Dagur - 03.04.1987, Qupperneq 1
Mjólkurlaust
á Siglufirði
- síðan í síðustu viku
Hríð og fannfergi hefur truilað
samgöngur á Norðurlandi og
víða hefur verið erfitt um
aðföng undanfarna daga.
Þannig hefur t.d. engin mjóik
borist til Sigiuijarðar síðan á
fimmtudag í síðustu viku. Eftir
hádegi í gær fóru vegagerðar-
menn frá Sauðárkróki á snjó-
plógi áieiðis til Siglufjarðar.
Ætluðu þeir í Ketilás til að
byrja með og sjá síðan til með
framhaldið.
í gær og fyrradag var þokka-
legt veður á Siglufirði og að sögn
lögreglunnar er færð í bænum
sæmileg og snjór ekki mikill á
þeirra mælikvarða. Vegagerðar-
menn brutust yfir Víkurskarð við
illan leik í gær til að koma við-
gerðarmönnum og varahlutum
frá RARIK til Kópaskers, en þar
hefur verið rafmagnslaust undan-
farna daga. í dag verður leiðin
frá Akureyri til Húsavíkur opnuð
ef veður leyfir, sömuleiðis vegur-
inn til Dalvíkur. Þá verður öll
leiðin Akureyri - Reykjavík rudd
ef veður helst skaplegt.
í dag verður reynt að opna
veginn inn Hörgárdal og Öxnadal
að Fremri- Kotum í Norðurárdal,
en þar endar umdænti Vegagerð-
ar ríkisins á Akureyri. Þá verður
vegurinn að Hrafnagili ruddur
eins og venjulega en Eyjafjarð-
arbraut eystri verður ekki rudd
fyrr en eftir helgi nema sveitar-
félögin greiði helming moksturs-
ins, en þcssi leið er ekki rudd
nema einu sinni í viku að öllu
jöfnu. I gær var fært milli Húsa-
víkur og Þórshafnar því snjó festi
ekki að neinu ráði á þeirri leið.
EHB
Víða snjóflóðahætta
Talsverður lausasnjór liggur
nú í fjöllum og varað hefur
verið við snjóflóðahættu í
Dalsntynni og Ljósavatns-
skarði. Þá er talið að einhver
snjóflóðahætta sé í Ólafs-
fjarðarmúla, en vegurinn um
Múlann verður opnaður í dag
ef veður leyfir.
Samkvæmt upplýsingum frá
Valdimar Steingrímssyni, verk-
stjóra hjá Vegagerðinni á Ólafs-
firði, er talsverður snjór í Ólafs-
fjarðarmúla en þó hefur hann oft
verið meiri. Reiknað er með að
snjóflóðahætta sé á vissum stöð-
um í Múlanum eins og vanalega
eftir hríðarveður en ekki sást upp
í fjallið fyrr en seinnipart dags í
gær. Þá rofaði til en ekki verður
farið að moka fyrr en ljóst þykir
að veðrið sé gengið yfir. EHB
Svo sem Dagur hefur greint frá, fauk þakið af Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík í óveðrinu sem gekk
yfir Norðurland á þriðjudag. Þessi mynd var tekin er lögreglan og björgunarsveitin Garðar unnu við að ná brakinu
niður af llÚSÍnu. Mynd: IM
Fegurðardrottning Norðurlands verður valin á næstunni. Sú heppna öðlast rétt til að taka þátt í keppninni um Fegurðardrottningu íslands sem lialdin
verður í Broadway í maí. Stúlkurnar heita, talið frá vinstri: íris, Helga Björg, Heiða, Sólveig, Þóra, Jórunn, Þorgerður og ÓÍöí. Mynd; f
,3raggalífið
varmjög
- Ásgeir Bjömsson
á Siglufirði í helgarviðtali
bls.
12-13