Dagur - 03.04.1987, Blaðsíða 10
10 i- DAQURC-t- -3/ Sfpr1l11’987 w
Ibúðir óskast
Viljum taka tvær 3ja herb. íbúðir á leigu strax,
vegna starfsmanna.
Ábyrgjumst skilvísar greiðslur og góða umgengni.
Nánari upplýsingar gefur Jón Arnþórsson,
í síma 21900.
Iðnaðardeild Sambandsins
Akureyri.
Sauðfjárbændur
Aðalfundur félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð
verður haldinn á Hótel KEA mánud. 6. apríl 1987
og hefst kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Óli Valdimars-
son sláturhússtjóri flytja erindi um vinnslu og mark
aðsmál kindakjöts.
Allir sauðfjárbændur velkomnir
Þeir sem ekki eru í félaginu eru hvattir til að mæta og
ganga í félagið.
Stjórnin.
Kjörland hf.
auglýsir
Eyfirskar kartöflur
Seljum ferskar kartöflur í 2-2,5-5 og 25 kg umbúðum.
Þvegnar og óþvegnar.
Franskar í 0,7-1,5 og 2 kg. Skífur 1 og 3 kg.
Rófur - Gulrætur - Hvítkál - Laukur og fleira.
Flutningsgjald greitt hvert á land sem er.
Kjörland hf.
Sími 96-25800.
HFI
HAGRÆÐINGARFÉLAG ÍSLANDS
ISLANDS RATIONALISERINGS FORENING
Fræðslufundur
á Akureyri
mánudaginn 6. apríl nk.
Fræðslufundur í Alþýðuhúsinu Skipagötu 14 4. hæð.
Umræðuefni: Hagræðing í fyrirtækjum.
Viðhorf stjórnenda og starfsmanna.
Áhrif og árangur.
Framsögumenn:
Gunnar Sæmundsson Granda hf.
Ingólfur Árnason Rarik
Örn Gústafsson Iðnaðardeild Sambandsins
Smári Sigurðsson Ara hf.
Þóra Hjaltadóttir Alþýðusambandt Norðurlands
Pallborðsumræður
Fundurinn hefst kl. 14.
Kl. 10 heimsókn í fyrirtæki. Þeir sem. hafa áhuga á að
taka þátt í henni hafi samband við Etð Guðmundsson
í síma 26333 fyrir kl. 18 föstudáginn 3. apríl.
Freyvangsleikhúsið
auglýsir:
Láttu ekki
deigan síga
Guðmundur
Sýningar:
Föstudag 3. apríl kl. 20.30.
Laugardag 4. apríl kl. 20.30.
Sýningum fer að fækka.
Vegna mikillar aðsóknar
vinsamlegast pantið miða.
Miðapantanir í síma 24936.
Ath. Hópafsláttur.
Freyvangsleikhusið.
Eðisfræði fyrir framhaldsskóla:
Atóm- og kjarneðlisfræði
Út er komið sjötta og síðasta
bindið af Eðlisfræði fyrir fram-
haldsskóla sem Almenna bóka-
félagið hefur verið að gefa út
undanfarin þrjú ár. Þessi eðlis-
fræði er ætluð stærðfræðideildum
framhaldsskólanna, höfundar eru
fimm sænskir og danskir eðlis-
fræðikennarar, en um hinn
íslenska búning hafa séð þeir
Guðmundur Arnason, Þórður
Jóhannesson og Þorvaldur Ólafs-
Borgarbíó
Föstud. ki 9.00, laugard.
og sunnud. kl. 5.00.
Lucas
W
Föstud. kl. 11.00, laugard.
og sunnud. kt. 9.00.
Öfgar
Sunnud. ki 3.00.
SkautahöHin
Síðasta sinn.
Sunnud. kl. 11.00.
Náin kynni
Djörf ástarmynd.
HRARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að
innrétta skrifstofuhús að Óseyri 9 Akureyri.
Útboösgögn veröa afhent á Teiknistofu Hauks Har-
aldssonar sf. Kaupangi, Akureyri frá og meö mánu-
deginum 6. apríl 1987 gegn 5.000,- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins á Akureyri fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 15.
apríl 1987, og veröa þau þá opnuð í viðurvist þeirra
bjóöenda, sem þess óska.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS.
son sem allir eru kennarar við
Menntaskólann við Sund.
Þetta síðasta bindi sem hefur
kennitöluna 3 ber undirtitilinn
Atóm- og kjarneðlisfræði og er
ætlað eðlisfræðideildum. Það er
þannig ritað að taka má kaflana í
hvaða röð sem er og nemendur
þurfa hvorki að hafa lesið afl-
fræðina í bindi 2A né rafsegul-
fræðina í bindi 2B. En frumatriði
bylgjufræðinnar þyrftu þeir að
kunna til að geta notað bókina.
Bókin skiptist í 12 kafla sem
heita: 1) Skammtakenning, 2)
Röntgengeislun, 3) Agnir og
bylgjur, 4) Atómið, 5) Litróf
atóma og sameinda, 6) Atóm-
kjarninn, 7) Kjarnahvörf, 8)
Virkni og helmingunartími, 9)
Jónandi geislun, 10) Hagnýting
kjarnorku, 11) Öreindir og 12)
Stjarneðlisfræði. Auk þess er
eins og í hinum bindunum fjöldi
dæma og svör við þeim, mikið af
myndum, bæði til skýringar og
fróðleiks og skrá yfir nöfn og
atriðisorð.
Nöfn (undirtitlar) og kenni-
tölur þessara sex binda eðlis-
fræðinnar eru þessi:
1A Afl- og varmafræði, 1B Raf-
magnsfræði, 2A Aflfræði, 2B
Rafsegulfræði, afstæðiskenning,
2C Afl- og rafsegulfræði, atóm-
og kjarneðlisfræði, 3 Atóm- og
kjarneðlisfræði, 1A og 1B eru
ætluð báðum stærðfræðideildum,
2C náttúrufræðideildum og 2A,
2B og 3 eðlisfræðideildum.
Bókin er unnin í Prentsmiðju
Árna Valdimarssonar hf.
Benni og
Svenni
Út er komin hjá Námsgagna-
stofnun bókin Bjarni og Svenni
eftir Kristján Guðmundsson með
teikningum eftir Búa Kristjáns-
son.
Sagan hlaut viðurkenningu í
samkeppni Námsgagnastofnunar
um bækur á léttu máli og er frá-
gangur bókarinnar sérstaklega
miðaður við þarfir þeirra barna
sem erfitt eiga með lestur. Lítið
lesmál er á hverri síðu, letur er
skýrt og línur stuttar. Sagan fjall-
ar um félagana Bjarna og Svenna
og hvað þeir taka til bragðs er
reiðin knýr dyra. Bókin er 37 bls.
og mikið myndskreytt.
Sagan Bjarni og Svenni er
einnig gefin út á hljómbandi sem
ætlast er til að notað sé með bók-
inni. Barnið hlustar á hljómband-
ið um leið og það fylgist með orð-
unum í bókinni. Þessi aðferð hef-
ur reynst vel mörgum hæglæsum
börnum þar sem hún styrkir bæði
sjónræna og heyrnræna skynjun
þeirra. Reynt er að lesa svo skýrt
að hvert málhljóð heyrist án þess
þó að lesturinn verði óeðlilegur.
Það er höfundur sem les.
Leiðrétting
í frétt af aðalsafnaðarfundi
Akureyrarsóknar sem birtist í
Degi föstudaginn 27. mars er
Akureyrarkirkja ranglega nefnd
Matthíasarkirkja. Sr. Birgir Snæ-
björnsson, sóknarprestur, benti á
að hann og fleiri hefðu um árabil
barist fyrir því að Akureyrar-
kirkja væri nefnd réttu nafni en
Matthíasarkirkjunafnið hefði
samt verið notað af ýmsum um
árabil. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum. EHB