Dagur - 20.02.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 20.02.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur Akureyri, föstudagur 20. febrúar 1987 35. tölublað Hestur í Þingeyjarsýslu: Fékk hurðar- húninn upp í augað! - og hurðin fór af hjörunum Hestur í Suður-Þingeyjar- sýslu varð nýlega fyrir mjög sérstæðri lífsreynslu. Hestur- inn, sem var í húsi við bæinn Rangá í Köldu-Kinn, ákvað einn daginn að snúa sér við í krónni, þá vildi svo slysalega til að hurðarhandfang rakst upp í augað á honum. Lét hesturinn illa við þessum aðskotahlut í líkamanum og lyfti höfðinu, en tók við það hurðina, sem handfangið var á, af hjörunum. Pegar komið var að hestinum var hann því með hurðina á hausnum og handfangið á kafi í auganu. Sáu menn ekki annað ráð vænna en að lóga hestinum umsvifalaust en þar sem engin byssa var við hendina var hringt í Bárð Guðmundsson dýralækni á Húsavík og spurt hvort nokk- ur möguleiki væri á að bjarga lífi hestsins. Bárður brá skjótt við en meðan hann var á leið- inni í Rangá var hurðin skrúfuð af handfanginu í höfði hestsins. „Þetta var svo sérstakt að það er varla hægt að lýsa því, ég hef aldrei séð neitt svona fyrr,“ sagði Bárður þegar Dagur spurðist fyrir um málið. „Þetta var ekki faeurt en eftir ég hafði deyft hestinn vel gat ég losað handfangið. Augað virtist ekki hafa skemmst svo ég skol- aði út og lagfærði brot í ennis- beininu eins og hægt var.“ Nú virðist hesturinn, sem er fjögurra vetra, ætla að ná hesta- heilsu á ný. Ótrúlega vel virðist hafa tekist að gera að meiðslum hans og hann virðist hafa haldið sjóninni á auganu. IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.