Dagur - 18.05.1987, Blaðsíða 11
18. maí 1987- DAGUR - 11
Stéttarsamband bænda:
Vill leiðrétta misskilning
Akureyri:
Námskeið í
samskipta-
tækni
- haldið 11., 12. og
13. júní nk.
Fyrirtækið Sálfræðistöðin sf. mun
verða með námskeið á Akureyri
11., 12. og 13. júní í samskipta-
tækni. Stofnunin sem hefur starf-
að um þriggja ára skeið getur nú
boðið upp á fjölbreytta þjónustu.
Námskeiðahald fyrir almenning,
fyrirtæki og stofnanir, hæfileika-
mat og einkaviðtöl hafa verið
fastir liðir í starfsemi stöðvarinn-
ar. Sálfræðistöðin hefur nýlega
flutt í nýtt húsnæði og getur boð-
ið upp á ýmiss konar nýjungar.
Námskeiðahald á landsbyggð-
inniverður aukið, ný námskeið í
slökunartækni, hjónanámskeið
ásamt námskeiðum fyrir yfir-
menn fyrirtækja verða haldin
með reglulegu millibili.
Auk fyrirhugaðs samskipta-
námskeiðs á Akureyri í júní er
ætlunin að halda námskeið í
haust um samskipti foreldra og
barna.
Eigendur Sálfræðistöðvarinnar
eru Guðfinna Eydal og Álfheiður
Steinþórsdóttir. Nýtt húsnæði er
að Þórsgötu 24 í Reykjavík og er
síminn 623075.
vegna búvörusamningsins
Vegna misskilnings sem hvað
eftir annað hefur komið fram og
nú síðast í yfirlýsingum stjórn-
málamanna í tengslum við vænt-
anlega stjórnarmyndun, vill
Stéttarsamband bænda koma
eftirfarandi á framfæri varðandi
nýgerðan búvörusamning milli
ríkisins og Stéttarsambands
bænda:
1. Heildarverðmæti þeirra
afurða sem um er samið er um
7 milljarðar króna á ári miðað
við núgildandi verðlag. Þessi
upphæð er að langstærstum
hluta söluverðmæti vörunnar
á almennum markaði eins og
neysla þessara afurða hefur
þróast á undanförnum árum.
2. Með samningnum tekur ríkið
að sér að ábyrgjast bændum
verðlagsgrundvallarverð eins
og það er á hverjum tíma fyrir
tiltekið magn mjólkur og
kindakjöts. Öll framleiðsla
umfram það magn er á ábyrgð
bænda sjálfra.
3. Ákvörðun verðlagsgrundvall-
arverðsins er sem áður í hönd-
um verðlagsnefndar búvara og
í engum tengslum við þessa
samningagerð.
4. Ekki eru ákvæði í samningn-
um um niðurgreiðslu búvara.
5. Hið umsamda afurðamagn
mjólkur er 103 millj. lítrar á
því verðlagsári sem hefst 1.
september 1988 en 104 millj.
lítrar verðlagsárin 1989-1991.
Mjólkurneysla íslendinga fer
nú vaxandi og er áætluð 101
milljón lítrar á þessu ári. Mið-
að við svipaða þróun næstu ár
felur samningurinn ekki í sér
þörf fyrir útflutning mjólkur-
vara umfram það sem óhjá-
kvæmilegt er ef unnt á að vera
að halda uppi því fjölbreytta
framboði mjólkurvara sem nú
er völ á hér á landi. Verði
mjólkurneysla meiri en fors-
endur samningsins gera ráð
fyrir eykst framleiðsluréttur
bænda um % þess sem neyslan
fer umfram áætlun. Umsamið
magn kindakjöts á samnings-
tímanum er 11.000 tonn á ári.
Gert er ráð fyrir að út verði
flutt að meðaltali um 1.740
tonn af kindakjöti árlega á
samningstímanum. Búvöru-
lögin gera ráð fyrir minnkandi
útflutningi kindakjöts og er
þetta um 35% minni útflutn-
ingur en verið hefur að meðal-
tali síðustu ár.
Miðað við forsendur samnings-
ins er gert ráð fyrir að birgðir
mjólkurvara og kindakjöts verði
komnar í eðlilegt horf í lok samn-
ingstímans. Með búvörusamn-
ingum er því ekki stofnað til
nýrra eða aukinna útgjalda fyrir
ríkissjóð nema verulegar breyt-
ingar verði á neysluvenjum þjóð-
arinnar á samningstímanum.
29. apríl 1987.
LYFTARAR
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns-
og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft-
ara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboössölu.
LYFTARASALAN HF. __j\
Vatnagörðum 16. Símar 82770 og 82655.
Að Menntaskólanum
í Reykjavík vantar
stundakennara
næsta vetur. Kennslugreinar: íslenska, eðlis- og
efnafræði, stærðfræði, tölvufræði, líffræði og lífræn
efnafræði. í sumum greinum getur verið um heilar
stöður að ræða.
Umsóknir sendist skólanum ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf fyrir 1. júní.
Menntamálaráðuneytið.
Aflaverðmæti Nökkvans
yfir 20 milljónir
Nökkvi HU 15 hefur nú farið
þrjár veiðiferðir frá því hann
kom til Blönduóss þann 28.
febrúar síðastliðinn. Óhætt er
að segja að gengið hafí vel hjá
Nökkvanum í þessum þrem
veiðiferðum þar sem hann er
kominn með um 225 tonna
rækjuafla samtals úr þessum
þrem veiðiferðum.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem blaðið hefur aflað sér þá
telja eigendur skipsins að til þess
að reksturinn sé tryggður þá þurfi
skipið að afla um eitt þúsund
tonna af rækju á heilu ári og sam-
kvæmt aflatölum úr þessum
fyrstu túrum er ekki annað að sjá
en það muni takast. Skipting afl-
ans hefur verið nokkuð góð og
sem dæmi má nefna að rúmlega
30 prósent aflans í síðasta túr fór
í pakkningar en mun betra verð
fæst fyrir þá rækju. Aflaverðmæti
þess afla sem Nökkvi hefur borið
að landi mun vera liðlega 20 mill-
jónir. Þá hafa Gissur hvíti og
Sæborgin sem eru í eigu rækju-
vinnslunnar Særúnar einnig verið
á úthafsrækjuveiðum undanfarið
og hefur veiði verið ágæt, þó
einkum hjá Gissuri hvíta sem
hefur komið með 15-16 tonn eftir
hvern fimm daga túr. G.Kr.
Trésmiðir
Slippstööin hf. óskar aö ráöa trésmiöi til starfa.
Mikil vinna, mötuneyti á staönum. Uppiýsingar gefur
starfsmannastjóri í síma 96-21300.
IWwl slippstödin.
Atvinna í boði
Óskum eftir aö ráöa trausta menn til næturvörslu frá
1. júní.
Æskilegur aldur 30-45 ára.
Upplýsingar veittar næstu daga frá 10-12 ekki í síma.
HAGKAUP
Norðurgötu 62.
Óskum að ráða
starfsmann í pökkun og útkeyrslu, 18 ára eöa eldri,
(þarf aö hafa bílpróf). Upplýsingar gefnar á skrifstof-
unni, ekki í síma.
Brauðgerð Kristjáns Jónssonar
Hrísalundi.
Tvo kennara
vantar að Þelamerkurskóla í Hörgárdal.
Meöal kennslugreina, íslenska og handmennt.
Mjög ódýrt húsnæði á staðnum, frír hiti.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 21772 eöa 26555
og hjá formanni skólanefndar í síma 21923.
Verkstjóri
Viljum ráöa ábyggilegan, laghentan mann
til aö stjórna einni deild verksmiöjunnar.
Þarf aö vera kunnugur vélum.
Vel launað framtíöarstarf.
Upplýsingar gefnar í síma 21466.
K.Jónsson & Co hf.,
Niðursuðuverksmiðja Akureyri.