Dagur - 04.05.1987, Page 9

Dagur - 04.05.1987, Page 9
4. maí 1S87 - DAGUR - 9 Unglingarnir fjórir sem dönsuðu maraþondans í Ýdölum í 26 klukkutíma. að detta niður um morguninn, þá hefði hann bæði verið syfjaður og lúinn. Hann sagðist ætla að sofa sem lengst að dansinum loknum. Valtýr sagðist geta haldið áfram þar til hann dytti niður en hann væri ekkert kominn að því að gefast upp. Erfiðast væri að halda sér vakandi og það væri vafamál hvort hann vildi taka þátt í maraþondansi aftur. Sig- mar sagðist vera orðinn frekar leiður á hvað þetta tæki langan tíma en hann væri minna lúinn núna heldur en um morguninn. Fimm mínútna hvíldartíminn var fljótur að líða og þá hófst dansinn á ný, komið var með tvo bala með köldu vatni fyrir dans- arana, annar var til að kæla höf- uð þeirra en hinn til að kæla fæt- urna. Haraldur Þórarinsson kennari fylgdist með dansinum en alls höfðu níu kennarar skipt með sér vöktum meðan á dansinum stóð. Haraldur sagði að þegar rætt hefði verið um fjáröflunarleiðir hefðu krakkarnir endilega viljað dansa maraþondans í 26 tíma. Kennararnir hefðu ekki átt von á því að þau héldu þetta út því þau hefðu ekki verið undir þetta búin og einnig hefðu þau byrjað á slæmum tíma, betra hefði verið að byrja að morgunlagi. Sigmar Ólafsson skólastjóri sagði að hann hefði ekki verið hræddur um að krakkarnir mis- byðu sér. Haraldur, sem reyndar væri driffjöðrin í öllu félagslífi við skólann, hefði skipulagt maraþondansinn vel og aflað sér upplýsinga frá stöðum þar sem þetta hefði verið gert áður. Einn- ig væri gott að hafa hjúkrunar- konu viðstadda til að veita krökkunum aðstoð og leiðbein- ingar. Þetta er í annað sinn sem nemendur Hafralækjarskóla vinna að fjáröflum með svipuð- um hætti, 1983 hlupu þau áheita- hlaup um allt skólahverfið. Hlaupið hófst utan við Máná á Tjörnesi og hlaupið var suður Reykjahverfi, norður Aðaldal og alla leið út að Björgum í Kinn, eða alls um 80 km. Áheitin sem þá fengust dugðu að verulegum hluta fyrir upphituðum íþrótta- velli við skólann. Aðspurður sagði Haraldur að félagslíf við skólann væri nokkuð blómlegt, nemendafélag starfaði og innan þess væru fimm klúbbar. Þrjár vikur í mánuði er reynt að halda klúbbakvöld, diskótek eða annað slíkt en reynt væri að hafa eina viku í mánuði fría, þó vildi þetta skipulag riðl- ast þegar til stæði að halda árs- hátíð eða þorrablót. IM Haraldur Þórarinsson kennari situr við borð. til að rétta hjálparhönd hverjum þeim er með þurfti svo fremi að það stæði í hans valdi. Þá var ekki spurt að því hvort það kæmi honum sjálfum vel eða illa. Ánægjan yfir því að verða öðrum að liði réð þar öllu. Hann var ekki auðugur maður í þess orðs merkingu, en hann átti annan auð öllum auðæfum betri, gott hjartalag og hjálpsemi. Nú er langri vegferð lokið, vegurinn var ekki alltaf blómum stráður, en sá er hann gekk kvaddi sáttur við allt og alla sem endranær. Hann vissi að hverju dró og þegar hann þungt haldinn talaði við mig í síma fór hann með sína loka- kveðju til mín og minnar fjöl- skyldu í bundnu máli. Við rædd- um þá um skepnuhöld, veðrið og síðast en ekki síst fjölskylduna. Enn var hugsun hans skýr og minnið sem áður. Hann þurfti að fá fregnir af langafabörnunum hvernig þeim vegnaði í skólanum og hvort þau væru nú ekki frísk. Á kveðjustund reikar hugurinn til baka, það er ótal margs að minnast. Eg veit að þær minning- ar eru mér sá sjóður er öðrum sjóðum mun betur reynast í líf- inu. Ég vil Ijúka þessum fátæk- legu orðum með ljóðlínum Pét- urs Aðalsteinssonar frá Stóru- Borg. Komdu kvöldid Ijúfa kært er þór að fagna. Eftir annir dagsins allar raddir þagna. Ljúft er þá að lúta lögum öllum þínum manni er hljóður heldur heim frá störfum sínum. Blcssuð sé hans minning. Rcynir Sigursteinsson. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Kaupangi v/Mýrarveg, a-hl. Akureyri, þingl. eigandi Tryggvi Pálsson, fer fram í dómsal embaettisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er: Iðnlánasjóður. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Skarðshlíð 40e. Akureyri, tal- inn eigandi Friðrik Bjarnason, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru: Eggert B. Ólafsson hdl., Innheimtu- maður ríkissjóðs, Gjaldheimtan í Reykjavík, Brunabótafélag íslands og Jón Magnússon hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Smárahlíð 4f. Akureyri, þingi. eigandi Jón Pálmason, fer fram í dómsal embættisins Hafnar- stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, Bæjarsjóður Akureyrar, Gunnar Sólnes hrl., Sveinn Skúlason hdl. og Gísli Baldur Garðarsson hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Konur í YLF Einingu: Fundur í Einingarsalnum 2. hæð Alþýðuhússins þriðjudaginn 5. maí kl. 20.00. Fundarefni: Málefni Kvennadeildar Einingar. Stjórnin. Vestmannsvatn Innritun í fullum gangi 96-41668, Gunnar og Steinunn. 96-61685, Jón Helgi. 96-24873, Æskulýðsskrifstofan. Frá Menntamálaráðuneytinu: Lausar kennarastöður við framhaldsskóla: Við Menntaskólann á ísafirði, kennarastöður í íslensku, stærðfræði og þýsku, heilar stöður, og hálfar stöður í efnafræði og frönsku. Við Menntaskólann í Kópavogi, kennarastöður í stærðfræði og viðskiptagreinum. Við Menntaskólann að Laugarvatni, kennarastöður í stærðfræði og raungreinum. Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, hálf kennarastaða í tónlist og kórstjórn. Við Fjölbrautaskola Suðurnesja í Keflavík, kennarastöður í faggreinum rafiðna, faggreinum hársnyrtigreina, efnafræði, ensku.íslensku, líffræöi, stærðfræði og viðskiptagreinum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 22. maí næstkomandi. Menntamálaráðuneytið. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA ÁNORÐURLANDI EYSTRA Sambýli á Húsavík fyrir fatlaða Fyrirhugað er að stofna á Húsavík sambýli fyrir fatlaða er taka mun til starfa í sept.-okt. nk. íbúar sambýlisins geta orðið 5-7 og skulu hafa náð 16 ára aldri. Fatlaðir, sem áhuga hafa á búsetu í sambýli eða aðstandendur þeirra, eru hvattir til að kynna sér væntanlega starfsemi með því að hafa samband við starfsmenn Svæðisstjórnar, þau Bjarna Kristjánsson framkvæmdastjóra og Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur, sálfræðing, er verða til viðtals á Heilsugæslustöðinni á Húsavík (Gamla sjúkrahús- inu) miðvikudaginn 6. maí nk. kl. 13.00-16.00 e.h. Upplýsingar einnig veittar af sömu aðilum á skrif- stotu Svæðisstjórnar, Stórholti 1, Akureyri. Sími 26960. ÍJWcYihg. BRÉF Nú kynnir Kaupþing og Kaupþing Norðurlands ásamt Almennum tryggingum og Almennum Líftryggingum nýja leið til að tryggja örugga afkomu - hvað sem á bjátar. • Þú leggur reglulega til hliðar ákveðna upp- hæð og safnar þannig smám saman þínum eigin lífeyrissjóði. • Upphæð innborgunar ræður þú sjálfur og getur því hagað greiðslum í samræmi við eig- in greiðslugetu. • Inneignin er alltaf laus tii útborgunar ásamt vöxtum og verðtryggingu. • Kaupendur Lífeyrisbréfa geta tekið þátt í tryggingakerfi, þar sem þeim gefst kostur á ódýrari trygginguin en annars staðar bjóðast. Kaupþing Norðurlands hf. Rádhústorgi 5 ■ Pósthólf 914 • 602 Akureyri • Sími 96-24700.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.