Dagur - 20.02.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 20.02.1987, Blaðsíða 7
20. febrúar 1987 - DAGUR - 7 „Hvað ætlar Gylfi Þ. að gera núna?“ Námsmcnn mótmæla, Guðmundur kominn með konu og barn, en brátt fer hann að skvetta úr klaufunum svo um munar. __ Mynd: ri>b Leikfélag Öngulsstaðahrepps: Láttu ekki deigan síga Guðmundur - Frumsýning í kvöld Leikfélag Öngulsstaðahrepps frumsýnir í kvöld gaman- og ádeiluverkiö „Láttu ekki deig- an síga Guðmundur“ eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur. Tónlistin er eft- ir Jóhann G. Jóhannsson, söngtextar eftir Þórarinn Eld- járn og Anton Helga Jónsson. Leikstjóri er Svanhildur Jóhannesdóttir. Það eru Leikfélag Önguls- staðahrepps og Ungmennafélag- ið Árroðinn sem standa að sýn- ingunni en sýningar verða í Frey- vangi. Petta er afmælisverkefni leikfélagsins sem á 25 ára afmæli á árinu og til að halda veglega upp á það var ráðist í svona stóra sýningu. Alls vinna um 30 manns að sýningunni, þar af 17 leikarar sem bregða sér í ýmis hlutverk. Aðalhlutverkið leikur hinn geðþekki og skemmtilegi prestur í Eyjafirði, séra Hannes Örn Blandon sem leikur Guðmund. Garpur Snær, sonur Guðmund- ar, er leikinn af Ingólfi Jóhanns- < syni og Höllu, sem er fyrsta kon- an í lífi Guðmundar og móðir Garps, leikur Elín Sigurðardótt- ir. Állir leikararnir eru úr sveit- inni eða tengjast henni á ein- hvern hátt og eru þeir með mis- mikla reynslu á þessu sviði. Blaðamenn litu á æfingu og skemmtu sér konunglega. „Láttu ekki deigan síga Guðmundur" er verk sem spannar ein 20 ár í lífi Guðmundar, frá því hann var stúdent og fram til dagsins í dag. Form leikritsins er þannig að þeir Garpur og Guðmundur ræðast við í nútímanum og rifja upp fortíðina sem birtist þá ljóslif- andi, hvert skeiðið af öðru. Guð- mundur kynnist Höllu í mennta- skóla og er þau setja upp stúd- entshúfurnar tilkynnir hún að hún sé ófrísk. Þau eru af ’68 kynslóðinni og lenda í námsmannamótmælum og ýmsum hræringum. Fljótlega eftir að Garpur fæðist verður Halla ófrísk aftur en þá er Guð- mundur orðinn óforbetranlegur kvennabósi og áhrifagjarn með afbrigðum. Þau skilja. Þannig gengur þetta hjá Guðmundi, Inga, Dröfn, Rós, Sigurbjörg, Arna, allt eru þetta konur í lífi Guðmundar sem ekki lætur deig- an síga. Guðmundur (séra Hannes) og Halla ’68 kynslóðinni. Ýmsar bráðskemmtilegar uppákomur eru í þessu leikriti. Guðmundur er litrík persóna sem þarf að reyna allt. Opið kynlíf, mótmæli gegn stríði í Víetnam, barátta verkalýðsins, austurlensk speki og eiturlyf, Danmörk, jafnréttisbarátta, gömul hús, allt þarf Guðmundur að reyna og ávallt tengist ný kona nýju skeiði. Enda þykir Garpi nóg um þegar þeir eru að rifja þetta upp og hæðist óspart að föður sínum fyrir kvensemina. Aftur til upphafsins, gæti loka- atriði leikritsins heitið, en ekki vil ég segja meira frá efni þess. Allt orðbragð og æði leikaranna er skondið, stundum gróft, bún- ingar í anda hvers tíma, tónlistin góð og textar smellnir, sniðugar (Elín) sem stúdentar. Lífsglatt fólk af Mynd: Rí>B úrlausnir varðandi sviðsmynd, háðskar senur, skemmtilegt leikrit. í raun furða hvað tekst að gera löngu tímabili með því að draga fram einkennandi atriði hverju sinni. Áhorfendur nær og fjær geta því búist við góðri kvöldstund í Freyvangi. Atli Guðlaugsson stjórnar tón- listinni í verkinu en flytjendur eru Þórdís Karlsdóttir og Eiríkur Bóasson. Helga Alís veitti aðstoð í dansatriðum, Halldór Sigur- geirsson annast lýsingu. Eins og fyrr segir verður leikritið frum- sýnt í kvöld. Önnur sýning verð- ur á sunnudag en framvegis verða sýningar á föstudögum og laugar- dögum og jafnvel í miðri viku. Hægt er að panta miða í síma 24936. Góða skemmtun. SS Til sölu Zuzuki Fox, árg. ’83,ek. 40 þús. km. Aukabúnaður: Fm útvarp, yfirstærð af dekkjum, leður- klæddur að innan, grjótgrind. Verð kl. 330.000.- Uppl. gefur Úlfar í símum 26510, 26515 og 26111. Útihurðir, gluggar og gluggagrindur Framleiðum útihurðir, glugga og gluggagrinduraf mismunandi gerðum, kaupandi getur valið um ýmsar viðartegundir, svo sem teak, oregon pine, mahogni, furuo.fi. Gluggaviðgerðir Allar hurðir og gluggagrindur eru með innfræst- um þéttilista. Sérsmíðum eftir ósk kaupanda. Gerum verðtilboð. Bílskúrshurðir Bilskúrshurðajárn (a ^ ~l TRÍSMIDJAN ^IDRKURÍ Fjölnisgötu 1a Akureyri Sími 96-21909 AFMÆLISPLATTAR BORÐFÁNASTANGIR BRÉFAPRESSUR DYRAPLATTAR KLUKKUSKÍFUR LEGSTEINAR PENNASTATÍF VERÐALAUNAGRIPIR STEINSÖGUN OG SLÍPUN Sérunnin gjafavara úr íslenskum og bergtegundum ALFASTEINN % 720 - Borgarfirði eystri - Sími 97-2977 Fáið myndbækling hjá okkur eða í KA-húsinu, Akureyri. _jleiklist: Höfum opnað stórglæsilega Sólbaösstofu að Geislagötu 12. Nuddpottur og vatnsgufubað Sér aðstaða fyrir hvern mann. Verið velkomin. sími 25856.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.