Dagur - 24.02.1987, Síða 11

Dagur - 24.02.1987, Síða 11
24. febrúar 1987 - DAGUR - 11 Örstutt hugleiðing vegna greinar Óskars Sigtryggssonar sem birtist í Degi 18. febr. sl. Grein Óskars byrjar á langhundi um svokallaðan Húsavíkurfund, sem þegar er búið að skrifa mikið um og er varla áhugavert lengur. Þá er í greininni áberandi hnýtt í Stefán Valgeirsson, rétt eins og Samtök jafnréttis og félagshyggju sé einkaframtak Stefáns. Vil ég upplýsa Óskar og þá aðra, sem ekki vita betur, að á ellefta hundrað manns skoruðu á Stefán Valgeirsson að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista sérframboðs framsóknarmanna í kjördæminu. Bæði þessir ellefu hundruð áskorendur og atkvæði þeirra eru greinilega langt fyrir neðan virð- ingu „allra sannra framsóknar- manna“. Pess vegna bjóða nú þessir áskorendur Stefáns Val- geirssonar fram sér undir nafni jafnréttis og félagshyggju, vænt- anlega með listabókstaf J. Óskar lofar B-listann mikið og fullyrðir að hann sé best skipað- ur af öllum listum Framsóknar. Hér í hlýtur að liggja ómæld vinna við að kynna sér frambjóð- endur Framsóknar í öðrum kjör- dæmum og samanburð við listann hér í Norðurlandskjördæmi eystra. Ekki furða þótt blessaður maðurinn verði að giska á eftir- farandi: „Par á eru eflaust nöfn margra mætra manna.“ Þar er Óskar að tala um lista Samtaka jafnréttis og félagshyggju. Óskar tíundar sinn eigin veik- leika, segist vera þjáður af þrá- hyggju og skorti á sjálfsgagnrýni og hafi beðið lægri hlut í glím- unni við Elli kerlingu. Með þeim rökum telur hann sig geta for- dæmt Stefán Valgeirsson. Nú hafa veður skipast í lofti og snýst umræðan ekki lengur ein- göngu um Stefán Valgeirsson. Um er að ræða hvort við kjósum okkur umbjóðendur, sem hafa raunverulega þekkingu á að- stæðum okkar og sem virða okk- ar sjónarmið, eða hvort við kjós- um fjarlæga valdhafa: Hvort þingmenn okkar eigi að vera tengiliðir milli landsbyggðarinnar hér heima og valdakerfis landsins, sem nú er staðsett í höfuðborginni eða hvort við eig- um bara að velja enn fleiri skrautfjaðrir í yfirbygginguna þar fyrir sunnan. Akureyri 20. febr. 1987 Guðmundur Ingólfsson Vinningstölurnar 21. febrúar 1987 Heildarvinningsupphæð kr. 5.040.147.- 1. vinningur var kr. 2.528.605.- kom í hlut eins vinningshafa. 2. vinningur kr. 755.929.- Skiptist á 229 vinningshafa kr. 3.301.- á mann. 3. vinningur kr. 1.757.613.- Skiptist á 7.293 vinningshafa sem fá kr. 241,- hver. Alþýðuflokksfólk Hú verður mikið um að vera um næstu helgi! Þess skal getið sem vel er gjört Opinn flokksstjórnarfundur í Alþýðuhúsinu Skipagötu 14, laugardaginn 28. febrúar kl. 11.00. Allt flokksbundið Alþýðuflokksfólk velkomið. Árshátíð Árshátíð Alþýðuflokksfélaganna verður laugardags- kvöldið 28. febrúar kl. 19.30 í Alþýðuhúsinu. Miðasala í Strandgötu 9 kl. 19-21 fimmtudaginn 26. febrúar sími 24399. Breytingar á breytingar ofan eru áberandi í afar órólegu og rót- lausu þjóðlífi okkar nú á dögum. Fátt fær að vera í friði, breyting- arnar flæða yfir, og oft er um hreina byltingu að ræða. Staða, sem einu sinni þótti bráðnauð- synleg, verður allt í einu óþörf talin og hún lögð niður, eða henni a.m.k. gefið annað heiti, svo að hægt sé að koma einhverri breytingu við. Og stofnun sem í dag stendur á traustum grunni er gjarnan rifin niður á morgun. Félagsmálastofnanir hafa um nokkurt skeið verið fastir punkt- ar í skipulögðu kerfi þéttbýlis- staða - hinna stærri, og haft veigamikil verkefni, og í mörgum tilvikum mjög vandasöm störf með höndum. Þær eru þýðingar- miklir þættir í fjölbreyttu mynstri nútímaþjóðfélags og höfuð- nauðsyn að þar sé til staðar í starfi hæft og traust fólk, sem auðvelt sé að leita til og þægilegt og uppörvandi að eiga samskipti við. Svo hefur verið með Félags málastofnun Akureyrarbæjar. En á vori komanda, munu eftir því, sem manni skilst, flestöll þau verkefni, sem hún hefur haft með að gjöra til þessa, verða færð til í kerfinu - tekin frá Félagsmála- stofnun og fengin hópi með viða- miklu nafni - Öldrunarráði. Kerfisbreyting þessi mælist mis- jafnlega fyrir og er álit margra, að hún muni ekki reynast spor tií heilla. Framtíðin gefur svarið við þeim spurningum, sem nú brenna á margra vörum varðandi þessa ráðstöfun. Félag verslunar- og skrifstofufólks, Akureyri S(mi 21635 - Skipagötu 14 Leikhúsferð F.V.S.A. býður félögum sínum 67 ára og eldri í leikhúsferð að Freyvangi föstudaginn 6. mars. Fyrir aöra félaga er verö kr: 500.- Látiö skrá ykkur í síma 21635 fyrir 3. mars n.k. Félag verslunar- og skrifstofufólks, Akureyri og nágrenni. 23.-27. Af tilefni viku djúpnæringarmeð Yerið velkomin. Opið mánudaga - Laugardaga frá kl. Félagsmálastofnun mun að vísu starfa áfram, en að öðrum verkefnum og í eitthvað breyttri mynd. Nú kemur til kasta Öldr- unarráðs að sjá um að sú þjón- usta sem Félagsmálastofnun hef- ur haft með höndum verði áfram í fullu gildi. Hún er mjög fjölþætt. Eg nefni hér aðeins heimilisþjónustu, heimsendingu matar og snjómokstur að ógleymdum hinum ágætu ferða- lögum á vegum stofnunarinnar. Þessir þættir liðveislu við aldraða og sjúka samborgara hafa verið einkar vel ræktir af hálfu starfs- fólks Félagsmálastofnunar og fært því ánægju og vissa lífs- fyllingu um leið og það hefur ver- ið þeim, sem notið hafa, ómæld hagsbót og liðveisla. Á síðustu árum þegar ég hef búið við vaxandi heilsubrest, hef ég sótt mikið til Félagsmálastofn- unar, varðandi þá þjónustu sem hér er tilgreind og notið ríkulegs skilnings og fyrirgreiðslu slíkrar að varla verður á betra kosið. Hlýja í viðmóti, fyllsta tillitssemi og einlægur vilji til að leggja lið eftir því, sem frekast hefur verið unnt, hefur jafnan mætt mér í öll- um samskiptum við starfslið Fé-: lagsmálastofnunar. Og nú þegar innan tíðar verða þau þáttaskil í starfsemi stofnun- arinnar, sem hér hefur verið get- ið vil ég færa þessu ágæta fólki fyllstu þakkir mínar og óska því allra heilla á komandi tíð. Megi ykkur ávallt gefast sú gæfa að rétta hlýja hönd þeim, sem liðveislu þurfa að fá notið, og sem hafa færst inn í þann skugga sem þungi efri áranna löngum skapar. Félagsmálastjóri og staríslið, heilar þakkir. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum. Almennur fundur Opinn stjórnmálafundur í Alþýöuhúsinu sunnudaginn 1. mars kl. 15.00. Árni Gunnarsson, Jóhanna Siguröardóttir, Jón Sig- urðsson og Hreinn Pálsson flytja stutt ávörp. Almennar umræður og fyrirspurnir. Allir velkomnir. Undirbúningsnefndin. Ertu rösk(ur) ★ Viltu vinna í spennandi verslun Okkur vantar kvenkynsstarfskraft í verslun okkar. ★ Einnig vantar okkur duglegan starfsmann á lager og í útkeyrslu. Upplýsingar á staðnum, ekki í síma. Brekkugötu 7b Getum bætt við okkur starfsfólki í málningadeild. Upplýsingar gefur deildarstjóri í síma 21165. Efnaverksmiðjan Sjöfn. Neytendafélag Akureyrar og nágrennis Skrifstofan, Gránufélagsgötu 4, III. hæð er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13.00 til 17.00 og á föstudögum frá kl. 11.00 til 15.00. Símatími er frá kl. 13.00 til 14.00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 11.00 til 12.00 á föstudögum. Sími félagsins er 22506. Fulltrúi Neytendasamtakanna á Akureyri er Steinunn S. Sigurðardóttir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.