Dagur - 05.02.1987, Page 7
5. febrúar 1987 - DAGUR - 7
r-spurning vikunnac
/Etlar þú að fá þér myndlykil?
Spurt á Akureyri
Þorsteinn Vestmann:
„Nei, ég ætla ekki aö fá mér
myndlykil. Ég hef einfaldlega
ekki áhuga á því. Ég læt Sjón-
varpið duga.“
Guðmundur Hjaltason:
„Eins og staöan er í dag á ég
ekki von á því aö ég fái mér
myndlykil. Það getur hins vegar
veriö að konan vilji fá sér einn
slíkan. Annars horfi ég lítiö á
sjónvarp yfirleitt, því mér finnst
þaö fara illa meö tímann."
Björn Pálmason:
„Nei, ég hef ekki áhuga á því
og á ekki von á að sú skoöun
breytist á næstunni."
- Er hann til staðar?
„Hann var til staðar, já.“
- Jón Stefánsson, þú ert
eitthvað svo þreytulegur, varstu
aö klára prófin í dag?
„Jú, þaö er rétt ég var að Ijúka
seinasta prófi einmitt í dag.“
- Hvaö varstu í mörgum
prófum?
„Ég tók 9 próf, það var alveg
hrikalega erfitt, eiginlega allt of
rnikið."
- Já, var þetta erfitt?
„Já, vissulega var þetta erfitt
en ef maður lærir jafnt og þétt
allan veturinn þá jafnar þetta sig
upp.“
- Ertu þreyttur?
„Já, ég get ekki neitað því
enda búinn að lesa fram undir
morgun síðustu dagana.“
- En hvernig gekk þér svo?
„Jú, jú, mér gekk bara vel og
aldrei þessu vant var ég bara
með sæmilegustu einkunnir."
- Ertu þá ánægður með
kennsluna?
„Hún er náttúrlega alltaf mis-
góð eins og gengur og gerist."
Það var margt um manninn í
Hafnarstrætinu á þessari fallegu
janúarnótt enda blíðskapar-
veður. Við vorum nú búin að tala
Svala Þorsteinsdóttir:
„Ég hef ekki hugsað mér að
festa kaup á myndlykli. Það
sem ég sá af órugluðu útsend-
ingunum fannst mér ekki nógu
spennandi til þess að ég gerðist
áskrifandi.“
Magni Friðjónsson:
„Nei, ég hef ekki áhuga eins og
stendur. Þó er aldrei að vita
hvað maður gerir þegar fram
líða stundir.“
Unnið af Guðrúnu L. Jóhannsdóttur og
Atla Rúnarssyni i starfskynningu.
Gerður Oiofssen og Baldvin Þór Ellertsson.
við framhaldskólanema ein-
göngu. Það var því tímabært að
heyra frá yngri kynslóðinni. Það
var líka nóg af ungu fólki þarna
svo við völdum af handahófi
strák og stelpu að ræða við.
- Hvað heitið þið?
„Ég heiti Gerður Olofssen."
- Og í hvaða skóla ert þú?
„í Gagnfræðaskólanum, ég er
í 8. b“
- Þú ert sem sagt hérna af
Akureyri.
„Já“
- Er gaman í kvöld?
„Það hefur oft verið skemmti-
legra, það er enginn hérna edrú.“
- Þú ert nú samt sem áður
edrú, er það ekki?
„Jú, jú ég er alveg edrú.“
- Hvernig finnst þérfélagslífið
í Gagnfræðaskólanum?
„Það er allt í lagi en samt
ekkert sérstakt það eru böll og
svo er „opið hús“.“
- Tekur þú einhvern þátt í
félagsstörfum?
„Tja, ég fer alltaf á böll en
aldrei á opið hús það mæta svo
fáir þar.“
- Hvað ert þú að gera svona
seint?
„Bara....ég er með honum
Baldvini."
- Heitir þú Baldvin, í hvaða
bekk ert þú?
„Já ég heiti Baldvin Þór Ellerts-
son og er í 9. bekk.“
- Er gaman að vera til?
„Jú það er ágætt, bara fínt.“
- Af hverju ert þú hérna í
göncjugötunni í kvöld?
„Eg er bara að sjá krakkana og
athuga hvort eitthvað sé um að
vera.“
Hreiðar Jónsson.
Að lokum tókum við tali
Hreiðar Jónsson húsvörð í
Amaro en hann stóð fyrir framan
Amaro og virti fyrir sér mannlífið í
Hafnarstrætinu.
- Ertu að passa gluggana?
„Ekki bara gluggana ég passa
allt húsið."
- Ert þú búinn að vera hérna
lengi?
„Já ég er búinn að vera
húsvörður hérna í 26 ár.“
- Finnst þér unga fólkið hafa
breyst mikið á þessum 26 árum?
„Fólkið sjálft hefur kannski
breyst mikið heldur mann-
lífið."
- Hefur verið rólegt hérna í
göngugötunni í kvöld?
„Já það hefur ekki verið neitt
sérstakt um að vera í kvöld.
Fteyndar hefur það verið rólegra
heldur en oft áður. Fólk er farið
að haga sér dálítið skikkanlegar,
hins vegar er alveg nóg af hinu.“
- Er þetta þó samt sem áður á
réttri leið?
„Að mörgu leyti myndi ég telja
það.“
- Hvernig er að vera í Gagg-
anum?
„Það er fínt og félagslífið bara
ágætt.“
- Hefur þú einhver áhuga-
mál?
„Já, skíöi og svo náttúrlega
stelpur."
- Takk fyrir.
- Að lokum hvernig lýst þér á
unga fólkið í dag?
„Meginhlutinn af þessu er
ágætis fólk. Það er ekki ástæða
til annars en að ætla að það
komist til manndóms."
Við þökkuðum Hreiðari fyrir
spjallið; létum þetta gott heita og
röltum hver okkar leið inn Hafn-
arstrætið, sem iðaði af lífi.