Dagur - 18.05.1987, Síða 12

Dagur - 18.05.1987, Síða 12
Opnunartími verslana: „Ástæðulaust að lengja vinnu- tíma startsfólks“ - segir Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi Frá stofnfundi Fiskmiðlunar Norðurlands hf. á Dalvík. Frá vinstri: Guðjón A. Kristjánsson, form. Farmanna- og fiskimannasambands íslands, Valdemar Bragason, Hilmar Daníelsson, Snorri Snorrason, Þorbergur Kristjánsson og Jón Kr. Sólnes, lögfræðingur félagsins. Mynd: ehb Fiskmiðlun Norðurlands hf. Dalvík: „Kvíði ekki samkeppninni“ - segir Hilmar Daníelsson Meirihluti bæjarráðs sam- þykkti á fundi sínum á fimmtu- daginn tillögu atvinnumála- nefndar um að lengja opnunar- tíma verslana á laugardögum í Dalvík: Banaslys Laust eftir klukkan hálf fjögur aðfaranótt sunnudagsins varð banaslys við Argerðisbrú sunn- an Dalvíkur. Bifreið sem kom sunnan að lenti á enda brúar- handriðsins og varð árekstur- inn mjög harður. Þrír voru í bflnum, farþegi beið bana, ökumaður og hinn farþeginn slösuðust mikið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Dalvík var bifreið- in, sem var með R-númeri, á leið í bæinn en lenti á járnleiðara sem liggur meðfram veginum að brúnni með þessum hörmulegu afleiðingum. SS Aðfaranótt föstudags var brot- ist inn í Vélsmiðjuna Odda og verslunina Skemmuna á Akur- eyri. Litlu var stolið á báðum stöðum en málin eru í rannsókn. Skothríð á rúður Trésmiðjunnar Vinkils fyrir viku er einnig óupplýst mál að sögn Daníels Snorrasonar lög- reglufulltrúa. „Það hefur ekkert afgerandi komið út úr þessum viðræðum ennþá,“ sagði Jón Sigurðar- son, framkvæmdastjóri Iðn- aðardeildar SIS á Akureyri, en undanfarið hafa farið fram við- ræður um hugsanlegt samstarf Iðnaðardeildarinnar við Ala- fossverksmiðjuna. Að sögn Jóns ganga þessar við- ræður út á hvernig megi hagræða málum í ullariðnaði og hvort sumar. Tillagan hljóðaði upp á að opnunartíminn yrði rým- kaður til klukkan 17:00 á laug- ardögum á tímabilinu 1. júní til 1. september, en bæjarráð samþykkti opnunartíma til kl. 18:00. Sigurður Jóhannesson Fram- sóknarflokki lýsti sig einn and- vígan þessum breytingum, en Sigríður Stefánsdóttir Alþýðu- bandalagi sat hjá. „Ég lýsti mig andvígan þessu af tveimur ástæðum. f fyrsta lagi sé ég ekki ástæðu til að lengja vinnutíma verslunarfólks meira en nú er. í öðru lagi hefur Félag verslunar- og skrifstofufólks sett yfirvinnubann á starfsfólk í mat- vöruverslunum á þessu tímabili og ef þær eru lokaðar tel ég grundvöll þessarar rýmkunar brostinn," sagði Sigurður í sam- tali við Dag. Á fundinum var einnig sam- þykkt tillaga um að reglugerð um -opnunartíma versluna yrði felld úr gildi frá næstu áramótum. Sigurður og Sigríður lýstu sig andvíg þeirri tillögu. ET Lögreglan á Akureyri hafði í mörg horn að líta um helgina. „Það er eins og gengur, smávægi- legir árekstrar, ölvun, of hraður akstur, rúðubrot og fleira. Það virðist alltaf fylgja þessum helgum,“ sagði Kristinn Einars- son varðstjóri, en ekki hafði hann frétt um slys á fólki. SS þessi tvö fyrirtæki geti aukið sam- starf sitt að hluta. Eitt af þeim atriðum, sem hafa verið til umræðu, er hugsanleg samnýting á ullarþvottastöð Sambandsins í Hveragerði. Þegar Jón var spurður um erfiðleika ullariðnaðarins sagði hann: „Það hafa miklir erfiðleik- ar steöjað að ullariðnaðinum um hríð, m.a. hafa orðið miklar kostnaðarhækkanir á íslandi án í gær var haldinn stofnfundur fískmarkaðar á Dalvík, og er nafn fyrirtækisins Fiskmiðlun Norðurlands hf. Stofnfélagar eru 32, og skráðu þeir sig fyrir hlutafé að upphæð kr. 1.240.000 á fundinum, en stefnt er að því að hlutafé félagsins verði 2 milljónir króna. í stjórn félagsins voru kosnir þeir Oddgeir Jóhannsson, Greni- vík, Snorri Snorrason, Dalvík, Gunnar Sigvaldason, Ólafsfirði, Hilmar Daníelsson, Dalvík, og Sigurður Olgeirsson, Húsavík. Ekki verður ráðinn fram- kvæmdastjóri fyrst um sinn og mun stjórnin sjálf fara með fram- kvæmdavald í félaginu. Þegar Hilmar Daníelsson var spurður um félagið sagði hann: „Ég var strax í upphafi bjartsýnn á framtíð þessa félags og er jafn- vel ennþá bjartsýnni nú en áður, eftir þær góðu viðtökur sem voru hér í dag, 32 stofnendur og upp- hæð innborgaðs hlutafjár talsvert hærri en ég átti von á á þessu stigi. Undirbúningur er búinn að þess að gengi krónunnar hafi breyst. Þetta getur sjávarútveg- urinn, höfuðatvinnuvegur þjóð- arinnar, þolað vegna mikillar aflaaukningar og hækkandi verðs á erlendum mörkuðum. Aðrir atvinnuvegir, sem stunda útflutn- ing, búa ekki við jafn hagstæð skilyrði og geta ekki átt von á að ná jafn snöggum árangri og sjávar- útvegurinn. Ullariðnaðurinn býr hvorki við hækkandi verölag eða vaxandi framleiðslu." EHB standa yfir síðan í janúar, og höf- um við á þeim tíma, sem liðinn er, kynnt hugmyndir okkar um þennan fiskmarkað, sem nú er orðinn að raunveruieika. Frá og með deginum í dag mun þetta félag starfa, og raunar mun það halda áfram þeirri starfsemi, sem þegar er hafin, og verður væntan- „Síðan fyrsta Fokker-vél Flug- leiða kom til Iandsins árið 1966 hefur aðeins einn flugvöllur verið malbikaður á landinu fyrir utan Reykjavík og Kefla- vík, en það er á Akureyri,“ sagði Sæmundur Guðvinsson, blaðafulltrúi Flugleiða, þegar hann var inntur eftir ástandi flugvalla og hugmyndum um endurnýjun innanlandsflug- flota félagsins. Að sögn Sæmundar hafa vissu- lega verið gerðar miklar endur- bætur á hinum ýmsu flugvöllum landsins undanfarin ár hvað tækjabúnað snertir, en þetta breyti þó ekki því að flugvélar í innanlandsflugi skemmist mikið vegna steinkasts á flugvöllunum, sem ekki eru malbikaðir, og er viðhaldskostnaður af þessum sökum mjög mikill. „Þetta hefur geysilegan auka- kostnað í för með sér fyrir Flug- leiðir og einnig óöruggari þjón- ustu. Vélarnar verða mjög grjót- barðar og það kemur fram á lega ekki breyting á því.“ Þegar Hilmar var spurður að því hvort þeir félagar væru í sam- keppni við Akureyri á þessu sviði sagði hann: „Ég hef sagt það áður að ég kvíði ekki neinni sam- keppni því þeir, sem standa sig í þjónustunni, lifa af, en hinir ekki.“ EHB mörgum sviðum hvernig þær skemmast. Við sáum glöggt dæmi um þetta í fyrra þegar Flugleiðir keyptu Fokker-vél frá Bretlandi. Sú vél var í miklum viðgerðum og viðhaldi fyrstu vikurnar sem hún var í flugi hérna og menn vildu eingöngu kenna því um að vélin hafði eingöngu verið á mal- bikuðum eða steyptum flugvöll- um í Englandi. Þegar vélin fór aö hristast á malarvöllunum fór eitt og annað að gefa sig og það þurfti að tilkeyra hana við þessar aðstæður um tíma þangað til hún þoldi þessa meðferð. Eins og staðan er núna þá er auðséð að jafnvel þó nýjar vélar yrðu keyptar strax þá myndi slíkt ekki tryggja rekstaröryggi í innanlandsfluginu. Nýju vélarnar yrðu álíka mikið frá vegna við- gerða og viðhalds eins og Fokk- erarnir út af þessunt slæmu flug- völlum. Flugbrautin á Egilsstöð- um er t.d. ófær hluta ársins vegna aurbleytu,“ sagði Sæmundur Guðvinsson. EHB Akureyri: Brotist inn í Skemmuna og Odda Iðnaðardeild SÍS: Samstarf við Álafoss- verksmiðjuna athugað Grjótbarðar flugvélar - „Akureyrarflugvöllur sá eini sem hefur verið malbikaður á landsbyggðinni frá árinu 1966“ ~ segir Sæmundur Guðvinsson

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.