Dagur - 15.04.1987, Side 17
Umsjón: Krisíján Kristjánsson
15. apríl 1987 - DAGUR - 17
Berglind
íþróttamaóur
Skagafjarðar
Á ársþingi UMSS á dögunum
voru kunngerð úrslit í vali
íþróttamanns ársins. Að þessu
sinni varð Berglind Bjarna-
dóttir frjálsíþróttakona úr
Tindastóli fyrir valinu. Berg-
lind var mjög sigursæl á síðasta
ári á mótum bæði innan og
utan héraðs og setti m.a. 3 hér-
aðsmet, í 50 m hlaupi og lang-
stökki innanhúss og þrístökki
utanhúss.
Sigfús Jónsson frjálsíþrótta-
maður UMF Gretti varð í öðru
sæti og Heba Guðmundsdóttir
sundkona Tindastóli í þriðja.
Pessum íþróttamönnum voru
veittar viðurkenningar. Þá voru
einnig afhentir farandbikarar
sem UMF Fram gaf á sínum tíma
og eiga að veitast þeim sem náð
hafa bestum árangri í frjálsum
íþróttum og sundi á árinu. Þá
hlutu Heba Guðmundsdóttir sem
synti 50 m bringusund á 40,9 sek.
og Friðrik Steinsson sem hljóp
100 m á 11,2 sek. Bæði eru þau í
Tindastóli. -þá
Berglind Bjarnadóttir. Mynd: -þá
Bikar-
keppni
KRA
- hefst á morgun
Knattspyrnuvertíðin hér
norðanlands hefst fyrir alvöru
á morgun en þá fer fram fyrsti
leikurinn í bikarkeppni Knatt-
spyrnuráðs Akureyrar. KA og
Reynir frá Árskógsströnd
mætast í þessum fyrsta leik
sem hefst kl. 16.
Á laugardaginn leika Þór og
Vaskur í sömu keppni og hefst sá
leikur kl. 14. Á mánudaginn kl.
16 leika síðan KA og Vaskur.
Allir þessir leikir fara fram á
Sanavellinum fræga.
Dómara-
námskeið
Dómaranámskeið í knattspyrnu
verður haldið í Lundaskóla og
hefst það miðvikudaginn 29. apr-
íl kl. 20. Skráning stendur yfir
um þessar mundir og hefur hún
gengið nokkuð vel. Flestir þeirra
sem hafa skráð sig á námskeiðið
til þessa eru konur. Um skrán-
ingu sjá þeir Páll Magnússon,
Rafn Hjaltalín og Sveinn
Björnsson.
Sigurlið KA á Vormóti BLÍ.
Mynd: EHB
Vormót BLÍ í blaki:
KA-menn og Víkings-
stúlkur sigmðu
Vormót Blaksambands
íslands, Hermannsmótið fór
fram í íþróttahöllinni á Akur-
eyri á föstudag og laugardag.
Mótið var tileinkað Hermanni
heitnum Stefánssyni sem með
réttu hefur verið talinn forfaðir
blaksins hér á landi. Það var
fyrir um 50 árum að Hermann
hóf að kynna þessa íþrótt í
Menntaskólanum á Akureyri.
Hann kynntist henni fyrst á
Olympíuleikunum í Berlín árið
1936.
Á mótinu um helgina var
keppt var í karla- og kvenna-
flokki og mættu 8 lið til leiks í
hvorum flokki. í karlaflokki léku
KA-A, KA-B, Víkingur, Fram,
Óðinn, UNÞ, Þróttur og Skaut-
ar. í kvennaflokki léku KA,
Óðinn, Völsungur, Eik, Víking-
ur, UNÞ, Þróttur og Fram. Leik-
ið var upp á tvær unnar hrinur og
varð að sigra hrinuna með
tveggja stiga mun. Það voru KA-
menn sem sigruðu í karlaflokki
en í kvennaflokki stóðu Víkings-
stelpurnar uppi sem sigurvegar-
ar. í hvorum flokki var leikið í
tveimur riðlum og í undanúrslit-
um léku saman efsta liðið í A-
riðli og liðið sem varð númer 2 í
B-riðli annars vegar og liðið sem
varð efst í B-riðli og liðið sem
varð í 2. sæti í A-riðli hins vegar.
Kvennaflokkur:
í kvennaflokki léku saman í
undanúrslitum KA-A og Víking-
ur og Óðinn og Eik. Víkingur
sigraði KA í tveimur hrinum
13:11 og 13:11. í hinum leiknum
mættust Óðinn og Eik. Eikin
hafði betur og sigraði í tveimur
hrinum 12:3 og 12:7. Til úrslita
léku því Víkingur og Eik og sigr-
uðu stelpurnar í Víking í þeim
leik í tveimur hrinum, 12:4 og
12:9. Um 3. til 4. sætið léku KA-
A og Óðinn og sigruðu KA-stelp-
urnar í tveimur hrinum, 12:4 og
13:11.
Karlaflokkur:
í karlaflokki léku saman f
undanúrslitum KA og Óðinn og
Fram og Víkingur. KA sigraði
Óðin í tveimur hrinum 12:6 og
13:11. í hinum leiknum sigraði
Víkingur Fram einnig í tveimur
hrinum 12:2 og 12:4. Til úrslita
léku KA og Víkingur og sigruðu
KA-menn í miklum baráttuleik
með tveimur hrinum gegn einni,
8:12, 12:4 og 12:10. Um 3. til 4.
sætið léku Óðinn og Fram og
sigruðu Óðinsmenn í tveimur
hrinum, 12:10 og 12:8.
Knatt-
spyrnu-
punktar
Kvennalið Þórs í knatt-
spyrnu lék þrjá æfingaleiki
fyrir sunnan um helgina.
Liðið vann sigur í tveimur
leikjanna en tapaði einum.
Stelpurnar þóttu leika ágæt-
lega og lofar leikur liðsins
góðu fyrir sumarið.
Á föstudagskvöld lék liðið
gegn íslandsmeisturum Vals
en sá leikur tapaðist 1:4. Mark
Þórs skoraði Hildigerður
Gunnarsdóttir. Á laugardag
sigraði Þór UBK mjög sann-
færandi 3:0 og það voru þær
Sigurlaug Jónsdóttir 2 og Lára
Eymundsdóttir sem skoruöu
mörk Þórs. Síðasti leikur liðs-
ins í ferðinni, var gegn Fram á
sunnudag. Þór sigraði einnig í
þeim leik, 3:2 og skoruðu þær
Inga Huld Pálsdótir, Friðrika
Illugadóttir og Kolbrún Jóns-
dóttir mörk Þórs.
Karlalið KA hélt suður á
Akranes þar sem fram átti að
fara þriggja liða æfinga-
mót um helgina. Því tókst hins
vegar ekki að ljúka vegna
veðurs. Auk KA tóku heima-
menn ÍA og ÍR þátt í mótinu.
Á föstudagskvöld vann ÍA ÍR
með einu marki gegn engu. Á
laugardag vann KA ÍR einnig
1:0 með rnarki Erlings Krist-
jánssonar. Á sunnudag reyndu
síðan ÍA og KA að leika en
þeim leik varð að hætta eftir
15 inín. vegna illviðris.
Þórsarar léku einnig æfinga-
leiki um helgina. Á laugardag
unnu þeir Magna 3:1 og skor-
uðu þeir Guðmundur Valur
Sigurðsson 2 og Gísli Bjarna-
son mörk Þórs. Á sunnudag
unnu Þórsara Reyni frá
Árskógsströnd 2:0 og skoruðu
þeir Hlynur Birgisson og Sölvi
Ingólfsson mörk Þórs.
Þá léku B-lið Þórs og KA
æfingaleik á laugardag og lauk
honum með 4:1 sigri KA.
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Johannes skorar á Samuel
Flugleiðatrímm
um helgina
- Opið í Hlíðarfjalli alla páskana
Hið árlega Flugleiðatrimm á
skíðum á vegum Flugleiða og
Skíðastaða í Hlíðarfjalli verður
haldið nú um páskana. Keppni
í Flugleiðatrimminu er skipt í
tvo hluta, þ.e. í svig- og göngu-
keppni.
Keppni í svigi hefst á morgun
skírdag og verður keppt í þremur
flokkum. Kl. 10 hefst keppni í
flokkum 13-15 ára, kl. 12 í flokk-
um 10-12 ára og fara þær fram í
Strýtu. Kl. 13.30 hefst keppni í
flokkum 9 ára og yngri og fer hún
fram í Hjallabrekku. Allir sem
vilja spreyta sig eru velkomnir í
keppnina.
Seinni hlutinn fer fram á
páskadag en það er skíðaganga
þar sem boðið er upp á tvær
vegalengdir, 4 og 8 km. Göngu-
brautin upp á Stórhæð í Hlíðar-
fjalli verður opnuð kl. 10 fyrir þá
sem ekki vilja tímatöku. Kl. 14
verður hópstartað og tekinn tími
á öllum sem það vilja.
Vegleg verðlaun eru í boði á
Flugleiðatrimminu og þá verða
einnig glæsileg verðlaun dregin
út, þannig að allir sem þátt taka í
trimminu eiga möguleika á að
hreppa þau.
Foreldraráð Skíðaráðs Akur-
eyrar býður upp á tveggja brauta
keppni í svigi fyrir 12 ára og yngri
á laugardaginn og hefst sú keppni
kl. 14.
Á páskadag mun séra Pálmi
Matthíasson messa úti á skafli við
skíðahótelið ásamt kór Lög-
mannshlíðarkirkju og hefst sú
athöfn kl. 12.
Óvenju góður snjór er í Hlíð-
arfjalli miðað við árstíma en
skíðasvæðið verður opið yfir alla
páskana frá kl. 9.30 til 17.30 ef
veður leyfir.
Jóhannes Atlason sigraði Arnar „feldskera“ Guðlaugsson rafvirkja
á Húsavík í getraunaleiknum um helgina. Jóhannes var enn með
sína þrjá leiki rétta en Arnar náði aðeins tveimur leikjum réttum.
Það voru Leedsarar, lið Arnars sem gerðu vonir hans um áfram-
haldandi þátttöku í Ieiknum að engu. Á sama tíma og Leeds féll út
úr ensku bikarkeppninni, féll Arnar úr getraunaleiknum. En
Jóhannes í sínum skepnuskap hefur ákveðið að hrekkja annan
Leedsara í næstu umferð. Fyrir valinu varð Samúel Jóhannsson
húsvörður í íþróttahúsi Glerárskóla. Samúel sagðist ekki hræddur
við þessa utandeildardrengi eins og hann orðaði það. En hvort Jóa
tekst að vinna á þremur leikjum réttum í næstu umferð, kemur í ljós
um helgina.
Jóhannes:
Samúel:
Aston Villa-Everton 2
Leieester-West Ham 1
Liverpool-Nott.Forest 1
Luton-Coventry 1
Man.City-Watford 1
Newcastle-Man.United x
Norwich-Sheff.Wed. 1
Q.P.R.-Chelsea 1
Wimbledon-Arsenal x
Leeds-Ipswich 1
Reading-Portsmouth 2
Sheff.Utd.-Oldham x
Aston Villa-Everton 2
Leicester-West Ham x
Liverpool-Nott.Forest x
Luton-Coventry 1
Man.City-Watford 1
Newcastle-Man.United x
Norwich-Sheff.Wed. 2
Q.P.R.-Chelsea l
Wimbledon-Arsenal 1
Leeds-Ipswich 1
Reading-Portsmouth x
Sheff.Utd.-Oldham 2
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudögum
svo enginn verði nú af vinningi.
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2