Dagur - 20.02.1987, Blaðsíða 16

Dagur - 20.02.1987, Blaðsíða 16
Eiginmenn Gefið konunni frí á konudaginn. Ðjóðið fjölskyldunni á Bautann eða Smiðjuna. Sértilboð fyrir börnin. Dögun á Sauðárkróki: „Rekstrarerfið- leikar að baki í bili“ „Síðasta ár kom ágætlega út fyrir okkur og það má segja að þeir rekstrarerfiðleikar sem fyrirtækið hefur átt við að stríða síðustu misseri séu að baki í biii,“ sagði Garðar Sveinn Árnason framkvæmda- stjóri rækjuvinnslunnar Dögunar á Sauðárkróki. í Dögun vinna 8 manns og hefur vinna verið þokkaleg undanfarið, þrátt fyrir að aðeins einn bátur, Röstin, sem er í eigu fyrirtækisins leggi þar upp afla. Garðar Sveinn sagði að með vor- inu yrðu eins og síðasta vor fengin fleiri skip til að afla hráefnis, en útilokað sé að fá skip meðan vetrarvertíðin stendur sem hæst. Þá er reiknað með að ef Drang- ey fer á frystingu eins og ráðgert er, muni Dögun fá smæstu rækj- una, þá sem ekki fer til Japans til vinnslu. Það myndi koma sér vel, því þar sem frosin rækja er ekki það bundin vinnsludegi, yrði hag- stætt að dekka með henni þann tíma sem ferskt hráefni er ekki til staðar. -þá Dalvík: Þrir togarar í viðgerð „Björgvin landaði 90 tonnum á þriðjudaginn en hann er eini Dýpkun fyrir 5,4 milljónir Bæjaryfirvöld á Ólafsfírði hafa samþykkt að ganga til samn- inga við Hafnarmálastofnun um að stofnunin sjái um dýpk- un hafnarinnar þar. Mun dýpk- unarskipið Hákur verða not- að við verkið. Dýpkunarmálin á Ólafsfirði hafa verið í sviðsljósinu í nokk- urn tíma, og var fyrirtækið Björgun í Reykjavík inni í þeirri umræðu um tíma. Þá var einnig rætt um þann möguleika að efni úr höfninni yrði dælt suður á nýja íþróttavallarstæðið en frá því hefur nú verið horfið. Eftir að endurskoðuð áætlún Hafn- armálastofnunar um kostnað vegna verksins lá fyrir - -hún nemur 5,4 milljónum króna - var ákveðið að stofnunin myndi ann- ast verkið, og er vonast til að það geti hafist sem fyrst. gk- togari okkar sem er á veiðum núna. Björgúlfur er í viðgerð í Hollandi, Dalborgin er í Slipp- stöðinni á Akureyri og Baldur er í viðgerð hér við bryggju,“ sagði Valdimar Bragason hjá Útgerðarfélagi Dalvíkinga hf. í gær. Þegar Valdimar var spurður að því hvaða áhrif það hefði á atvinnulífið á Dalvík að þrír togarar eru frá vegna viðgerða sagði hann: „Baldur fer líklega á veiðar aftur í næstu viku. Það hefur verið samfelld vinna í frystihúsinu eftir að sjó- mannaverkfallið leystist og ég á ekki von á að það breytist. Við höfum fengið lánaðan fisk frá Grenivík og svo eigum við eftir að fá fisk sem við lánuðum í fyrra. Ég held að okkur takist að halda a.m.k. átta tíma vinnu í frystihúsinu.“ Að sögn Valdimars er verið að yfirfara spillagnir á dekki Baldurs og einnig stendur yfir viðgerð á stýriventlum í spili. Þegar Baldur var tekinn í slipp var sett í hann ný ljósavél og nú er verið að vinna við hana. Bílaverkstæði Dalvíkur annast viðgerðirnar. EHB Það er vor í lofti í febrúar og menn eru spekingslegir þar sem þeir virða fyrir sér trillurnar í Sandgerðisbótinni á Akureyri. Mynd. RPB Samningar Sovétmanna og Jðnaðardeildar SÍS: „Rússamir tregari nú en í - sagði Aðalsteinn Helgason, framkvæmdastjóri „Jón Sigurðarson og Ála- fossmenn eru ennþá að semja við Rússana og það eru ein- hverjar líkur á að samkomulag náist um síðir,“ sagði Aðal- steinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Ullariðnaðar- deildar SIS á Akureyri í gær, en hann er nýkominn frá Sovétríkjunum þar sem unnið er að samningum um sölu ullarvara. Rekstrarform háskóla á Akureyri: Ríkisstofnun eða sjálfseignarstofnun? Aðalsteinn sagði, að hvað ríkisfyrirtækið Razno snerti, þá vildu þeir minna Nnagn nú af ullarvörum en áður': Þá mætti segja að verðið færi heldur niður á við því að Rússarnir hækkuðu það ekki til samræmis við gengis- sig dollarans, eins og þörf væri á. Jón Sigurðarson stendur nú í samningum við sovéska sam- vinnusambandið, Sojus, og er ekki vitað á þessu stigi hvaða samningar nást þar. - Meirihlutinn vill kanna hvort tveggja en fulltrúi Abl. vill ríkisstofnun I skýrslu háskólanefndar Akureyrar er aðeins eitt atriði sem ekki náðist full samstaða um í nefndinni, en það er rekstrarfyrirkomulag skólans. „Meirihluti nefndarinnar tekur ekki afstöðu til hvers konar fyrirkomulag skuli haft á rek- strinum en bendir á tvo mögu- leika sem að hans mati ætti að kanna til hlítar,“ segir í skýrsl- unni. Þessir tveir möguleikar eru annars vegar að um verði að ræða ríkisstofnun en hins vegar sjálfs- eignarstofnun. Þannig er þeirri hugmynd varpað fram að skólinn verði í eigu ríkis, Akureyrar- bæjar og einkaaðila og rekinn með framlögum fyrirtækja og ríkis auk skólagjalda. „Þarna er um að ræða náms- brautir sem eru nátengdar mikil- vægum atvinnugreinum íslend- inga. Því er það spurning hvort ekki sé rétt að gefa aðilum innan atvinnuveganna kost á að eignast hlut í skólanum og þá ráða nokkru um stjórn hans,“ sagði Tómas Ingi Olrich formaður nefndarinnar um álit meiri- hlutans. „Skólagjöld og fjárhagslegt sjálfstæði gætu veitt háskólanum rýmri stöðu í launagreiðslum. í Háskóla íslands er mikið um það að stúdentar innritast án þess að stunda nám af mikilli alvöru. Skólagjöld gætu dregið úr þess konar gervinámi. Það er útbreiddur misskilníngur að skólagjöld þurfi að leiða til mis- munandi námsaðstöðu eftir efna- hag. Skólagjöld geta orðið tilefni til námsstyrkjakerfis,“ sagði Tómas. Fulltrúi Alþýðubandalagsins í nefndinni, Guðlaug Hermanns- dóttir, telur að háskóli á Akur- eyri eigi að vera ríkisstofnun rek- in á sama grundvelli og HÍ. „Það er grundvallaratriði í stefnu Alþýðubandalagsins að nám eigi að vera öllum opið, án tillits til efnahags. Það er það því aðeins að það sé kostað af almenningi,“ sagði Guðlaug í samtali við Dag. „Það var full samstaða um það í nefndinni að eiga gott samstarf við fyrirtæki og þau gætu styrkt skólann á ýmsan hátt. Ég tel hins vegar ekki rétt að þau fái beina íhlutun í rekstur og stefnumótun stofnunarinnar,“ sagði Guðlaug. ET „Staðan er sú að Rússarnir eru tregari nú en í fyrra. Þetta bygg- ist bæði á því að þeir vilja minna magn nú en áður og verðið sem þeir bjóða er lágt. Ég geri mér satt að segja ekki grein fyrir því hvort þeir hafa yfirleitt áhuga á áframhaldandi viðskiptum á þessu sviði eða ekki. Frá árinu 1983 hefur þróunin verið sú að verð sem fæst fyrir fatnað til Sovétríkjanna hefur lækkað mið- að við verð á þessum vörum til annarra landa. Þó er ekki útséð með það ennþá hvaða samningar nást. Það liggur vonandi fyrir í næstu viku,“ sagði Aðalsteinn að lokum. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.