Dagur - 15.04.1987, Blaðsíða 14

Dagur - 15.04.1987, Blaðsíða 14
, 14 tiDAGUR — 15. apcíl 1987 Orð og athafnir LACOSTE Peysur — Boiir Jogginggallar Frönsk úrvalsvara HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 „Við íbúar á Norðausturlandi verðum að temja okkur þann hugsunarhátt að líta á þennan landshluta sem eina heild.“ Einhver myndi nú verða til að nefna þessi ummæli Jóhannesar G. Sigurgeirssonar kokhreysti, þegar haft er í huga að Fram- sóknarflokkurinn hafnaði þeim fulltrúa sínum, sem helst má með fyllstu sanngirni benda á, að þjónað hafi öllu kjördæminu með þingmannsstörfum sínum. Víst er Stefán Valgeirsson val- inn til framboðs af Eyfirðingum og nýtur þess, en hann er kjörinn þingmaður með stuðningi fram- sóknarfólks í öllu kjördæminu. Hann hefur frá fyrstu tíð gert sér grein fyrir þessari staðreynd og starfað í samræmi við það. Betur væri, ef allir áhrifamenn vildu sem hann ganga á vegi sannleik- ans og til að mynda hafa færri orð en láta athafnir fylgja. Jóhannes Geir nefnir á öðrum stað að lykillinn að því að íbúar á Norðurlandi eystra hafi afl til þess að ná málefnum sínum fram gegn miðstýrðu ofurveldi höfuð- borgarsvæðisins sé samstaða. Miðstýrður Framsóknarflokkur sýndi okkur ýmis orð og athafnir í þessa veru að undanförnu, en gætti þess ekki að hlýða á rödd fólksins, því að lítill samhentur flokkur skyldi vera betri en stór frjálslyndur. Svo upptekin hefur flokksfor- ystan verið við að sinna aðkall- andi málum - reyndar að sumu leyti óskyldum okkur framsókn- armönnum, eins og því að halda Sjálfstæóisflokknum saman, sem alþjóð veit nú hverjar lyktir á urðu - að grunntónn flokksins, bændafylgið, hefur orðið horn- reka. Flokkstónninn er orðinn Sími 96-31129. Garðyrkjustöðin á Grísará Opið skírdag, laugardag 18. apríl og annan í páskum frá kl. 1-6. KJORSTAÐUR við alþingiskosningar er fram eiga að fara laugardaginn 25. apríl 1987 verður Oddeyrarskólinn á Akureyri. Kjörfundur hefst kl. 9.00 f.h. og lýkur eigi síðar en kl. 23.00 e.h. sama dag. Bænum hefur verið skipt í kjördeildir sem hér greinir: I. kjördeild: Aðalstræti - Bjarkarstígur. II. kjördeild: Bjarmastígur - Fróðasund. III. kjördeild: Furulundur - Heiðarlundur. IV. kjördeild: Helgamagrastræti - Kolgerði. V. kjördeild: Kotárgerði - Möðrusíða. VI. kjördeild: Möðruvallastræti - Skarðshlíð 22. VII. kjördeild: Skarðshlíð 23 - Tjarnarlundur 5. VIII. kjördeild: Tjarnarlundur 6 - Ægisgata svo og býlin. í kjörstjórn Akureyrar: Hallur Sigurbjörnsson, Ásgeir Pétur Ásgeirsson og Sigurður Ringsted. falskur. Eða eigum við að trúa því, að það sé í reynd stefna Framsóknarflokksins að vegið sé að hornsteini hinna dreifðu byggða fjölskyldubúskapnum, mér liggur við að segja með bein- um þjófnaði til þess að rétta miklum minnihluta bænda upp í hendurnar illa fenginn hlut, ef þeir ættu með því hægara að sanna tilverurétt sinn. Slíkur búskapur byggir á aðkeyptu vinnuafli, sem hafði þær afleiðingar að þessir bændur, ef til vill tilknúnir, virtu að vett- ugi opinber tilmæli um aðhald í hefðbundinni búvöruframleiðslu. Með stjórnvaldsaðgerðum hafa þessir óstéttvísu og óþjóðhollu framleiðendur verið slegnir til riddara, en litli maðurinn - fjöl- skyldubóndinn - sleginn undir beltisstað. Allt í sómanum eða hvað? Ég veit að einn þingmaður Framsóknarflokksins vildi kafa dýpra ofan í þessi mál og ætla sér aðeins rýmri tíma til að ná góðri niðurstöðu. Það er engin tilviljun að þessi þingmaður heitir Stefán Valgeirsson. Annar þingmanna okkar var tvístígandi í málinu. Því vil ég spyrja Pál Pétursson. Hvenær varð það stefna þín og Fram- sóknarflokksins að gera hinn almenna bónda að fátæklingi og jafnvel eignalausan, en hygla stórbændum að sama skapi? Er það kannski liður í því að endur- skapa lítinn og samhentan flokk? Pað þýðir lítið að veifa framan í okkur glænýrri landbúnaðaráætl- un í fimm liðum, ef framkvæmd hennar verður með svipuðum hætti og verið hefur síðustu árin í landbúnaði. Páll, ég er viss um að allt lands- byggðarfólk hefur áhuga á svari þínu. Neytendur ættu einnig að gefa því gaum, ekki síst í ljósi þess, að næsti landbúnaðarráð- herra gæti sem best heitið Páll Pétursson. Pið Jóhannes Geir verðið endilega að bera saman bækur ykkar, svo að við fáum að sjá samhenta stefnu í landbúnað- armálum. Og þá meina ég ekki loforðalista heldur réttlæti í framkvæmd. Síðan skuluð þið bera handritið undir Stefán Val- geirsson og fá föðurlega blessun hans, svo að stefnan verði fram- bærileg við okkur áhugasama kjósendur. Já, er ekki Stefán Valgeirsson formaður framsóknarfélaga í Eyjafirði og verður það áfram um sinn. Jóhannes Geir hefði mjög gott af því að ganga í læri til Stefáns og það því fremur, ef hann hyggur til þess að taka við starfi hans að fjórum árum liðnum. Það verður nefnilega ekki fyrr og ræðst alfarið af því hversu námfús hann verður. Jóhannes Geir má grunda það vel, að hann á töluvert í land, áður en hann öðlast þann trúnað sem Stefán Valgeirsson hefur meðal okkar og ekki ólíklegt, að hann keppi um hylli okkar við - til að mynda - Pétur Þórarinsson. Pá þætti mér viðeigandi í lokin, að Páll Pétursson upplýsti sem áhrifamaður, hvort það væri ekki hollráð, að Stefán Valgeirs- son tæki við þingflokksfor- mennsku í Framsóknarflokknum á næsta kjörtímabili, og lyki með því farsælu þingmannsstarfi, enda ættum við ennþá samleið. Síðast en ekki síst vil ég beina því til forystuafla í Framsóknar- flokknum, hvort það sé einber tilviljun, að bæði J-listinn og Þjóðarflokkurinn spretta af rót- um sínum í því kjördæmi, sem réttilega hefur verið nefnt höfuð- vígi Framsóknarflokksins. Sú var tíðin að framsóknarmenn áttu báða þingmenn Eyfirðinga og samtals fjóra þingmenn af sex á Norðausturlandi. Viljið þið viðurkenna, að eitthvað hafi far- ið úrskeiðis og leitast við að leið- rétta í samvinnu við fólkið, svo að J-listafólk og Þjóðarflokkur geti sameinast móðurskipinu sem fyrst aftur. Ég trúi því ekki að það sé óbifanieg tilskipun að flokknum sé fyrir bestu að vera lítill og samhentur. Ég trúi því nefnilega að Fram- sóknarflokkurinn geti bæði verið stór, frjálslyndur og samhentur flokkur eins og honum var ætlað að verða í upphafi. í því tilfelli tel ég ekki ráðlegt að flokkurinn safnist saman á suðvesturhorn- inu, nema þá til þess að sýna sitt rétta andlit, og afli sér fylgis í samræmi við það en ekki með afskræmingu eða afbökun. Ég kynntist stefnu flokksins þannig, að fyrir mér vinnur sannleikurinn með henni og fyrir hana. Hvers vegna þá þennan felu- leik? J-listafólk - takið vel eftir við- brögðum við skrifum okkar. Fyrri blaðagreinar leiddu til þeirra andsvara, að við værum verðugt framsóknarfólk, ef við sættum okkur við að vera þögull minnihluti og kynnum að meta flokksræði að sunnan. Nei, besta ráðið til að fá aukin völd heim í þetta kjördæmi, sem og önnur landsbyggðarkjördæmi, er að tryggja góða kosningu atorkumanns á borð við Stefán Valgeirsson, sem í reynd er sann- ur fulltrúi jafnréttis og félags- hyggju. Eftir því yrði tekið. Þá væri von til þess að Fram- sóknarflokkurinn fyndi aftur hina sönnu byggðastefnu, sem hann týndi á meðan hann var í bland við frjálshyggjuna og einnig það, að flokknum gengi þá betur að láta athafnir fylgja orðum. Kristján Helgi Sveinsson, Blómsturvöllum, 601 Akureyri. Útboð Klæðingar á Norðurlandi vestra 1987. qy/m f Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. w Lengd vegarkafla 49,3 km, magn 330.000 m2. Verki skal lokið 15. september 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðal- gjaldkera) frá og með 15. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 4. maí 1987. Vegamálastjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.