Dagur - 18.03.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 18. mars 1987
53. tölublað
NotarþúC^O?
Pjónusta
í miðbænum
KARL
GLERAUGNAÞJONUSTAN DAVÍÐSSON
SKIPAGÖTU 7 - BOX 11 - 602 AKUREYRI - SÍMI 24646
Síminn í göngugötunni:
Myndir teknar af
skemmdarvörgum
- viðgerðir fyrir 60 þúsund á sl. ári
„Við ætlum ekki að láta í
minni pokann fyrir fáeinum
skemmdarvörgum sem ráðast
á símasjálfsalann í göngugöt-
unni,“ sagði Gísli Eyland
stöðvarstjóri Pósts og síma á
Akureyri. Enn einu sinni hafa
Sjónvarp Akureyri:
Myndlyklar
á rúmlega
500 heimili
„Við erum búnir að gera 20
fjölbýlishúsasamninga, auk
samninga við einbýlishús svo
þetta þýðir að rúmlega 500
heimili á Akureyri hafa aðgang
að allri dagskránni hjá Sjón-
varpi Akureyrar,“ sagði Bjarni
Hafþór Helgason sjónvarps-
stjóri á Akureyri um áskrifta-
sölu sjónvarpsins.
„Nú hefur dagskrá sjónvarps-
ins verið læst í um það bil 50 daga
svo þetta er verulega góður
árangur og erum við mjög
ánægðir," sagði Bjarni Hafþór.
■ Hjá Akurvík,- þar sem mynd-
lyklarnir eru seldir,- fengust þær
upplýsingar að sala hefði aukist
jafnt og þétt. „Það koma kippir í
söluna á fimmtudögum og föstu-
dögum. Annars hefur þetta verið
mjög gott og rúmlega 400 mynd-
lyklar selst,“ sagði Einar Guð-
mundsson verslunarmaður í
Akurvík. Nú er svo komið að
myndlyklar eru til á lager, svo
enginn þarf að fara á biðlista.
Verðið á lyklunum er 14,240
krónur í staðgreiðslu. Eins er
hægt að fá lyklana með góðum
afborgunum.
Á Akureyri eru um 4 þúsund
heimili og var Bjarni Hafþór
ánægður með árangurinn. Hann
sagði einnig að innheimta væri
með afbrigðum góð og hefðu inn-
heimst um 98% af áskriftargjöld-
um síðasta mánuð. gej-
skemmdarvargar gengið ber-
serksgang í símaklefanum og
unnið stórskemmdir.
Gísli sagði að á síðasta ári hafi
verið unnar skemmdir á síman-
um fyrir um 60 þúsund krónur.
„Þegar komið var að símanum á
laugardagsmorguninn var búið
að slíta snúruna og tólið af
símanum. Auk þess hafði skífan
verið sprengd frá tækinu og er
það ný aðferð við eyðileggingarn-
ar.“
Að þessu sinni eru skemmdirn-
ar metnar á 10-15 þúsund krónur,
auk þess sem þetta er óþægilegt
fyrir það fólk sem ætlar að nota
símann. Gísli sagði að nú væri
ætlunin að setja upp vídeó-
myndavél við símaklefann og ná
myndum af þeim sem stunda
þessa ljótu iðju. Vélin yrði
sett upp í húsi í nágrenni klefans
og væri því best fyrir þá fáu sem
þetta hafa stundað að vara sig.
gej-
Trillan Reynir EA 400 er nú til viðgerðar í Slippstöðinni hf. á Akureyri eftir ásiglingu við Mánafoss, skip Eimskipa-
félags Islands, í mynni Eyjafjarðar á laugardagskvöld. Mynd: Asrún. ncmi í GA. í startskynningu.
Skoðanakönnun Dags og Félagsvísindastofnunar í Norðurlandskjördæmi vestra:
Stjómarflokkarnir
tapa miklu fylgi
- Framsóknarflokkur heldur þó 2 þingmönnum og Sjálfstæðisflokkur gæti fengið 2 með uppbótarsætinu
Samkvæmt niðurstööum skoð-
anakönnunar sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla íslands
vann fyrir Dag um fylgi
stjórnmálaflokkanna í Norður-
landskjördæmi vestra fær
Framsóknarflokkurinn flest
atkvæði í komandi kosningum,
eða 33,6% atkvæða. I kosning-
unum 1983 hafði flokkurinn
28,8%, en þá var BB-sér-
framboðið þar með 11,6%. Ef
þær tölur eru lagðar saman er
Íjóst að Framsókn tapar miklu
fylgi, eða tæplega 7 af hundr-
aði. Þetta fylgi nægir þó til að
Framsókn ætti að hafa 2 þing-
menn örugga í kjördæminu.
Sjálfstæðisflokkurinn fær sarp-
kvæmt könnuninni 26,6% en
hafði 31,3% í kosningunum
1983. Hann fær því einn kjör-
dæmakjörinn þingmann og sýn-
ast miklar líkur á að uppbótar-
þingmaðurinn yrði frá D-listan-
um, en A-listinn gæti þó komið
þar sterklega til álita. Þetta fer
eftir niðurstöðum í öðrum kjör-
dæmum landsins. Alþýðubanda-
lagið fær samkvæmt könnuninni
16,6% atkvæða og fengi
Rólegt um helgina segir iögreglan:
Allt kolbrjálað"
- segir íbúi í miðbænum
„Ég varð mjög hissa er ég sá
fyrirsögn í Degi á mánudaginn,
þar sem sagði „Lögreglan:
Róleg helgi.“ Þar held ég að
eitthvað hafí farið úrskeiðis
varðandi fréttaflutning, því ég
bý í miðbænum og get með
sanni sagt að þar var allt kol-
brjálað aðfaranótt laugardags-
ins,“ sagði íbúi í miðbænum á
Akureyri.
Ólafur Ásgeirsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn sagði að það
væri að vissu leyti rétt hjá þessum
íbúa, að mikið hafi gengið á, - og
þá væntanlega mikill hávaði fyrir
íbúa Miðbæjarins. „Hér var
hvert hótel og gistiheimili troð-
fullt og þar af leiðandi tleiri
hundruð manns í bænum í þeim
eim\ tilgangi að skemmta sér. Það
var því mikið að gera hjá lögregl-
unni við alls konar þjónustu við
borgarana og þessa gesti. Hitt cr
annað mál að afbrot og annað
sem því tengist, - auk óhappa,
voru með minna móti um þessa
helgi. En það eru þeir atburðir
sem skráðir eru í dagbók lögregl-
unnar. Við höfum því miður ekki
mánnafla til að biðja fólk að hafa
hljótt í Miðbænum," sagði Ólaf-
ur. Dagbækur lögreglunnar eru
þær heimildir sem blaðið hefur
fyrir sínum fréttum.
gej-
þingmann, en hafði 18% í síð-
ustu kosningum. Alþýðuflokkur
fær 14,3% en hafði 7,2% í síð-
ustu kosningum. Þessi nær tvö-
földun á fylgi dugir ekki til að
flokkurinn fái kjördæmakjörinn
þingmann. Kvennalistinn fær
3,1%, Flokkur mannsins 2,7%
og Þjóðarflokkurinn 3,1%, en
Bandalag jafnaðarmanna komst
ekki á blað.
Alls svöruðu 314 manns í þcss-
ari könnun og 259 gáfu ákveðin
svör um hvað þeir hygðust kjósa.
Aðeins 19 manns eða 6,1% voru
óvissir, 11 neituðu að svara, 7
ætluðu að skila auðu og 18 ætl-
uðu ekki að kjósa, sem er 5,7%.
Eins og áður sagði tapar Fram-
sókn tæplega 7% fylgi frá síðustu
kosningum, miðað við þessa
könnun, og Sjálfstæðisflokkur
tapar tæplega 5%. Samkvæmt
öðrum skoðanakönnunum nýleg-
um virðist Framsóknarflokkurinn
yfirleitt tapa töluverðu fylgi á
landsbyggðinni og Sjálfstæðis-
flokkur tapar einnig fylgi, en þó
ekki eins miklu. Ljóst er að Þjóð-
arflokkurinn tekur fylgi frá B-
listanum, þó svo að' nær engar
líkur sýnist til þess að hann fái
neins staðar mann kjörinn. Svip-
að má segja um Flokk mannsins
og Kvennalistann, sem ekki sýn-
ast eiga neina möguleika á þing-
sæti í Norðurlandskjördæmunum
a.m.k.
Sjá nánar um könnunina og
ummæli efstu manna á bls. 3. HS
Norðurland:
Norðan-
garri og
frost
Þá er blíðan fyrir bí, að
minnsta kosti í bili. Norðan-
garri og frosthörkur niunu
leika um Norðurland næstu
daga og höfum við þegar
fengið smjörþefínn af því. í
gærmorgun var komið 9 stiga
frost í Grímsey og að sögn
veðurfræðings á Veðurstofu
íslands verður frostið í kring-
um 10 stig næstu daga, jafn-
vel meira.
Það verður éljagangur og
hvasst á annesjum norðanlands
og einhver úrkoma inn til lands-
ins en hægari vindur. Eins og
títt er um snjóél geta þau hang-
ið ansi lengi yfir sama staðnum
og gefið þó nokkurn snjó en
ekki bjóst veðurfræðingurinn
við því að um samfellda úr-
komu yrði að ræða. En Itann gat
þó lofað Norðlendingum
norðanátt og talsverðu frosti.
SS