Dagur - 15.04.1987, Blaðsíða 2

Dagur - 15.04.1987, Blaðsíða 2
2- DÁGÍÍfí - Í5. april1987 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 530 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR PÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Jeiðari._________________________________ Framsókn er kjölfestan Þó að draga megi takmarkaðar ályktanir af skoðanakönnunum, sem gerðar eru nokkuð löngu fyrir kosningar, virðist mega sjá með nokkurri vissu hver þróunin er milli sambæri- legra kannana sem gerðar eru með ákveðnu millibili. Þá ættu skoðanakannanir nær sjálfum kosningunum að gefa meiri vísbendingar en þær sem eru fjær í tímanum. Þá er vert að hafa í huga, að talið er að um þriðjungur kjósenda taki endanlega ákvörðun um val á sjálfan kjördag og meira en tugur kjósenda í kjör- klefanum. Það er athyglisvert að bera saman skoðana- kannanir DV og Hagvangs, sem birtust sama daginn en voru gerðar með nokkurra daga miUibih, sú síðarnefnda helgina 11.-12. apríl en sú fyrrnefnda 1.-8. apríl. Samanburðurinn bendir ótvírætt til þess að mjög mikil hreyfing sé á fylgi flokkanna um þessar mundir. Fylgi Borgaraflokksins rénar augljóslega og raunar af mjög skiljanlegum ástæðum. Tilfinn- ingasveiflan sem Albert fékk með sér í þann mund sem flokksforusta Sjálfstæðisflokksins hafnaði honum hefur snúið til baka. En hún hefur ekki snúið til baka til Sjálfstæðisflokks- ins, hvað svo sem gerist á síðari stigum kosn- ingabaráttunnar. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur það sterka afl í íslenskri póhtík sem hann áður var, þegar fólk sem ekki taldi sig pólitískt sagði gjarnan: Ég er alveg ópólitískur og kýs bara Sjálfstæðisflokkinn. Sú þörf sem sumir virðast haldnir, að fylgja hinum sterka, nýtist ekki Sjálfstæðisflokknum með sama hætti og áður. Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn og alþjóð veit það. Skoðanakannanir sem Félagsvísindastofnun Háskólans hefur unnið fyrir Dag benda einnig ótvírætt th mikilla sviptinga á fylgi flokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn tapar verulega frá fyrri könnun í mars, en Framsóknarflokkurinn bætir við sig og er það í samræmi við könnun DV um síðustu helgi. Töluvert vantar þó á að Fram- sóknarflokkurinn sé búinn að ná því fylgi sem hann hafði í kosningum fyrir fjórum árum. Eins og áður sagði getur allt gerst í kosn- ingabaráttunni. Framsóknarmenn mega því ekki láta deigan síga. Nú er svo komið í íslenskum stjórnmálum að Framsóknarflokk- urinn hefur tekið við því hlutverki með enn augljósari hætti en áður að vera kjölfestan. Hann þarf að auka fylgi sitt verulega svo þetta verði enn augljósara. HS ^viðtal dagsins.. Árni Ragnarsson. „Danskt" viðhorf til byggðar í landinu útbreitt á Reykjavíkursvæðinu - Spjallað við Áma Ragnarsson, skipulagsarkitekt á Sauðárkróki „Það má segja að skipulag hinna ýmsu staða úti á Iandi sé orðið fjarstýrt. Þannig að syðra er það unnið með það í ,huga að það standist bruna- málareglugerðir, bygginga- reglugerðir o.fl., og síðan er ekkert annað en skella húsun- um inn í reitina. Mér finnst að með þessum hætti verði skipu- lagið deyfðarlegt og held að lít- ið sé spáð í hvað má betur fara. Ég hugsa að skipulags- og bygginganefndir úti um land séu vel hæfar til að ákveða stærðir lóða og staðsetningu leikvalla og göngustíga svo eitthvað sé nefnt. Og geti ekki síður en einhverjar stjómir í Reykjavík metið hvort hlutirn- ir eru góðir, standist kröfur og svari þörfum,“ sagði Árni Ragnarsson skipulagsarkitekt. Árni er Sauðkrækingur og lauk námi sínu í Árósum í Danmörku árið 1977. Hann hefur unnið að skipulagsmál- um fyrir bæjarfélög úti um land, bæði í Reykjavík og heima í héraði og ef til vill hef- ur það mótað viðhorf hans til mála landsbyggðarinnar, sem hann telur standa mjög höllum fæti gegn stjórnsýslunni í Reykjavík. „Þegar ég kom heim frá námi fór ég að vinna hjá Skipulagi ríkisins, að skipulagstillögum, bæði fyrir Suður- og Norðurland, en aðallega Norðurland vestra. Mér fannst mjög erfitt að vinna skipulag úr svona mikilli fjarlægð og vera í lítilli snertingu við stað- ina og fólkið. Það var mjög erfitt að sjá fyrir hvernig skipulagið „virkað", en það er einmitt með skipulag eins og aðra hluti að maður lærir mest á því að sjá hvernig til tekst. Það var síðan úr að Skipulag ríkisins ákvað að gera tilraun með útibú hér á Sauðárkróki fyrir Norðurland vestra, og var það fyrsta útibú stofnunarinnar og það eina til þessa. Ég flutti svo hingað norð- ur 1979 og fór þá að vinna skipu- lag fyrir nokkra þéttbýlisstaði hér fyrir norðan. Þetta útibú var síð- an lagt niður 1983, án þess að nægjanleg reynsla væri komin á þessa starfsemi. Mér fannst mun betra að vinna þessa vinnu á meðal manna, en embættis- manna og það held ég að muni gilda um allar þjónustustofnanir. En þetta var í rauninni það stutt- ur tími að maður var ekki búinn að þróa sínar starfsaðferðir til fullnustu.“ - Þú eltir starfið hjá skipulag- inu ekki suður. # Eftir að fá skýringar Og enn af sameiginlegum framboðsfundi í MA sem sagt var frá fyrir skömmu. Það vakti talsverða athygli að þegar spurningum var beint til fram- bjóðanda S-listans gat hann ekki svarað án þess að lesa beint upp úr hinni mjög svo málefnalegu stefnuskrá flokksins. Ef spurningunum var síðan fylgt eftir heyrðust gjarnan svör eins og: „Ég á eftir að fá nánari skýringu á þessu og get ekki svarað“. Þetta var til dæmis tilfellið þegar beðið var um nánari skýringu á þeim breytingum sem flokkurinn vill gera á landvörnum íslands. Á það er minnt að þarna talaði efsti maður á lista flokksins í einu stærsta kjördæmi landsins. • Lítill þingflokkur Það verður þó að segja fram- bjóðanda S-listans til hróss að honum tókst með „skýr- um og skilmerkilegum“ svör- um sínum að halda uppi léttri stemmningu á fundinum. Mesta kátínu vakti svar hans við annarri spurningu um utanríkismál sem virðast ekki vera hans sérgrein. Svarið var einfaldlega það að þar sem enn hefði ekki gefist tími til að kalla saman þing- flokksfund þá hefði flokkur- inn ekki tekið afstöðu í mál- inu. Það er ekki of sterkt til orða tekið þegar sagt er að salurinn ærðist af hlátri. Fundur í þingflokknum? Hvaða þingflokki og á hvaða þingi? Svar óskast sent merkt einkamál. 9 Alberts- hnefinn Albert Guðmundsson „sló hressilega um sig“ á Hótel Borg á dögunum eins og menn muna - enginn man það þó betur en Einar Ólason Ijósmyndari Þjóðviljans, sem missti eina tönn en eignaðist að sögn nýjan vin í staðinn, því Berti segir þá bestu vini I dag. Sigtryggi Símonarsyni varð að orði er hann heyrði þetta: Einar mynda Albert vildi, afar frægan mann. Albert vin sinn ekki skildi - og afmyndaði hann.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.