Dagur - 12.02.1987, Blaðsíða 8

Dagur - 12.02.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 12. febrúar 1987 12. febrúar 1987 - DAGUR - 9 Kvenfélagið Hlíf á Akureyri varð 80 ára þann 4. fcbrúar sl. Hlífarkonur hafa látiö til sín taka á niörgum sviöum mann- úðar- og líknarmála um dag- ana og ófá eru þau málefni sem þær hafa stutt og komið í höfn. I tilefni af afmæli félagsins verður saga þess rakin í stórum dráttum. Kvenfélagið Hlíf Eitt vinarbros er veikum bróðurmætir fær vakið þrótt í kaldri sjúkdómsneyð. Eitt kærleiksorð, er böl og sorgir bætir, fær birtu varpað yfir margra leið. Þessar ljóðlínur eftir Kristínu Sigfúsdóttur gætu verið einkunn- arorð þeirra sjö kvenna sem stofnuðu Kvenfélagið Hlíf þann 4. febrúar 1907. Aðal frumkvöð- ull félagsins var Hólmfríður Þor- steinsdóttir á Akureyri. Um til- gang félagsins segir svo í félags- lögunum: „Tilgangur félagsins fór vaxandi hjúkra sjúklingum í Akureyrar- kaupstað, einkum fátæklingúm, einnig að hjálpa örvasa gamal- mennum.“ Starfsemi félagsins fór vaxandi og félagskonum fjölgaði ört. Fljótlega hófu þær fjáröflunar- störf með ýmsum hætti. Þegar félagið var ársgamalt var nafni þess breytt í Hjúkrunarfélagið Hlíf enda verkefni þess eingöngu hjúkrun og aðhlynning sjúkra og fátækra, sem engan kost áttu á sjúkrahúsvist. Gengu félagskon- ur sjálfar í hús og hjúkruðu sjúkl- ingum endurgjaldslaust. Árið 1909 varð félagið þess megnugt að ráða tvær konur til hjúkrunar- starfa. Ekki voru þær lærðar en höfðu orð á sér fyrir nærfærni við sjúklingana og nokkra reynslu. Hjálp þeirra var ókeypis en eitt- hvert kaup höfðu þær frá félag- inu. Vökukonu hafði félagið einnig í þjónustu sinni sem vakti yfir veiku fólki í bænum þegar þurfti. Fjáröflun Fjáröflunarleiðir voru ýmsar, t.d. hlutaveltur, leiksýningar og kaffisala. Félaginu varð fljótt verulega ágengt því það fór að láta fleira til sín taka en hjúkrun. Reynt var að bæta úr brýnustu þörf hinna snauðu með matar- gjöfum, eftir því sent getan leyfði. Þá var sú venja tekin upp að gefa sjúklingum á sjúkrahús- um jólagjafir um hver jól og halda fyrir þá skemmtanir. Fleiri góðgerðarstörf mætti nefna. Til dæmis var það venja um árabil að skipta peningaupp- hæð milli fátækasta fólksins á Akureyri á stofndegi félagsins. Margir voru þeir sem sáu hvílíkt stórvirki félagsskapurinn var að vinna og ýmis fyrirtæki og ein- staklingar létu fé af hendi rakna til þessa góða málefnis. Sjúkrasamlag Akureyrar stofnað Árið 1915 var Hlíf orðið fjöl- mennt og öflugt félag sem taldi 112 meðlimi. Þegar blaðað er í gömlum heimildum getur maður vart varist undrun á því hversu mörg mál félagið lét til sín taka. Eitt merkasta átakið var stofnun Sjúkrasamlags Akureyrar árið 1913. Kvenfélagið Framtíðin, Hjúkrunarfélagið Hlíf og Verka- mannafélagið Eining lögðu fram stofnfé samlagsins. Hlífarkonur lögðu einnig til að stofnað yrði dýraverndunarfélag og þær létu fé af hendi til uppbyggingar heilsuhælisins að Kristnesi. Mjólkurskortur var vandamál á Akureyri um árabil. Á fundi í Hlíf árið 1915 var þetta mál rætt og nefnd kosin til að gera tillögui til úrbóta. Starfaði sú nefnd með annarri nefnd sem Kvenfélagið Framtíðin hafði kosið í sama skyni. Nefndirnar komu því síðar til leiðar að nokkrir bændur í nágrenni Akureyrar hófu að selja mjólk hér í bænum. Hlíf starfaði á þeim grundvelli mannúðar sem hér hefur verið lýst í 25 ár og átti sér marga velunnara. Flestar urðu féjagskonur 154 árið 1922. í apríl 1928 urðu þáttaskil í sögu félagsins. Oddfellowar á Akureyri buðust til að aðstoða Hlífarkonur við aðhlynningu sjúkra og fátækra. Ekki varð úr þessu samstarfi en mörgum fannst að eftir stofnun Akureyr- ardeildar Rauða kross íslands væri hlutverki Hlífar í hjúkrunar- málum að mestu leyti lokið. Þörf- in fyrir starfsemina var ekki eins brýn og áður og nokkuð dofnaði yfir henni um hríð. Á afmælis- fundi árið 1931 voru greidd atkvæði um það hvort leggja skyldi félagið niður eða halda áfram starfi. Munaði mjóu að félagið Iifði af, því samþykkt var að halda starfsemi áfram með 22 atkvæðum gegn 21. Nú höfðu orðið þáttaskil í sögu Hlífar. Ákveðið var að takast á við næsta verkefni, sumardvalar- heimili fyrir fátæk börn. Nafni félagsins var breytt í Kvenfélagið Hlíf, eins og það hét áður. Stór- merkum kafla í sögu þess var lok- ið og annar tók við. Hið nýja verkefni hreif hug og hjörtu Hlíf- Gcstirnir skemmta sér yfir veitingum og góðum mat. Karlmennirnir syngja „Fósturlandsins freyja“ undir stjórn Askels Jónssonar. Kvenfélagið Hlíf á Akureyri: Fómfust líknar starf í 80 ár arkvenna. Þær söfnuðu fé af elju- semi og þær ráku sumarbúðir á ýmsum stöðum næstu árin, oftast í samvinnu við önnur félög. Þeg- ar styrjöldin skall á 1939 var brýn þörf á að koma bömum fyrir, utan Akureyrar, í stórum stfl. Þá fékk félagið í fyrsta sinn styrk til starfseminnar, kr. 1000 frá ríkinu og kr. 400 frá Bæjarsjóði Akur- eyrar. Bygging og stofnun Pálmholts Árið 1946 ákváðu Hlífarkonur að stofna barnaheimili, sem væri jafnframt dagheimili, í nágrenni Akureyrar. Þær völdu sjálfar staðinn, á túninu fyrir neðan Flúðir, enda álitu þær best að börnin fengju notið frelsis og gróðurs. Áður höfðu þær fengið gefið landsvæði, 4 dagsláttu tún neðan við Naustaveg. Frú Gunn- hildur Ryel var gefandi að þessu Stjórn Hlífar. Standandi frá v.: Siggerður Tryggvadóttir og Lovísa Svavars- dóttir. Sitjandi frá v.: Sesselja Gunnarsdóttir, Kristjana Jónsdóttir formað- ur, Jóhanna Jóhannsdóttir. túni. Hlífarkonur skiptu á þessu túni og lóðinni við Pálmholt, fengu byggingarleyfi og gengu nú tvíefldar til verka. Almættið virt- ist vera málefninu hliðhollt og að þessum rekstri en ávallt tókst að sigrast á þeim fyrir dugnað og fórnfýsi þeirra sem ekki hirða um að „heimta sín daglaun að kveldi“. Eftir rekstur á þessu barnaheimili í 22 ár ákvað stjórn Hlífar að gefa Akureyrarbæ Pálmholt með öllum búnaði og án allra skuldbindinga. Örar þjóðfélagsbreytingar og breyttar aðstæður gerðu það að verkum að hentugt þótti að beina starf- semi félagsins inn á aðrar brautir. Barnadeild FSA styrkt Eftir 1972 einbeittu Hlífarkon- ur sér að málefnum í þágu Barna- deildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Á undanförnum árum hefur þeim tekist að safna fé til margvíslegra tækjakaupa fyrir deildina og hafa nú þegar gefið eftirfarandi tæki: Hitakassa, súr- efnistæki, smásjá, ljósalampa, blóðþrýstingsmæli, vökvadælu, upphitaðar barnavöggur, sog- „Hlíf heftir verið Bama- deildinni stoð og stytta“ segir Baldur Jónsson yfirlæknir Baldur Jónsson, yfirlæknir, flutti ávarp. Baldur Jónsson, yfírlæknir Barnadeildar Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri, flutti ávarp í afmælishófi Kvenfélagsins Hlífar I Geysishúsinu sl. laug- ardagskvöld og sagði þá m.a.: „Þegar ég kom til starfa við Barnadeild F.S.A. í október 1961 var aðeins til einn gamall hita- kassi. Á næstu árum fengum við nýjan hitakassa og nokkur rúm sem okkur voru gefin. Önnur tæki notuðum við ásamt öðrum deiidum sjúkrahússins því ekki var um auðugan garð að gresja. Kvenfélagið Hlíf hafði gefið Akureyrarbæ barnaheimilið Pálmholt árið 1972 og frá árinu 1973 styrkti það Barnadeild F.S.A. Félagskonur hafa safnað fé með margvíslegum hætti. Þær hafa haldið basara og kaffisölu og stundað merkjasölu. Þær hafa gefið okkur mörg lækningatæki af mikilli rausn sem þær hafa unnið fyrir af dugnaði. Eg er þess fullviss, að án starfa kvenfélags- ins væri Barnadeildin alls ekki það sem hún er í dag. Það væri erfitt og næsta ómögulegt að hjúkra fyrirbura ef ekki væri til hita- og súrefniskassi til að halda hita á barninu líkt og í fósturlífi. Hætta er á ferðum ef súrefni er ekki nægilegt og þá er þörf á tæki sem hjálpar því að anda ef það andar ekki sjálft og tæki sem fylgist með hversu mik- inn vökva barnið fær gegnum æð. Við þurftum líka tæki sem fylgd- ist með öndun barnsins og blóð- þrýstingi. Þetta eru sýnishorn af þeinr tækjum sem afmælisbarnið hefur gefið okkur. Mér finnst að Hlíf- arkonur geti verið stoltar af fram- taki sínu og við, starfsfólk Barna- deildar F.S.A., erum þeim þakk- lát fyrir að geta starfað við svo góðar aðstæður. Ég get ekki látið hjá líða að geta Minningarsjóðs Hlífar, sem stofnaður var 26. mars 1960. Sjóðurinn hefur styrkt okkur rausnarlega öll þessi ár með bókagjöfum, leikföngum, sjónvarpi, myndbandi og barna- vagni. Þessar gjafir hafa stórlega létt börnunum sjúkrahúsdvölina. Sjóðurinn hefur einnig gefið skírnarfont, skírnarskál, kerta- stjaka og sálmabækur. Þess vegna er hægt að skíra börn á deildinni við hátíðlegri skilyrði en ella. Barnadeildin flutti fyrir nokkr- um árum í núverandi húsnæði sem er bráðabirgðahúsnæði. Þetta húsnæði er of lítið og þar er þröngt. Þetta er það eina sem skyggir á rekstur þessarar deild- ar. Ég veit að það væri fleira sem skyggði á deildina en þetta ef Hlífar hefði ekki notið við. Mikil guðsblessun er að þetta kvenfé- lag var stofnað fyrir 80 árum og fyrir það mega börn þessa fjórð- ungs vera þakklát. Ég flyt félag- inu árnaðaróskir á 80 ára afmæl- inu og óska því velfarnaðar í framtíðinni.“ EHB Kristjana Jónsdóttir lék á píanó og sonardóttir hennar, Krist- jana Nanna Jónsdóttir, lék á þverflautu. Myndir: ehb margir lögðu málefninu lið. Barnaheimilið reis og hlaut nafn- ið Pálmholt. Flestir Akureyring- ar þekkja þetta nafn og muna eft- ir húsinu en færri þekkja þá merku sögu og fórnfúsu vinnu sem þarna lá að baki. Vakandi og sofandi unnu'þessar kjarkmiklu konur að byggingu þessa fyrsta barnaheimilis á Norðurlandi, og sáu að lokum draum sinn rætast. Pálmholt tók til starfa árið 1950. 50 börn voru í dagvist og starfsstúlkur voru 5. Eftirspurn eftir plássum var þó svo mikil að fljótlega varð húsið of lítið. Þá var byggt við það svo það rúmaði 100 börn. Þá var starfsfólki fjölg- að til samræmis við aukinn fjölda barna. Oft steðjuðu erfiðleikar dælu, rakaúðunartæki, blöndun- arkrana fyrir súrefni og loft, vöggur sem skorða börn í hita- kassa og nákvæma vog. Öll eru þessi tæki af vönduðustu gerð. Minningarsjóður Hlífar, sem stofnaður var árið 1960, hefur búið Barnadeildina leikföngum og bókum auk þess sem skírnar- fontur og allur búnaður til barna- skírnar var gefinn á sínum tíma. Á þessu afmæli Hlífar skora Hlífarkonur á konur, yngri sem eldri, að gerast félagar í Hlíf og hjálpa til við þau málefni sem að er unnið á hverjum tíma. Hver sem er getur gerst styrktarfélagi og borgar þá ákveðið árgjald án allra skuldbindinga um þátttöku í öðrum störfum félagsins. EHB .spurning vikunnan Hvernig lýst þér á hugmyndina um að komið verði á námi c til stúdentsprófs á Húsavík? Kristbjörg Steingrímsdóttir: Mér lýst vel á hugmyndina og finnst þetta alveg nauðsynlegt svo fólkinu fækki ekki alltaf hérna. Þetta yrði gott fyrir bæinn og þó skólamálin séu ekki eina ástæðan fyrir fólks- fækkuninni þá spila þau þar inn m* Jónas G. Jónsson: Ég er eiginlega hættur öllum hugsunum um skólamál, það er svo langt síðan ég hætti að kenna sjálfur. Annars líst mér vel á þessa hugmynd, hún hef- ur verið lengi á döfinni og von- andi kemst hún í framkvæmd. mmm Hafliði Jósteinsson: Það er tvímælalaust stórt skref í framfaraátt í skólamálum á Húsavík. Ef treysta má orðum menntamálaráðherra og hann fylgir málinu eftir held ég að þetta geti orðið að veruleika. Við vonum það að minnsta kosti að þannig sé í pottinn búið að það eigi að standa við þetta og að það verði að veruleika. Viðar Eiríksson: Ég er mjög hlynntur þessari hugmynd og fagna því þegar hún næst í gegn. Ég er alveg sammála í þessu máli. Ásmundur Bjarnason: Ég tel það af hinu góða ef tekst að halda lengur í unga fólkið hér í bænum og gefa því tæki- færi til að Ijúka stúdentsprófi hér.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.