Dagur - 12.02.1987, Síða 1

Dagur - 12.02.1987, Síða 1
70. árgangur Akureyri, fímmtudagur 12. febrúar 1987 29. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Kaup Landsvirkjunar á jarðvarmaveitum ríkisins í Bjarnarflagi: „Greiðum 80% af verðinu fyrir Landsvirkjun“ - segir Jón lllugason, stjórnarmaður í Kísiliðjunni hf. „Sem stjórnarmaður í Kísiliðj- unni hf. er ég afar ósáttur við þetta mál og veitti ekki umboð mitt til undirritunar á þessum samningi. Þetta er afar slæmt mál,“ sagði Jón Illugason þeg- ar hann var spurður um samn- ing milli Kísiliðjunnar og Landsvirkjunar sem gekk í gildi um áramótin. Samkvæmt þessum samningi mun raforku- verð til Kísiliðjunnar hækka um 40-50% árið 1991. „Landsvirkjun keypti borhol- urnar og önnur mannvirki við Bjarnarflag af Jarðvarmaveitum ríkisins á 120 milljónir en samn- ingurinn milli Landsvirkjunar og Kísiliðjunnar hf. kveður á um að Kísiliðjan greiði um 80% af þess- um 120 milljónum í formi orku- kaupa. Landsvirkjun greiðir að- eins um 20%. í lok þessa fimmtán ára tímabils, sem er gildistími orkusölusamningsins, stendur Landsvirkjun eftir sem eigandi mannvirkjanna og kerfis- ins, eftir að Kísiliðjan hefur þá í rauninni borgað fyrir um 80% af Hestahvarfið: Slæmt skyggni hindrar leit Nú hafa hestarnir sem hurfu frá Þverá í Öxarfírði verið týndir í rúman mánuð. Mjög slæmt skyggni hefur verið þarna undanfarið og af þeim sökum þýðingarlaust að leita. Ekki hefur verið hægt að leita úr lofti en strax og léttir til munu snjósleðamenn hefja eftirgrennslan. En meðan svo hefur háttað til hafa sumir reynt að finna hestana í draumum sínum. Ýmsir berdreymnir menn hafa séð hestunum bregða fyrir á hin- um og þessum stöðum. Þetta hestahvarf er orðið það dularfullt að það er kannski ekki nema von að menn leiti til máttarvalda á öðrum tilverustigum í von um að málið muni skýrast. Oft hafa einstaka hestar horfið um lengri eða skemmri tíma en þegar sjö stykki hverfa á einu bretti þykir mönnum ekki allt með felldu. Kristján Benediktsson á Þverá sagði að í raun hefði ekkert nýtt komið fram síðan póstflutninga- maður sá sjö hesta á brúnni yfir Hölkná í Þistilfirði í kringum síð- ustu mánaðamót. „Það er beðið eftir veðri til að leita. Það er svo dimmt yfir heiðunum og fjöllun- um. Skýjaslæðan liggur niður á fjöll og þá er skyggni lítið hérna austur í heiðunum. Það hefur ekki verið hægt að fljúga lengi en menn ætluðu á snjósleðum í dag en leist ekki nógu vel á veðrið og ætla að fresta því til morguns að minnsta kosti,“ sagði Kristján þegar haft var samband við hann á þriðjudaginn. SS verðinu,“ sagði Jón ennfremur. Þegar Jón var spurður að því hverjir hefðu ráðið ferðinni í samningsgerðinni sagði hann: „Iðnaðarráðuneytið réði þessu ásamt Albert Guðmundssyni, iðnaðarráðherra, en þeir fara með meirihlutavald í stjórn Kísil- iðjunnar þar sem ríkið á 60%. Þessi ákvörðun var mjög óhag- kvæm fyrir Kísiliðjuna og mönn- um hefur blöskrað að sjá gufuna streyma ónýtta upp úr jörðinni langtímunum saman, því rafstöð- in í Bjarnarflagi hefur verið lítið notuð undanfarin ár. Þarna hefði Kísiliðjan getað framleitt raforku á mjög hagstæðu verði og ein meginforsenda fyrir stofnun fyrirtækisins var einmitt mögu- leikinn á ódýrri orkuöflun á staðnum. Þessir möguleikar hafa ekki verið nýttir í raun og veru. Kísiliðjunni hefur verið gert að semja við RARIK um raforku-. ' kaup en við höfðum gert okkur vonir um að semja beint við Landsvirkjun um orkukaup. Þetta var okkur ekki leyft. “ Það líður vonandi ekki langur tími þar til hægt verður að hleypa skektunum af stokkunum en þessi mynd var tekin við Höepfner í gær. Mynd: rþb Akureyri: Fríðsamleg afgreiðsla fjárhagsáætlunar - fellt að lækka kostnað við afmælishaldið Fjárhagsáætlun Akureyrar- bæjar var samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum við síð- ari umræðu sem fram fór í bæjarstjórn á þriðjudaginn. Dalvík: Fiskmiðlun í stað fiskmarkaðar - Umboðsfyrirtæki í eigu útgerðarfyrirtækja Nú virðist einhver hreyfing komin á fisksölumál við Eyjafjörð en mikið var um það rætt í lok síðasta árs að koma þyrfti upp fiskmarkaði við fjörðinn. Hilmar Daníelsson á Dalvík er nú að vinna að stofn- un svokallaðrar fiskmiðlunar sem hann telur vænlegri kost en hinn hefðbundna fískmark- að. Hugmynd Hilmars er að fyrir- tæki þetta yrði hlutafélag með þátttöku útgerðarfyrirtækja á Norðurlandi. Útgerðarfyrirtækj- um hefur nú verið sent dreifibréf með hugmyndum Hilmars en einnig hefur hann haft samband við nokkra aðila sem sýnt hafa málinu áhuga. Að sögn Hilmars þarfnast þetta fyrirtæki ekki mikilla fjárfestinga. Skrifstofa, telefaxtæki og sími er nánast allt sem þarf. Starfsemi fiskmiðlunarinnar yrði með þeim hætti að hún sæi um að afla útgerðum tilboða í þann afla sem þær hafa upp á að bjóða hverju sinni og væru til- búnar að selja. Tilboða yrði leit- að bæði hjá innlendum fiskkaup- endum og erlendum sem þá fengju fiskinn með gámum eins og víða þekkist í dag. Verð á fiskinum yrði eingöngu miðað við framboð og eftirspurn en ekki er ljóst með hvaða hætti verð á mis- munandi stærðarflokkum yrði myndað. Munurinn á þessari fiskmiðlun og fiskmarkaði er sá að með þessu móti er ekki gert ráð fyrir að skipin landi afla sínum öll á einn og sama markað þar sem boðið er í hann, heldur í hverri þeirri höfn sem kaupandinn ósk- aði. í umræðum um fiskmarkaði hefur verið gert ráð fyrir mann- virkjagerð auk ýmiss tilkostnaðar við ísframleiðslu, fiskmat og ann- að en með fiskmiðlun yrði slíkt ekki nauðsynlegt að sögn Hilmars. Að sögn Hilmars hefur þessi hugmynd ekki verið kynnt fyrir fiskkaupendum enda sagðist hann hafa frétt af viðræðum þeirra á milli um samræmdar yfir- borganir á fiski. „Slíkt er auðvit- að ekki í anda þessarar hug- myndar en ég hef enga trú á að þeir geti ráðið verðinu einir. Þeir verða auðvitað að haga sínum til- boðum í samræmi við það sem mönnum býðst annars staðar. Aðspurður um það hvaða áhrif fiskmiðlun af þessu tagi hefði á vinnsluhætti í frystihúsi sagði Hilmar að ef framboð yrði nægi- legt þá myndi þetta fyrst og fremst leiða til aukinnar sérhæf- ingar. „Ég fæ ekki séð af hverju þetta ætti að koma ver við eitt frystihús en annað,“ sagði Hilmar. ET Nokkrar breytingar uröu á áætluninni milli umræðna og var frá þeim greint í blaöinu á þriðjudaginn. Talsverðar umræður urðu um fjárhagsáætlunina áður en til atkvæðagreiðslu kom, sérstak- lega um tillögu Sigurðar Jóhann- essonar (B), um að lækka laun til bæjarfulltrúa og fulltrúa í nefnd- um á vegum bæjarins um eina milljón alls á árinu og veita þeim peningum til framkvæmda við Sel II, hjúkrunarheimili aldraðra. Sigurður benti á að áætluð hækk- un á launaliðnum vegna yfir- stjórnar bæjarins væri 141% á milli ára og sú hækkun væri meiri en nokkurn hefði órað fyrir. Full- trúar meirihlutans í bæjarstjórn svo og alþýðubandalagsmenn voru tillögunni mótfallnir og var hún felld með tveimur atkvæðum gegn níu. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir (B), lagði þá fram tillögu um að tveggja milljón króna framlag, vegna hátíðahalda í tilefni af 125 ára afmæli Akureyrar á árinu, yrði lækkað um eina milljón og hún nötuð í Sel II. Sú tillaga var einnig felld, nú með sjö atkvæð- um meirihlutans gegn tveimur atkvæðum framsóknarmanna. Alþýðubandalagið sat hjá. Minnihlutinn sat hjá við atkvæðagreiðslu um fasteigna- skatt og útsvar og Sigurður Jóhannesson (B) og Gísli Bragi Hjartarson (A) greiddu atkvæði gegn flutningi Eyrarlandsstofu í Lystigarðinn. Að öðru leyti fór allt friðsamlega fram. BB. Akureyri: Ekið á 6 ára stúlku I fyrrakvöld var ekið á 6 ára gamla stúlku fyrir utan hús í Skarðshlíð. Hún var flutt á slysadeild og mun hafa fót- brotnað. Tildrög slyssins voru þau að stúlkan hljóp út á göt- una í veg fyrir bíl sem var ekið eftir Skarðshlíðinni. í gær var vitað um einn minni- háttar árekstur er haft var sam- band við lögregluna. Að sögn varðstjóra hefur orðið gífurlega mikið af árekstrum það sem af er þessu ári. Alls eru þeir orðnir 100 og 201 ökutæki sem komið hafa við sögu. Þar af eru 48 árekstrar þar sem keyrt hefur verið á kyrr- stæða bíla og eru aftanákeyrslur mest áberandi. Þetta eru rosaleg- ar tölur, annað er ekki hægt að segja og ljóst að eitthvað verður að gera til að koma í veg fyrir að þessi uggvænlega þróun haldi áfram. SS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.