Dagur - 20.02.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 20.02.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 20. febrúar 1987 Firmakeppni í knattspyrnu innanhúss Knattspyrnuráð Akureyrar auglýsir eftir þátttöku í firmakeppni innanhúss 1987. Þátttökurétt hafa öll fyrirtæki/starfshópar á Akureyri og í nágrenni. Heimilt er fyrir tvo aöila aö sameinast um lið í keppnina, ef þeir vegna fámennis hafa ekki í lið. Meö þátttökutilkynningum skal fylgja nafnalisti yfir þá leikmenn er þátt taka og er óheimilt að breyta þeim lista eftir að keppni er hafin. Þátttökurétt hafa þeir starfsmenn sem voru á launa- skrá fyrirtækis 1. febrúar sl. Bent skal sérstaklega á að leikið verður samkvæmt nýjum reglum, er samþykktar voru á síðasta K.S.Í. þingi. Þátttökulistum, ásamt þátttökugjaldi, kr. 4.000 fyrir 1 lið, kr. 7.000 fyrir 2 lið og kr. 2.000 fyrir hvert lið umfram 2, skal skila til Sveins Björnssonar Plastiðj- unni Bjargi eða Davíðs Jóhannssonar N.T. umboð- inu, fyrir 23. febrúar 1987. K.R.A. Lífeyrisréttur - Lánaréttur Stjórn Lífeyrissjóðs bænda vill að gefnu tilefni vekja athygli ungs fólks, sem á heimili í sveitum á því að það á bæði rétt og skyldu til að vera félagar í sjóðnum, hafi það tekjur af vinnu við landbúnað. Stjórninni þykir sérstök ástæða til að vekja athygli á þessu nú vegna þess réttar, sem aðild að sjóðnum veitir til lána vegna kaupa á húsnæði eða til hús- bygginga skv. nýjum lögum um húsnæðislán. Stjórn sjóðsins skorar bæði á unga fólkið sjálft og vinnuveitendur þess, ekki síst séu það foreldrar þess, að sjá til þess að iðgjöld séu greidd reglulega til sjóðsins af öllum vinnulaunum og fríðindum, sem eru hluti launa. Þar er átt við laun, sem greidd eru með búvörum, fæði og húsnæði svo og skólakostn- aður. Stjórn Lífeyrissjóðs bænda. Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Richardshús, s-hluti, Hjalteyri, þingl. eigandi Sveinn Eðvaldsson o.fl., fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 25. febr. k. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Gunnar Sólnes hrl. og Veðdeild Landsbanka Islands. Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Leikféíag Akureyrai Verðlaunaleikritið Hvenær kemurðu aftur rauðhærði riddari Sýningar: Föstudag 20. febrúar kl. 20.30. Laugardag 21. febrúar kl. 20.30 Síðustu sýningar. Ath. Sýningin er ekki ætluð börnum. Miðasala í Anni, Skipagötu er opin frá kl. 14.00-18.00, sími 24073. Símsvari allan sólarhringinn. Passa- myndir Gott úrval mynda- ramma ilnonður. yffinnynol Shljósmyndaitofa Slmi 96-22807 • Pósthólf 464 Glerárgötu 20 602 Akureyri Hvers vegna jafnrétti og félagshyggju? Stuðningsfólk J-listans fundar í Vín sunnudaginn 22. febrúar kl. 21.00. Dagskrá: 1. Hvers vegna jafnrétti og félagshyggja? Pétur Þórarinsson. 2. Rætur misréttis - Leiðir til jafnréttis. Karólína Stefánsdóttir. 3. Áhrif mengunar og efnishyggju á umhverfi og mannlíf. Bjarni Guðleifsson. 4. Hugmyndagrundvöllur og stefna: Umræðuhópar undir stjórn Auðar Eiríksdóttur. 5. Fyrirspurnir - Almennar umræður. Fundarstjóri: Höskuldur Höskuldsson. Stuðningsfólk! Komið og takið virkan þátt í þróun og stefnu framboðsins. J-listinn. Norðurland eystra: Gigtarfélag stofnað á sunnudag Þann 8. des. sl. stóð lítill hópur um málefni gigtsjúkra fyrir fundi þar sem rætt var um stofnun gigtarfélags á N.-landi eystra. Fundurinn var mjög vel sóttur og einhugur ríkjandi um nauðsyn þess að gigtsjúkir og aðrir þeir er málið varðar hefðu með sér einhver samtök. Þar var einróma samþykkt að stofna félag í tengsium við Gigtarfélag Islands ekki seinna en í febrúar á þessu ári. Stofn- fundur þessi verður haldinn á Hótel KEA, nk. sunnudag kl. 15.00. Ljóst er að hér á svæðinu er stór hópur fólks (u.þ.b. 2500 manns) sem á við varanlegan heilsubrest að stríða af völdum Akureyri: Skátafélögin sameinast Sunnudaginn 22. febrúar munu Kvenskátafélagið Val- kyrjan og Skátafélag Akureyr- ar sameinast í eitt nýtt skáta- félag. Þessi dagur er afmælis- dagur stofnanda hreyfingar- innar og hefur lengi verið hald- inn hátíðlegur hjá skátum. Sameining félaganna verður á hátíðarfundi síðdegis þar sem koma skátar 15 ára og eldri ásamt boðsgestum. Um kvöldið kl. 20.00 verður hefðbundin skátakvöldvaka í íþróttahúsi Glerárskóla og eru skátaforeldrar hvattir til að mæta. Samkomunni verður lokið kl. 21.30 og yngri krökkum sem eiga lengri veg heim verður hjálpað með far. gigtsjúkdóma. Telja má að sam- eiginleg hagsmunarmál þessa fólks séu svo mörg og brýn að ástæða sé til að vinna saman að framgangi þessara mála. Gigtarfélag íslands er að vísu til og hefur unnið mikið og gott starf, en sú uppbygging hefur fyrst og fremst miðast við suð- vesturhornið og nýtist fólki hér takmarkað. Með stofnun gigtarfélags hér nyrðra er vonast til að geta flýtt fyrir uppbyggingu ýmissar þjón- ustu fyrir gigtsjúka. Hér er eng- inn gigtarsérfræðingur starfandi. Ef til vill er á einhvern hátt hægt að flýta fyrir því að slík staða fáist að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Á svæðinu er engin sérhæfð þjálfunar- og endurhæfingarað- staða fyrir gigtsjúka, t.d. engin sundlaug sem er aðgengileg fötl- uðum. Ur því þarf að bæta, helst í samvinnu við aðra sem á slíkri aðstöðu þurfa að halda. Mikill skortur er á fræðslu og upplýsing- um um gigt og réttindi gigtsjúkra. Það tekur allt of langan tíma frá því að gigt er greind, þar til við- komandi einstaklingur hefur fengið allar upplýsingar sem hann þarf á að halda. Úr þessu er hægt að bæta með útgáfu og fræðslufundum. Síðast en ekki síst má fullvíst telja að með því að vera í félagi geti gigtsjúkir og aðstandendur þeirra, t.d. foreldrar barna með Íiðagigt, veitt hver öðrum þann andlega stuðning sem þeir þurfa svo mjög á að halda. Það eru nefnilega svo fáir sem vita að það er ekkert „bara“ að vera með langvarandi gigt. Undirbúningsnefndin vill því eindregið hvetja alla sem áhuga hafa á úrbótum í málum gigt- sjúkra á Norðurlandi eystra að koma á fundinn á sunnudaginn og leggja málinu lið. íþróttir helgarinnar Það verður mikið um að vera hjá norðlensku íþróttafólki nú um helgina sem aðrar helgar. I kvöld kl. 20 leika Þór og Grótta í 2. deildinni í hand- bolta. Leikurinn fer fram í Höllinni á Akureyri og hefst kl. 20. Á sama tíma leika Tindastóll og UMFG í 1. deild- inni í körfubolta á Sauðár- króki. Fyrsta deildin í hand- bolta hefst á ný í kvöld og leika KA-menn gegn Val í Laugar- dalshöllinni kl. 20.15. Þriðju deildar lið Völsungs í hand- bolta mætir Ögra í kvöld í Laugardalshöllinni, strax á eft- ir leik Vals og KA. KA-liðin íblaki verða í eldlín- unni í kvöld. Karlaliðið mætir HSK á Laugarvatni kl. 20.30 og kvennalið UBK í Digranesi í Kópavogi kl. 20. Á morgun laugardag leika Þór og UMFG í 1. deildinni í körfu- bolta. Leikurinn fer fram í Höll- inni á Akureyri og hefst kl. 14. Strákarnir í blakliði KA leika seinni leikinn í suðurferð sinni á morgun en þá mæta þeir Fram í Hagaskóla íd. 15.15. Völsungur leikur gegn UMÍB á morgun í 3. deildinni í handbolta. Leikurinn fer fram í Ásgarði í Garðabæ og hefst kl. 14. Á morgun laugardag fara fram bikarmót SKÍ í alpagreinum og göngu í Hlíðarfjalli. Keppt verð- ur í stórsvigi kvenna, svigi karla og í göngu með hefðbundinni aðferð. Keppnin í stórsviginu hefst kl. 10.30, keppni í svigi kl. 11.15 og keppni í göngu kl. 11. Á sunnudaginn keppa karlarnir í stórsvigi ki. 10.30, konurnar í svigi kl. 11.15 og ganga með frjálsri aðferð hefst kl. 11.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.