Dagur - 18.03.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 18.03.1987, Blaðsíða 7
18. mars 1987 - DAGUR - 7 stúdent frá MA ’82 og hefur síð- an verið búsettur í Reykjavík og Hafnarfirði ásamt konu og barni, en þau hjónin hafa verið við nám í Reykjavík. Porsteinn hefur lagt stund á íslensku við Háskólann en eins og fleiri þá hefur hann hægt á sér í náminu og snúið sér meira að atvinnulífinu. Hann sagðist vera skráður í einn kúrs núna og er það nýr kúrs þar sem Njörður P. Njarðvík leiðbeinir mönnum til að verða skáld og rit- höfundar. Ekki þýddi að trufla Steina meira að sinni og skaust ég því gurgeirsson í kaffistofunni í Árnagarði. a. ji aftur til Akureyrar,“ segir Kristján óstinum. yfir í næsta hús í Ármúlanum þar sem Helgarpósturinn er til húsa. Þar hitti ég fyrir Kristján nokk- urn Kristjánsson. Kristján varð stúdent frá MA ’82 og fór í íslensku og almenna bókmennta- fræði í Háskólanum haustið ’83. Hann lauk BA námi í almennri bókmenntafræði síðastliðið haust og segist spenntur fyrir því að læra meira seinna. En hvenær fórstu á Helgarpóstinn Kristján? „Ég byrjaði núna eftir áramót- in, nánar tiltekið 26. janúar. Að vísu var ég búinn að vera free- lance hjá þeim áður og má skoða það sem nokkurs konar reynslu- tímabil." - Fæstu við einhver ákveðin verk þarna, ertu til dæmis í slúðr- inu? „Ég hef aðallega verið í Lista- póstinum en líka í almennum viðtölum og aðeins gripið í slúðr- ið sem þú kallar svo,“ sagði Kristján og var býsna ánægður með starfið. Ég gerði athugasemdir við rit- vél sem hann hafði á borðinu hjá sér og tjáði hann mér þá að verið væri að tölvuvæða ritstjórnina og fengi hann því fljótlega tölvu til að vinna við eins og nú tíðkast hjá flestum blöðum. Að lokum spurði ég Kristján hvort Akur- eyri væri í sjónmáli hjá honum. „Það er ekki útilokað að mað- ur flytji þangað aftur en það fer aðallega eftir því hvort maður fái góða vinnu þar, vinnu við sitt hæfi. Þá kemur Akureyri sterk- lega til greina. Þetta er skemmti- legur staður og gott að búa þar,“ sagði Kristján að lokum. Eftir þessum viðtölum að dæma og því sem ég hafði áður kynnst, virðist sem landsbyggð- arfólki gangi frekar illa að láta enda ná saman þegar það er í fullu námi. Það er dýrt að lifa, vont að geta ekki leitað til ætt- ingja og námslánakerfið er kannski ekki sérlega réttlátt. Til dæmis er mönnum refsað fyrir að vinna. Þokkalegar tekjur leiða af sér skert námslán sem leiðir af sér aukavinnu sem síðan leiðir af sér enn skertari rétt til láns. Sum- ir geta haft það ágætt; tekjulitlir einstaklingar sem búa í foreldra- húsum í Reykjavík og þurfa lítið sem ekkert að leggja af mörkum til heimilis. En þetta á sannarlega ekki við um landsbyggðarfólk, svo sem hjón með 1-2 börn í leiguhúsnæði og bæði í námi. En hér verður ekki frekar farið út í þessa sálma, enda um heitt póli- tískt mál að ræða. SS Árni Hjörvar var bara hress með tilstandið snemma á föstudagsmorgni. Víða voru hross á bcit, en hvergi sáust kindur né kálfar nema í Skagafirði. fflðá auðum vegum Þessi bíll stóð yfirgefinn á Öxnadalsheiði. Ekki upplífgandi sjón. Ekki var neinum vandkvæðum bundið að fara á fólksbíl milli Akureyrar og Reykjavíkur um síðustu helgi. Snjór lítill sem enginn, vegir nokkuð góðir, útsýni fagurt og mannlíf gott. Dýralíf var meira að segja með besta móti miðað við árstíma. Þó sást glöggt hve veðurfar getur verið misjafnt eftir landshlutum. A fimmtudag lögðum við í hann suður í þokkalegu veðri, skýjað og súld með köflum. Vegirnir voru auðir sem og jörð yfirleitt. í Skagafirði skein sólin glatt eins og svo oft áður. Þegar lengra var haldið ók maður aftur inn í súld. Þó nokkur snjór var á Holtavörðuheiði, dálítill skaf- renningur, en vel fólksbílafært. Vegir í Borgarfirði voru ansi linir og nokkuð holóttir í Hvalfirði. Þegar komið var á Kjalarnesið og Reykjavík skammt undan brast hins vegar á hvassviðri og élja- gangur. Leiðindaveður var í borginni á föstudag og eitthvað hefur það víst breiðst um landið. Á sunndag var svo haldið aftur til Akureyrar og hafði færðin þá breyst nokkuð. Jörð var enn hvít- ari á Suðvesturlandi, vegir hálir en lítill snjór. Holtavörðuheiðin svipuð og snjófölin náði lengra norður. Eins og á suðurleiðinni skein sólin í Skagafirði og aðeins þar. Merkilegt fyrirbæri. Þar voru líka græn tún á köflum, þar sáust kindur að naga og einstaka kálfar, fyrir utan öll hrossin sem Skagfirðingar eru svo stoltir af. Þarna var auð jörð. Þegar viö nálguðumst Öxna- dalsheiði fór aftur að bera á snjóföl og nú var allnokkur snjór á heiðinni. Vel fært engu að síður. Þarna var mannlaus bíll sem greinilega hafði bilað. Loka- spretturinn fór síðan fram í élja- gangi í Eyjafirði. Þó að næstum því hafi verið fært fólksbílum á sumardekkjum milli Akureyrar og Reykjavíkur um hávetur er öruggara að vera við öllu búinn. Ekki er fýsilegt að vera einn uppi á miðri Holta- vörðuheiði í þæfingssnjó þegar allt í einu rýkur upp og vegurinn teppist. En það er sannarlega gaman að þurfa ekki að vera lengur en 6-6'A tíma á leiðinni á þessum árstíma og ekki er síður gaman að batnandi vegum. SS Uppi á Öxnadalsheiði á leiðinni til Akureyrar. Færðin var betri en við þorð- um að vona.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.