Dagur - 20.02.1987, Síða 3
20. febrúar 1987 - DAGUR - 3
Þeir tylltu sér niður í nýja salnum í gærmorgun. F.v.: Indriði Ulfsson sýningarstjóri, Birgir Ágústsson hönnuður
hússins, Sigurður Arnfinnsson bíóstjóri og Arnfínnur Arnfínnsson framkvæmdastjóri Borgarbíós, en það eru stúk-
urnar Brynja og Isafold sem eiga Borgarbíó og hafa rekið það í nær hálfa öld. Mynd: rþb
er þessi útbúnaður eins og best
gerist í dag.
„Betri og fleiri myndir,“ var
svarið er forráðamenn Borgarbíós.
voru spurðir hvað þetta þýddi
fyrir gesti þeirra. Þegar gamli sal-
urinn verður tekinn í notkun að
nýju eftir breytingarnar eftir 1-2
mánuði verða myndirnar fyrst
sýndar þar í sal sem mun taka 245
manns í sæti og getur einnig hýst
hljómleika, og myndirnar síðan
fluttar í minni salinn. Fleiri
myndir verða því í gangi, þær
verða sýndar lengur og ekki má
gleyma því að með þessu fyrir-
komulagi næst fram mikill sparn-
aður. Þannig þarf einungis einn
sýningarmann fyrir báða salina,
einn dyravörð og ekki fleira fólk í
miða- og sælgætissölu en nú er
þrátt fyrir að 4-6 myndir verði í
gangi í einu.
Sem fyrr sagði er húsið hann-
að af Birgi Ágústssyni, Haraldur
og Guðlaugur sf. sáu um allt
tréverk, Júlíus og Guðni um
múrverk utanhúss, Magnús
Gíslason um múrverk innanhúss,
Aðalgeir Finnsson hf. un> hurðir
og innréttingar, Raflagnaverk-
stæði Tómasar Sæmundssonar
um raflagnir, Bjarni Jónasson um
pípulagnir og Blikkvirki um loft-
ræstikerfið, en það er hljóðlátt
mjög og getur verið í gangi á
meðan sýningar fara fram.
Fyrsta sýningin er kl. 21 annað
kvöíd, og verður þá frumsýnd hér
á landi mynd Roman Polanskis,
„Pirates". Aðrar myndir sem
sýndar verða um helgina eru
„Léttlyndar löggur“, „ET“ og
„Link“. gk-.
Framtíðarskipan skóiahverfa á Akureyri:
7.-9. bekkur eingöngu
í Glerárskóla og G.A.
Skólanefnd Akureyrar hefur
undanfarið fjallað um skipan
nemenda í skóla með tilliti til
áætlana um mannfjölda, byggð
og húsnæði skólanna. Fyrri
skólanefnd lagði fram ályktun
um þessi mál sem var sam-
þykkt í bæjarstjórn þ. 20. mars
1986.
Á fundi Skólanefndar Akur-
eyrar 4. febrúar var lögð fram til-
laga um að stefnt verði að
óbreyttum skólahverfum á Akur-
eyri ef frá eru skilin eftirfarandi
atriði: Frá og með næsta hausti
Gullhringur
hvarf úr
geymslu
Sigrún Kristinsdóttir hringdi.
Hún sagði ungan son sinn hafa
verið að keppa á júdómóti í
íþróttahöllinni á Akureyri 7.
febrúar síðastliðinn. Drengur-
inn lét geyma fyrir sig gullhring
í afgreiðslunni en gleymdi síðan
að sækja hann að móti loknu.
Nokkrum dögum síðar vitjaði
hann hringsins en hann hafði þá
verið tekinn.
Sigrún vildi koma því á fram-
færi við foreldra að þeir athug-
uðu hvort í fórum barna þeirra
væri gullhringur merktur J.K.
Ef svo er þá eru viðkomandi
beönir að skila honum í af-
greiðslu íþróttahallarinnar.
sæki allir nemendur í 7.-9. bekk,
sem búa sunnan Glerár, nám í
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Strax og aðstæður leyfa, sæki allir
nemendur í 7.-9. bekk, sem búa
norðan Glerár, nám í Glerár-
skóla. Allir nemendur úr Holta-
hverfi og syðsta hluta Skarðshlíð-
ar sæki nám í Glerárskóla um
leið og það er framkvæmanlegt.
Þegar byggt verður í væntanlegu
Giljahverfi, þá sæki nemendur
þaðan nám í forskóla til 6. bekkj-
ar í Síðuskóla.
Þegar rætt er um skóla sam-
kvæmt þessum tillögum þá er
ýmist rætt um safnskóla eða
hverfisskóla. Safnskóli er skóli
þar sem börn úr öðrum skóla-
hverfum koma til náms ásamt
börnum úr skólahverfi viðkom-
andi skóla. Hverfisskóli er skóli
sem eingöngu er bundinn við að
þjóna börnum úr sínu eigin
skólahverfi. Á Akureyri er að-
eins einn skóli sem er alfarið
safnskóli en það er Gagnfræða-
skólinn. Glerárskólinn verður
bæði safnskóli og hverfisskóli.
EHB
„Of seint að tala
við Steingrím“
- segir kosningastjóri sérframboðsins
„Ég vil að það komi fram í eitt
skipti fyrir öll að þegar við ósk-
uðum eftir því að fá áheyrn hjá
fulltrúum Framsóknarflokks-
ins á tröppunum á Hótel KEA,
þá var því hafnað,“ sagði Har-
aldur M. Sigurðsson kosninga-
stjóri sérframboðs í Norður-
landskjördæmi eystra við Dag
vegna fréttar í blaðinu í gær.
„Viö báðum aðeins um áheyrn
í eina til tvær mínútur til að
afhenda þeim bréf frá okkur og
ekki væri um að ræða nein mót-
mæli frá okkur eða truflun á
fundi þeirra. Við vorum ekki
með neina úrsagnarmiða, heldur
vildum láta vita af okkur og að
okkur væri alvara með okkar
framboði. Kosningastjóri Fram-
sóknarflokksins þarf ekkert að
vera að senda okkur föðurlegar
umvandanir um að hugsa ráð
okkar áður en við grípum til
úrsagna, við gerum það áður en
við framkvæmum.
Svo kemur boð frá Steingrími
Hermannssyni um að hann vilji
hitta okkur 28. febrúar. Við neit-
um þessu vegna þess að það er
orðið of seint að fara að tala um
okkar innri mál núna. Það getur
hins vegar farið svo að við bjóð-
um honum að koma á öðrum
grundvelli.“ gk-.
H j ú kru narf ræðingar
Sameiginlegur fundur allra hjúkrunarfræðinga verð-
ur haldinn 23. febrúar kl. 20,30 í Zontahúsinu, Aðal-
stræti 54.
Fundarefni:
Fyrirhuguð kennsla í hjúkrunarfræði
í háskóla á Akureyri.
Nefndin.
AKUREYRARÐÆR
Félagsstarf
aldraðra
Skemmtun verður í Sjallanum sunnud. 22.
febrúar nk. kl. 15.00. Skemmtiatriði - Veitingar-
Dans. Aðgangseyrir kl. 100.-
Félagsmálastofnun Akureyrar.
Verkstjórnarfræðslan á Akureyri
Námskeið í
vinnuumhverfismálum
verður haldið á Akureyri 23.-26. febrúar í húsi
Flugbjörgunarsveitar Akureyrar, Galtalæk,
frá kl. 8.45-17.00 alla dagana.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði í
„Vinnulöggjöf og skaðabótarétt" skyldur
verkstjóra og ábyrgð, „öryggismál, slysavarnir
og brunavamir". „Hvernig á að tryggja gott
öryggi á vinnustað og koma í veg fyrir slys“.
Námskeiðið kostar 9.540.- Innifalin eru öll
námsgögn og kaffi.
Skráið þátttöku strax
til Iðntæknistofnunar íslands í síma 91-687000
og til Árna Björns Árnasonar, vinnusími 96-
21300 og heimasími 21249 eða skrifstofu
Verkstjórafélags Akureyrar og nágrennis milli kl.
14 og 17 í síma 25446.
Alltaf eitthvað
Frá
Jakkakjólar, blússur
og dökkblá pils.
MICHA
Peysur,
prjónakjólar
og glæsilegar
jakkapeysur.
Frá
Lindbergjs
Buxur
léttar og
þægilegar,
allar stærðir.
Litir: Svart,
blátt og
sandgult.
eilL
Ulf
un
einunnat
— Hafnarstræti 98 • Akureyri • Sími (96) 22214 -