Dagur - 18.03.1987, Blaðsíða 11
18. mars 1987 - DAGUR - 11
Minning
Elvar Þór Hafsteinsson
Fæddur: 8. ágúst 1975 - Dáinn: 11. mars 1987
i
Hví fölnar jurtin fríða
og fellir blóm svo skjótt?
Hví sveipar barnið blíða
svo brátt hin dimma nótt?
Hví verður von og yndi
svo varpað niður í gröf?
Hví berst svo burt í skyndi
hin besta h'fsins gjöf?
(Björn Halldórsson frá Laufási.)
Spurningar, áþekkar þessum,
leituðu á hugann þegar okkur
barst andlátsfregn Elvars Þórs.
Okkur verður fátt um svör, en
minningarnar koma fram í
hugann, ein af annarri.
Elvar Pór dvaldi sín fyrstu ævi-
ár í Sveinbjarnargerði ásamt
móður sinni og alltaf síðan var
þar annað „heima“ í hans aug-
um. Við minnumst hrausta, dug-
lega drengsins, sem lék sér á
hlaðinu og alltaf vildi taka sem
mestan þátt í daglegum störfum.
Nú á síðustu árum, eftir að
hann var fluttur til Reykjavíkur
og átti þar, ásamt bróður sínum,
hlýtt og gott heintili hjá móður
sinni og stjúpföður, var hugur
hans hálfur „heima í Gerði“ og
þangað lá leið hans í öllum skóla-
fríum.
Kvenfélagið Framtíðin:
Árleg
merkjasala
Kvenfélagið Framtíðin verður
með sína árlegu merkjasölu
föstud. 20. og laugard. 21. mars.
Undanfarin ár hafa félagskonur
gengið í hús og boðið merki sín,
en að þessu sinni verðum við, við
stærri verslanir og í göngugöt-
unni. Merkið verður selt á 100
krónur og rennur allur ágóði í
elliheimilissjóð.
í
Jafnvel eftir að sjúkdómur sá,
er varð til þess að við sjáum hon-
um nú á bak, hafði gripið hann,
var alltaf skroppið norður ef
heilsan leyfði.
Um baráttu Elvars við sjúk-
dóminn væri hægt að skrifa langt
mál, en eitt er víst, að við sem
eldri erum getum mikið lært af
hetjulegri frammistöðu hans í
þeirri baráttu. Við söknum þess
öll, að eiga nú ekki framar von á
glaðlega helgargestinum okkar
frá Reykjavík, gestinum, sem var
þó raunar einn af heimilisfólkinu.
Elsku Sólveig, Grétar, Ólafur
og þið öll, þau okkar sem ekki
komast til að kveðja Elvar í dag
eru hjá ykkur í huganum, og
biðja góðan guð um að gefa ykk-
ur styrk og huggun.
Já, sefist sorg og tregi
þér saknendur við gröf,
því týnd er yður eigi
hin yndislega gjöf.
Hún hvarffrá synd og heimi
til himins, fagnið því,
svo hana guð þar geymi
og gefi fegri á ný.
(Björn Halldórsson frá Laufási.)
Fjölskyldurnar
í Sveinbjarnargerði
og fjölskyldan í Vaðlafelli.
Barnajogginggallar.
Stærðir 104-152. Verð kr. 945.-
Barnagallabuxur.
Stærðir 116-152. Verð kr. 772.-
Barnabolir.
Stærðir 90-130. Verð frá kr. 250.
Dömuflauelsbuxur.
Stærðir 38-44. Verð kr. 877.-
Dömunærbuxur.
Verð kr. 60.-
Herravinnuskyrtur.
Stærðir 38-44. Verð kr. 472.-
Eyfjörð
Hjalteyrargotu 4 - sími 22275
Vörubíll
til sölu.
M. Bens 1513, árg. ’71 með Hiab 550 krana.
Selst með eða án krana.
Upplýsingar í síma 96-24993.
AKUREYRARB/ER
Húsvörður
Húsvörður óskast til starfa við Hafnarstræti 81 a
og 81 b.
Um er að ræða hálfa stöðu.
Laun samkvæmt kjarasamningi Akureyrarbæjar.
Umsóknarfrestur er til 27. mars.
Upplýsingar um starfið veitir starfsmannastjóri í
síma 21000.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Sigfús Jónsson.
Óskum að ráða starfsmann
í verslun okkar eftir hádegi
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir með upp-
lýsingum um menntun, aldur og fyrri störf til Gler-
augnaþjónustunnar, Skipagötu 7.
Húsavík - Blaðberar
Dagur óskar eftir blaðberum í miðbæ og á Baughól
og nágrenni.
Upplýsingar gefur umboðsmaður, símar 41585 og
41529.
Við höfum ávallt fengið góðar
móttökur bæjarbúa og efumst
ekki um að eins verði í ár. Nú fer
að styttast í að viðbyggingin í
Hlíð verði tekin í notkun, og eru
verkefnin óþrjótandi. Akureyr-
ingar, hlúum yel að öldruðum!
Með fyrirfram þökk,
„Framtíöarkonur“.
3. sýning
föstud. 20. mars kl. 20.30.
Uppselt.
4. sýning
laugard. 21. mars kl. 20.30.
MIÐASALA
SlMI
96-24073
lEIKFÉLAG AKUREYRAR
Fundur
um námslánin með Finni Ingólfssyni í Sjallanum fimmtudaginn 19. mars kl. 21. Námsmenn ★ Ykkur er sérstaklega boðið á þennan fund. ★ Verður menntun aftur gerð að forréttindum þeirra efnuðu? ★ Verður ungu fólki gert ókleift að stunda háskólanám? ★ Verður útilokað að stunda nám erlendis áður en langt um líður? Það skiptir ykkur miklu máli að íhaldið hafi ekki mikið leng- ur með menntamál að gera. Finnur Ingólfsson hefur barist gegn stefnu sjálfstæðis- mannsins Sverris Hermannssonar. Finnur hefur haldið hagsmunum ykkar á lofti og mun gera í framtíðinni. jmh Tý
Eftir fundinn verður diskótek til kl. 01.
Efstu menn B-listans í Norðurlandskjördæmi eystra verða á fundinum.
FRAMS0KNARFL0KKURINN