Dagur - 15.04.1987, Qupperneq 5
„Betra fyrir
framleiðendur
- að vita hvað ríkið ábyrgist mikla mjólkur-
framleiðslu fimm ár fram í tímann“
segir Guðmundur Steindórsson ráðunautur
„Það var samið til fimm ára
um það mjólkurmagn sem
ríkissjóður ábyrgist kaup á eða
til ársins 1992. Hingað til hefur
aðeins verið samið um fram-
leiðslu eins árs í einu og þeir
samningar stundum komið of
seint en það er mikill munur
fyrir mjólkurframleiðendur að
hafa þessi mál Ijós fyrir næstu
fímm árin,“ sagði Guðmundur
Steindórsson, nautgriparækt-
arráðunautur hjá Búnaðar-
samband'i Eyjafjarðar, þegar
hann var spurður um hina
Skagafjörður:
Metár í
giftingum
í 2. tölublaði Víðförla, sem
Skálholt gefur út, er m.a. frétt
um giftingar og þar segir að
árið 1986 hafí verið metár í
Skagafírði hvað giftingar
varðar. Alls gifti séra Hjálmar
Jónsson 20 hjón í fyrra, en í
prestakalli hans á Sauðárkróki
eru 2.600 manns.
Síðan segir í fréttinni: „Þessum
ungu hjónum tileinkar hann text-
ann í Lífsdansinum, sem varð í
fjórða sæti í söngvakeppni sjón-
varpsstöðva. Textinn byggir laus-
lega á ljóði Páls postula um kær-
leikann, það er fjallað þar um til-
hugalífið, um hinn vaxandi og
dýpkandi kærleika sem þróast í
ást, vináttu og tryggð - kærleika
sem fellur aldrei lír gildi.“ SS
nýgerðu samninga Stéttar-
sambands bænda og ríkissjóðs
um mjólkurframleiðsluna.
Þegar Guðmundur var inntur
nánar eftir samningunum sagði
hann: „Það gerðist í fyrravetur
að bændur fengu að vita um full-
virðisrétt sinn í mjólk um mán-
aðamótin janúar-febrúar en þá
var framleiðsluárið hálfnað. í
fyrrasumar kom áætlun næsta
framleiðsluárs, sem byrjar 1.
september, í júlímánuði og það
var búið að gera samninginn fyrir
1987-8 þegar þessi síðasti samn-
ingur til fimm ára var birtur.
Þetta fyrirkomulag auðveldar
mönnum að stjórna framleiðsl-
unni og þeir vita þá hvernig málin
standa næstu árin.“
Ríkissjóður ábyrgist fullt verð
fyrir 106 milljónir lítra af mjólk á
yfirstandandi framleiðsluári en í
hinum nýja fimm ára samningi er
gert ráð fyrir að ríkissjóður
ábyrgist kaup á 102 milljónum
lítra á næsta ári en Framleiðni-
sjóður mun ábyrgjast kaup á full-
virðisrétti sem nemur 3 milljón-
um lítra. Árið 1989 er gert ráð
fyrir að heildarframleiðslan á
mjólk verði 103 milljónir lítra.
Þegar Guðmundur var spurður
að því hvert stefndi í mjólkur-
framleiðslumálum sagði hann:
„Það verður hækkun um eina
milljón mjólkurlítra, eða úr
103 í 104 milljónir lítra, á síðari
hluta samningstímans. Ríkið lof-
ar bændum að þeir fái fullt verð
fyrir þetta framleiðslumagn og ef
aukning verður á neyslu þá skilst
mér að ákvæði samningsins séu á
þá leið að ríkið ábyrgist fullt verð
fyrir meira magn.“ EHB
upp hug sinn varðandi konuefni
og reikar enn um laus og liðugur
og eignast ekki erfingja á meðan.
Karólína er líka óskaplega vinsæl
í Mónakó og Andrea er allra
yndi.
Þær eru ekki margar konurnar
nú til dags sem eignast þrjú börn
á þremur árum en Karólína þarf
heldur ekki að hafa áhyggjur af
bieiuskiptum og næturvökum því
fóstra sér um allt slíkt. Hún fær
því aðeins ánægjuna af börnum
sínum svona eins og feðurnir
hafa það vanalega en þykir engu
að síður standa sig með mikilli
prýði í móðurhlutverkinu.
í júní 1984 kom Andrea í
heiminn og fékk þá engan titil því
Stefano er óbreyttur borgari og
Rainier útnefndi hann ekki sem
hertoga til að komast hjá slúðri.
Stefano hefur heldur ekki upp-
fyllt þær vonir sem gerðar voru til
hans og upp komst að hann var
með pappíra upp á að hann gæti
aldrei eignast börn og voru þeir
útbúnir til að hann slyppi við her-
þjónustu á Ítalíu, sem er hans
heimaland. Þær sögur gengu að
hann ætti ekki Andrea en þegar
þeim hjónum fæddist annað barn
þögnuðu þær raddir alveg. En
eftir stóð að Stefano var einn af
þeim ríku ítölum sem höfðu mút-
að réttum aðilum til að þurfa
ekki í herinn. En honum fyrir-
gefst þetta allt þar sem Karólína
virðist vera hamingjusöm með
hann og alla barnasúpuna.
Konur hafa áður haft mikil-
vægu hlutverki að gegna í sögu
Mónakó. Litlu munaði að ríkið
yrði sameinað Frakklandi þegar
Louis II, fursti átti ekkert barn
og enginn vissi hver átti að erfa
ríkið. En málunum var bjargað
þegar systir hans eignaðist son
sem fékk titilinn fursti og það er
Rainier sem nú stjórnar Mónakó.
15. apríl 1987 - DAGUR - 5
Kosni ngaskrifstofu r
Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra
Aðalskrifstofa
Hafnarstræti 90, Akureyri.
Opin alla virka daga kl. 9-22.
Símar 21180 og 27406.
Kosningastjóri:
Sigurður Haraldsson.
Dalvík: JÓNÍNUBÚÐ.
Opin virka daga
kl. 20-23 og 14-16 um
helgar. Sími 61884.
Húsavík: GARÐARI.
Opin kl. 17-22 virka
dagaog kl. 15-17 um
helgar. Sími 41225.
Ólafsfirði: ÓLAFSVEGI 2. Sími 62327.
Þórshöfn: Sími 81175.
Við minnum á að utankjörstaðaatkvæðagreiðslan er hafin.
Stuðningsmenn B-listans:
Kjósið tímanlega ef þið hafið ekki tök á að kjósa á
kjördag. Hafið samband við skrifstofuna ef þið vitið um
einhverja stuðningsmenn sem ekki verða heima á
kjördag.
Hanna B. Jónsdóttir og Dóróthea Bergs sjá um utan-
kjörstaðaatkvæðagreiösluna. Sími 27405.
Sjálfboðaliðar
Stuðningsmenn Framsóknarflokksins eru beðnir um
að hafa samband við skrifstofurnar og taka þátt í
kosningastarfinu.
Frambjóðendur B-listans eru tilbúnir til
að koma í heimsóknir og ræða stjórn-
málaviðhorfið og baráttumál Framsókn-
arflokksins á næsta kjörtímabili.
★ Vinnustaðir ★ Klúbbfundir
★ Starfshópar ★Heimahús
★ Félagasamtök
Ef þið hafið áhuga á að ræða við okkur, kynnast
skoðunum okkar eða koma ykkar sjónarmiðum á fram-
færi, þá hafið samband við kosningaskrifstofuna að
Hafnarstræti 90, sími 21180.
Frambjóðendur.
Irmsóímþífarim