Dagur - 15.04.1987, Síða 6
6 - DAGUR - 15. apríl 1987
Skríðjöklar gera plötu
lyrir Landsmót UMFÍ
Fæstir vita að Samver býr yfir
fullkomnum hljóöupptöku-
búnaði auk sjónvarpsbúnaðar
og þar má taka upp alls kyns
útvarpsefni og einnig hljóm-
plötur. Dagana 15.-17. apríl
mun hljómsveitin Skriðjöklar
mæta í upptökuverið og þar
verður tekin upp tveggja Jaga
plata. Lög og textar eru eftir
Bjarna Hafþór Helgason.
„Þetta er á vegum Samvers og
landsmótsnefndar. Fram-
kvæmdastjóri landsmótsnefndar
kom til mín og bað mig að semja
sérstakt lag fyrir landsmótið,
sem ég gerði og samdi síðan ann-
að lag til að hafa á hinni hlið
plötunnar," sagði Bjarni Hafþór.
Eftir upptöku plötunnar verða
síðan gerð myndbönd við lögin.
Skriðjöklar voru fengnir til þess
að spila á Landsmóti UMFÍ sem
haldið verður á Húsavík 10.-12.
júlí og munu þeir því taka þátt í
þessu verkefni.
Bjarni Hafþór sagðist búast við
fjölmennu og skemmtilegu lands-
móti. Samkvæmt könnun á
veðurfari eru aðeins 5% líkur á
rigningu þessa daga á Húsavík en
95% líkur á því að veðrið verði
mjög gott.
Hann sagði einnig að þetta
væri frumraun Samvers í upp-
töku á hljómplötu en ekkert væri
því til fyrirstöðu að framhald yrði
á því. „Gunnar Smári, hinn
landsþekkti upptökumaður, var
hérna um daginn og gekk frá
búnaði í hljóðstúdíóinu. Við
erum nú mjög vel í stakk búnir til
að gera hljómplötur,“ sagði
Bjarni Hafþór. SS
Valgerður Sverrisdóttir:
Að fortíð skal hyggja
þá framtíð skal byggja
Þegar núverandi ríkisstjórn
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks kom til valda í maí 1983
var ekki glæsilegt um að litast.
Verðbólga stefndi í 130% miðað
við ár. Raunlaun voru lækkandi
og afkoma heimilanna fór versn-
andi. Atvinnuvegir þjóðarinnar
voru að komast í þrot. Stöðvun
fiskveiða og -vinnslu var á næsta
leiti vegna rekstrarörðugleika og
bágrar eignastöðu fyrirtækja í
þessum greinum.
Vandamál landbúnaðarins
höfðu rekið á reiðanum. Ríkis-
sjóður var rekinn með miklum
halla. Skuldum var safnað í
útlöndum sem aldrei fyrr. Hús-
næðislánakerfið var í molum
vegna hringlandaháttar félags-
málaráðherra varðandi löggjöf
og fjárskort.
Þetta er ljót lýsing en því mið-
ur sönn. Þetta var sá vandi sem
núverandi ríkisstjórn tók við.
Undir forystu hennar og með
hjálp hagstæðra ytri skilyrða hef-
ur þjóðinni, það er okkur öllum,
tekist að snúa blaðinu við á
síðastliðnum fjórum árum.
Verðbólga er nú um 15% mið-
að við ár. Raunlaun fara hækk-
andi og hafa aldrei verið hærri.
Afkoma heimilanna er batnandi.
Atvinnuvegir okkar eru aftur
reknir með hagnaði sérstaklega
er afkoma í sjávarútvegi betri en
um langt árabil. Tekið hefur ver-
ið á vandamálum landbúnaðar-
ins. Víst er það sársaukafullt
meðan á stendur en gefur von um
betri tíð þegar frá líður. Erlendar
lántökur hafa minnkað mikið og
sem hlutfall af þjóðartekjum hafa
erlendar skuldir og greiðslubyrði
vegna þeirra minnkað. Ný og
bætt húsnæðislánalög hafa verið
sett, lánshlutfall stórhækkað og
fjármögnun tryggð. Af framan-
sögðu má ljóst vera að núverandi
ríkisstjórn undir forsæti Stein-
gríms Hermannssonar hefur tek-
ist að leysa mörg þeirra vanda-
mála sem hún tók við.
Þegar hugað er að framan-
sögðu þarf þá nokkur að vera í
vafa um hverjum hann vill fela
forustu í næstu ríkisstjórn? Eins
og ég sagði áðan hefur ríkis-
stjórninni tekist að leysa fjöl-
mörg erfið vandamál síðastliðin
fjögur ár en að stjórna landi er
eins og að stýra bifreið, sífellt
verður að breyta stefnu og hraða
eftir því hvernig vegurinn liggur.
Þannig er það líka með hag-
stjórnina henni verður aldrei
lokið, stöðugt verður að sigla
milli skers og báru. Það hefur
tekist að minnka verðbólguna en
þar með er ekki allur vandi leyst-
ur. Verðbólgudraugurinn getur
risið upp aftur ef slakað verður á
um of. Áfram verður að veita
aðhald.
Eftir tæplega tvær vikur verður
gengið til kosninga. í þessum
kosningum verður kosið til
Alþingis til næstu fjögurra ára ef
guð lofar og menn geta komið sér
saman. Á úrslitum kosninganna
veltur hverjir fara með stjórn
landsins næstu fjögur árin. Valið
er ykkur kjósendur góðir. í okk-
ar kjördæmi eru níu stjórnmála-
flokkar og samtök sem bjóða
fram. Það ætti því að vera úr
nógu að velja og valið þá væntan-
lega erfitt, því eins og sagt er þá á
sá kvölina sem á völina. En er
það nú svo? Eru raunhæfir val-
kostir jafn margir og við fyrstu
sýn virðist? Það held ég ekki.
Lýðræðið er þversögn og í því
felast mótsagnir. Það verður þess
vegna að umgangast lýðræðið
með ábyrgðartilfinningu og aga.
Kjósendur verða að skipá sér í
fáa flokka um meginatriði. Jafn-
vel þó að þeim mislíki einhverjar
áherslur í stefnuskrá eða vinnu-
brögðum þess flokks sem þeir
eiga helst samleið með. Það
gengur að lýðræði í þessu landi
dauðu ef óánægðir aðilar hafa
ekki þolinmæði til að vinna að
áhugamálum sínum innan þeirra
fjögurra eða fimm flokka sem í
raun hafa haslað sér völl hér á
landi, en hlaupa í þess stað til og
stofna til nýrra framboða.
Er hægt að búast við því af
þeim mönnum sem enga þolin-
Passa-
myndir
Gott úrval
mynda-
ramma
nonðun
mynd
LJÓSMYN DASTOFA
Sími 96-22807 ■ Pósthólf 464
Glerárgötu 20 602 Akureyri
I
Páskaferðalög
- Nokkrar ábendingar frá Umferðarráði
Páskasýning
Páskasýning Myndhópsins á
Akureyri verður opnuð í húsi
Verkmenntaskólans við Þórunn-
arstræti (Gamli Iðnskólinn)
skírdag 16. apríl kl. 14. e.h.
Á sýningunni verða til sýnis 50-
60 myndverk, unnin í olíu, acryl,
pastel, vatnsliti og tréskúlptúr.
Sýnendur eru: Bryndís Arnar-
dóttir, Alice Sigurðsson, Dröfn
Friðfinnsdóttir, Guðrún Leon-
ardsdóttir (Lóa), Rut Hansen,
Iðunn Ágústsdóttir, Aðalsteinn
Vestmann, Bernharð Steingríms-
son, Gréta Berg, Gunnar Dúi
Júlíusson, Laufey Gunnarsdóttir,
Hörður Jörundsson og Anna
Guðný Sigurgeirsdóttir.
Sýningin er sölusýning, hún
verður opin daglega alla
páskahelgina kl. 14-22 og lýkur á
annan dag páska.
Ferðu stundtim
á hausínn?
Hundruð gangandi manna slasast
árlega í hálkuslysum.
Á mannbroddum, ísklóm
eða negldum skóhlífum
ertu „svellbaldur/köld".
Heimsæktu skósmiðínn!
||UJJFHRDAR
Safnahúsið Húsavík:
Kári sýnir
um páskana
Kári Sigurðsson opnar mynd-
listarsýningu í Safnahúsinu
Húsavík fimmtudaginn 16.
apríl kl. 20:00. 17.-20. apríl
verður sýningin opin kl. 15:00-
22:00.
Á sýningunni eru 25 ný olíu-
málverk, auk eldri mynda sem
unnar eru með olíukrít og pastel-
litum.
Þetta er 17. einkasýning Kára
en síðasta einkasýning hans í
Safnahúsinu á Húsavík var hald-
in haustið 1981. IM
Nú sem endranær hyggja ugg-
laust margir á ferðalög innan-
lands um páskana. Því er hyggi-
legt að huga að þeim búnaði sem
hæfir ferðalögum á þessum
árstíma.
Mikilvægt er að þeir sem ætla á
fjöll eða aka um fjallvegi, séu
þess meðvitaðir að nú er allra
veðra von og færð getur spillst
fljótt. Hlýjan fatnað og teppi er
sjálfsagt að hafa meðferðis.
Einnig keðjur, skóflu, dráttar-
taug og nauðsynlega varahluti.
Áður en lagt er af stað í fjalla-
ferðir þarf að kanna veðurútlit og
færð. Nauðsynlegt er að tíma-
setja ferðina og gefa einhverjum
upp fyrirhugaða leið og hvenær á
að koma til byggða. Slíkt getur
komið í veg fyrir áhyggjur skyld-
menna, og jafnvel óþarfa leit.
Notkun ökuljósa hefur aukist
mikið og sannað ágæti sitt. Á
blautum og forugum vegum verð-
ur bíllinn oft samlitur umhverf-
inu og sést illa. Ökuljósin eru því
oft það eina sem við sjáum þegar
bíll nálgast. Þegar for sest á
ljósker dofna Ijósin, og verður
því að þurrka af þeim eða þvo
reglulega. Stöðuljós má aldrei
nota í akstri.
Væntanlega verður mikil
umferð við skíðastaði landsins.
Förum ekki á vanbúnum bílum í
skíðalöndin því það veldur erfið-
leikum og óþægindum í umferð-
inni. Ganga verður þannig frá
bílum í bílastæði að þeir trufli
ekki eða tefji aðra umferð til og
frá skíðasvæðinu.
Vélsleða- og fjórhjólamenn
sem verða þar sem skíða- og
göngufólk er á ferð þurfa að sýna
fyllstu tillitssemi, og gleyma ekki
að tæki þeirra eru í senn kraft-
mikil og hættuleg ef ekki er var-
lega farið. Við akstur torfæru-
tækja er mikilvægt að nota hjálm,
og klæðast skjólgóðum fatnaði.
Um leið og Umferðarráð óskar
öllum ferðalöngum góðrar ferðar
minnir það á að í páskaumferð-
inni höfum við tillitssemi við
samferðamenn að leiðarljósi.
Bílbeltin spennt, ökuljósin
kveikt og ökum á jöfnum hraða -
það sparar bensín og veldur
minni streitu. Vart þarf að minna
á að akstur og ölvun á ekki
saman. Kæruleysi í þeim efnum
getur eyðilagt helgina fyrir fullt
og allt - jafnvel framtíð ótalinna
aðila.