Dagur - 03.04.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 03.04.1987, Blaðsíða 5
3. apríl 1987 - DAGUR - 5 „ Býst við mikilli keppni - segir Þröstur Guðjónsson formaður skíðaráðs // Riiiing... íþróttaskemman. - Góðan dag, er þetta Pröstur? - Já, það er hann. - Sæll vertu, Stefán Sæ- mundsson hér á Degi. - Já, komdu sæll. - Pú sem formaður Skíðaráðs Akureyrar getur væntanlega frætt mig um Unglingameistara- mót íslands á skíðum sem fer fram í Hlíðarfjalli um helgina. Segðu mér til dæmis hvað eru margir keppendur og hvaðan þeir koma. - Já, það skal ég gera. Kepp- endur eru frá Reykjavík, Isa- firði, Siglufirði, Dalvík, Ólafs- firði, Akureyri, Húsavík, UÍA og Ólafsvík sem ekki hefur áður sent keppendur á slíkt mót. Skráðir keppendur eru 162 og skiptast þannig að það eru 18 í göngu, 3 í stökki og 141 í alpa- greinum. - Hvenær hefst síðan mótið? - Það verður sett í kvöld í Akureyrarkirkju. Þar verður meðal annars á dagskrá tón- listarflutningur og flugeldasýn- ing að setningu lokinni. Á morg- un verður keppt í flokki 15-16 ára og 13-14 ára flokki stúlkna og drengja, svigi og stórsvigi. Við byrjum klukkan hálf tíu og verðum að til klukkan þrjú. Keppni í göngu hefst hálf ellefu og það má búast við að henni ljúki um hálf tvö. Sunnudagur- inn verður ósköp svipaður hvað alpagreinar varðar en þá verður einnig keppt í stökki og byrjar það klukkan tvö. Á mánudaginn verður keppt í boðgöngu og flokkasvigi. Lágmarksfjöldi er þrír í sveit í boðgöngu en fjórir í flokkasvigi. - En segðu mér Pröstur, nú þegar Fjallið er undirlagt af mótinu þýðir þá nokkuð fyrir almenning að fara á skíði? - Jú, jú, vissulega. Þetta er mjög útbreiddur misskilningur. Lyfturnar eru opnar fyrir alla, keppendur hafa engan forgang í ákveðnum svæðum en það er samt sem áður nóg af svæðum fyrir almenning. Aðstaðan í Hlíðarfjalli leyfir það að halda stór mót og að hafa opið fyrir almenning samtímis. Síðan er þetta auðvitað kjörið tækifæri fyrir fólk að sjá þetta efnilega skíðafólk sem er farið að banka á bakið á því besta. - Já, keppendur eru upp í 16 ára, ekki satt? - Jú, og í öllum héruðum eru efnilegir krakkar og margir mjög góðir. Ég býst við því að það verði þarna mikil keppni um sætin, allir reyna að ná sér í gott sæti, þannig að þetta á eftir að vera mjög spennandi. - Verður ekki einhvers konar lokahóf að lokinni keppni eins og títt er? - Jú. Að lokinni keppni klukkan þrjú á mánudag verður mótinu slitið með verðlauna- afhendingu í Alþýðuhúsinu. Þar býður bæjarstjórnin keppendum og starfsliði í kaffi. - Já, fyrst þú minnist á starfslið. Parf ekki mikinn fjölda starfsmanna við svona stórt mót og fer ekki mikill tími í undir- búning? - Til þess að halda mót sem þetta þurfum við að eiga góða að. Starfsemi okkar byggist á betli, styrkjum og æfingagjöld- um og við höfum fengið mjög góðar undirtektir. Við þetta mót fáum við sérstakan stuðning frá Slippstöðinni, Kaffibrennslunni og Mjólkursamlaginu. Enda væri þetta ógjörlegt án aðstoð- ar. Lauslega áætlað kostar svona mót 200 þúsund og er þá sjálfboðavinna ekki talin með. Sjálfboðavinnan er í því fólgin að 10-15 manns innan skíða- ráðsins eru að vinna að og við mótið til lengri eða skemmri tíma. Það er langt síðan við byrjuðum að undirbúa þetta mót til dæmis. Og á meðan mót- ið stendur yfir áætlum við að 50- 60 sjálfboðaliðar vinni við það allan tímann. Við þurfum örugglega hátt í 15 manns til að I : gæta brautanna því þarna verða nokkrar brautir í gangi. Án sjálfboðaliðanna væri ekki hægt að halda mót sem þetta og vil ég nota tækifærið til að þakka öll- um veittan stuðning, sérstaklega þeim fyrirtækjum sem aðstoða okkur við unglingameistara- mótið. - En ert þú ekki aðal drif- fjöðrin í starfseminni. Ber ekki að þakka þér sérstaklega Pröstur? - Ég er bara einn af þessum stóra hópi. Það er geysilegur áhugi innan skíðaráðsins og þetta er mjög öflugur og áhuga- samur hópur. Þetta hvílir ekkert sérstaklega á herðum mér, það er samtakamátturinn sem gerir það að verkum að þetta er fram- kvæmanlegt. - Hvar gistir allt þetta fólk sem kemur hingað til keppni? - Skíðastaðir taka inn ákveð- inn hóp en annars höfum við þurft að leita til allra aðila í bænum sem bjóða upp á gist- ingu fyrir hópa. Aðsóknin hing- að hefur verið geysileg og stund- um erfitt að fá gistingu. Sem betur fer er þetta leyst og við fáum aðstoð frá Æskulýðsráði Akureyrar. Jafnvel þurfum við að leita til Félagsmiðstöðvarinn- ar í Lundarskóla. Að lokum Þröstur, hvað viltu segia um veðrið? Ég spái aldrei í veðrið fram í tímann, en auðvitað erum við háðir veðri. Við gerum ekkert nema það sé þokkalegt veður. Við frestum mótinu frekar en að tefla á tvær hættur. En við skul- um vona að heppnin verði með okkur. Veturinn er búinn að vera mjög góður og við höfum staðið í mótahaldi frá síðustu helgi í janúar og verðum að fram undir síðustu helgi í apríl. Þá verða Andrésar Andar leikarnir. - Ég þakka þér fyrír spjallið Pröstur og vona að ykkur takist að halda unglingameistaramótið um helgina. - Þakka þér sömuleiðis. SS ... .:’v Söngsveit Hlíðarbæjar. Samsöngur í Hlíðarbæ laugardaginn 4. apríl kl. 2 e.h. Stjórnandi og undirleikari: Ragnar Jónsson. Einsöngvari: Þór Sigurðsson. Fjölbreytt efnisskrá. Hestaáhugafólk Akureyri — Eyjafirði Fræðslufundur á Hótel KEA sunnudaginn 5. apríl kl. 20.00. Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðunautur flytur erindi og sýnir myndir af síðasta landsmóti og fjallar einnig um væntanlegt fjórðungsmót. Mætum vel og stundvíslega. Fræðslunefnd Léttis. Hrossaræktarsamband Eyfirðinga og Þingeyinga. Sambyggð ferðatæki PANASONIC 0HITACHI Margar gerðir. Verðfrá kr. 3.985,00. w mm m mm w ÍUIWiBUÐ/N S 22111 8UNNUHUÐ Því ekki að byrja leikhusferdina hjá okkur Opnum fyrir matargesti kl. 18.00 HÖFÐABERG - HÓTEL KEA • Dansieikur laugardagskvöld 4. apríl Hljómsveitin Helena fagra leikur f/f kl. 03.00 Verið velkomin. HÓTEL /jj ■■ ^JC *■■■ KEA AKUREYRI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.