Dagur - 18.05.1987, Page 6

Dagur - 18.05.1987, Page 6
6 - DAGUR - 18. maí 1987 Leeds og Charlton leika um lausa sætið - í fyrstu deild að ári Það verða Leeds og Charlton sem leika um lausa sætið í I. deild að ári. Þíkj h '-fðu bæði betur í viðureignuin sínum við Oldham og Ipswich. Leeds vann Oldham a heimavelli á föstudaginn 1:0 en tapaði í gær 1:2 á úti- velli í framlengdum leik en kemst áfrain á útimarkinu. Charlton og Ipswich gerðu inarkalaust jafn- tefli á heimavelli Ipswich á föstudaginn en í gær var leikið á heimavelli Charlton og þá sigraöu heimamenn 2:1. Leeds og Charlton ieika tvo leiki um lausa sætið, þ.e. heima og heiman og verður fyrri leikurinn leikinn á föstudaginn kemur en sá seinni annan mánu- dag. Það var einnig leikið um laus sæti í 2., 3. og 4. deild og þar gerðist það helst, að Sund- eriand féll í 3. deild í fyrsta sinn í sögu félags- ins og Bolton féll í 4. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. - hann og Gylfi Birgisson leika einnig með liðinu Þeir félagar Hermundur Sigmundsson og GylH Birgisson handknattleiksmenn úr Stjörnunni í Garöabæ ætla að leika knatt- spyrnu með HSÞ-b í Mývatnssveit í sumar og mun Hermundur jafnframt þjálfa liðið. Gylfi hefur verið einn besti leikmaður Stjörnunnar í vetur, geysileg skytta og verður fróðlegt að fylgjast með honum í knattspyrnunni í suinar. Hann sagði í samtali við blaðamann Dags að hann myndi síðan leika áfram hand- knattleik með Stjörnunni næsta vetur, ncnia citthvað mjög sérstakt kæmi upp á. HSÞ-b vann sér sæti í 3. deild á ný eftir að hafa leikiö í þeirri fjórðu á síðasta ári. Hörð- ur Benónýsson þjálfari og leikmaður liðsins í fyrra hefur gengið til liðs við VÖIsung en að öðru leyti verða litlar breytingar á liðinu. i ! ' --------------------------------- Jafnt hjá ÍR og Einherja - og í leik ÍBV og Selfoss ÍR og Einherji gerðu jafntefli á laugardaginn í fyrsta leiknuin í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á gervigras- inu í Laugardal og skoraði hvort liö eitt mark. í gær voru þrír leikir, KS sigraði ÍBÍ 2:1 á Siglullrði, Víkingur sigraði Leiftur 2:1 á gervigrasinu og í Vestinannaeyjum gerðu heimamenn jafntefli við Selfyssinga 2:2. Síðasti leikurinn í fyrstu untferð fer frain í kvöld en þá mætast Þróttur og Breiðablik á gervigrasinu í Laugurdal. íþróttÍL Gústaf Óniarsson leikmaður Leifturs og Jóhann Þorvarðsson Víkingur berjast um knöttinn í leiknum í gær. Mynd: Róbert. íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild: Víkingur sigraði Leiftur í slökum leik - á gervigrasinu í Laugardal Víkingur sigraði Leiftur frá Ólafsfírði þegar liðin mættust á gervigrasinu í Laugardal í gær í fyrstu umferð 2. dcildar Islandsmótsins í knattspyrnu. Víkingar skoruðu tvö mörk gegn einu marki Ólafsfirðing- anna í fremur litlausnm og ris- litlum leik. Víkingar hófu leikinn mun betur, héldu boltanum ágætlega og réðu gangi leiksins framan af. Þeir áttu þó í erfiðleikum með að skapa sér færi en Leiftursmenn voru hins vegar tvisvar nálægt því að skora. Fyrst á 11. mín., þegar Hafsteinn Jakobsson átti þrumu- skot af löngu færi rétt yfir þver- slána og síðan á 27. mín., þegar Óskar Ingimundarson lék laglega á einn varnarmanna Víkings inn í teig og rendi boltanum fyrir markið en þar missti Steinar bróðir hans af honum í upplögðu færi. Leiftursmenn komust síðan æ betur inn í leikinn en þrátt fyrir það voru það Víkingar sem fengu næsta færi. Einn varnarmanna Leifturs hugðist þá senda boltann aftur til Þorvaldar í markinu en sendingin var of laus og Trausti Ómarsson komst á milli en Þor- valdur bjargaði með góðu út- hlaupi. Fyrsta markið kom síðan á 37. mín, Trausti Ómarsson stóð þá skyndilega einn í opnu færi, eftir barning í vítateig Leifturs- manna og skoraði með lágu skoti undir Þorvald. Staðan 1:0 og þannig var hún í hálfleik. Víkingar mættu ákveðnir til síðari hálfleiks og tóku strax öll Handbolti: Hafnfirð- ingar sigmðu - í bæjakeppninni Hafnfirðingar sigruðu í bæja- keppninni í handbolta sem lauk í gær. Þeir unnu nágranna sína úr Garðabæ í úrslitaleik 30:28. Leikurinn fór fram í íþróttahús- inu í Hafnarfirði. völd. Á 11. mín. var Trausti Ómarsson enn á ferðinni en vipp- aði þá yfir í góðu færi. Víkingar skoruðu síðan annað mark sitt mínútu seinna. Þorvaldur varði þá þrumuskot utan úr teig en náði ekki að halda boltanum sem barst út til Einars Einarssonar sem skoraði með góðu skoti í fjærhorn. Víkingar réðu síðan lögum og lofum nær allan síðari hálfleik án þess þó að skapa sér nein afgerandi færi. Það var ekki fyrr en á lokamínútunum að Leift- ursmenn komust aftur inn í leik- inn og sóttu þá án afláts. Þegar 2 mín. voru til leiksloka var brotið á Steinari inn í vítateig og víta- spyrna var dæmd sem Hafsteinn Jakobsson skoraði úr. Leifturs- menn sóttu síðan látlaust það sem eftir lifði leiks en náðu ekki að jafna. Eins og fyrr segir var leikur þessi frekar rislítill ef frá er skil- inn sæmilegur kafli undir lok fyrri hálfleiks. Litlar tilraunir voru gerðar til þess að halda uppi spiii, þannig að leikurinn einkenndist af baráttu og miðjuþófi. Trausti Ómarsson var bestur Víkinga en honum fylgdi ávallt nokkur hætta við mark Ólafsfirð- ingana. Jóhann Þorvarðarson var traustur á miðjunni og Atli Ein- arsson var sprækur í seinni hálf- leik. Hjá Leiftri var enginn áber- andi bestur en þó má nefna að varnarmaðurinn Guðmundur Garðarsson barðist mjög vel og vann mikið af boltum. -JHB íslands Glæsil á - er heima KS sigraði ÍBÍ í gær í fyrsta leik liðanna í 2. deild íslands- mótsins í knattspyrnu. Úrslit leiksins sem fram fór á Siglu- firði urðu 2:1 fyrir heimamenn og var sá sigur nokkuð sanngjarn. Leikurinn bar þess merki að vera dæmigerður vorleikur, liðin sóttu til skiptis en þó voru heima- menn ákveðnari. Það voru þó ísfirðingar sem náðu forystunni á 21. mín. Þeir náðu þá góðri sókn- arlotu sem endaði með því að Birgir Ólafsson skoraði eftir að hafa fengið nægan tíma til þess að athafna sig. En áfram hélt leikurinn og á 26. mín. fengu KS- ingar innkast á móts við markteig ísfirðinga. Tekið var innkast sem Mark Duffield náði að skalla áfram inn á Hafþór Kolbeinsson sem afgreiddi boltann í netið með skalla. Var mjög vel að þessu marki staðið. Þegar leið á leikinn, jafnaðist hann og var mikið um miðjuþóf. En á 64. mín. kom fallegasta mark leiksins. KS-ingar náðu þá góðum samleik upp hægri kant- inn sem endaði með fyrirgjöf sem Bi Mar aðal -er Gi Lið Akureyrar náði ekki að komast í úrslit í bæjakeppninni í handbolta, þar sem liðið tap- aði fyrir liði Garðabæjar í framlengdum leik 30:31 í undanúrslitum. Leikurinn fór fram í íþróttahöllinni á Akur- eyri á föstudagskvöld. Mark- verðir liðanna þeir Brynjar Kvaran og Jónas Þorgeirsson voru í aðalhlutverkunum, vörðu báðir frábæriega og var frammistaða þeirra það eina sem gladdi augað, fyrir utan Brynjar Kvaran átti stórleik í marki Enska knattspyrnan: Coventry sigr- aði Tottenham - í úrslitaleik í bikarnum Coventry City varð á laugar- daginn enskur bikarmeistari í knattspyrnu. Liðið sigraði þá Tottenham Hotspur á Wembl- ey leikvanginum í London með þremur mörkum gegn tveimur í framlengdum leik. Gary Mabbut varnarmaður Totten- ham skoraði sjálfsmark í fyrri hálfleik framlengingarinnar og reyndist það vera sigurmark leiksins. Það leit ekki vel út í byrjun fyr-( ir Coventry, markamaskínan Clive Allen kom Tottenham yfir strax á 2. mín. og var þetta mark hans það 49. í röðinni í vetur. En leikmenn Coventry létu markið ekki á sig fá og Dave Bennet jafnaði fyrir liðið 7 mín. síðar. Skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks kom Gary Mabbut Tottenham yfir á ný með nokkru heppnis- marki eftir aukaspyrnu. Leikmenn Coventry voru mun ákveðnari á vellinum og gáfu leikmönnum Tottenham aldrei færi á að byggja upp sóknir. Það var svo framherjinn Keith Hou- chen sem jafnaði fyrir Coventry á 63. mín. með glæsilegu skalla- marki. Liðunum tókst ekki að bæta við mörkum í venjulegum leiktíma og því varð að fram- lengja leikinn. Þá skoraði Mabb- ut sjálfsmark eins og áður er get- ið og það reyndist vera úrslita- mark leiksins. Lið Coventry lék mun betur en Tottenham í þess- um leik og vann sanngjarnan sigur. Sigur liðsins í bikarkeppninni er sá fyrsti í sögu félagsins en þetta var í fyrsta skipti sem liðið leikur til úrslita í keppninni.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.