Dagur - 18.03.1987, Page 12
Akureyri, miðvikudagur 18. mars 1987
Slippstöðin:
Atta rafvirkjar
hætta störfum
- samningar í gangi
„Við stöndum ekki í neinni
deilu við þessa rafvirkja og lít-
um þannig á að þeir séu hættir
störfum hér í Slippstöðinni,“
sagði Gunnar Skarphéðinsson
starfsmannastjóri stöðvarinn-
ar.
Eins og komið hefur fram hafa
rafvirkjar í Slippstöðinni átt í
kjaradeilum við stjórn stöðvar-
innar alllengi og fór svo að 8 af 14
rafvirkjum sögðu upp störfum
sínum.
Gunnar sagði að nú væri verið
að vinna að samningum innan
fyrirtækisins. „Við þurfum að
semja við 6 félög til að ganga frá
samningum við okkar starfsmenn
og fer það allt fram í bróðerni og
engin vinnudeila í sambandi við
það. Þessi samningur er í beinu
framhaldi af desembersamning-
ununt, þar sem gert var ráð fyrir
fyrirtækjasamningum um þetta
leyti. Tíminn verður að leiða í
Ijós hvort þessar uppsagnir komi
niður á starfsemi stöðvarinnar,"
sagði Gunnar. gej-
Gífurieg aflaaukning
á Þórshöfn
Á Norðurlandi hefur afli verið
með ágætum tvo fyrstu mánuði
ársins, sérstaklega á Siglufírði,
Akureyri (Krossanes), Raufar-
Húsavík:
Fjórir bátar
farnir vestur
Fjórir Húsavíkurbátanna eru
farnir vestur til veiða og landa
afla sínum á Snæfellsnesi.
Tveir bátanna landa í Olafsvík,
einn á Rifí og einn í Grundar-
fírði. Það fer eftir aflabrögðum
hve lengi bátarnir verða fyrir
vestan en að öllum líkindum
verða þeir þar eigi skemur en
fram að páskum.
Tryggvi Finnsson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur var spurður hvort það
kæmi sér ekki illa fyrir fyrirtækið
að missa viðskiptin við bátana.
„Auðvitað kemur það sér illa,
þetta eru okkar öflugustu hráefn-
isöflunartæki fyrir utan togarana.
Þetta þýðir að við verðum með
tiltölulega knappt hráefni en
undanfarin ár hafa bátarnir farið
vestur svo þetta var ekkert
óvænt.“ IM
höfn og Þórshöfn. ívið minna
veiddist af þorski þessa mán-
uði miðað við sama tímabil í
fyrra en mun meira af loðnu.
Ef við lítum á heildaraflann á
einstökum stöðum norðanlands
kemur þetta berlega í Ijós. Þeir
staðir sem taka á móti loðnu sýna
mikinn fjörkipp miðað við sömu
mánuði í fyrra. Svigatölur tákna
heildaraflann í janúar og febrúar
'86:
Hvammstangi 316 (404),
Blönduós 224 (285), Skagaströnd
1.639 (2.198), Sauðárkrókur 838
(1.103), Siglufjörður 22.939
(13.013), Olafsfjöröur 3.046
(2.447), Grímsey 603 (565),
Hrísey 765 (531), Dalvík 1.280
(2.556), Árskógsströnd 661
(926), Akureyri 20.465 (12.105),
Grenivík 401 (428), Húsavík
1.247 (1.588), Raufarhöfn 17.046
(10.928) og Þórshöfn 11.112
(820).
Einu staðirnir sein sýna aukinn
þorskafla í þessum samanburðar-
tölum eru Ólafsfjörður, Gríms-
ey, Hrísey og Húsavík. Annars
er það loðnan sem gerir heildar-
tölur hærri. Þannig er aukning
heildarafla á Siglufirði 76%, á
Akureyri 69%, á Raufarhöfn
56% og á Þórshöfn hvorki meira
né minna en 1.255%. SS
Ljósritunarvélar,
Búðarkassar
Reiknivélar
Ritvélar
Hljómdeild
Þessar stúlkur undu sér glaðar við að mála á starfsdögum Lundarskóla um
daginn. Mynd: RÞB
Akureyri:
Opna 2 bíla-
þvottastöðvar
í sumar?
„Við höldum áfram eins og
mögulegt er. Hins vegar ræður
veðráttan miklu um fram-
kvæmdahraða. Eins er að við
fáum ekki malbikun við stöðina
fyrr en í vor, en við opnum
eins fljótt og mögulegt er,“
sagði Guðmundur Jónsson
deildarstjóri hjá Olíufélaginu
Esso á Akureyri.
Nú standa yfir framkvæmdir
við Ferðanesti í Glerárhverfi, þar
sem miklar breytingar fara fram.
Einnig er þar í smíðum sjálfvirk
bílaþvottastöð, sem væntanlega
verður tekin í notkun í vor.
Það út af fyrir sig er ekki í frá-
sögur færandi ef ekki væri mögu-
leiki á því að Olíufélagið Skelj-
ungur byggði sams konar bíla-
þvottastöð á nýju athafnasvæði
sínu við Hörgárbraut. Sigurður J.
Sigurðsson forstjóri Skeljungs á
Akureyri sagði að félagið hefði
möguleika á að byggja bíla-
þvottastöð, en það væri ekki inni
á áætlun sem nú væri unnið eftir
við bygginguna. „Við höfum ekki
útilokað þann möguleika að
byggja svona stöð,“ sagði Sigurð-
ur. Áætlað er að Skeljungur opni
sína verslun og bensínsölu á fyrri
hluta komandi sumars. gej-
Athyglisverðar
niðurstööur
- þegar skoðanakönnun Dags er borin saman við
könnun Helgarpóstsins
Margir velta því fyrir sér þessa
dagana hver veröi úrslit alþing-
iskosninganna I vor og keppast
fjölmiðlar um að birta niður-
stöður skoðanakannana um
fylgi flokka og framboða.
Athygli vekur niðurstaða
skoðanakönnunar Helgar-
póstsins en þar kemur m.a.
fram að aðeins 11,1% þeirra
sem taka afstöðu í Norður-
landskjördæmi eystra segjast
kjósa Alþýðubandalagið en t
skoðanakönnun Dags og Félags-
vísindastofnunar HÍ er fylgi
Alþýðubandalags 18,2%,
í skoðanakönnun Dags er fylgi
Alþýðuflokksins 16,9% en í
könnun HP fær flokkurinn held-
ur rneira eða 18%. í báðum
könnununum kemur A-listinn
manni að. í könnun Dags fær
Sjö ára baráttu lokið:
„Anægður að þessu er lokið“
- segir Rúnar Þór Björnsson, en ábyrgðarsjóður LÍ
mun greiða honum framreiknaða upphæð skaðabóta frá 1983
A mánudaginn voru tekin fyrir
í stjórn Lögmannafélags
Islands fjögur mál þar sem far-
ið var fram á greiðslur úr
ábyrgðarsjóði félagsins vegna
misferla Magnúsar Þórðarson-
ar lögfræðings við skjólstæð-
inga sína. Stærsta krafan var
frá Rúnari Þór Björnssyni á
Akureyri.
Rúnar hafði í bréfi til LÍ lýst
því yfir að hann sætti sig við dóm-
inn sv.o fremi að ábyrgðarsjöður-
inn greiddi honum upphæðina að
fullu. Á fundinum í gær var sam-
þykkt að verða við kröfu Rúnars.
Var þá miðað við framreiknaðan
höfuðstól dæmdra skaðabóta frá
árinu 1983 samtals að upphæð
1.853 þúsund krónur. í maí á síð-
asta ári voru Rúnari lánaðar 400
þúsund krónur en nú skoðast sú
upphæð sem innborgun á greiðsl-.
una.
„Stjórnin ræður því að hve
miklu leyti tjón er bætt ef það á
annað borð felur undir reglur um
slíkar kröfur. Það var algjör sam-
staða um þessa ákvörðun,“ sagði
Hafþór Ingi Leifsson framkvæmda-
stjóri Lögmannafélagsins í sam-
tali við Dag.
Með þessu má segja að sjö ára
baráttu Rúnars fyrir því að fá
bætt það tjón sem hann varð fyrir
á árinu 1980 sé lokið. „Ég er auð-
vitað mjög ánægður að þessu er
lokið,“ sagði Rúnar Þór í samtali
við Dag eftir að honum hafði ver-
ið kynntur úrskurðurinn.
Tvær aðrar kröfur, samtals að
upphæð um 1,4 milljón, voru
samþykktar en afgreiðslu hinnar
fjórðu var frestað til morguns.
Þetfa er í fyrsta skipti í 11 ára
sögu sjóðsins sem greitt er úr
honum.
Eftir að Lögmannafélagið hef-
ur gert upp við Rúnar mun hann
framselja félaginu kröfu sína á
hendur Magnúsi og félagið getur
þá síðar meir reynt að sækja það
mál. ET
Framsóknarflokkurinn 20,6% og
í könnun HP 23,8% og tvo menn
kjörna. Sjálfstæðisflokkurinn fær
25,3% í könnun Dags en mun
meira í könnun HP eða 30,2% og
tvo menn kjörna.
Kvennaframboðið fær 4,7% í
könnun Dags og 7,9% í könnun
HP, Samtök jafnréttis og félags-
hyggju (Stefán Valgeirsson) fá
8,1% í könnun Dags en heldur
minna í könnun HP eða 6,3%.
Þjóðarflokkurinn fær samkv.
könnun Dags 3,4% en 2,6% í
könnun HP. Bandalag jafnað-
armanna hetur ekki ákveðið
framboð í kjördæminu en myndi
fá 0,3% samkvæmt könnun Dags
en 0% í könnun HP. Flokkur
mannsins fær 2,4% í könnun
Dags en ekkert í könnun HP.
Urtakið, sem spurt var í könn-
un HP, var 300 manns. 20,3%
voru óákveðnir, 9,7% neituðu að
svara og 7% sögðust ekki kjósa.
Alls eru þetta 37% úrtaksins.
Skekkjulíkur eru því nokkuð
stærri í könnun HP. Til saman-
burðar eru tölur í skoðanakönn-
un Dags þessar: Stærð úrtaks
346. Kjósa ekki 3,5%, skila auðu
1,2%, neita að svara 4,9% og
óákveðnir 4,9%, alls 14,5%.
Niðurstaða þessara kannana er
sú að engir listar komi manni að
nema stóru flokkarnir fjórir.
EHB