Dagur - 12.02.1987, Síða 13
12. febrúar 1987 - DAGUR - 13
Umsión: Kristján Kristjánsson
Körfubolti 1. deild:
„Maður eygir alltaf
möguleika á sigri"
- segir Eyjólfur Sverrisson ieikmaður Tindastóls
en lið hans mætir Þór annað kvöld
Tindastóli og Þór leika á Sauð-
árkróki annað kvöld kl. 20 í 1.
deild íslandsmótsins í körfu-
knattleik. Leikurinn er þriðja
viðureign liðanna í deildinni og
Þórsurum hefur bæst góður
liðsauki í knattspyrnu fyrir
Óskar Óskarsson úr leik í bili.
Alls tóku 84 keppendur þátt í
Akureyrarmótinu í júdó sem
fram fór í íþróttahöllinni síð-
astliðinn laugardag. Keppt var
í 18 flokkum og þar af í tveim-
ur flokkum kvenna. Einn af
yngstu keppendunum, Magga
Lena Kristinsdóttir sem er 7
ára, keppti þó í flokki með
strákunum og hún gerði sér lít-
ið fyrir og sigraði í flokknum
með glæsibrag. Mótið þótti
takast vel þrátt fyrir að það
stæði yfir í fjóra og hálfa
klukkustund.
Sigurvegarar á mótinu urðu
þessir:
Magga Lena Kristinsdóttir
Birgir Örn Sveinsson
Guðbjörn Dan Gunnarsson
Elmar Freyr Elíasson
Arnar Már Sigurðsson
Eiríkur Huijbens
Ragnar Guðmundsson
Magnús Ásbjörnsson
Birkir Freyr Steinarsson
Birgir Björnsson
Sigurður Sigurðsson
Sævar Sigursteinsson
Hans Rúnar Snorrason
Auðjón Guðmundsson
Gunnar Georg Gunnarsson
Jón Heiðar Sveinsson
hafa Þórsarar farið með sigur
af hólmi í tvö fyrri skiptin.
Tindastólsmenn hafa yflrleitt
leikið mjög vel gegn Þórsurum
og veitt þeim harða keppni.
komandi keppnistímabil.
Magnús Magnússon miðvörð-
ur úr Breiðabliki hefur ákveð-
ið að leika með liðinu. Magnús
lék mjög vel með Breiðabliks-
liðinu síðasta sumar, hann er
stór og þykir geysilega sterkur
skallamaður. Hann á örugg-
lega eftir að reynast liðinu
mikill styrkur.
Eins og áður hefur komið fram
mun Guðmundur Valur Sigurðs-
son miðjuleikmaður úr Breiða-
bliki spila með Þór í sumar og
einnig markakóngur 4. deildar,
Óskar Óskarsson úr Aftureld-
ingu. Óskar er fluttur í bæinn og
var þegar byrjaður að æfa með
Þórsliðinu. Hann varð þó fyrir
því á mánudaginn, að botnlang-
inn í honum sprakk og varð hann
að leggjast á sjúkrahús í
uppskurð. Hann mun því ekkert
geta æft næstu 4-5 vikurnar.
Svala Björnsdóttir
Andrea Waage.
Það má því búast við hörkuleik
annað kvöld, þar sem litið
verður gefið eftir. Dagur hafði
samband við Eyjólf Sverrisson
leikmann Tindastóls og jafn-
framt stigahæsta manninn í 1.
deild og spurði hann um leik-
inn gegn Þór.
„ Þetta hafa verið fjörugir leikir
milli þessara liða í vetur og mað-
ur eygir alltaf möguleika á að
vinna, þó að það sé erfiðara í
þetta skiptið án Björns Sigtryggs-
sonar sem verið hefur einn besti
maður liðsins í vetur,“ sagði
körfuboltamaðurinn Eyjólfur
Sverrisson í Tindastóli, stigahæsti
maður 1. deildar um deildarleik
liðsins við Þór á Akureyri annað
kvöld. Ástæðuna fyrir jöfnum og
skemmtilegum leikjum þessara
liða í vetur, sagði hann líklega
vera að bæði liðin leika svipaðan
bolta, eru gefin fyrir hraðan leik.
Um árangur Tindastólsliðsins í
vetur hafði hann þetta að segja.
Þeir Bogdan Kowalzick lands-
liðsþjálfari íslands í hand-
knattleik og Jón Hjaltalín
Magnússon formaður HSI
voru staddir hér á Akureyri í
gær og fyrradag. í samtali sem
blaðamaður Dags átti við þá
félaga í gær, kom fram að
Landsliðsnefnd HSÍ er að
kanna möguleika á því að
halda hér á Akureyri alþjóð-
legt handknattleiksmót með
þátttöku íslands og þriggja
annarra landsliða.
„Auðveldara að skora í 1. deild en
2. deild,“ segir Eyjólfur.
„Okkur hefur gengið svona
álíka og kannski heldur betur en
við var að búast. Maður var ekk-
ert ofboðslega bjartsýnn eftir að
ljóst var að Haraldur Leifsson
stærsti maður okkar gæti ekki
leikið með. En þetta hefur geng-
ið framar vonum, nema í leikjun-
um sem við töpuðum gegn Breiða-
Jbliki og Stúdentum. Við eig-
um ekki að tapa fyrir þessum
liðum. Þau náðu að svæfa okkur
og við duttum niður á 2. deildar
planið. En ég trúi ekki öðru úr
þessu en að við höldum okkur í
deildinni og stefnan er sett á 4.
sætið. Hvað sjálfum mér viðvík-
ur, þá hefur mér gengið mun bet-
ur en ég bjóst við og mér finnst í
rauninni mun auðveldara að
skora í 1. deildinni, heldur en var
í þeirri 2. síðasta vetur.“ -þá
Málið er á frumstigi og enn
ekki ljóst hvaða lið hér um ræðir
en þó er öruggt að um sterkar
handknattleiksþjóðir yrði að
ræða. Forráðamenn HSÍ eru mjög
ánægðir með þær móttökur sem
þeir fengu hér um daginn, er lið
Islands og Alsír mættust í Flug-
leiðamótinu.
Einnig er talað um það, að
samfara mótinu næsta haust yrði
A-landslið íslands hér fyrir norð-
an í æfingabúðum einhverja daga
fyrir mótið.
Jón Hjaltalín taldi mikilvægt
að pallarnir sem eiga að koma í
Höllina hér á Akureyri yrðu sett-
ir upp sem fyrst, þannig að fleiri
áhorfendur kæmust að og að
íbúar í nágrannabyggðarlögun-
um við Akureyri ættu einnig
möguleika á því að sjá landsleiki
hér.
í blaðinu á morgun verður
viðtal sem blaðamaður Dags átti
við Bogdan Kowalzick í gær,
m.a. um stöðu handknattleiksins
á Akureyri og dvöl hans hér.
Árshátíð
Þórs
Árshátíð íþróttafélagsins Þórs
fer fram á Hótel KEA 28. febrú-
ar næstkomandi. Þar verður
ýmislegt gert til skemmtunar og
munu einstakar deildir innan
félagsins sjá um skemmtiatriði.
Þá verður að sjálfsögðu borðaður
góður matur og stiginn dans.
Dagskráin verður auglýst nán-
ar síðar.
Skíði:
Bikarmót
á Siglufirði
Um 80 keppendur er skráðir
til leiks á hikarmóti SKÍ í
alpagreinum i flokki 13-14
ára unglinga sem fram fer á
Siglufirði um heigina.
Fyrri ferðirnar í svigi og
stórsvigi verða farnar á laugar-
dag og mótinu lýkur síðan um
miðjan dag á sunnudag. í
^essum flokki eru margir
snjallir skíðamenn sem eiga
eftir að láta mikið að sér
kveða í framtíðinni. Það verð-
ur því örugglega hart barist á
Siglufirði um helgina.
Skíði:
Akureyrar-
mótið
- í flokki 15-16 ára
- Krakkar úr SRA í
dagsferð til Dalvíkur
Akureyrarmótið í svigi og
stórsvigi í flokki 15-16 ára
fer fram í Hlíðarfjalli um
helgina.
Keppt verður í svigi á laug-
ardag en í stórsvigi á sunnudag
og hefst keppni kl. 11 báða
dagana.
Á laugardaginn heldur fríð-
ur flokkur krakka f SRA, 12
ára og yngri í dagsferð til Dal-
víkur þar sem þau munu etja
kappi við jafnaldra sína. Þar
verður m.a. farið í leiki og
þrautir. Það verðuv því örugg-
lega mikið fjör á, Dalvík á
laugardaginn.
Skíðaganga:
Þórs-
mót
Þórsmótið í skíðagöngu fer
fram á laugardaginn kemur í
Hlíðarfjalli og hefst kl. 13.
Gengið verður með hefð-
bundinni aðferð.
Keppt verður í öllum
aldursflokkum og er æskilegt
að þátttakendur mæti til
skráningar einni klukkustund
fyrir keppni.
UMF. Reynir:
Arnar
íþrótta-
maður ársins
Ungmennafélagið Reynir á
Árskógsströnd útnefndi á
dögunum íþróttamann
félagsins fyrir árið 1986.
Fyrir valinu að þessu sinni
varð Arnar Gústafsson
knattspyrnumaður. Arnar
hefur leikið með meistara-
flokki félagsins undanfarin
ár og jafnan staðið sig vel.
UMF. Reynir hefur ráðið
Rúnar Steingrímsson sem
framkvæmdastjóra félagsins í
fullt starf í fjóra mánuði í
sumar. Auk þess sem Rúnar
sér um fjármál félagsins og
knattspyrnuvöllinn að ein-
hverju leyti, mun liann þjálfa
tvo yngri flokka Reynis.
i
i
f ;
v
%
Jón Heiðar Sveinsson sigraði í sínum flokki á Akureyrarmótinu í júdó á
laugardaginn.
Knattspyrna:
Magnús til Þórs
- Úskar úr leik í bili
Akureyrarmótið í júdó:
Magga Lena
lagði strákana
Handbolti:
Alþjóðlegt mót
á Akureyri?