Dagur - 20.02.1987, Side 11
20. febrúar 1987 - DAGUR - 11
Rauðhærði riddarinn:
Síðustu
sýningar
Nú um helgina verða síðustu
sýningar á Rauðhærða riddar-
anum hjá Leikfélagi Akureyr-
ar. Sýningar hefjast kl. 20:30
föstudags- og laugardagskvöld.
Hér er um bráðskemmtilegt og
spennandi verk að ræða og
hefur það fengið mjög góða
dóma.
Ég get með góðri samvisku
hvatt fólk til að sjá Rauðhærða
riddarann og vilji það ekki missa
af frábærum Íeik, einstökum
átökum, hrottaskap og fyndni í
bland er best fyrir alla að drífa sig
um helgina því Rauðhærði ridd-
arinn kemur ekki aftur. Ekki
nema ákafar óskir geti einhverju
breytt þar um. SS
„Ommi"
sýnir í Vín
Ármann Guðjónsson „Ommi“,
opnar í dag málverkasýningu í
blómaskálanum Vín við
Hrafnagii og stendur hún fram
yfír næstu helgi.
A sýningu hans er fjöldi verka
sem unnin eru með olíu, akrýl og
vatnslitum og eru allar myndirnar
til sölu. Ármann hefur haldið
einkasýningar áður á Norður-
landi. Sýningin er opin á venju-
legum opnunartíma í Vín.
Lottóvinn-
ingurinn
týndist
Hann Aðalsteinn Hallgrímsson,
10 ára gamall strákur á Brekk-1
unni var heldur óheppinn á
þriðjudaginn. Hann hafði fjórar
tölur réttar í Lottóinu á laugar-
daginn og brá sér í Sporthúsið
eftir helgina og leysti út vinning-
inn sinn. Fyrir peningana keypti
hann sér íþróttabol og stuttbuxur
og hélt hinn ánægðasti heim á
leið.
Á leiðinni varð hann hins vegar
fyrir því óláni að týna pokanum
með íþróttadótinu í og er nú hinn
leiðasti, eins og nærri má geta.
íþróttagallinn var í Adidas-
poka merktum Sporthúsinu og
Aðalsteinn týndi honum einhvers
staðar á Suður-Brekkunni. Sá
sem fann pokann ætti nú að
gleðja strákinn og hafa samband
í síma 21275.
Auglýsing um áburðarverð 1987
Efnainnihald Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í Verð í
Tegund N-P205-K20-Ca-S febrúar mars apríl maí Júní Júlí ágúst sept.
Kjarni 33- 0-.0- 2- 0 10220 10360 10500 10640 10780 10920 11060 11200
Magni 1 26- 0- 0- 9- 0 8440 8560 8680 8800 8920 9040 9160 9260
Magni 2 20- 0- 0-15- 0 6940 7020 7120 7220 7320 7420 7500 7600
Móði 1 26-14- 0- 2- 0 12140 12300 12480 12640 12800 12980 13140 13320
Móði 2 23-23- 0- 1- 0 13060 13240 13420 13600 13780 13960 14140 14320
Græðir 1 14-18-18- 0- 6 13140 13320 13500 13680 13860 14040 14220 14400
Græðir 1A 12-19-19- 0- 6 12840 13020 13200 13380 13560 13740 13920 14100
Græðir 2 23-11-11- 0- 0 11760 11920 12080 12240 12400 12560 12720 12900
Græðir 3 20-14-14- 0- 0 11800 11980 12140 12300 12460 12620 12800 12960
Græðir A 23-14- 9- 0- 0 12160 12320 12500 12660 12820 13000 13160 13340
Græðir 4A 23-14- 9- 0- 2 12760 12940 13120 13300 13480 13660 13840 14000
Græðir 5 17-17-17- o- 0 11860 12040 12200 12360 12520 12680 12860 13020
Græðir 6 20-10-10- 4- 1 11020 11180 11320 11480 11640 11780 11940 12100
Grasðir 7 20-12- 8- 4- 1 11220 11360 11520 11680 11840 12000 12140 12300
Græðir 8 18- 9-14- 4- 1 10680 10820 10980 11120 11260 11420 11560 11720
Græðir 9 24- 9- 8-1,5-2 11980 12140 12320 12480 12640 12820 12980 13140
Þrífosfat 0-45- 0- 0- 0 9640 9780 9900 10040 10180 10300 10440 10580
Kalíum kls 0- 0-60- 0- 0 6960 7060 7160 7260 7360 7460 7560 7640
" brst 0- 0-50- 0- 0 11220 11360 11520 11680 11840 12000 12140 12300
Ofangrelnt verð er heildsöluverð miðað við staðgreiðslu í hverjum mánuði. Aburðar-
verksmiðjan selur einungis til búnaðarfélaga, samvinnufélaga, verslunarfélaga, hrepps-
og bæjarfélaga og annarra opinberra aðila. Áburðarverksmiðjan afhendir áburð þann sem
hún selur til framangreindra aðila á sama verði, miðað við afhendingu úr vörugeymslu í
Gufunesi eða vörugeymslu áburðarflytjanda á eftirgreindum höfnum:
ölafsvík
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Patreksfjörður
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvík
Isafjörður
Norðurfjörður
Hólmavík
Hvammstangi
Blönduós
Sauðárkrókur
Hofsós
ólafsfjörður
Siglufjörður
Dalvík "•
Akureyri
Grenivík
Svalbarðseyri
Húsavík
Þórshöfn
Kópasker
Vopnafjörður
Borgarfjörður eystri
Seyðisfjörður
Mjóifjörður
Neskaupsstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Hornafjörður
Vestmannaeyjar
óski kaupandi áburðar, sem búsettur er utan svæðis sem takmarkast af Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu, Kjósarsýslu, Gullbringusýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu, að fá áburð
afhentan í Gufunesi og annast flutning áburðarins sjálfur skal hann fá endurgreitt
sem nemur flutningskostnaði Áburðarverksmiðjunnar á næstu höfn ásamt uppskipunar-
vöru- og sjótryggingargjaldi.
Áburðarverksmiðjan mun ekki annast flutninga til Dalasýslu og Austur-Barðastrandasýslu
eins og verið hefur. Ennfremur mun Áburðarverksmiðjan ekki annast flutninga til
Vestur-Skaftafellssýslu. Hinsvegar mun Áburðarverksmiðjan greiða flutningsstyrk til
áburðarkaupenda í framangreindum sýslum og ákvarðast flutningsstyrkurinn hverju sinni
með hliðsjón af flutningskostnaði til næstu hafnar.
Grelðslukjör.
Árið 1987 eru greiðslukjör vegna áburðarviðskipta sem hér segir:
a) Staðgreiðsla á staðgreiðsluverði viðkomandi mánaðar.
b) Kaupandi greiðir áburðinn með tíu (10) jöfnum greiðslum, sem hefjast í
febrúar en lýkur í nóvember.
c) Kaupandi greiðir áburðinn með átta (8) jöfnum greiðslum, sem hefjast í mars
en lýkur í október.
d) Kaupandi greiðir 25% við afhendingu áburðar og þrjár (3) jafnar greiðslur í
júní, júlí og ágúst.
Gjalddagi er 25. hvers mánaðar.
Sá hluti áburðar sem afhentur er á lánskjörum skuldfærist á staðgreiðsluverði sem
í gildi er í afhendingarmánuðinum en frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir
afhendingarmánuð reiknast vextir á höfuðstól skuldarinnar.
Gerður skal viðskiptasamningur um lánsviðskipti.
Vextir skulu á hverjum tíma vera þeir sömu og afurðalánavextir sem auglýstir eru
hjá Landsbanka Islands, sem eru í dag 16,5%. Vextir greiðast eftir á, á sömu
gjalddögum og afborganir.
Kaupandi skal leggja fram tryggingu fyrir þeim hluta viðskiptanna sem eru láns-
viðskipti. Tryggingar skulu vera í formi ávísunar á væntanleg rekstrar og/eða
afurðalán eða með öðrum þeim hætti sem Áburðarverksmiðjan metur fullnægjandi.
Gufunesi 13. febrúar 1987
ABURÐARVERKSMIÐJA RIKISINS