Dagur - 15.04.1987, Síða 9
15. apríl 1987 - DAGUR - 9
Hjálpartæki
blaðamannsins
- Svar við athugasemd
Við vinnslu frétta höfum við
blaðamenn ákaflega mikilvæg
hjálpartæki sem í daglegu tali
nefnast segulbandstæki. Þessi
tæki eru tengd við síma og
þannig eru fíest fréttaviðtöl
tekin upp á band.
Þessi vinnubrögð tryggja
öryggi. Öryggi heimildarmanns
gegn því að ranglega sé eftir hon-
um haft og í einstaka tilfellum
öryggi blaðamanns ef hann er
sakaður um röng og villandi
skrif.
í Degi síðastliðinn mánudag
birtist athugasemd þeirra Gunn-
laugs Jóhannssonar forstöðu-
manns Tæknideildar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri og
Vignis Sveinssonar skrifstofu-
stjóra sömu stofnunar, við frétt
sem undirritaður skrifaði í föstu-
dagsblað Dags. Fréttin fjallar um
Röntgendeild FSA.
Hjálpartækið gerir mér kleift
að birta hér orðrétt svar Vignis
við því þegar ég spurði hvort far-
ið yrði út í einhver tækjakaup
fyrir deildina á árinu: „Ætli það
sé ekki frekar hönnunin sem far-
ið verður út í. Það er náttúrlega
byrjað á húsnæðinu. Ég veit ekki
hvort það verður endilega farið
út í tækjakaup að svo stöddu."
Þegar ég segi í fréttinni að
ólíklegt sé að framkvæmdir hefj-
ist á ég greinilega við fram-
kvæmdir aðrar en hönnun. í við-
tali mínu við Vigni kom ekki
fram að hönnun væri langt
komin.
Tilefni skrifanna voru upp-
sagnir röntgentækna við deildina
sem stöfuðu af dæmalaust bág-
bornu ástandi þeirra tækja sem
þar eru. Vegna mjög harðorðra
ummæla Gunnlaugs um ástand
tækjanna varð það atriði mið-
punktur fréttarinnar.
Gunnlaugi er heimilt að koma
og hlusta á ummæli sín sem ég
mátti „virkilega hafa eftir“ eins
og hann sagði. Þau voru ekki ýkt
í fréttinni og ekki mitt vandamál
þó hann sjái eftir þeim núna eða
hafi fengið skömm í hattinn.
Raunar sagði Gunnlaugur að þó
að þetta kæmi eins og skrattinn
úr sauðarleggnum og „forsvars-
menn fyrir þessu“ hrykkju við þá
væri það allt í lagi. Nú virðist
hann sjálfur hafa hrokkið einna
verst við.
Eggert Tryggvason blaðamaður
Ungt fólk
á stór-
dansleik
- framsóknarmanna
í Varmahlíö
Um 700 ungmenni voru saman
komin á stórdansleik sem
framsóknarmenn í Norður-
landi vestra héldu í Miðgarði
sl. laugardagskvöld. Allir sem
nú kjósa í fyrsta sinn til
Alþingis fengu senda boðs-
miða og var megnið af dans-
leikjagestunum úr þeim hópi.
Það var hin Iandsfræga hljóm-
sveit Greifarnir frá Húsavík
sem lék fyrir dansi og var það
mál ungmennanna að þar færi
ein albesta hljómsveit
landsins.
Páll Pétursson, Stefán Guð-
mundsson og Elín Líndal voru
meðal gesta á dansleiknum og
blönduðu geði við unga fólkið,
sem gafst einstakt tækifæri til að
ræða persónulega við frambjóð-
endurna. Að lokum má geta þess
til gamans að Páll Pétursson lét
þau orð falla um Felix Bergsson
söngvara Greifanna að hann liti á
þann dreng sem hálfgerðan son
sinn þar sem hann væri sonur
Bergs Felixsonar skólastjóra
fornvinar síns. -þá
Leikfélag Blönduóss frumsýnir:
„Stormur í glasi“
Næstkomandi laugardag frum-
sýnir Leikfélag Blönduóss
„Stormur í glasi“ leikrit um
máttarstólpa og minnipoka-
menn, eftir Örn Inga unnið í
samvinnu við Leikfélag
Blönduóss.
Leikurinn gerist á veitinga-
staðnum Húnaríki á einum degi,
og það er sko enginn venjulegur
dagur. Áhorfendur fá að kynnast
starfsfólki staðarins og nokkru af
þeim fjölmörgu verkefnum sem
ber að höndum á slíkum stöðum
úti á landi. Þetta er verk sem er
samið af leikstjóranum með
aðstoð leikaranna og frumraun
leikfélagsins á þessu sviði. Margir
munu eflaust þekkja margt af því
sem þarna er fengist við eins og
t.d. það að skemmtikraftar að
sunnan vilja fá það mikið greitt
fyrir að koma út á land að
skemmta að við liggur að hætta
þurfi við allt saman. Þetta leikrit
er eins konar vísir að byggðaleik-
húsi þar sem tekist er á við þau
verkefni fyrst og fremst sem
alþekkt eru á smærri stöðum úti á
landi. Nokkuð mikið er sungið í
leikritinu og léttleikinn situr í
fyrirrúmi, en þó er alltaf grunnt
á boðskapnum og kannski nokk-
urri ádeilu. Eins og fyrr segir
verður frumsýningin á laugardag-
inn 18. apríl og hefst hún kl.
21.00 en næstu sýningar verða
21., 23 og 24. apríl. Sýnt er í Fél-
agsheimilinu á Blönduósi. G.Kr.
Brynjólfur Brynjólfsson, matreiöslumeistari:
Kartöfluframleiðendur
á villigötum
Ég ætla að leggja hér nokkur orð
í belg vegna blaðaskrifa um kart-
öflur.
Kartöflum má skipta í tvo
flokka, matarkartöflur og iðnað-
arkartöflur, og ætla ég að fjalla
um þann seinni. í dag er á mark-
aðnum mikið magn af kartöflum
sem kallast „premíére". Svo illa
gengur að selja þessar kartöflur
að verulegum búsifjum veldur
fjárhagslega. Ég ætla að reyna að
upplýsa menn um ástæður þessa
vanda.
Iðnaðarkartafla þarf að hafa
ákveðna eiginleika. Hún þarf að
vera áferðarslétt og hafa fá og
grunn „augu“, mikið hitaþol,
hvítan lit sem þarf að haldast vel
við suðu, einnig þarf hún að þola
vel hitageymslu þar sem þess þarf
við í eldhúsum mötuneyta og
hótela, þar sem afgreiðsla stend-
ur yfir í tvær til þrjár stundir í
senn. „Premíére“-kartaflan hefur
aðeins einn þessara eiginleika,
þ.e. áferðina, og þess vegna hafa
framleiðendur þessarar tegundar
lent í áðurnefndum vanda.
„Premíére“-kartöfluna vantar
alla aðra eiginleika sem hér hafa
verið taldir og eru alveg bráð-
nauðsynlegir.
En þá vaknar sú spurning hvað
sétil ráða? Svarið er, að það þarf
að gera það sama hér og gert er í
öllum öðrum löndum sem fram-
leiða kartöflur; nefnilega að
framleiða afbrigði sem hefur
áðurtalda eiginleika, alla.
„Bintjé“-kartaflan er best til
þessarar ræktunar og notkunar
fallin. Það er engin tilviljun að
annars staðar en á íslandi er
helmingur af framleiddum kart-
öflum „bintjé“. „Premíére“-kart-
öflunnar er lítt eða ekki getið í
heimildum í þessum löndum.
Þær villigötur sem ég minnist á
í fyrirsögn hafa haft mjög skaðleg
áhrif á markaðinn og það getur
tekið hann langan tíma að rétta
úr kútnum. Matreiðslumenn hafa
leyst þennan vanda með ýmsu
móti, en ekkert getur komið í
staðinn fyrir gott hráefni.
Ég man þá tíð þegar „bintjé“-
kartaflan var framleidd hér í stór-
um stíl og flutt til Reykjavíkur í
mjög miklu magni. Hvað síðan
gerðist og varð þess valdandi að
þessi framleiðsla lagðist að mestu
af, eru framleiðendur einir fróðir
um.
Ég vil leyfa mér að hvetja kart-
öfluframleiðendur til að breyta
úr „premíére" yfir í „bintjé". Þá
fyrst mun liðkast um markaðsmál
þeirra.
Brynjólfur Brynjólfsson,
matreiðslumeistari.
ife Styrkir til háskóla-
llS náms í Frakklandi
Frönsk stjórnvöld bjóöa fram nokkra styrki handa íslend-
ingum til háskólanáms í Frakklandi áskólaárinu 1987-’88.
Um er aö ræöa eftirtaldar námsgreinar: Bókmenntir, húsa-
geröarlist, kvikmyndagerö, listasögu, leikhúsfræði, tónlist-
arfræði og raunvísindi. Umsóknum, ásamt staöfestum
afritum af prófskírteinum og meömælum, skal skila til
menntamálráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík,
fyrir 27. apríl nk. Umsóknareyðublöð fást í ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 9. apríl 1987.
Hefur
maðurinn
gleymst?
Samvera með
hópumræðu
í Blómaskálanum Vín
við Hrafnagil
í kvöld 15. apríl kl. 21
Stutt ávörp flytja:
• Sr. Þórhallur Höskuldsson:
Kirkjan og efnishyggjan
• Pétur Bj. Þorsteinsson æskulýðs-
fulltrúi: Unglingar og vímuefni
• Auður Eiríksdóttir oddviti:
Hvers virði er fjölskyldan?
• Sr. Cecil Haraldsson framkvæmda-
stjóri: Aldraðir í samfélaginu
• Snæbjöm Þórðarson formaður Sjálfs-
bjargar Akureyri: Staða fatlaðra
Sr. Jón Helgi Þórarinsson á Dalvík
flytur hugleiðingu um gildi
páskanna á mannlegt líf
Unglingar
spila og syngja
Kaffiveitingar
X-J fyrir jafnrétti X-J gegn misrétti
Samtök jaf nréttis og félagshyggju