Dagur - 05.02.1987, Page 9

Dagur - 05.02.1987, Page 9
5. febrúar 1987 - DAGUR - 9 -- öMvíXm ív. iQteeúM Helgi Sigurgeirsson og Halldór Valdimarsson búnir með morgunsundið. Helgi Sigurgeirsson: „Þetta er snobb!iðið“ Helgi Sigurgeirsson vistmaður í Hvammi er orðinn 77 ára en hann er einn þeirra sem ekki lætur sig vanta á morgnana þegar sundlaugin er opnuð. „Petta er snobbliðið sem mætir svona snemma og ég er alltaf mættur í snobbið klukkan sjö. Sundið er hressandi og góð hreyf- ing og ég er alveg viss um að ég hef gott af þessu. Ég syndi svona 100 metra en með hvíldum og svo fer ég í heita pottinn, þar er stundum alveg suðuhiti á um- ræðunum." IM „Nei, þá koma ekki nema þeir allra hörðustu, en við lokum aldrei vegna veðurs og það eru mörg ár síðan það hefur komið dagur sem enginn hefur mætt í sund þó stundum komi fáir.“ - Hvernig líkar þér vinnan? „Vel, nema hvað vinnutíminn er óhagstæður, sérstaklega á vet- urna þá vinnum við annan hvorn dag mætum snemma á morgnana og síðan aftur seinni partinn og manni verður lítið úr verki í frí- tímanum yfir miðjan daginn. En að öðru leyti finnst mér þetta góður vinnustaður.“ - Nú eru sérstakir sundtímar fyrir konur á mánudagskvöldum, er langt síðan farið var að hafa slíka tíma? „Pað er býsna langt síðan, það voru meira að segja sérstakir kvennatímar þegar ég byrjaði að vinna hér, þeir voru seinastir á dagskrá á þriðjudögum og þegar gott var veður fjölmenntu kon- urnar, þá var glatt á hjalla og gaman. Einnig voru auglýstir sér- stakir karlatímar en það þýddi ekkert, þeir hafa sjálfsagt bara viljað vera í sundi um leið og kvenfólkið. í nokkur ár voru engir sérstak- ir kvennatímar þar til að Línan fór á kreik og bað um aðstöðu hér, á meðan þessir tímar voru á vegum Línunnar var á tímabili einn karlmaður í hópnum með þeim. Ég hélt að karlmenn hefðu líka áhuga á sértímum fyrir fullorðna því það er svo margt fólk sem er ekki vel synt en býsna margt full- orðið fólk hefur lært að synda hér í Iauginni.“ - Þú hefur verið með sund- kennslu fyrir fullorðna. „Já, nokkrum sinnum og ég kenndi barnaskólabörnunum og stúlkunum í gagnfræðaskólanum sund í 21 ár en Vilhjálmur Páls- son kenndi alltaf strákunum í gagnfræðaskólanum. íþrótta- kennurum á staðnum fjölgaði síðan mikið fyrir nokkrum árum og þeir tóku við þessari kennslu." IM ónas Gunnlaugsson. nú ekki allt því ég er farinn að heyra svo illa og þegar útvarpið er í gangi heyri ég eiginlega ekki neitt. Á virkum dögum má heita að það sé alltaf sama fólkið sem mætir á morgnana.11 - Finnst þér fólk sem stundar sund reglulega bera þess merki að það sé hressara og frískara en almennt gerist? „Ég veit það ekki en býst þó alveg eins við því. Ég hef ákaf- lega mikla trú á að gott sé fyrir fólk að fara í sund og heitan pott, sérstaklega fyrir aldrað fólk því yngra fólkið stundar leikfimi og fleira og heldur sér betur við. Ég hef aldrei lært að synda, hef aldrei farið í sundkennslu en hef horft á hvernig fólkið ber sig til við þetta og síðan reynt að gera eins. Þegar ég fluttist til Húsavík- ur, vel fullorðinn maður var ég ekkert farinn að synda en þegar ég var strákur heima á Eiði á Langanesi sullaði ég í vatninu án þess að kunna nokkuð að synda.“ - Nú er frítt fyrir ellilífeyris- þega í sundlaugina, finnst þér aðsókn þeirra hafa aukist eftir að þeir fóru að njóta þeirra fríð- inda? „Þetta er ágæt þjónusta við gamla fólkið en ég hef ekki orðið var við að aðsókn þess að laug- inni hafi aukist, þetta er mikið sama fólkið sem kemur. Mér finnst aldrað fólk nota laugina allt of lítið og það þyrfti að koma upp sundlaug í Hvammi, dvalar- heimili aldraðra, það er enginn vafi á því að fólkið færi miklu Sigríður Böðvarsdóttir sundlaugar- vörður í afgreiðslunni. - Syndir þú mikið sjálf? „Fólk sem vinnur á sundstöð- um hefur vissa sundskyldu og ég hef reynt að taka hana alvarlega. Þorsteinn, sem hafði eftirlit með sundstöðum þegar ég byrjaði að vinna hér, sagði að það væri ekki nóg að fólk sem færi að vinna á sundstað um tvítugt væri vel synt, ef það héldi ekki kunnáttunni við væri það varla fært um að bjarga manni ef á þyrfti að halda, þegar það væri orðið sjötugt. Ég syndi því flesta daga sem ég er að vinna og reyni að gera þetta að vissum þætti, dríf mig í laugina þó veðrið sé bálvitlaust og ég sé löt.“ - Finnst þér þú hafa haft gott af því að stunda sundið? „Það er ekki nokkurt vafamál, ég finn það til dæmis þegar ég er á ferðalögum í útlöndum, og mikið er gengið um, að ég hef meira þrek en flestir í hópnum. En ég geng líka alltaf í vinnuna, það er mín líkamsrækt, að synda og ganga.“ . - Koma jafn margir í laugina þegar veðrið er kolvitlaust? Reynir Jónasson. Sigríður Böðvarsdóttir: „Lokum aldrei vegna veðurs“ Sigríður Böðvarsdóttir íþrótta- kennari hefur starfað við Sund- laug Húsavíkur síðan í maí 1961. „Það hafa orðið óskaplega mikl- ar breytingar á þessum tíma. Þegar laugin var opnuð bjuggu rúmlega tólf þúsund manns í bænum og þetta þótti afskaplega fín og stór laug miðað við það sem þá þekktist. Fyrstu árin voru það krakkarnir sem eiginlega yfirtóku allt hérna og fylltu húsið en nú er hér fullorðið fólk í mikl- um meirihluta. Þessi breyting varð auðvitað ekki á einum degi en sumt fólkið sem kemur dag- lega í sund núna hefur stundað þetta árum saman, einnig er mik- ið um það að fólk stundar sund um tíma, hvílir sig svo en fer síð- an að koma aftur.“ meira í sund ef sundlaug væri á staðnum. Sumt fólk sem er fatlað getur farið í heitan pott eða set- ið í sundlaug og hreyft sig aðeins.“ - Nú er mikið af börnum og unglingum í sundi seinni hluta dagsins, finnst þér erfiðara að synda innan um þau? „Þau víkja alltaf fyrir mér og mér finnst þau ákaflega kurteis við gamla fólkið. Sundlaugin er náttúrlega lítil miðað við aðsókn- ina yfir sumarið en aðbúnaður er góður miðað við aðstæður.“ IM Reynir Jónasson: „Vakna alltaf fyrir sjö“ Reynir Jónasson er einn þeirra sem er daglegur gestur eða réttara sagt heimamaður í sundlauginni því hann hefur stundað sundið í fjöldamörg ár. „Ég kem alltaf í laugina klukk- an sjö á morgnana virka daga, klukkan níu á sunnudögum og eftir hádegi á laugardögum. Þetta hef ég gert í ein fimmtán ár og er orðinn svo vanur þessu að ef ég sleppi úr degi þá vantar eitt- hvað.“ - Finnst þér sundið hafa góð áhrif á þig? „Já, það hefur góð áhrif og þetta ættu allir að gera. Það fer í vana að vakna svona snemma, ég vakna alltaf fyrir sjö hvort sem það er helgur dagur eða virkur.“ - Finnst þér góður félagsskap- ur hjá þessum morgunhönum í sundlauginni? „Þetta er alltaf sama fólkið sem kemur þarna og það er glamrað svona eins og gengur. Starfsfólkið er ágætt og það verð- ur að góðum kunningjum manns.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.