Dagur - 12.02.1987, Síða 10
rj- ~ ‘/.ijfjíxv - \•íisúicím> ■;
10 - DAGUR - 12. febrúar 1987
Um sjónvörp, myndbönd
og myndlykla
Sú var tíðin að við íslendingar höfðum aðeins völ á einni sjón-
varpsstóð. Þurfti þá ekki að velta vöngum yfir því hvaða
möguleika sjónvarpstæknin bauð upp á. Með auknu frjáls-
ræði og vegna framfara í rafeindaiðnaði er okkur nú boðið
upp á fleiri sjónvarpsstöðvar og myndbandstæki svo fátt eitt
sé nefnt. Með tilkomu þessa verður almenningur sér meir
meðvitaður um hversu grandalaus hann er gagnvart þessu
öllu og stendur uppi harla skilningslítill á notkunarmöguleik-
um jafn sjálfsagðs heimilistækis og sjónvarpið er. Þessari
stuttu grein er ætlað að varpa nokkru Ijósi á staðreyndir sem
snúa að almennum notanda þegar um sjónvarpstæknina er að
ræða.
Rásir og tíðnibönd
Tíðnisviði því sem ætlað er til
sjónvarpsútsendinga er skipt nið-
ur í þrep. Hvert þrep er kallað
ráð eða kanall(Channel). Er rás-
unum síðan raðað niður í þrjá
flokka og er hver flokkur kallað-
ur band. Böndin þrjú heita: Band
I (stundum VL), band III (stund-
um VH) og UHF. Á bandi I eru
rásir 2 til 4, á bandi III eru rásir 5
til 12 og á UHF bandinu eru rásir
21 tii 68.
Vegna mikillar
sölu vantar
nýlega bíia
í salinn -
Láttu skrá
bílinn og fáðu
góð tilboð.
Kawasaki
fjórhjól 1987
fyrirliggjandi
☆
Vélsleðar -
Nýir/notaðir.
☆
Fjórhjól notuð á
hagstæðum kjörum.
Minni og prógrömm
Mjög algengt er að fólk rugli
saman rás (kanal) og minni
(program eða preset) og telji að
takkarnir framan á sjónvarpinu
séu rásirnar sem sjónvarpsstöðv-
arnar senda út. Eru því vel
þekktar spurningar sem þessi:
„Hvernig næ ég rás 12 þegar það
eru bara 8 á tækinu mínu?“
Hvert sjónvarpstæki er útbúið
með nokkrum minnum. Er það
algengast tölusett takkaröð sem
notandinn hefur aðgang að fram-
an á tækinu. Eru þessi minni,
sem einnig eru kölluð prógrömm
mismörg eftir tegundum og gerð-
um tækjanna. Nýjustu gerðir
sjónvarpstækja hafa möguleika á
Grattan
pöntunarlisti
Vor- og sumarlisti
1987 kominn
Glæsilegri en nokkru
sinni fyrr.
Verð kr. 250.00, + póstkrafa
ATH: Aðeins 500 listar
verða seldir fyrir Norðurland
Umboð Akureyri sími 96-23126
allt að 99 minnum og er þeim
flett upp með + takka sem velur
hærra töluminni og +- takka sem
velur lægra töluminni. Einnig er
þessi útbúnaður til með einum
takka sem velur nýtt minni í
hvert skipti sem stutt er á hann.
Stillingin
Á sjónvarpstækjum er gjarnan
undir loki eða í skúffu röð af
stilliskrúfum. Við hverja stilli-
skrúfu er lítill rofi sem hefur
þrjár stöður. Hver staða er til að
velja viðeigandi band og stilli-
skrúfan til að velja rásina þ.e.
sjónvarpsstöðina. Hverju minni á
sjónvarpinu tilheyrir ein stilli-
skrúfa ásamt litla rofanum. Þegar
stilla á inn stöð þarf fyrst að velja
minni til að geyma hana á. Síðan
er að opna lokið eða skúffuna og
finna stilliskrúfuna og rofann fyr-
ir viðkomandi minni. í sumum
tilfellum er litli rofinn hólkur sem
er utan á stilliskrúfunni og er
honum snúið til að velja bandið.
Rofinn er settur á bandið sem
stöðin, sem við ætlum að horfa á
sendir út á. Síðan er stilliskrúf-
unni einfaldlega snúið þar til
myndin kemur skýr á skjáinn. Ef
við höfum valið minni eitt þá
kemur stöðin sem við stilltum inn
alltaf þegar stutt er á minni eitt.
Eins er hægt að gera við öll
minnin og velja eitt minni fyrir
hverja sjónvarpsstöð.
Myndsegulbönd og
myndlyklar
Pegar við höfum áttað okkur á
muninum á rásum, tíðniböndum
og minnum er mjög auðvelt að
skilja hvernig hægt er að stilla inn
og nota myndsegulbönd og
myndlykla. Myndsegulbönd eru
útbúin eins og sjónvarpstæki með
minnum og stilliskrúfum. Ef á að
taka upp efni frá einhverri sjón-
varpsstöð þarf að stilla hana inn á
myndbandstækið. Með því að
hafa eitt minni fyrir hverja stöð
er hægt að ráða með minnunum
hvaða stöð myndbandstækið tek-
ur upp. Mjög útbreiddur mis-
skilningur er að myndbandstækið
taki upp úr sjónvarpinu en svo er
alls ekki. Það tekur upp úr ioft-
netinu og við þurfum að stilla inn
stöðvarnar alveg eins og við
þurftum að stilla inn stöðvarnar á
sjónvarpinu til að horfa á þær.
Við getum hugsað okkur mynd-
bandstækið sem sjónvarpsstöð
þegar búið er að tengja það við
sjónvarp. Myndbandstæki senda
allflest út á tíðnibandi UHF og
frá rás u.þ.b. 30 til 40 en það er
misjafnt eftir tækjum og er
reyndar hægt að ráða útsending-
arrásinni á því bili. Pegar við
tengjum myndbandstæki við
sjónvarp er loftnetssnúran tekin
inn í myndbandið og úr því í
sjónvarpið. Þá er að velja minni á
sjónvarpinu til að stilla það inn.
í flestum tilfellum er eitt minn-
ið ætlað fyrir myndbönd. Er það
oftast hæsta talan eða minni
sem stendur á tug t.d; 10, 20. Gft
er það auðkennt með stöfunum
AV.
Við veljum svo með litla takk-
anum band UHF og stillum þar
til myndin sést frá myndbands-
tækinu. Erum við þá komin með
möguleika á að geta valið með
minnunum á sjónvarpinu ríkis-
sjónvarpið, Sjónvarp Akureyri
og myndbandstækið.
Ef við veljum minnið fyrir
myndbandið getum við séð
stöðvarnar sem það tekur á móti.
Þannig er hægt að taka upp á
myndbandið t.d. Sjónvarp Akur-
eyri með því að velja minnið fyrir
þá stöð á myndbandstækinu og
horfa svo á ríkissjónvarpið um
leið með því að velja viðeigandi
minni á sjónvarpinu. Myndlykl-
ana má hugsa sér alveg eins og
myndbandstæki. Þá þarf að stilla
fyrir þær stöðvar sem þeir eiga að
taka á móti og það þarf að stilla
sjónvarpið til að sjá myndina frá
þeim. Myndlyklar senda venju-
lega út á rás 33 á tíðnibandi
UHF.
Nú er komið að því að tengja
saman myndlykil, myndbands-
tæki og sjónvarp. Loftnetssnúran
er tengd inn á myndlykilinn síðan
er tengt frá honum í myndbands-
tækið og frá því í sjónvarpið. Þá
er að velja minni á myndbandinu
og stilla það fyrir myndlykilinn til
að hægt sé að taka upp leiðréttu
myndina. Eins þarf að gera á
sjónvarpinu svo hægt sé að horfa
á Sjónvarp Akureyri ótruflað.
Loftnet og loftnetskerfí
Ef við hugsum okkur að nota
einn myndlykil fyrir mörg sjón-
varpstæki t.d. í fjölbýlishúsi þarf
að tengja öll sjónvörpin saman.
Er það kallað loftnetskerfi. Loft-
netskerfin bjóða upp á þessa og
marga fleiri möguleika. Til að
tryggja að góð mynd náist í öllum
sjónvörpunum þarf að setja loft-
netsmagnara fremst í loftnets-
kerfið. Sjónvarpsloftnetum sem
notuð eru má skipta í tvo aðal
flokka. Breiðbandsloftnet og
svokölluð kanalloftnet. Kanal-
Ioftnetin hafa möguleika á að
taka á móti einungis einni stöð
eða eins og nafnið gefur til kynna
einum kanal (rás). Breiðbands-
loftnet geta hins vegar tekið á
móti fleiri rásum og eru þau
gjarnan gerð fyrir heilt tíðni-
band.
Skýringin á því að ríkissjón-
varpið sést vel en Sjónvarp Akur-
eyri illa getur einfaldlega verið sú
að loftnetið er kanalloftnet sem
gerir bara ráð fyrir einni rás þ.e.
ríkissjónvarpinu. Ríkissjónvarp-
ið sendir út á Akureyri og ná-
grenni á rás 6 en Sjónvarp Akur-
eyri á rás 12. Við vitum að band
III inniheldur rásir frá 5 til 12 því
er upplagt að nota breiðbands-
loftnet fyrir band III til að taka á
móti báðum þessum stöðvum.
Niðurlag
Sjálfsagt er að geta þess að mörg
fleiri tæki eru gerð til að tengja
við sjónvörp. Má þar nefna leik-
tæki ýmiss konar svo og tölvur.
Eins ber að hafa í huga að sá
stillibúnaður sem lýst er hér að
framan er ekki á öllum gerðum
sjónvarpstækja. Til eru svokall-
aðir sjálfleitarar sem gera tækinu
kleift að leita að stöðinni sjálft.
Er hún síðan geymd í rafeinda-
minni. Einnig er á nýjustu gerð-
um sjónvarpstækja hreinlega
hægt að setja beint inn númerið á
rásinni sem við ætlum að stilla
inn. Er slíkur búnaður t.d. á
myndlyklunum sem við höfum
minnst á. Ómögulegt er að
ímynda sér hvað framtíðin ber í
skauti sér en ljóst er að vegir
tækninnar á þessu sviði eru marg-
ir og verður tíminn einn að leiða
í ljós hverju fram vindur.
Ari Baldursson,
rafeindavirki.
SKÁTAR
ATHUGIÐ
Aöalfundir Skátabandalags Akureyrar, Skátafélags
Akureyrar og Skátafélagsins Valkyrjunnar veröa í
skátaheimilinu Hvammi fimmtudaginn 12. febrúar kl.
20.00.
Rétt til fundarsetu hafa allir skátar 15 ára og eldri.
Stjórn SBA.
?RAMTf£
FRAMSfÓKNARFLOKKURINN B-LISTINN
Guðmundur Bjarnason,
alþingismaður,
verður til viðtals á skrifstofunni,
Hafnarstræti 90, laugardaginn 14.
febrúar milli kl. 14 og 17.
Skrifstofa
amsóknarflokksins,
omii 21180.