Dagur - 15.04.1987, Síða 12
12 - DAGUR -15. apríl 1987
Að þessu sinni fjallar Allt-síðan um árshátíð Fjöl-
brautaskólans á Sauðárkróki sem haldin var sl.
föstudag í Bifröst, samkomuhúsi þeirra Sauðkræk-
inga. Þátttaka nemenda var óvenju lítil að þessu
sinni, en að fjarstöddum algerlega ólöstuðum má
segja að þarna hafi verið fámennt, en góðmennt.
Dagskráin hófst klukkan átta
með ávarpi nemendafélagsfor-
mannsins, Önnu Betu Sæmunds-
dóttur. Par á eftir bauð veislu-
stjórinn, Ingibjörg Jónasdóttir,
mönnum að taka til matar síns
sem var og gert við góðan
orðstír. Borðhaldið stóð svo í
tæpa þrjá klukkutíma en inn á
milli var tekið lagið og flutt gam-
anmál þar sem m.a. nemendur
gerðu grín að kennurum og
öfugt. Seinna um kvöldið hófst
dansleikur og hélt hljómsveitin
Pass uppi fjöri fram eftir nóttu.
En áður en ballið byrjaði tók ég
nokkra nemendur tali.
Líkar vel í F. á S.
Fyrstu viðmælendur þetta kvöld
voru þrír krakkar sem áttu það
sammerkt að vera allir utanbæj-
arnemendur. Þau voru Sigurður
Árnason frá Marbæli í Skaga-
firði, Nína Heimisdóttir frá
Hvammstanga og Vilborg Pórar-
insdóttir frá Grundarfirði. Nína
var fyrst spurð að því hvernig
henni líkaði í F. á S.:
N: „Mér líkar þetta bara vei.“
Blm: Hvað ertu að læra?
N: „Ég er á fjórðu önn á sam-
félagsbraut.“
Blm: Af hverju valdir þú að
koma hingað á Krókinn í skóla?
N: „Nú bara af því að þetta var
næsti skóli.“
Blm: En þú Sigurður, hvað olli
því að þú ert hér?
S: „Petta var náttúrlega næsti
skóli og svo finnst mér þetta lif-
andi og skemmtilegur bær.“
Blm: Ég sé að þú ert með
grænt barmmerki. Er kominn
einhver kosningahugur í menn
hérna í skólanum?
S: „Jú, mikil ósköp. Pað var
alveg hörkufundur hér í gær,
með fulltrúum allra frambjóð-
enda í kjördæminu. Það var
Þjóðmálafélagið sem gekkst fyrir
þessum fundi.“
Blm: Þjóðmálafélagið? Hvaða
félagsskapur er það?
S: „Það var stofnað fyrir um
það bil tveim mánuðum til þess
að vekja áhuga nemenda á þjóð-
málum svo þeir yrðu meðvitaðri
um hvað væri að ske í kringum
þá.“
Blm: Hefur það starfað mikið
þetta félag?
S: „Ég mundi telja það eitt það
virkasta í skólanum. Við héldum
t.d. þennan fund núna og um
daginn var haldinn umræðufund-
ur um væntanlegan varaflugvöll á
Sauðárkróki.“
Blm: En þú Vilborg, hvernig
stendur á að þú, sem ert frá
Grundarfirði, kemur alla leið
hingað á Sauðárkrók í skóla?
V: „Ég vildi alls ekki fara í
menntaskóla því mér líkar ekki
kerfið þar. Ég vildi ekki heldur
fara á Ákranes því mér líkar ekki
staðurinn. Pess vegna fór ég frek-
ar hingað en suður.“
Blm: Hvernig líkar þér svo
hérna?
V: „Mér líkar þetta æðislega
vel.“
Blm: Þú ert á heimavistinni,
ekki satt? Hvað eru margir
krakkar þar?
V: „Þeir eru eitthvað á milli 50
og 60.“
Blm: Víkjum að pólitíkinni.
Ert þú búin að ákveða hvað þú
ætlar að kjósa?
V: „Já, það er langt síðan.“
Blm: Hvaða flokkur varð fyrir
valinu?
V: „Alþýðubandalagið að
sjálfsögðu."
Blm: Af hverju að sjálfsögðu?
V: „Mér bara líkar best við
stefnu þeirra."
Blm: En þú Sigurður, ert þú
ákveðinn?
S: „Já, ætli ég setji ekki kross-
inn frekar framarlega, við næst
fremsta möguleika, eða svo.“
Blm: Af hverju?
S: „Þeir hafa lang heilsteypt-
ustu stefnuna í landsbyggðarmál-
um og landsbyggðarmálin eru jú
Nemendur gerðu grm að kennurum.
Björn Jóhann Björnsson.
Hjördís Sævarsdóttir.
Ingibjörg veislustjóri ávarpar árs-
hátíðargesti.
þau mál sem varða okkur í þessu
héraði mest.“
Blm: Nína, ert þú jafn viss um
í því hvað þú ætlar að kjósa og
þau hin?
N: „Ég er ekki komin með
kosningarétt og þótt svo væri þá
kæmi það þér ekkert við hvað ég
kysi.“
Blm: Hananú, þá er það bara
næsta spurning - setti verkfall
HIK ekkert strik í reikninginn
hjá ykkur í F. á S.?
V: „Jú blessaður vertu, maður
missti allan áhuga á náminu og
nennti ekkert að læra.“
Blm: Voruð þið hérna á staðn-
um þó að það væri engin
kennsla?
S: „Nei, ég fór heim. En stelp-
urnar voru hérna.“
Blm: Það er nefnilega það.
Ætlið þið að skemmta ykkur í
kvöld?
S: „Auðvitað.“
N: „Alveg á hreinu."
V: „Vonandi."
Stundum þurft
að sparka í rassgatið
á nemendum
Næstan rak á fjörur rm'nar Björn
Jóhann Björnsson. Hann er
fæddur og uppalinn Króksari og
er að útskrifast af málabraut
núna í vor. Ég spurði hann fyrst
hvort hann hefði tekið einhvern
þátt í undirbúningi kvöldsins.
»Ég er í skemmtinefnd nem-
endafélagsins og það lenti alfarið
Önnu Betu Sæmundsdóttur,
formann nemendafélags F. á S.
- Hvað er fjölbrautaskólinn á
Sauöárkróki stór skóli?
„Dagskólanemendur eru
.u.þ.b. 240 talsins.“
- Eru það mest Sauðkræking-
ar?
„Nei, ætli það sé ekki tæpiega
helmingur héðan úr bænum. Eg
er þó ekki alveg viss hvernig
þetta skiptist.“
- Hvernig hefur félagslífið
verið í vetur?
„Það hefur verið ágætt. Að
vísu hrjáir það okkur að við höf-
um enga félagsaðstöðu, við get-
um hvergi komið saman nema
hérna í Bifröst og þá einungis
þegar haldin eru böll á vegum
skólans. Við höfum reynt að nýta
anddyri skólans til þess að halda
þar kvöldvökur og aðrar uppá-
komur cn það er náttúrlega mjög
óaðlaðandi húsnæði fyrir slíka
starfsemi. Þrátt fyrir það hefur
áhugi ncmcnda verið þó nokkur,
t.d. er alltaf troöfullt á ræðu-
keppnum. En núna eftir áramót
þegar það fóru að heyrast raddir
um að það yrði verkfall þá datt
öll félagsstarfsemi niður.“
- Heldurðu þá að vcrkfallið
hafi skemmt eitthvað fyrir
ykkur?
„Já, ég held það sé ekki vafi og
núna eftir verkfallið þá held ég
að krakkarnir gefi sér lítinn tíma
til að sinna félagsmálum, þau
hugsi fyrst og fremst um að Ijúka
náminu af og klára þetta.“
- Svo við snúum okkur nú að
öðru, liggur mikil undirbúnings-
vinna á bak við þessa árshátíð?
„Forsenda þess að svona lagað
takist vel er sú að krakkarnir hafi
áhuga á þessu. Það verður að
segjast eins og er að það var ekki
í þetta skiptið. Vinnan lenti eins
og oft vill verða á of fáum. Til
þess liggja kannski fyrst og
fremst tvær meginástæður; fólk
hefur minni tíma aflögu vegna
verkfallsins og árshátiöinni var
frestað til síðasta kennsludags
fyrir páska og því margir utan-
bæjarnemendur farnir hcim.“
- Hvernig er með samskipti
við aðra skóla, hver eru þau?
„Samskiptin í vetur hafa aðal-
lega verið í gegnum Morfís. Við
fengum Samvinnuskólann í
heimsókn og eftir áramót fórum
við suður og kepptum við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja í Kefla-
vík. Nú svo stóð til aö Keflvík-
ingar kæmu og endurgyldu hcim-
sóknina en vegna verkfallsins
Anna Beta Sæmundsdóttir. „Þcgar I
verkfall datt öll félagsstarfsemi niður
varð ekkert úr því. Svo höfum
við haft samskipti við MA cn síð-
asta stjórn sleit þeim. Það var á
dagskrá að taka þau samskipti
upp aftur. MA var búinn að
bjóða okkur í heimsókn cn eins
og margt annað á þessari önn
fórst það fyrir vegna verkfalls
HÍK. Það verður því verkefni
næstu stjórnar að kanna hvort
vilji sé fyrir hendi til aö hefja