Dagur - 03.04.1987, Blaðsíða 21
3. apríl 1987- DAGUR-21
jsl^
&
FÖSTUDAGUR
3. apríl
6.00 í bítið.
9.05 Morgunþáttur.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála.
16.05 Hringiðan.
Síðdegisútvarp rásar 2,
fréttatengt efni og tónlist.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Lög unga fólksins.
21.00 Merkisberar.
22.05 Fjörkippir.
23.00 Á hinni hliðinni.
00.10 Næturútvarp.
02.30 Ungæði.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 8,
9, 10, 11, 15, 16, 17, 18, 22
og 24.
LAUGARDAGUR
4. apríl
6.00 í bítið.
9.03 Tíu dropar.
11.00 Lukkupotturinn.
12.45 Listapopp.
14.00 Poppgátan.
(Þátturinn verður endur-
tekinn nk. þriðjudagskvöld
kl. 21.00.)
15.00 Við rásmarkið.
17.00 Savanna, Ríó og hin
tríóin.
18.00 Frettir á ensku.
18.10 Tilbrigði.
(Þátturinn verður endur-
tekinn aðfaranótt miðviku-
dags kl 02.00.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Með sínu lagi.
20.00 Rokkbomsan.
21.00 Ámörkuniun.
- Jóhann Ólafur Ingvason.
(Frá Akureyri).
22.05 Snúningur.
00.05 Næturútvarp.
Fréttir sagðar kl. 7, 8, 9, 10,
12, 16, 22 og 24.
SUNNUDAGUR
5. apríl
6.00 í bítið.
9.03 Perlur.
10.05 Bamastundin.
11.00 Gestir og gangandi.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Heilmikið mál.
Gísli Sigurgeirsson endui
skoðar atburði nýliðinnar
viku. (Frá Akureyri).
14.00 í gegnum tíðina.
15.00 75. tónlistarkrossgát-
an.
Jón Gröndal leggur gát-
una fyrir hlustendur.
16.05 Vinsældalisti rásar 2.
Gunnar Svanbergsson og
Georg Magnússon kynna
og leika þrjátíu vinsælustu
lögin á rás 2.
18.00 Gullöldin.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Ungæði.
(Þátturinn verður endur-
tekinn aðfaranótt laugar-
dags kl. 02.30.)
20.00 Norðurlandanótur.
21.00 Á sveitaveginum.
22.05 Dansskólinn.
23.00 Rökkurtónar.
00.10 Næturútvarp.
Fréttir sagðar kl. 8.10, 9, 10,
16, 22 og 24.
RlKISÚIVARPfÐ
AAKUREYRI<
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
FÖSTUDAGUR
3. apríl
18.00-19.00
Inga Eydal rabbar við
hlustendur og les kveðjur
frá þeim, leikur létta tón-
list og greinir frá helstu
viðburðum helgarinnar.
LAUGARDAGUR
4. apríl
18.00-19.00 Um að gera.
Þáttur fyrir unghnga og
skólafólk.
SUNNUDAGUR
5. apríl
10.00-12.20 Sunnudags-
blanda.
Umsjón: Gísli Sigurgeirs-
son.
989
BYLGJAN,
FOSTUDAGUR
3. april
07.00-09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni.
09.00-12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum.
AfmæUskveðjur, kveðjur
til brúðhjóna og matar-
uppskriftir.
12.00-12.10 Fróttir.
12.10-14.00 Á hádegis-
markaði með Þorsteini J.
Vilhjálmssyni.
Fréttapakkinn.
14*00-17.00 Pótur Steinn á
réttri bylgjulengd.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavík síð-
degis.
19.00-22.00 Tónlist úr ýms-
um áttum.
22.00-03.00 Haraldur Gísla-
son
nátthrafn Bylgjunnar kem-
ur okkur í helgarstuð með
góðri tónlist.
03.00-08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. i
LAUGARDAGUR
4. apríl
08.00-12.00 Valdís Gunnars-
dóttir.
12.00-12.30 í fréttum var
þetta ekki helst.
Randver Þorláksson,
Júlíus Brjánsson o.fl.
bregða á leik.
12.30- 15.00 Ásgeir Tómas-
son á iéttum laugardegi.
15.00-17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar.
Helgi Rúnar Óskarsson
leikur 40 vinsælustu lög
vikunnar.
17.00-19.00 Laugardags-
popp á Bylgjunni
með Þorsteini Ásgeirssyni.
19.00-21.00 Rósa Guðbjarts-
dóttir
Utur á atburði síðustu
daga, leikur tónUst og
spjaUar við gesti.
21.00-23.00 Anna Þorláks-
dóttir í laugardagsskapi.
23.00-04.00 Þorsteinn
Ásgeirsson
nátthrafn Bylgjunnar held-
ur uppi stanslausu fjöri.
04.00-08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
SUNNUDAGUR
5. apríl
08.00-09.00 Fréttir og' tón-
list í morgunsáríð.
09.00-11.00 Andri Már Ing-
ólfsson
leikur ljúfa sunnudags-
tónUst.
11.00-11.30 í fréttum var
þetta ekki helst.
11.30- 13.00 Vikuskammtur
Einars Sigurðssonar.
13.00-15.00 Helgarstuð með
Hemma Gunn.
15.00-17.00 Þorgrímur Þrá-
insson í léttum leik.
17.00-19.00 Rósa Guðbjarts-
dóttir
leikur rólega sunnudags-
tónlist að hætti hússins og
fær gesti í heimsókn.
19.00-21.00 Felix Bergsson
á sunnudagskvöldi.
Kveðjur til afmæUsbama
dagsins. (Síminn hjá Felix
er 611111).
21.00-23.30 Popp á sunnu-
dagskvöldi.
23.30- 01.00 Jónína Leós-
dóttir.
01.00-07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
Reyklaus dagur,
Góðan daginn vinir og velunnar-
ar. Nú er föstudagurinn 3. eftir
Albert. Héðan í frá verður tekið
upp nýtt tímatal sem miðast við
nýjasta píslarvottinn. Já, þetta
fórnfúsa skir.n sem var svikinn af
samherjum, en sem betur fer átti
hann flokksbræður í Sjónvarpinu
og gat því komið fram sem sönn-
um píslarvotti sæmdi, dýrð og
glorí halelúja. í sótsvörtu myrkr-
inu tekur gamalt fólk upp vasa-
klúta, grætur og minnist hálf-
guðsins sem var obbolítill vinur
obbolitla mannsins og gerði garð-
inn frægan í frans og ég veit ekki
hvað og hvað. Hann fékk a.m.k.
óáreittur að lýsa eigin ágæti í
sjónvarpssal og vinir hans, frétta-
mennirnir, voru enn klökkari en
hann sjálfur. Ekki orð um þessa
hneisu meir.
Nú stöndum við líka á nýjum
tímamótum (þegar þetta er skrif-
að er föstudagurinn 27.03/87
skv. gamla tímatalinu) - því nú
er fyrsti í Reyklausum. Já, dagur-
inn heitir nefnilega Reyklausi
dagurinn. Ætti frekar að heita
Vonlausi Dagurinn, eða fyrsti í
fýlu. Ég tók nefnilega upp á þeim
óskunda að láta berast með
tískubylgunni og hætti að reykja,
í dag. Helmingnum af ævi minni
hef ég eytt með sígarettum,
vindlum, pípu og neftóbaki og
Hallfreður Örgumleiðason:
svo allt í einu stopp, búið og
basta.
Þegar ég vaknaði í morgun,
dálítið seint og illa, þá ætlaði ég
að fá mér morgunverð sem
samanstendur af tebolla og síga-
rettu, stundum nenni ég að vísu
ekki að hita te. En nú hitaði ég
vatn í potti, lagaði te og fálmaði
eftir sígarettupakka. En vei, þú
auma tískubóla. Ég var búinn að
henda öllu tóbaki út úr húsinu,
búinn að leggja allt fé inn á bund-
inn reikning og búinn að taka lof-
orð af öllum vinum og ættingjum
þess efnis að þeir myndu ekki
gefa mér sígarettu í dag. Heimur-
inn hrundi skyndilega og ljómi
hins staðgóða morgunverðar
skolaðist niður vaskann ásamt
tegutlinu.
Ástandið var hroðalegt fram
að hádegi. Ég umturnaði íbúð-
inni, hélt endilega að ég hefði
verið svo forsjáll að stinga nokkr-
um rettum undan. Eftir að hafa
lagt íbúðina í rúst þá réðst ég á
Haukur Kristjánsson annar eigandi Veiðarfæris hf. til hægri ásamt einum starfsmanni fyrirtækisins að útbúa troll.
Mynd: -þ;i
Gömlu húsin á hafnar-
bakkanum
rifi n og byggð ný
„Þetta verður 620 fermetra
hús. Fjörutíu metrar að lengd
og þar verður hátt til lofts og
vítt til veggja,“ sagði Haukur
Kristjánsson annar eigenda
neta- og veiðarfærafyrirtækisins
Veiðarfæri hf. á Siglufirði, sem
í sumar ætlar að byggja verk-
stæðishús á suðurkanti hafnar-
bryggjunnar. Verða þá öll
gömlu húsin og skúrarnir sem
standa á hafnarbakkanum rif-
in og rýmt til fyrir nýjum
húsum. Auk Veiðarfæris ætlar
Þormóður Eyjólfsson hf. sem
er umboðsaðili fyrir vöruflutn-
ingaskip og Skipaþjónustan hf.
sem sér um uppskipanir úr tog-
urunum og öðrum skipum, að
byggja sameiginlega 35 metra
langt hús við norðausturkant
hafnarbryggjunnar.
Burðarvirkið í nýbyggingu
Veiðarfæris verður úr límtrjám,
sem líklega verður klætt á með
Barkareiningum. Sagði Haukur
að sér sýndist þessi byggingarað-
ferð vera mjög hentug.
Veiðarfæri hf. er búið að vera
starfandi í tæp 3 ár í sérkennilegu
húsi, sem líkist mest löngu og
háu tjaldi við hafnarbryggjuna. I
fyrstu ætluðu eigendurnir Vern-
harður Hafliðason og Haukur
Kristjánsson aðeins að vinna þar
tveir, en þurftu strax vegna mik-
illa verkefna að ráða fleiri menn í
vinnu og húsnæðið hefur því allt-
af verið of lítið. í dag er fyrirtæk-
ið með 6 togara í viðskiptum,
rækjubátana og viðgerðir fyrir
loðnuskipin. Haukur sagði að frá
því í september og fram að ára-
mótum hefði verið gert við 62
loðnunætur og þeir þá orðið að
bæta við mönnum. Fyrirtækið er
í dag mest í gerð og viðhaldi tog-
veiðarfæra, en Haukur sagðist
reikna með að þegar nýja húsið
verður komið upp, verði einnig
farið í nótagerð. í dag vinna 7
menn hjá fyrirtækinu. -þá
æogó!
símakerfið uns það brann yfir.
Enginn árangur þar heldur, eng-
inn vildi sýna miskunn. Hrínandi
af vanlíðan afhýddi ég nokkra
banana, skóf innan úr hýðinu og
setti afurðina í bakaraofn. Þegar
skófin var vel þurr tróð ég henni
í pípustert og hugðist bera eld
að. Engar eldspýtur. Þá lagði ég
Dag á eldavélarhellu og setti á
mesta straum. Brátt logaði Dag-
ur glatt og ég notaði eldinn til að
tendra öll kerti í húsinu. En
skelfing var ógeðslegt að reykja
þurrkaða bananahýðisskóf, það
skyldi enginn reyna.
Þá datt mér snjallræði í hug.
Ég kviðristi tepoka og tróð duft-
inu í pípu. Ahhh, dálítið sterkt
að vísu en ekki óreykjandi, í
fyrstu. Brátt fékk ég þó svima,
ógleði og uppköst og ærðist
gjörsamlega af nikótínþörf. Þetta
var svipað og að bjóða dauðsolt-
inni kjötætu upp á gulrót. Hrika-
leg vonbrigði. Éftir að hafa reynt
að reykja Italian seasoning gafst
ég upp á þessum tilraunum.
Þetta var bara fram að hádegi.
Ég ætla ekki að reyna að lýsa
ástandinu eftir það en nú er að
nálgast miðnætti á þessum hroða-
lega degi og um leið og klukkan
drattast yfir 12 þá . . . ja, þá
hvað? Jú, þá er fyrsti í Reyklaus-
um liðinn og annar tekur við. Nú
skal kné fylgja kviði og barátt-
unni haldið áfram. Festa, sókn og
framtíð. Því miður býst ég ekki
við að fá póst á næstunni. Bless-
uð konan sem ber samviskusam-
lega út bréfin í hverfinu mínu
þorir aldrei að koma nálægt hús-
inu framar. Hún kom nefnilega í
dag, eftir hádegi, og þá sat ég
gólandi frammi í forstofu á brók-
inni einni og nagaði kuldaskó.
Þegar ég sá hana í gegnum glerið
á hurðinni gelti ég ákaflega og
stökk á hurðina, krafsandi og
ýlfrandi. Hún hljóp veinandi
burt, fullvissari en nokkru sinni
fyrr um það að skáld og hugsuðir
væru viti firrtar mannverur og
hættulegir í umgengni. Aumingja
konan, þetta var vænsta grey, en
viðkvæm eins og gengur og gerist
með þessar brothættu verur.
Ég vona að öllum hafi gengið
jafn vel og mér að hætta þessari
dýrðlegu, lostafengnu og ómiss-
andi athöfn sem reykingarnar
eru. Ég sendi baráttukveðjur til
kvenna gegn klámi, kvenna gegn
kjarnorkuvá, kvenna gegn
körlum, kvenna gegn kynferði og
kvenna gegn káljafningi. Ég held
þetta ekki lengur út, ég verð að
fá mér meira súkkulaði. Þetta er
tíunda Lindubuffið í dag og allt
kókið, úff. En jæja, maður er þó
hættur að reykja í bili. Bless.