Dagur - 05.02.1987, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 5. febrúar 1987
á röltinu
Menntskælingar voru að klára haustannarprófin í kringum síðustu helgi. Það er
gamall og góður siður að lyfta sér upp eftir prófin, slaka á og gleyma öllu
stressinu og fá útrás á skemmtistöðum bæjarins. Það kannast eflaust margir
við þá tómleikatilfinningu sem fylgir því að vera allt í einu búinn með öll próf og
hafa ekkert að gera eftir langa og stranga lestrartörn. Allur spenningurinn og
allt stressið dettur niður og tilfinningar sem hafa verið læstar inni allt of lengi
brjótast út, allar í einu. Fólk ýmist „þylst um eður þrumir", þ.e.a.s. veður annað
hvort um í ofsakæti yfir ánægjulegum einkunnum eða rennbleytir skyrtubrjóst-
ið hjá næsta manni, um leið og það segir sínar farir að undanförnu ekki sléttar.
En það voru fleiri en námsleiðir menntaskólanemar að skemmta sér um helgina.
Framhaldsskólarnir tveir, MA og VMA tóku í sameiningu Dynheima á leigu
og héldu framhaldsskólaball á föstudagskvöldið. Ágóðinn af dansleiknum
skiptist jafnt á milli skólanna og rennur hjá báðum í ferðasjóð tilvonandi stúd-
enta. Okkur hjá Allt-síðunni fannst alveg gráupplagt að fara á röltið á föstu-
dagskvöldið og virða mannlífið fyrir okkur og spjalla við fólk um lífið og til-
veruna. Við fórum fyrst í Dynheima.
Fyrstan tókum viö tali Birgi
Runólfsson sem er nemandi í
1.D í MA.
- Þú varst í prófum, var þaö
ekki?
„Jú“
- Og hvernig gekk þér?
„Svona sæmilega, ég náði
öllu."
- Ertu héöan úr bænum?
„Nei, ég er frá Siglufirði, en bý
á heimavistinni."
- Hvernig líkar þér svo lífið
hérna á Akureyri?
„Þaö er ágætt aö vera hérna,
mórallinn í skólanum ergóöur en
hins vegar finnst mér Akur-
eyringar frekar þurrir á manninn
þegar á heildina er litið.“
Sigurbjörn Gestsson og Stella
Gestsdóttir voru eitthvað að
stinga saman nefjum úti í horni
þegar við rákumst á þau. Þau
tóku því samt ekkert illa að vera
trufluð og við beindum fyrstu
sþurningunni til Sibba.
- Hvaðan ertu?
„Ég er frá Ólafsfirði, en stunda
nám í VMA og bý þess vegna
hérna í bænum í vetur.“
- Hvað ertu að læra?
„Ég er í þriðja bekk á
verslunarbraut.
- Hvað finnst þér um það að
Menntaskólinn og Verkmennta-
skólinn haldi böll í sameiningu?
„Mér finnst það bara alveg
meiriháttar gaman og ég finn
ekki fyrir neinum ríg á milli skól-
anna hérna í kvöld. Þessir skólar
ættu að hafa miklu meira
samstarf."
- Já, þú finnur þá ekki mikið
fyrir þessum rfg sem er verið að
tala um að sé á milli VMA og
MA?
„Jú, ég finn fyrir honum.
Kannski betur en aðrir vegna
þess að ég er í VMA.“
- En þú Stella, ertu í skóla
eða ertu að vinna?
„Ég er líka í VMA, á uppeldis-
braut, í 1. U.“
- Finnst þér gaman hérna í
kvöld?
„Já, mér finnst alveg æðislega
gaman hérna. Ég vildi að það
væru oftar svona sameiginleg
böll.
- Hvernig er félagslífið í
VMA?
„Það er ágætt held ég, en sjálf
tek ég ekki mikinn þátt í því.“
- Hvað finnst þér um félags-
lífið, Sigurbjörn?
„Það er ekki nógu blómlegt að
mínu mati. Okkur vantar alveg
heimavist við VMA. Ég hef tekið
eftir því að félagslífið í MA bygg-
Birgir Runólfsson.
„Já, íþróttafélagið verður 50
ára á þessu ári, þann 18. febrúar.
í tengslum við það munum við
verða með einhverja upþá-
komu.“
- Þú villt ekki segja okkur neitt
frekar hvernig dagskráin verður?
„Nei, ég verst allra frétta, það
má ekki Ijóstra neinu upp um
þetta strax."
- Þóra, þú ert formaður skóla-
félagsins í MA, eru nemendur
virkir í félagsstörfum?
„Já, þeir eru það, meira en ég
bjóst við. En samt má alltaf gera
betur og ég er nokkuð bjartsýn á
að störf að félagsmálum gætu
orðið enn meiri á seinni önninni
en þeirri fyrri."
- Hefur þú sömu hugmyndir
núna um félagslíf í skólum og
þegar þú tókst við formanns-
embættinu í fyrravor?
„Já og nei. Það eina sem kom
mér á óvart var það að mögu-
leikarnir eru miklu fleiri en ég
bjóst við.“
- Hvað finnst þér um þessa
nýbreytni að MA og VMA skuli
halda framhaldsskólaball sam
an?
„Mér finnst þetta mjög gott.
Dyravarðavandamálið er leyst
með þessu og allur mórall milli
skólanna fer mjög
þverrandi."
Díana Gunnarsdóttir, Þóra Björg Magnúsdóttir og Jón Stefáns.
ist mjög mikið upp á krökkunum
á heimavistinni. Það vantar alveg
nauösynlega heimavist fyrir
okkur utanbæjarkrakka í VMA.“
Við þökkuðum þeim hjúum
fyrir spjallið og héldum áfram á
röltinu í Dynheimum, en nú var
komið fram yfir miðnætti og alltaf
fjölgaði fólkinu á staðnum. Niðri í
kaffistofu sáum við stelpu sem
sat ein við borð, við undum okkur
að henni og spurðum hana fyrst
að nafni.
„Ég heiti Nína Magnúsdóttir og
er í MA.“
- f hvaða bekk?
„Ég er í öðrum bekk, á mála-
braut."
- Þú varst að klára prófin,
hvernig gekk þér?
„Ja, svona bara eins og búast
mátti við.“
- Og hvað þýðir það?
„Mér gekk bara ágætlega, ég
féll ekki í neinu.“
- Hvernig finnst þér félagslífið
í Menntaskólanum?
„Mér finnst það mjög gott.“
- Tekur þú mikinn þátt í því
sjálf?
„Já, ég reyni að gera það eins
mikið og ég get.“
- Nú halda MA og VMA þetta
ball í sameiningu, heldur þú að
þetta sé eitthvað sem á framtíð
fyrir sér?
„Já, mér líst vel á þetta og ég
mæli með áframhaldandi sam-
starfi."
Þegar hér var komið sögu
ákváðum við að hverfa út um
stund og anda að okkur frísku og
tæru vorloftinu sem var eins og
ánægjuleg tímaskekkja svona í
lok janúar. Á leiðinni út göngu-
götuna mættum við þremur
persónum sem okkur fannst
alveg tilvalið að spjalla við. Þetta
voru þau Díana Gunnarsdóttir
sem er formaður íþróttafélagsins
í Menntaskólanum, Þóra Björg
Magnúsdóttir, nemandi í 4. bekk
og formaður Hugins, skólafélags
MA og Jón Stefánsson, skáti
með meiru, sem stefnir að því að
útskrifast úr félagsvísindadeild
MA á vori komanda.
- Díana, hvernig líöur þér
svona eftir þrófin?
„Bara vel, það er gott að vera
búin.“
- Nú ert þú formaður ÍMA,
hvernig hefur starfið gengið í
vetur?
„Það hefur gengið vel, enda er
íþróttafélagið stærsta og trúlega
virkasta félagið í Mennta-
skólanum."
- Er eitthvað sérstakt á döf-
inni hjá ykkur eftir vetrarfríið?
Sigurbjörn Gestsson og Stella Gestsdóttir.