Dagur - 15.04.1987, Side 7

Dagur - 15.04.1987, Side 7
15. apríl 1987 - DAGUR - 7 mæði hafa né aga að þeir geti stjórnað landinu? Við íslendingar getum lært af reynslunni. Það er ekki lögmál að við þurfum að endurtaka öll mistök sem gerð hafa verið. Og hver er reynslan af mörgum stjórnmálaflokkum? Lítum til nágranna okkar í Danmörku. Þar hafa minnihlutastjórnir setið að völdum svo árum skiptir. Engu máli verður fram komið. Atvinnuleysi er gífurlegt og skuldasöfnun í útlandinu komin úr böndunum. Eða til Ítalíu þar sem meðalaldur ríkisstjórna er nokkrar vikur. En við þurfum ekki að fara út fyrir pollinn. Hver er reynsla okkar af samsteypustjórnum margra flokka? Hér er ekki rúm til að rekja það. En ég hygg að þið lesendur ef þið hugleiðið mál- ið munið komast að sömu niður- stöðu og ég að reynslan sé ekki góð. Ef kjósendur vilja samstjórnir margra flokka þar sem ekki er hægt að koma sér saman um eitt né annað. Þar sem enginn ber ábyrgð en vísar hver á annan. Ef kjósendur vilja að jafnvel verði ekki hægt að mynda ríkisstjórn að kosningum loknum. Þá er val- ið auðvelt það skiptir ekki máli hvað valið verður. Ef kjósendur vilja hins vegar áframhald festu og stöðugleika í þjóðmálum eins og verið hefur undanfarin fjögur ár, þá er valið líka auðvelt. Þá velja kjósendur Framsóknarflokkinn. Valgerður Sverrisdóttir. Sjcwutm um páskana Miðvikudagskvöld 15. apríl Opiö frá kl. 22.00-03.00. Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi og hinn frábæri Ómar Ragnarsson skemmtir. Skírdagur Opiö frá kl. 09.00-01.00. Diskótek. GBilega páska Laugardagur 18. apríl Sólarsalur opinn frá kl. 09.00-23.30. Páskadagskvöld Opnum kl. 24.00-04.00. Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi. Annar í páskum Opið frá kl. 21.00-01.00. Diskótek. SjaUúui Falleg oí ódjr liúsmn Verð kr. 3.600.- Verð kr. 2.900.- Skrifborð - Hillur - Hillur með skúffum og skápum - Kommóður - Fataskápar. Falleg og ódýr húsgögn. Tilvalin fermingargjöf Zá í&r—w m, Werð kr. 4.300.- Það borgar sig að líta inn Hrísalundi Kjallara Akureyri: Gróður- setningar- átak næsta sumar „Þetta er heilmikið átak,“ sagði Árni Steinar Jóhanns- son, garðyrkjustjóri, en sam- þykkt hefur verið að verja 3 milljónum króna til gróður- setningar trjáplantna á Akur- eyri og byggingar nýs gróður- húss. Stærsti hlutinn fer til útplöntunar á Nausta- og Hamraborgasvæðinu. Verkið verður unnið af unglingum í unglingavinnu næsta sumar. Endanlegur samningur hefur ekki verið gerður við Skógrækt- arfélag Eyfirðinga, en gera má ráð fyrir að upphæðin dugi fyrir 80 til 100 þúsund plöntum. Þá verður byggt 300 fermetra kæli- og herðingargróðurhús við hús Gróðrarstöðvarinnar hjá Krók- eyri. í þessu gróðurhúsi verða plöntur hertar með kælingu áður en þær eru gróðursettar, en kostnaður vegna verksins er 850 þús. kr. Þá er gert ráð fyrir að verja 420 þús. kr. til gróðursetningar við bílastæðið á Kaupvangstorgi, 250 þús. kr. vegna svæða við inn- keyrslur til bæjarins, 280 þús. kr. vegna Síðugarðs við Vestursíðu og kr. 200 þús. vegna viðhalds annarra gróðrarsvæða í bænum. „Þetta gróðursetningarátak tengist líka verkefnum fyrir ungl- ingavinnuna í sumar. Það er heppilegt að láta unglingana vinna við gróðursetningu og það má því segja að með þessu sé ver- ið að leysa tvö verkefni í einu,“ sagði Árni Steinar að lokum. EHB

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.