Dagur - 18.03.1987, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 18. mars 1987
Skákþing Akureyrar
Tvísýn barátta
á toppnum
- Tómas Hermannsson sigurvegari
í unglingaflokki
Skákþing Akureyrar hófst fyrir
nokkru. Teflt er í tveimur
flokkum. í opnum flokki og í
unglinga- og drengjaflokki. í
opna flokknum tefla 18 kepp-
endur, eftir hinu svokallaða
Norræna-Monrad kerfi. Tefld-
ar verða alls 9 umferðir, en eft-
ir 6 umferðir er staða efstu
manna þessi:
11. 0-0-f6
12. exf6-Rxf6
13. Rf3-Rg4
14. Bf4-Bd7
(Skákin teflist eftir tiltölulega
hefðbundnum leiðum. Svartur
heldur þrýstingi á d4 peð hvíts,
en er sjálfur með veiklundað peð
á e6.)
15. h3-Rf6
16. a3-Be7
1. Arnar Þorsteinsson 5'ó v.
2. Bogi Pálsson 4W v. + biðsk.
3. Gylfi Þórhallsson 4 v.
4. Sigurjón Sigurbjörns. 3!ó v. + biðsk.
5. -6. Tómas Hermannsson 3Vi v.
5.-6. Rúnar Sigurpálsson 3!ó v.
17. b4-Kh8
18. Be3-Bd6
19. Re5-Be8
20. Rf4!? -(Átökin hefjast. Hér
kom ekki síður til greina að leika
fyrst b5)
Staðan er nokkuð óljós sökum
biðskáka. Arnar borsteinsson
trónar á toppnum, en ungstirnið
Bogi Pálsson fylgir fast á hæla
hans. Bogi sem er aðeins 15 ára,
hefur komið á óvart með ágætri
frammistöðu það sem af er.
Hann á möguleika á því að ná
Arnari að vinningum með sigri í
tvísýnni biðskák sinni við Sigur-
jón Sigurbjörnsson. Opni flokk-
urinn er mjög vel skipaður að
þessu sinni og sem dæmi um
styrkleikann og þá miklu baráttu
sem fram fer á þessu Skákþingi,
þá hefur hinum kunnu skákrefum
Jóni Björgvinssyni og Þór Valtýs-
syni ekki tekist að trítla í hóp
þeirra efstu, enn sem komið er.
Keppni í unglinga- og drengja-
flokki er nú nýlokið. Tómas Her-
mannsson sigraði glæsilega með
því að leggja alla andstæðinga
sína að velli og hlaut þannig 9 v.
af 9 mögulegum! í öðru sæti varð
Rúnar Sigurpálsson með 7!/5 v.
og þriðji varð Bogi Pálsson einn-
ig með IVi v. en lægri að stigum
en Rúnar. í drengjaflokknum
varð sigurvegari Þorleifur Karls-
son með 5'/2 v. en mikla athygli
vakti hinn kornungi Páll Þórsson
sem er aðeins 9 ára gamall.
Skák er jafn fjölbreytt og pers-
ónuleikarnir sem stunda hana.
Hvað gerist þegar mætast, ungur
ofurhugi með eld í æðum, og
hertur harðjaxl með baráttuna í
blóðinu? - Eftirfarandi skák get-
ur ef til vill svarað að einhverju
leyti þessari spurningu. Skákin er
tefld í 6. umferð og það er hinn
kunni meistari Gylfi Þórhallsson
sem stýrir svarta hernum gegn
efnilegum skákmanni Friðgeiri
Kristjánssyni.
Hvítt:
Friðgeir Kristjánsson
Svart:
Gylfi Þórhallsson
Frönsk vörn
1. e4-e6
2. d4-d5
3. e5-c5
4. c3-Re7
5. Bd3-Rec6
6. Be3-Rd7
7. Re2-Db6
8. b3-cxd4
9. cxd4-Bb4+
10. Rd2-0-0
20. — -Rxd4
21. Rxe6-Bxe5
22. Rxf8-Bh5
23. g4-Hxf8
24. f4! (Best, því svartur svarar
klerkadrápi á h5 með Bb8! og
hefur góða kóngssóknarmögu-
leika.)
24. — -Bc7
25. (Hér var betra að leika 25.
Bbl, þótt svartur hafi frábæra
möguleika fyrir skiptamuninn
eftir 25. Re2'A. 26. Dxe2 -d4.
o.s.frv.)
Gylfi
n
I i
*
w
m
abcdefgh
Friðgeir
.25. — -Rxf5!!
(Dávæn dömufórn sem dregur
hvítan til dauða.)
26. Bxb6-Bxb6+
27. Kh2-Re3
28. Df3-Bg6
29. f5-Be8
30. Hel-Bc7 + ?!
31. Khl-Bc6?
(Eftir glæsilega taflmennsku
verða svörtum á mistök. Leikur-
inn lítur reyndar svo ógnandi út
að hvítur fer strax í kynngimagn-
að kerfi!)
32. Dxe3?? (Hefði hvítur leikið
hér b5! hefði sitthvað breyst! en
Friðgeir var í sínu hefðbundna
sjálfsmorðs-tímahraki.)
32. ...d4+-
33. Kgl-dxe3
34. Hxe3-Bb6
Hvítur gafst upp að góðum og
gömlum hætti, enda fátt um fína
drætti!
Skákþingið fer frant í húsnæði
Skákfélags Akureyrar við Þing-
vallastræti. Síðasta untferð fer
frarn á sunnudaginn kcmur, en
núna á fimmtudag veröur haldið
á sama stað 10 mín. skákmót kl.
20.00 og er ölluni heimil þátt-
ta^d' Kári Elísson.
Harmonikudansleikur
verður haldinn í Lóni Hrísalundi 1,
laugardaginn 21.
mars kl. 22-03.
Allir velkomnir
Félag harmonikuunnenda.
Ueiklist.
Jörundur og kráarstemmning
á Hofsósi
Þessa vikuna ríkir ensk kráar-
stemmning í Félagsheimilinu
Höfðaborg á Hofsósi þar sem
Leikfélag Hofsóss sýnir nú
söng- og gamanleikinn Þið
munið hann Jörund eftir Jónas
Árnason við leikstjórn Hilmis
Jóhannessonar. Að lokinni
frumsýningu á sunnudag voru
leikarar, söngfólk og leikstjóri
hrifningu áhorfenda. Sagán
um byltingu Jörundar hér á
landi á hundadögum 1809 er
sjálfsagt kunn meginhluta
þjóðarinnar. Það eru þó vænt-
anlega fæstir sem gera sér
grein fyrir sérstöðu þessarar
byltingar í byltingarkapitula
veraldarsögunnar. Hvorki fyrr
né síðar hefur land verið tekið
herfangi án þess að einhver
hafi haft verra af. í byltingu
Jörundar var enginn líflátinn,
enginn barinn, hengdur eða
hálshöggvinn og ekki neinar
pyntingar sem þó voru mjög
vinsælar á þessum tíma, hafðar
í frammi.
En allir hlutir eiga sér skýring-
ar og líklega eru ástæðurnar fyrir
friðsemi byltingar Jörundar þær;
að Jörundur var með eindæmum
friðsamur maður og kappkostaði
að sín yrði minnst sem góðs og
milds konungs, eins þess besta
sem ríkt hefur yfir Islandi, og
eins hitt að íslendingum kúguð-
um af Dönum hefur sjálfsagt
fundist um þetta leyti á mesta
niðurlægingartímabili þjóðarinn-
ar, skömmu eftir móðuharðindin
að valdhafarnir gætu ekki orðið
verri og aðgerðarleysið í málum
þjóðarinnar ekki orðið meira en
það var fyrir.
Enda átti Jörundur ekki í
höggi við neina erfiða skæruliða-
hópa eins og títt er um byltingar-
foringja, heldur var það bók-
menntaarfleifð þjóðarinnar sem
varð honum þyngst í skauti. „Ef
Flugkennslan komin í fullan gang
Getum enn bætt við nemendum
Flugskóli Akureyrar
flugstöö, Akureyrarflugvelli, sími 22000
Jóhann Skírnisson, heimasími 26409.
Sigurbjörn Arngrímsson, heimasími 23871.
Ármann Sigurðsson, heimasími 26149.
Hestamenn! u
Látum ekki aka á okkur ^
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIO LÉTTIR
hún bara væri ekki svona skelfi-
lega mikil bókmenntaþjóð!"
eins og Jörundur segir í verki
Jónasar. Þá gerir Jónas í leiknum
skemmtilegt grín að þekkingar-
leysi útlendinga á þjóðinni og
lifnaðarháttum hennar.
Félagar í Leikfélagi Hofsóss
hafa lagt mikið á sig við undir-
búning sýninga á Jörundi og stór
hluti þorpsbúa komið þar nálægt
auk nokkurra úr nágrannahrepp-
um. Sem dæmi um viðleitni
þeirra til að gera þessar sýningar
svipmiklar og eftirminnilegar, er
að góðhesturinn Jörri frá Hofi
var valinn úr stórum hópi skag-
firskra gæðinga til að koma fram
í atriðinu þegar Jörundur kem-
ur úr yfirreið sinni um landið.
Er þetta líklega í fyrsta skipti
sem hestur tekur þátt í innan-
hússleiksýningu hér á landi og
þótti Jörri standa sig vel, sérstak-
lega þar sem um frumraun á leik-
sviði var að ræða.
Um frammistöðu einstakra
leikara í leiknum vill undirritaður
hafa sem fæst orð. Til þess tel ég
mig ekki hafa nægjanlegt leiklist-
arlegt innsæi. Ég er hins vegar
þess fullviss að allir hafa gert sitt
besta og það hlýtur að vera núm-
er eitt í leiklistinni eins og annars
staðar í lífinu. Um sýninguna
sjálfa get ég þó sagt að hún er
mjög skemmtileg og geri ég
kveðjuorð hins íslenska stúdíós-
us til Jörundar og hans fylgdar-
manna að lokaorðum mínum.
„Það er alltaf tilbreyting að fá
skemmtilega gesti hér norður í
fásinnið," og tek þá grálegan
hversdagsleika sjónvarps- og
videógláps inn í dæmið. -þá
Passa-
myndir
Gott úrval
mynda-
ramma
nonðun.
mynd
LJÓSMVN DASTOFA
Slmi 96-22807 • Pósthólf 464
Glerárgötu 20 602 Akureyri