í
Steinullarverksmiðjunni en sú
sem gerð var í haust þegar
ákveðið var að auka hlutaféð
um 17 milljónir í samræmi við
eignaraðild bæjarins, er til-
komin vegna þess að fínnska
fyrirtækið Partek sem á tæp-
lega 10% hlut í verksmiðjunni
mun einn hluthafa ekki standa
að hlutafjáraukningunni.
Partek sem er samsteypa með
alls konar framleiðslufyrirtæki á
sínum snærum, þ.á m. steinull-
arframleiðanda, er eigandi fyrir-
tækisins sem allar vélar Steinull-
arverksmiðjunnar að bræðslu-
ofninum undanskildum eru
keyptar frá. Af þeim sökum mun
fyrirtækið hafa gerst hluthafi í
verksmiðjunni á sínum tíma. Að
sögn Þórðar Hilmarssonar fram-
kvæmdastjóra verksmiðjunnar
mun hafa legið fyrir í upphafi að
um frekari hlutafjáraukningu
finnska fyrirtækisins yrði ekki að
ræða. Hins vegar eru Finnarnir
enn hluthafar og hafa viðræður
við þá um víðtækt samstarf í
framtíðinni átt sér stað, en of
snemmt að segja um niðurstöður
þeirra. Sagði Þórður að í haust
þegar leitað var þátttöku ein-
stakra hluthafa í hlutafjáraukn-
ingunni hafi ekki upphæðir eða
hlutdeild verið nefnd, einungis
heildarupphæðin 60 milljónir.
Hluthafar hafi ákveðið að auka
hlutafé í samræmi við eignaraðild
sína og því vantað upp á það sem
nam hlut Parteks. Hafi því verið
leitað til Sauðárkróksbæjar með
þann hluta hlutafjáraukningar-
innar, sem og var gert þegar
hlutafé verksmiðjunnar var aukið
um 20 milljónir á síðasta vori. Er
þetta ástæðan fyrir afgreiðslu
bæjarstjörnar Sauðárkróks á
málinu.
Á fundinum á þriðjudag féllst
bæjarstjórn á, vegna framkom-
inna krafna frá ríkinu að inn-
heimta fasteignaskatt verksmiðj-
unnar án álags næstu 5 árin, en
innheimta aðstöðu- og hafnar-
gjalda verði samkvæmt almenn-
um reglum.
Stjórnsýslumiðstöð á Akureyri:
„Vona að starfsemi
hefjist á árinu“
- segir Bjarni Einarsson hjá Byggðastofnun
Nú stendur yfír undirbúningur
að stofnun stjórnsýslumið-
stöðvar fyrir Norðurland, sem
staðsett verður á Akureyri. Að
sögn Bjarna Einarssonar hjá
Byggðastofnun mun stofnunin
ásamt Húsnæðisstofnun verða
leiðandi í þessu máli og er sam-
starf þeirra komið á laggirnar.
Stefnt er að því að stjórnsýslu-
miðstöð verði að veruleika á
þessu ári.
Starfsmenn stofnananna
tveggja vinna nú að undirbúningi
þessa máls. Meðal annars er ver-
ið að leita að heppilegu húsnæði
fyrir miðstöðina og sagði Bjarni
að þeir hefðu þegar fengið auga-
stað á ákveðnu húsi en engar við-
ræður hefðu enn farið fram um
Kastljós um fræðslustjóramálið:
Bárður kærir Gísla
„Já, það er rétt. Ég talaði við
formann útvarpsráðs á laugar-
daginn og sagði henni að mér
fyndist þetta algjörlega óvið-
unandi fréttamennska. Þetta
getur ekki verið tilviljun, held-
ur hlutdrægni,“ sagði Bárður
Halldórsson menntaskóla-
kennari er hann var spurður
hvort það væri rétt að hann
hefði kært Gísla Sigurgeirsson
eftir Kastljósþáttinn á föstu-
dagskvöld. Þar tók Gísli sam-
an atríði frá fundi mennta-
málaráðherra í Sjallanum
kvöldið áður og af einhverjum
sökum, sem Bárður telur enga
tilviljun, fékk málflutningur
Bárðar ekki inni í þættinum,
en Bárður lýsti yfír stuðningi
við Sverri Hermannsson.
„Gísli má hafa sínar skoðanir á
þessum málum fyrir mér en hann
má ekki láta þær lita sitt starf,“
sagði Bárður. Hann sagði enn-
fremur að margir hefðu hringt í
sig á föstudagskvöldið og lýst yfir
furðu sinni á þessari frétta-
mennsku.
„Mér finnst það dálítið alvar-
legur hlutur þegar verið er að
segja frá fundi sem þessum, sem
vakti svo geysilega mikla athygli,
að láta sín einkasjónarmið alveg
ráða ferðinni. Þarna voru tveir
aðilar sem tókust á og sjónarmið-
um annars voru gerð góð skil,
hins ekki,“ sagði Bárður Hall-
dórsson að lokum.
Gísli Sigurgeirsson fréttamað-
ur vildi lítið um málið segja þegar
ásakanir Bárðar voru bornar
undir hann. „No comment,“ var
svarið sem hann gaf. SS
kaup eða leigu. í framtíðinni er
síðan, að sögn Bjarna, stefnt að
því að byggt verði yfir miðstöð-
ina.
Að sögn Bjarna ríkir gott sam-
komulag milli stofnananna
tveggja um það hvernig unnið
verður að þessu máli og hefur
verið sett á blað eins konar
stefnuskrá.
Af öðrum stofnunum sem sýnt
hafa því áhuga að taka þátt má
nefna Fasteignamat ríkisins og
Skipulag ríkisins. Húsnæðisstofn-
un og Byggðastofnun munu að
öllum líkindum kosta húsnæðið
en leigja öðrum stofnunum hluta
þess.
„Við skulum bara vona að
eitthvað gerist á næstu vikum og
mánuðum þannig að við getum
hafið þessa starfsemi á árinu,"
sagði Bjarni í samtali við Dag.
Fjórðungssamband Norðlend-
inga sendi 16. janúar síðastliðinn
frá sér tillögur um stjórnsýslu-
miðstöð, þar sem því er meðal
annars beint til ríkisstjórnarinnar
að Byggðasjóði verði falin for-
ganga við útvegun fjármagns til
þessa verkefnis. ET
Sauðárkróksbær
eykur hlutafé