Dagur - 04.05.1987, Qupperneq 12
Akureyri, mánudagur 4. maí 1987
MADE IN AUSTRIA
Lánveitingar Byggðastofnunar:
Vanskil minnst
á Norðurlandi
Þokuljós - Affurljós &b»v*u
Bakkljós - Slefnuljós
CM
CM
s
<0
Twin Otter - flugvél Flugfélags Norðurlands sést hér með skíði, en þau voru sett á vegna leiðangurs, sem flugvélin
verður send í. Á skíðunum getur flugvélin lent á ís og snjó. Búnaðurinn var prófaður á Vaðlaheiðinni.
Breytingarnar á Sléttbaki:
Verkinu miðar vel
- en seinkar eitthvað þar sem ýmsir verkþættir hafa bæst við
Á þeim 15 mánuðum sem liön-
ir voru í byrjun ársins frá því
Byggöastofnun hóf starfsemi
sína hafði hún lánað 1.444
milljónir til 646 aðila. Þar af
voru 359 milljónir veittar á
árinu 1985. Samkvæmt lögum
skal stofnunin njóta framlags
af fjárlögum til starfsemi
sinnar. Á síðasta ári nam þetta
Kópasker:
55% heimila
í héraðinu
reyklaus
- aðeins 18,5%
íbúa reykja
Sigurður Halldórsson læknir á
Kópaskeri gerði nýlega könn-
un á hve margir íbúar í hérað-
inu reyktu. I Ijós kom að í
Kelduhverfi, Óxarfirði og
Presthólahreppi reykja 18,5%
íbúanna en 55% heimila á
svæðinu eru reyklaus.
Siguröur sagði að samkvæmt
þessum tölum væru reykingar í
héraðinu talsvert undir lands-
meðaltali, miðað við þær tölur
sem hann hefðRil samanburðar.
Fyrir rúmlega ári héldu Sigurð-
ur og kona hans Ingunn Svavars-
dóttir sálfræðingur tvö námskeið
til að aðstoða fólk sem vildi hætta
að reykja. Alls sóttu 22 þessi
námskeið, hópurinn kom saman
þegar ár var liðið frá því að nám-
skeiðin hófust, þá kom í Ijós að
11 manns eða 50% þátttakenda
voru enn reyklausir.
Sigurður sagðist telja þetta
nokkuð góðan árangur en þess
bæri að gæta að síðasta ár hefði
verið mjög hagstætt þannig að
mikil umræða hefði verið í gangi
um skaðsemi reykinga.
Það var eftir fundinn með þátt-
takendum námskeiðsins sem
Sigurður gerði könnunina í hér-
aðinu, hann sagðist vera ánægöur
með niðurstöðurnar en nú þyrfti
að herða baráttuna gegn reyking-
um. IM
Óli
Halldórsson
látinn
Þann 2. maí lést Óli Halldórs-
son, bóndi á Gunnarsstöðum í
Þistilfirði, á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri. Öli
var 63ja ára er hann lést, fædd-
ur 1. ágúst 1923.
Óli var um áratuga skeið
fréttaritari Dags í Þistilfirði.
Hann var barnaskólakennari og
gegndi mörgum trúnaöarstörfurn
fyrir sitt heimahérað. Óli var
vinamargur og þjóðkunnur
maður. Eftirlifandi kona Óla er
Hólmfríður Kristdórsdóttir.
framlag 80 milljónum króna og
það hefur dregist saman
undanfarin ár.
Vegna minnkandi framlags
ríkissjóðs hefur stofnunin lent í
þröngri stöðu til ýmissa verkefna
sem eru jákvæð fyrir byggðaþró-
un en ráða ekki við lántökur.
Þetta gerir stofnuninni einnig erf-
itt fyrir að standast áföll hjá stór-
um lánþegum. Ef undan eru
skildar lántökur ríkisstofnana
vegna vegagerðar og hafnarfram-
kvæmda skulda 40 stærstu lán-
þegarnir yfir 40% af heildarskuld
fyrirtækja við stofnunina. Öll eru
þessi fyrirtæki í útgerð og fisk-
vinnslu utan tvö. Þessar upplýs-
ingar koma frarn í ársskýrslu
1986.
Eftirstöðvar lána Byggðastofn-
unar eru samtals 2.983 milljónir
og skiptast þær þannig eftir kjör-
dæmum að 7,91% eru í Reykja-
vík, 9,88% á Reykjanesi, 8,71%
á Vesturlandi, 13,55% á Vest-
fjörðum, 9,91% á Norðurlandi
vestra, 14,78% á Norðurlandi
eystra, 12,27% á Austurlandi og
13,91% á Suðurlandi. Auk þess
eru um 9% eftirstöðva hjá opin-
berum sjóðum og stofnunum.
Rúmlega 137 milljónir af þess-
um eftirstöðvum, eða um 4,6%,
eru í vanskilum. Það vekur
nokkra athygli að vanskil eru
lægst hlutfall eftirstöðva á
Norðurlandi vestra eða 2,06% og
næstlægst á Norðurlandi eystra
eða 2,35%. Hæsta hlutfallið er á
Reykjanesi þar sem rúmlega 7%
eftirstöðva eru í vanskilum.
Aukning vanskila milli áranna
1985 og 1986 skiptist í tvö horn. í
Reykjavík, á Vestfjörðum og
Austurlandi er aukning vanskila
á bilinu 6-9 milljónir en í honum
kjördæmunum á bilinu 0,5-1,7
milljónir. ET
Nú eru um 5Vi mánuður síðan
Sléttbakur fór til breytinga í
Slippstöðinni á Akureyri.
Verkinu miðar vel að sögn
Jóhannesar Óla Garðarssonar
sem hefur yfirumsjón með
vinnunni. Ýmsir verkþættir
hafa bæst við það sem upphaf-
lega var gert ráð fyrir þannig
að verkinu mun ekki ljúka í
júlí eins og upphaflega var
áætlað.
Bolviðgerðum og lengingu er
nú að mestu lokið auk þess sem
frágangi á kjölfestukili er að
ljúka. Þess má geta að þar er um
að ræða rúm 50 tonn sem fest eru
neðan í skipið. Breytingum á
stálþiljum víðs vegar í skipinu er
að mestu lokið.
Föstudaginn, 1. maí, var gjald-
dagi ýmissa eldri lána frá
Húsnæðisstofnun. Margir hafa
furðað sig á því hversu seint
greiðsluseðlar berast til greið-
enda en fyrstu seðlarnir bárust
ekki fyrr en á miðvikudaginn.
Það er veðdeild Landsbanka
íslands scm sér um að senda út
alla greiðsluseðla fyrir Húsnæðis-
stofnun. Þar fengust þær upplýs-
ingar að ástæðurnar fyrir seink-
uninni séu margar og keðjuverk-
andi. Gögn bárust óvenju seint
frá Reiknistofnunn bankanna þar
sem henni barst vísitala óvenju
Aðalvél hjálparvél og mestur
hlutinn af frystibúnaðinum eru
komin um borð og nýlega hófst
vinna við lagnir sem tengjast
frystitækjunum. Þessa dagana er
einnig meðal annars verið að
vinna við endurbætur á íbúðum.
Stærstu verkþættir sem enn eru
eftir eru að sögn Jóhannesar frá-
gangur á spilkerfi, frystikerfi og
vélbúnaði í vélarrúmi. AIls eru
það um 70 manns sem vinna við
verkið. ET
seint. Vegna þessa var ekki hægt
að byrja að senda út seðla fyrr en
á ntánudag í síðustu viku og þeir
síðustu fóru eftir hádegi á mið-
vikudag.
1. maí er langstærsti gjalddagi
lána frá Húsnæðisstofnun. Þenn-
an dag er greitt af þeim lánum
sem hafa aðeins eina afborgun á
ári auk þess sem þetta er einn af
fjórum gjalddögum annarra lána.
Alls eru það um 85 þúsund lán
sem grcitt er af þennan dag. Það
eru þó ekki hundrað í hættunni
því eindagi er ekki fyrr en um
rniðjan mánuðinn eða í lok hans.
ET
í gærkvöld var kveikt í sinu brekkunum sunnan við Innbæinn á Akureyri.
Slökkviliösmcnn á tveimur slökkvibifreiðum voru talsverða stund að slökkva
eldinn, sem magnaöist hratt í snapri sunnanátt. Litlu munaði að eldurinn
læstist í tré í skógarreit skammt frá. Mynd: ehb
Lán frá Húsnæðisstofnun:
Greiðsluseðlar
seint á ferð
- gjalddagi 85 þúsund lána var 1. maí