Dagur - 03.04.1987, Blaðsíða 8
8 -DAGUR - 3: apríl 1987
Landbúnaðarráðstefiia
Laugarborg 10. apríl kl. 20.00.
AÐLÖGUN OG UPPBYGGING
Landbúnaðarráðstefina framsóknarflokksins.
Frummælendur:
Jón Helgason, landbúnaðarráðherra
Valgerður Sverrisdóttir
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
Guðmundur Stefánsson
Fundarstjóri: Sveinn Jónsson.
Það kemst
til skila í Degi
Áskrift og auglýsingar ® (96) 24222^^
Unglingameistaramót
íslands á skíðum:
Frestast um
einn dag
Vegna veðurs hefur dagskrá
Unglingameistaramóts íslands
á skíðum farið úr skorðum.
Setningin átti að fara fram í
Akureyrarkirkju í gærkvöld og
keppnin sjálf að hefjast í Hlíð-
arfjalli í dag.
Forsvarsmenn SRA sem er
framkvæmdaaðili mótsins hafa
ákveðið að flytja dagskrá mótsins
því aftur um einn dag. Það þýðir
að mótið verður sett í kvöld kl.
19 í Akureyrarkirkju og á morg-
un hefst keppnin í Hlíðarfjalli. í
blaðinu í gær er dagskrá mótsins
eins og hún var upphaflega
ákveðin en hún færist nú öll aftur
um einn dag og mótinu lýkur því
á mánudag.
Úrslit í
bikarnum
Úrslitaleikirnir í bikarkeppni
Blaksambands íslands í flokk-
um karla og kvenna fara fram
á laugardaginn. í karlaflokki
leika KA og ÍS en UBK og ÍS
í kvennaflokki.
Leikirnir fara fram í íþrótta-
húsinu í Digranesi í Kópavogi og
hefst karlaleikurinn kl. 14 en
kvennaleikurinn hefst strax að
honum loknum.
Páll Jóhannesson:
Söngtónleikar
Páll Jóhannesson óperusöngv-
ari heldur tónleika um helgina
á Akureyri og Húsavík. Páll
hefur sungið í vetur við ýmis
tækifæri og hefur hann fengið
góðar viðtökur áheyrenda.
Páll hefur dvalist um árabil á
Ítalíu við nám hjá færustu
kennurum.
Tónleikarnir á Akureyri verða
á laugardaginn í Samkomuhúsinu
kl. 16.00. Þá mun Páll syngja í
Húsavíkurkirkju á sunnudaginn
kl. 16.00. Á efnisskránni, sem er
mjög fjölbreytt. eru m.a. lögeftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Sig-
valda Kaldalóns, Beethoven,
Verdi og Donizzetti. Páll er nú
að undirbúa hljómplötuútgáfu og
vafalaust munu margir vilja hlýða
á söng hans. EHB
af erlendum vettvangi.
Smjöiflöll og vínhöf
- eru að sliga efnahag ríkja í Vestur-Evrópu
Árum saman hafa Evrópumenn
vanist við það, að verulegur hluti
skattgjalda þeirri rynni til kaupa
á umframframleiðslu af víni,
smjöri og kjöti. Stöðug þörf á að
fjármagna „smjörfjöll“ og „vín-
tjarnir" virtist hóflegt gjald til að
viðhalda góðri afkomu í landbún-
aðinum. En nú er dæmið orðið
alvarlegra en áður hefur þekkst.
Söfnun birgða af landbúnaðar-
vörum og kostnaður við geymslu
þeirra hefur náð því marki, að
lengra verður ekki haldið, ella er
hætta á að Evrópubandalagið
verði gjaldþrota innan eins eða
tveggja ára. Thatcher hin breska,
sem að undanförnu hefur setið í
forsetastól Bandalagsins er ákaf-
ur talsmaður þess að skera
útgjöld þessi niður til mikilla
muna eða jafnvel hætta þeim
með öllu.
Og það er ekki að ástæðu-
lausu, að Thatcher er áhyggju-
full. Óseljanlegar birgðir hafa
þrefaldast síðan 1984. Birgðir
undanrennudufts hafa aukist um
50 prósent og umfang smjörfjalls-
ins tvöfaldast. Skattborgarar
Vestur-Evrópu kosta geymslu 16
milljóna tonna af ýmsum korn-
tegundum, 645 þúsund tonna af
nautakjöti og 1700 milljóna lítra
af annars flokks víni. Geymslu-
kostnaðurinn einn er yfir 200
milljónir króna á dag. Á síðasta
ári eyddi Evrópubandalagið 60
milljörðum króna til kaupa á
umfram-mjólk. Og dæmið á enn
eftir að versna til muna. Stjórnar-
nefndin í Brússel telur, að verði
engin breyting í landbúnaðar-
stefnu Bandalagsins næstu fimm
árin muni birgðir af umframfram-
leiðslu komast upp í 80 milljónir
tonna og árlegur geymslukostn-
aður fara yfir 120 milljarða króna
á ári.
Ýmsar afleiðingar þessarar
óhjákvæmilegu birgðasöfnunar
birtast á furðulegan hátt. Þannig
eru kálfar í Hollandi aldir á
smjöri, sem fengið er úr birgða-
skemmum Evrópubandalagsins,
en á sama tíma fer mjólkin úr
mæðrum þeirra til að bæta við
birgðirnar í öðrum skemmum
sama bandalags. Smjör, sem
Bandalagið keypti fyrir einu og
hálfu ári á 3120 dollara tonnið, er
nú boðið til sölu í höfnum Mið-
austurlanda fyrir 92 dollara
tonnið, einfaldlega til að losna
við sívaxandi geymslukostnað.
Jean-Baptiste Doumeng, sem
gengur undir nafninu „rauði
milljónamæringurinn“, vegna
þess að hann er hvort tveggja í
senn franskur viðskiptajöfur og
einn af leiðtogum kommúnista-
flokksins þar í landi, græddi 150
milljónir dollara á einum samn-
ingi á síðasta ári. Hann keypti 3
milljónir tonna af hveitibirgðum
Evrópubandalagsins og seldi
samstundis til Sovétríkjanna.
Kvótakerfi
Jafnvel Frans Andriessen, sem
fer með stjórn landbúnaðarmála
hjá Evrópubandalaginu, Hol-
lendingur, segir, að birgða-
söfnunin sé komin í algerar
ógöngur og því sé þörf róttækra
aðgerða. Andriessen vill setja
kvóta á alla landbúnaðarfram-
leiðslu bandalagsríkjanna, sem
að jafnaði er umfram þarfir og
setja samhliða á fót sérstakan
sjóð, sem gegni því hlutverki að
halda uppi tekjum smábænda,
sem gjaldþrot myndi ella blasa
við. Thatcher væri best að skapi
að fylgja fordæmi Ameríku-
manna, sem borga bændum fyrir
að láta ákveðinn hluta akra sinna
ósána hvert ár.
En þrátt fyrir það hversu
aðkallandi er orðið að grípa til
róttækra aðgerða, þá virðist langt
í land með það að raunhæfar
breytingar verði. Stórblaðið Tim-
es í London komst þannig að orði
um landbúnaðarstefnu Evrópu-
ríkja fyrir ekki margt löngu, að
hún væri „algerlega óþolandi
stefna, en jafnframt algerlega
ómissandi“. Á þeim 28 árum,
sem liðin eru frá stofnun Evrópu-
bandalagsins (Efnahagsbanda-
lagsins) hefur landbúnaðarstefn-
an verið eina Evrópupólitíkin,
sem greinilega hefur náð tilgangi
sínum. Hún hefur útrýmt þeirri
óvissu, sem jafnan var fylgifiskur
búskapar, dregið úr flótta þeirra
bænda úr sveitunum, sem bjuggu
við erfiða landkosti, og gert Evr-
ópuríkin sjálfum sér nóg á nánast
öllum sviðum matvælafram-
leiðslu.
Bróðurparturinn
En hin síðari árin hefur líka
afleiðingin orðið sú, að safnast
hafa upp birgðir, sem eru svo
Stjórnlaus birgðasöfnun: Bændur tóku ærnar með til mótmælagöngu í París.