Dagur - 03.06.1987, Page 3

Dagur - 03.06.1987, Page 3
3. júní 1987 - DAGUR - 3 Hiti í smábátaeigendum vegna dragnótaveiða: Veiðarfærastríð í uppsiglingu? - „ætlum að vera gallharðir," segir Örn Pálsson formaður landssambandsins bændur verða að geta treyst á það að ég sé ekki deiluaðili við þá, og ég er það ekki. Petta eru fyrst og fremst nágrannar mínir, ég bý hérna í túnfætinum á Eiðs- stöðum og ég lít á aðra bændur hér í kring sem nágranna mína og ég stend ekki í neinum deilum við þá. Okkar sambúð hefur ver- ið mjög góð.“ - Þegar þú ert búinn að vera hérna svona lengi, áttu þá ekki orðið stóran kunningjahóp hér í kring? „Jú, jú ég á það, og þá kannski aðallega meðal iðnaðarmanna sem hafa komið hér og ég hef sér- staklega leitast eftir þvf að ráða fólk af svæðinu til þess að stunda þjónustu við virkjunina þ.e.a.s. að svo miklu leyti sem ég fæ ráðið. Þetta hafa aðallega verið menn frá Blönduósi og ég verð að segja það að það hefur komið mér á óvart, og kannski átti það ekkert að koma mér á óvart mað- ur er sennilega bara svona þröngsýnn, að þessir ágætu menn búa yfir mikilli fagþekkingu og eru andskotanum duglegri. Það verður maður að nreta, og það bara segir manni það að þú átt ekkert að fara yfir lækinn.“ - Hefurðu verið við svona framkvæmdir lengi? „Já, já ég hef verið það. Allt frá því að ég varð stúdent sem var 1968, ég er af ’68 kynslóðinni eins og það heitir, þeirri sem allt í einu fór að týnast. Ég skildi nú aldrei hvernig stóð á því, mér fannst ég vera svo voðalega vel ótýndur. En þá byrjaði ég hjá Orkustofnun sem aðstoðarmaður á jarðbor og í gegnum starf mitt þar kynntist ég fyrsta þætti slíkra framkvæmda sem hér um ræðir, þ.e.a.s. rannsóknarþættinum. Ég t.d. kom hingað á Blöndusvæðið fyrst 1974 sem starfsmaður Orku- stofnunar og var þá hér í jarðeðl- isfræðilegum mælingum sem aðstoðarmaður." - En hvað ertu lærður og hvar lærðirðu o.s.frv? „Fyrst var ég í Atlanda, það var á árum Carters sem ríkis- stjóra, og síðan fór ég til Ari- sona, bærinn heitir Tuson, sem Bítlarnir sungu um, þetta munum við hérna gömlu mennirnir af sextíu og átta kynslóðinni þetta er rós í hjarta okkar. Á þessum tíma var ég enn að lesa blöðin frá Atlanta og ég fór upp á bókasafn og náði mér í Atlanta Contitus ion sem er eitt aðaldagblaðið í Atlanta, þegar ég var búinn að fletta því þá fór ég í leiðarann og las hann. Ritstjórinn hét Murphy og hann var helst frægur fyrir það að honum var rænt, en hann var sem sagt að skrifa um það að Carter ætlaði að bjóða sig fram í forkosningum vegna forsetakosn- inga í Bandaríkjunum. Ritstjór- inn átti ekki til orð yfir þetta og taldi að Carter hefði nú ekki af- rekað mikið sem ríkisstjóri, það væri helst að hún Rósa, kona Carters, hefði endurskipulagt ríkisstjórabústaðinn. Svona eru nú menn miklir spámenn í eigin föðurlandi." - Hvað heitir svo gráðan sem þú hlaust að námi loknu? „Ég er nreð tvær mastergráður. Það er sérsvið innan byggingar- verkfræði sem við getum kallað jarðtæknilega verkfræði. Það gerir mönnum kleift að vita meira um stíflur og skurði og vegi, jarð- göng og hafnargerð og svoleiðis dótarí. Þetta lærði ég í Georgíu. Síðan ákvað ég, þrátt fyrir að ég sé af ’68 kynslóðinni sem helst vildi bara vera flowerbörn og hippar, að fara út í sérnám í jarð- gangagerð. Það sérnám mitt sem er líka innan byggingar- verkfræðinnar, stundaði ég í háskólanum í Atlanta." - Hvenær hófstu svo störf fyrir Landsvirkjun? „Ég fór til Landsvirkjunar 1980 og var í Hrauneyjarfossi, eftirlitsverkfræðingur og það var ágætt, mikill og góður skóli. Síð- an fór ég til Noregs og var þar í hagræðingarverkefnum fyrir norsku landsvirkjunina, á svona vinnustað eins og hér nema bara miklu miklu stærri. Þar voru 110 kílómetra jarðgöng af ýmsum stærðum. Það munaði minnstu að ég settist að í Noregi en samt var ég þar ekki nema í rúmt ár. Þá vantaði Landsvirkjun staðarverk- fræðing fyrir Blönduvirkjun og þrátt fyrir að ég og konan mín værum búin að ákveða að ég tæki boði um stöðuhækkun í Noregi og settist að í Osló, þá sagði ég „mér þykir leitt að þurfa að til- kynna þér það að ég er búinn að ákveða að fara til íslands". Eftir símtalið sat ég og starði fram fyr- ir mig og skildi ekkert í þessu því að þetta var þvert ofan í það sem ég ætlaði að gera. Ég veit ekkert af hverju þetta fór svona en ég held bara að þetta sé landinn, ræturnar séu svo djúpar þrátt fyr- ir sífrerann að það þurfi ekki að þiðna nema efsta borðið, þá för- um við að blómstra." Hér verð ég að láta þessu spjalli okkar Sveins lokið en við komum víða við og margt væri enn hægt að segja skemmtilegt eftir þessum ræðna og hressa fjallaverkfræðingi sem smfðar og gengur úti með konunni sinni og hundinunr í fríum. G.Kr. Yeiðar með dragnót eru enn mikið hitamál hjá smábátasjó- mönnum á landinu sem telja þær ógna afkomu sinni og jafn- vel öryggi. Þá er því haldið fram að hlutfall undirmálsfisks sé þar hærra en góðu hófi gegnir. Sjávarútvegsráðherra setur á hverju ári nýjar reglur um veiðar þessar, en núver- andi reglur giltu þó aðeins til 1. júní og er því nýrra reglna að vænta innan skamms. Á síðasta stjórnarfundi í Landssambandi smábátaeigenda var samþykkt að fram færi undir- skriftasöfnun meðal smábátaeig- enda undir yfirlýsingu sem send yrði stjórnvöldum, þar sem segir meðal annars að mikil og almenn óánægja sé með gegndar- lausa ofnotkun dragnótar og nái hún langt út fyrir raðir smábáta- eigenda. í tillögum LS segir að bátum með vél 400 hestöfl og/eða lengri en 20 metrar skuli vera óheimilt að veiða með dragnót innan þriggja sjómílna, en hingað til hafa þær verið leyfðar upp í fjöru víðast hvar. Þá er lagt til að frá áramótum til 1. júlí skuli allar dragnótaveiðar óheimilaðar innan 3 sjómílna. Éinnig er lagt til að dragnóta- veiðum verði skipt niður á sex Leiðrétting Þau mistök urðu í blaðinu í gær að ekki fór saman rétt frétt með fyrirsögn. Á forsíðu var fyrirsögn um hita í smábátaeigendum vegna dragnótaveiða og að veið- arfærastríð væri í uppsiglingu. Með fylgdi síðan alls óskyld frétt um fund sambandsstjórnar Verkamannasambandsins. Þar var að vísu rætt um áhyggjur inn- an þeirra raða um útflutning á ísfiski, en að öðru leyti átti fréttin ekkert skylt með fyrirsögninni. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum, en rétt frétt með réttri fyrirsögn birtist hér á síðunni um smábátaeigendur og drag- nótaveiðarnar. svæði og einungis heimabátum sé heimilt að veiða á viðkomandi svæði. Að sögn Arnar Pálssonar framkvæmdastjóra LS hefur hvað mestur hiti verið þegar bát- ar stunda þessar veiðar langt frá sinni heimahöfn, frekar sé um að ræða samkomulag þegar aðeins heimaaðilar eiga í hlut. „Við ætlum að vera alveg gall- harðir á að tillit verði tekið til þessara tillagna þegar reglur fyrir síðari hluta ársins verða ákveðn- ar,“ sagði Örn í samtali við Dag. Aðspurður hvaða þrýstingi smá- bátasjómenn gætu beitt ef ráð- herra færi ekki að tillögum þeirra sagðist Örn ekki telja ólíklegt að um einhvers konar „skæruhern- að“ yrði að ræða til dæmis á þann hátt að net yrðu lögð dragnóta- bátum til trafala. ET Brynjar Bragason kemur hér siglandi á fullri ferð með þanið segl. Mynd: RÞB Handavinnusýning og kaffisala Sýning á handavinnu heimilisfólks og kaffisala verður í Dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 8. júní (annan í hvítasunnu) kl. 14-16. Velkomin. Við í Hlíð. Sjómannadagnnnn 1987 Þeir sem hafa hug á að taka þátt í róðri og öðrum íþróttagreinum á sjómannadaginn, tilkynnið þátttöku í síma 24391 eða til Hafnarskrifstofunnar. Athugið að róðrarkeppnin fer fram laugardaginn 13. júní og hefst kl. 15.00. hlaut aftur skjöld Páll Pétursson, Katrín .lóelsdóttir verkstjóri, Ámi Guðmundsson fram- kvæmdastjóri og Jón Þorsteinsson verkstjóri. Skjöldur Það var hátíðisdagur hjá starfsfólki og forráðamönnum frystihússins Skjaldar á Sauð- árkróki 27. maí sl. þegar hús- inu var annað árið í röð alhent- ur viðurkenningarskjöldur frá Icelandic Seafood Corporation í Bandaríkjunum fyrir frábæra vöruvöndun og gott hráefni. Af 60 frystihúsunum innan Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna fengu 5 önnur þessa viðurkenningu, þ.á m. frysti- hús Útgerðarfélags Akureyr- inga, og af 3 verksmiðjuskip- um fékk Akureyrin þessa við- urkenningu. Það var Páll Pétursson fram- kvæmdastjóri gæðaeftirlits Ice- landic Seafood sem afhenti Jóni Þorsteinssyni verkstjóra viður- kenninguna og fór hann lofsam- legum orðum um frammistöðu forráðamanna og starfsfólks hússins. Jón beindi þakklæti sínu til starfsfólksins sem hann sagði hafa sýnt mikinn dugnað og þol- inmæði við vinnu sína. Að lok- inni athöfninni þáðu allir við- staddir veitingar í boði Skjaldar í nýrri kaffistofu fyrirtækisins sem tekin hefur verið í notkun. Á síðasta ári voru hafnar endurbætur á frystihúsinu. Verða þær gerðar í áföngum og munu gjörbreyta allri vinnuaðstöðu og að þeim loknum verður húsið sem nýtt. Auk kaffistofunnar verða á næstunni tekin í notkun annar vinnslusalurinn og skrif- stofur fyrirtækisins. -þá Sjómannadagsráð Akureyrar. ★ Borð á svalirnar. ★ Borð í sólskýlið. ★ Borð í garðhúsið. ★ Borð alls staðar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.